Morgunblaðið - 16.02.1996, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996 25
AÐSEIMDAR GREIIMAR
Aðför að Námsfiokkum
Reykjavíkur, fullorðinsfræðslu
og Miðbæjarskólanum
„Sjö -
eða eitt-
hvað svo-
leiðis“
ÞEGAR við sem störfum við
Námsflokka Reykjavíkur heyrðum
fyrst að ætlunin væri að leggja
Miðbæjarskólann, þar sem náms-
flokkarnir eru til húsa, undir skrif-
stofur hristum við höfuðið, brost-
um góðlátlega og sögðum: Það
getur ekki verið, það gera þær
ekki, það er ekki hægt! Svo urðum
við að rífa upp augun — þetta ólík-
indamál er staðreynd. Það er raun-
verulega fyrirhugað að safna sam-
an hinum ýmsu skrifstofum um
skólamál í borginni og setja þær í
Miðbæjarskólann. Þá brá okkur í
brún. Hvað yrði um hinn stóra
nemendahóp námsflokkanna sem
sækir þangað fræðslu, tómstunda-
gaman og líkamlega þjálfun? Og
hvað með Miðbæjarskólann sem
verður 100 ára sem skólahúsnæði
eftir aðeins tvö ár?
Hugmyndin að þessum fárán-
leika er runnin undan rifjum svo-
kallaðrar verkefnisstjórnar sem
borgarstjóri skipaði sl. sumar undir
forystu Sigrúnar Magnúsdóttur
borgarfulltrúa. Það sem verkefnis-
stjórnin hefur hingað til sagt um
málið sýnir í fyrsta lagi að meðlim-
ir hennar þekkja ekkert til starfs
Námsflokka Reykjavíkur og í öðru
lagi skiptir 100 ára gamalt skóla-
húsnæði þá engu máli. Sigrún
Magnúsdóttir hamrar látlaust á því
að þessi aldna skólabyggihg yrði
verðugur rammi utan um skrifstof-
ur um skólamál. Það má vel vera
— ef svo vildi ekki til að húsnæðið
er nú þegar verðugur rammi um
enn mikilvægara verkefni — skóla-
starf, þar sem hátt á annað þúsund
nemendur á önn sækja fræðslu á
mörgum sviðum. Þessi hópur er á
vegum námsflokkanna, en hluti
húsnæðisins er einnig notaður af
öðrum skólum svo heildarfjöldi
þeirra nemenda sem nota skólann
er miklu hærri.
Námsflokkar Reykjavíkur voru
stofnaðir 1939 og hefur starfsemin
aukist ár frá ári. Af því fjölbreytta
námi sem þar er hægt að leggja
stund á má t.d. nefna
almenna flokka af
ýmsu tagi, þar sem
fólk stundar frístunda-
nám sér til andlegrar
og líkamlegrar upp-
byggingar. Þar er
einnig prófadeild bæði
fyrir eldri bekki grunn-
skóla og á framhalds-
skólastigi. í náms-
flokkunum læra út-
lendingar íslensku. í
námsflokkunum eru
námskeið fyrir ófag-
lærða í umönnunar-
störfum í samvinnu við
starfsmannafélagið
Sókn. Þessi upptalning er þó langt
frá því að vera fullnægjandi listi
yfir það fjölþætta námsframboð
sem fer fram á vegum Námsflokka
Reykjavíkur.
I tillögum svokallaðrar verk-
efnisstjórnar hefur komið fram að
það eigi alls ekki að skerða starf
námsflokkanna — bara flytja það
út í hverfin. Þeir sem láta slíkt út
úr sér upplýsa það enn betur að
þeir vita ekki hvað námsflokkarnir
eru. Námsflokkarnir eru mennta-
stofnun eins og hver annar skóli.
Það er ekki hægt að leysa náms-
flokkana upp í einhverjar tilbúnar
frumeiningar og drita þeim út um
alla borgina frekar en að tæta
sundur hvern annan grunnskóla
eða framhaldsskóla. Námsflokk-
arnir eru vinnustaður nemenda og
kennara. Þar ríkir samfélag —
skólasamfélag sem á sér sennilega
fáar, ef nokkrar, hliðstæður í ís-
lensku skólakerfi. Sú hlýja nánd
sem Guðrún Halldórsdóttir skóla-
stjóri hefur skapað í námsflokkun-
um ásamt sínum nánasta sam-
starfsmanni, Þorbjörgu Jónsdóttur
kennara og skrifstofustjóra, er ein-
stök í stofnun á íslandi.
Það væri gott ef svo vel væri að
námsflokkunum búið að þeir gætu
rekið útibú sem víðast um borgina.
