Morgunblaðið - 16.02.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 16. FEBRÚAR 1996 35
MINNINGAR
LARA GUÐBJORG
KRISTJÁNSDÓTTIR
+ Lára Guðbjörg
Kristjánsdóttir,
Mávcikletti 12,
Borgarnesi, fædd-
ist að Gerðubergi í
Eyjahreppi 13.
september 1915.
Hún lést 5. febrúar
síðastliðinn í
sjúkrahúsinu á
Akranesi. Foreldr-
ar hennar voru
iijónin Kristján
Lárusson, bóndi,
Miklaholtsseli,
Miklaholtshreppi á
Snæfellsnesi,
fæddur 10. janúar 1879, dáinn
18. febrúar 1955, og kona
hans, Þóra Björnsdóttir, fædd
12. september 1888, dáin 2.
janúar 1968, og áttu þau sjö
börn og eina uppeldisdóttur,
Jóhönnu Emilsdóttur, og var
Lára fjórða í röðinni.
Hin eru Jóhanna Ingveldur,
fædd 27. nóvember 1908, dáin
í september 1919; Alexander,
fæddur 11. september 1910,
d. 31. janúar 1949; Inga Sig-
ríður, fædd 30. júní 1919,
Björn Kristján, fæddur 27.
október 1923, Halldóra, fædd
23. maí 1929, dáin 2. desember
1990.
Lára giftist 1. ágúst 1943
eftirlifandi manni sínum, Þór-
arni Sigurvin Steingrímssyni,
f. 25. september 1909. Foreldr-
ar hans voru Steingrímur
Andrésson, f. 7. september
1874, dáinn 7. júlí 1916, og
kona hans, Sigurborg Þórar-
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesú, í þína hönd,
siðast þegar ég sofna fer,
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Kæra systir og mágkona.
Okkur hjónin langar til að minn-
ast þín fyrir ánægjulegar stundir
sem þú veittir okkur. Þá voru rif-
jaðar upp margar endurminningar
allt frá bernskuárunum.
Fljótlega koma upp í hugann
búskaparár að Hólslandi í Eyja-
hreppi 1944, þar sem þið bjugguð
fyrst. Stutt var á milli bæja að
Seli, þar sem foreldrar og systkini
áttu heima, systir þín minnist
barnsburðar fyrsta barns ykkar,
sem kom í heiminn heima hjá for-
eldrum þínum, síðan var farið með
barnið heim að Hólslandi með lýs-
andi kertaljósi. Mér, mági þínum,
borgarbami og fleirum er þetta
mjög í minni.
Giftingardagur ykkar þegar
séra Þorsteinn Lúter Jónsson gaf
ykkur saman og skírði son ykkar,
Kristján, og barn Þuríðar Briem,
Kristin Guðmundsson. Þetta var
heilladagur í lífi ykkar, sem entist
ykkur Tóta ævilangt og aldrei bar
skugga á.
Þórarinn var mikill og góður
smiður, sem var oft að heiman,
þá sýndi Lára dugnað sinn við að
ala upp börnin ykkar þegar bóndi
hennar var við byggingafram-
kvæmdir víða í héraðinu.
Þau hjónin fluttu árið 1955 að
Gljúfurá í Borgarfirði, sem var í
eigu Fossbergs, þar var gott að
koma til þeirra, en áður. var Gljúf-
urá í eigu föður Þórarins og þótti
insdóttir, f. 12. des-
ember 1868, dáin
25. apríl 1936.
Barnabörn
þeirra eru átján.
Börn Láru og
Þórarins eru:
Steingrímur, f. 1.
ágúst 1939. Fyrri
kona hans var Ingi-
björg Óskarsdóttir,
f. 21. febrúar 1946,
og eiga þau fimm
börn, síðari kona
hans er Fríða
Magnúsdóttir, f. 28.
september 1941.
Kristján, fæddur 22. mai 1943,
kona hans er Hrafnhildur Est-
er Guðjónsdóttir, f. 16. júní
1948, og eiga þau fjögur börn.
Sigurborg, fædd 28. júní 1945,
og á hún einn son með Jóhann-
esi Jóhannessyni. Þóra, fædd
20. marz 1948, maður hennar
Friðjón Gíslason, f. 24. marz
1928, og eiga þau tvö börn, en
fyrir átti Þóra tvö börn. Jó-
hannes, f. 20. marz 1948, kona
hans Veronika Kristín Guð-
bjartsdóttir, fædd 11. desem-
ber 1957, og eiga þau tvö börn.