Slík útibú geta þó aldrei komið í
stað þess starfs sem
núna á sér stað í Mið-
bæjarskólanum. Þess
misskilnings virðist
gæta hjá verkefnis-
stjórninni að hver nem-
andi námsflokkanna sé
aðeins í einu fagi. Stór
hópur nemenda sækir
tíma í mörgum fögum
— bæði í frístundanámi
og prófadeild — og oft
gerist það að nemandi
byijar í tómstunda-
námi og reynir sig í því
áður en hann stígur
skrefið til fulls og tekst
á við nám í prófadeild.
Hvernig á slíkt að vera mögulegt
ef skólastarfið er í smábitum út um
allan bæ?
Enn er eitt ótalið sem gerir
Námsflokka Reykjavíkur einstaka.
Þörfin fyrir fullorðins-
fræðslu fer sívaxandi.
Jórunn Sörensen
segir það skammsýni
að borgaryfirvöld
skerði starfsemi Náms-
flokka Reykjavíkur.
Það er hinn fjölbreytti nemendahóp-
ur sem stundar þar nám. í náms-
flokkunum stunda nám hópar og
einstaklingar sem eru ólíkir bæði
að menningarlegum og félagslegum
uppruna, ólíkir að getu, þroska og
aídri. í námsflokkunum hittast allir
þessir einstaklingar, þeir ganga inn
um sömu dyr, sitja saman í litlu
nemendakaffistofunni og spjalla. í
námsflokkunum eru menn á jafn-
stöðugrunni. Sá sem ekki sér mikil-
vægi þessa á ekki að koma nálægt
Jórunn Sörensen
skólamálum — eða borgarmálum
yfirleitt.
Námsflokkar Reykjavíkur eru
ekki hús, en þeir þurfa hús. Náms-
flokka Reykjavíkur er hægt að reka
í hvaða stóru skólahúsnæði sem er
— svo fremi að þar sé nóg af góðum
kennslustofum fyrir bóknám,
smíðastofa fyrir hinar ýmsu verk-
legu greinar, eldhús fyrir mat-
reiðslunám, leikfímisalur og sturtur
fyrir upphitun, teygjur og inniþjálf-
un í tengslum við skokkið. Miðbæj-
arskólinn hefur allt þetta. Eftir
aðeins tvö ár hefur verið skóli í
þessu húsi í 100 ár. Stór hluti húss-
ins er enn í upprunalegri mynd. Það
yrði alvarlegt menningarsögulegt
slys ef þessu húsi yrði breytt í skrif-
stofur. Engin skrifstofa er sett upp
nú án gífurlegs tölvu- og fjarskipta-
búnaðar og annars er nauðsynlegt
er talið fyrir nútíma skrifstofuhald.
Þá hef ég ekki enn minnst á þann
ómælda kostnað sem það hefði í för
með sér að breyta húsnæði Miðbæj-
arskólans í skrifstofur. Það er nóg
af tómu skrifstofuhúsnæði í borg-
inni. Þær stofnanir sem samkvæmt
hugmyndum verkefnisstjórnarinnar
eiga að fá inni í Miðbæjarskólanum
eru nú þegar í ágætu húsnæði —
mörgu hveiju nýuppgerðu. Já, það
er til nóg af skrifstofuhúsnæði en
það er bara til einn Miðbæjarskóli.
Ef hann verður eyðilagður verður
það ekki aftur tekið.
Sem skólahúsnæði nýtist Mið-
bæjarskólinn ekki lengur sem
grunnskóli. Hverfið í kringum skól-
ann er ekki lengur fullt af barn-
mörgum fjölskyldum, en því betur
nýtist hann til fullorðinsfræðslu.
Þörfin fyrir fullorðinsfræðslu fer
sívaxandi. Því er það ótrúleg
skammsýni ef núverandi borgaryf-
irvöld ætla sér — nú á ári símennt-
unar í Evrópu — að skerða þá mikil-
vægu fullorðinsfræðslu sem Náms-
flokkar Reykjavíkur reka.
Höfundur er kennari og nemandi
í Námsflokkum Reykjavíkur.
VEGNA framgöngu Seðlabanka-
manna í vaxtaumræðu síðustu
daga, er ástæða til að vekja sér-
staka athygli á eftirfarandi úr grein
Finns Sveinbjörnssonar í Morgun-
blaðinu í gær:
„í lokin er rétt að ítreka að vaxta-
hækkanir banka og sparisjóða má
annars vegar rekja til aðgerða
Seðlabankans í peningamálum sem
hafa miðað að því að hækka vexti
á skammtímamarkaði í því skyni
að draga úr gjaldeyrisútstreymi og
slá á þenslueinkenni og hins vegar
til tímabundinnar hækkunar verð-
bólgu sem stafar af almennum
launahækkunum um siðustu ára-
mót. Vaxtahækkanir banka og
sparisjóða eiga sér því eðlilegar
efnahagslegar skýringar."
Nú er það auðvitað vinsælt mál
að halda því að fólki að hægt sé
að lækka vexti og mannlegt kannski
að pólitíkusar reyni að slá slíkar
keilur, þótt þeim farist það misjafn-
lega, sem engum árangri hafa náð
í fjármálum og peningamálum hins
opinbera, nema stóraukinni skulda-
söfnun.
En Steingrímur Hermannsson,
bankastjóri Seðlabankans, á ekki
lengur heima í'þeim hópij nema
hann sé líka í atkvæðaleit? I viðtali
við Bylgjuna spurði Helgi Már,
fréttamaður, Steingrím hvaða með-
alvexti hann teldi að verðtryggð lán
ættu að bera. Og Seðlabankastjór-
inn var ekki lengi að komast að
vísindalegri niðurstöðu; „... ég teldi
kannski í kringum sjö eða eitthvað
svoleiðis gæti verið miklu eðli-
legra“! (en 9%). Vafalaust á banka-
málaráðherrann eftir að gera þessi
orð gamla foringjans að sínum.
Eins og fram hefur komið stend-
ur til að leggja skatt á sparnað í
bönkum, sem aðallega mun bitna á
öldruðum. Sú skattlagning mun
óhjákvæmilega leiða til samsvar-
andi vaxtahækkunar. Og upplagt
að kenna bönkum um, eins og fyrri
daginn.
Sverrir Hermannsson
formaður St.Rv., hefur margítrekað
að hún hafi ekki orðið vör við neina
óánægju innan félagsins og viti
ekki til þess að neitt sé að. En
ýmislegt er að og margt þarf að
bæta. Við þurfum að hverfa frá því
að það séu örfáir stjórnarmenn sem
taka ákvarðanir fyrir alla félagana
yfir í það að ákvarðanir komi frá
félögunum. Þannig gerum við félag-
ið lýðræðislegra og fáum traustari
undirstöður fyrir stefnu og fram-
kvæmdir þess. Við þurfum að gera
deildirnar virkari þannig að upplýs-
ingastreymið virki bæði frá félög-
unum til stjórnar og frá stjórn til
félaganna. En til þess að ná fram
breytingum þurfa stjórnarmenn og
sérstaklega formaður að hafa frum-
kvæði. Formaður félagsins verður
að heimsækja félagana og trúnað-
armennina á vinnustaðina til að
skapa þau tengsl og þann trúnað
sem þarf að vera á milli deildanna
í félaginu og stjórnar. Þegar trúnað-
armenn deilda koma saman til fund-
ar þá eru þeir fulltrúar í fulltrúa-
ráði sem er, ásamt stjórn, æðsta
ákvörðunarvald félagsins milli aðal-
funda. Ekki á að segja fulltrúum
deildanna að eitt sé lagt til, eða
annað sé ákveðið, forræðishyggj-
unni verður að linna. Fulltrúarnir
verða að fá tækifæri til að koma
undirbúnir til funda og taka þátt í
ákvörðunum á jafnréttisgrundvelli.
Við þurfum að gera nefndirnar
öflugri og sérstaklega þá nefnd sem
sér um kjaramál. Þar þarf að vinna
virkilega vel þann undirbúning sem
til þarf og hafa allt til tímanlega
fyrir næstu kjarasamninga. Það er
eina leiðin til að auka tiltrú al-
mennra félagsmanna en ekkert
vinnst án þess.
Það er umhugsunarvert að horfa
fram á það að þær deildir sem hafa
gengið úr okkar röðum hafa gert
betri samninga en við. Við þurfum
einnig að vera viðbúin og vera vak-
andi yfír því að láta í okkur heyra
ef ráðist er á einhveija félagsmenn,
samanber eins og nú, þegar ráðist
er á þá sem komnir eru á eftirlaun.
Ég og stuðningsmenn mínir hafa
ekki kosningaskrifstofu en heimili
mitt stendur stuðningsmönnum
mínum sem öðrum félagsmönnum
opið á meðan á kosningaslagnum
stendur.
Höfundur er formannsefni upp-
stillingarnefndar.
LAUGAVEGI 20 • SÍIVII 552-5040
FÁKAFENI 52 • SÍMI 568-3919
KIRKJUVEGI 10 • VESTIVl • SÍMI 481-3373
LÆKJARGÓTU 30 HAFNARF. • S. 5655230
\^jpsérvaldir
Valentinoréttir
alla helgina!
atseðill
Grilluð Hámeri á salalbeði
meö bindbcrjavínagrette
Kálfasneið meö túnfisksósu „Al Tonno"
Gufusoðin krceklingur t hvítvíni
með estragonsmjöri
Basilktj’dduð kjúklingabringa í dökkri sftrussósu með
gratineraðri grcenmetis polenta
Bláberjafs fpönnuköku
með bláberjasósu
Matur án drykkjar kr. 2,980.-