Jóhanna, fædd 30. ágúst 1949,
maður hennar Jón Kristmund-
ur Halldórsson, fæddur 24. júlí
1948, og eiga þau þrjú börn.
Kolfinna, fædd 28. janúar
1951, maður hennar Þorsteinn
Sigursteinsson, f. 18. septem-
ber 1950, og eiga þau fimm
böni.
Útför Láru fór fram frá
Borgarneskirkju 13. febrúar.
honum sem hann væri að flytja
aftur heim.
Þar bjuggu þau í mörg ár með
stóran barnahóp. Eitt árið komum
við hjónin til þeirra á vörubíl og
þótti þeim báðum að bíllinn gæti
komið sér vel að eignast hann til
flutninga fyrir búið og varð það
úr, við hjónin fórum heim með
rútu.
Þau hjónin höfðu áhuga á að
byggja sér hús á jörðinni Gljúfurá,
vegna þess að gamla húsið var að
niðurlotum komið. Voru þau komin
af stað með grunninn, en því mið-
ur gekk það dæmi ekki upp við
eigendur Gljúfurár.
Að Langárfossi flytjast þau árið
1964, þar byggði Þórarinn upp
hlöðu og fjós og undu þau hag
sínum þar vel en brugðu búi árið
1976 og fluttu til Borgamess þar
sem þau leigðu húsnæði um tíma,
en ekki leið langur tími þar til þau
fengu lóð á Mávakletti 12 og byij-
að var að hefjast handa við bygg-
ingu íbúðarhúss og bflskúrs af
sama áhuga og fýrr. Mikið var
gaman að ganga með Lára út í
garðinn þeirra og hlusta á, þegar
hún talaði við blómin sín, eins og
gerðist í sveitinni forðum, þar sem
hún talaði við dýrin sín. Hún átti
svo mikinn hlýleik og nærgætni
við náungann sem hún sýndi okkur
í verki, eins og mörg böm, sem
dvöldu hjá þeim á sumrin, geta
borið vitni um.
Erfiðleikar hafa sótt þau heim
vegna heilsubrests og báru þau
hann vel. Dóttir þeirra, Sigurborg,
hefur hugsað um þau af kærleik
og dugnaði og öll þeirra börn stutt
þau í hvívetna.
Lára dvaldi í sjúkrahúsi síðustu
daga lífsins, þar sem bóndi hennar
og börn önnuðust hana.
Kæri Þórarinn og böm.
Við vitum að söknuður ykkar
er sár við fráfall konu þinnar, en
minningin um góða konu og móður
mun lifa í hjörtum ykkar.
Við biðjum Guð að blessa þig,
börn þín og tengdabörn, barnaböm
og bamabarnabörn.
Nú er hún laus við þrautir og
biðjum við henni Guðs blessunar.
Við sendum Þórami, börnum
þeirra, tengdabörnum, bamabörn-
um og öðrum skyldmennum
samúðarkveðjur. Það er vissa okk-
ar að hún Lára Guðbjörg er á góð-
um stað, þar sem henni mun líða
vel. Við kveðjum þig með söknuði
og þökkum fyrir allt sem þú gafst
okkur í lífi þínu.
Einnig kveður Björn bróðir þig
og einnig okkar börn og þeirra fjöl
skyldur.
Far þú í friði og Guð geymi þig.
Inga og Guðmundur,
börn þeirra og fjölskyldur.
ALDARMINNING
+
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug
víð andlát og útför sonar míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
BERGS HJARTARSONAR,
Álfaskeiði 94,
Hafnarfirði.
Sérstakar þakkir fá séra Kristján Einar Þorvarðarson og hesta-
mannafélagið Sörli.
Rannveig Wormsdóttir,
Hrafnhildur Bergsdóttir, Þröstur Júlíusson,
Sveinbjörg Bergsdóttir, Egill Strange,
Halldóra Bergsdóttir, Hafsteinn Sævarsson,
barnabörn og systkini hins látna.
Í
Innilegar þakkir fyrir auðsýnd samúð
og hlýhug við andlát og útför systur
minnar,
AUÐAR KRISTÍNAR
GUÐJÓNSDÓTTUR,
Höfðagrund 8,
Akranesi.
Fyrir hönd annarra vandamanna,
Þorbergur Guðjónsson.
Handrit afmælis- og minningargreina
skulu vcra vcl frá gengin, vélrituð eða
tölvusett. Sé handrit tölvusett er æski-
legt, að disklingur fylgi útprcntuninni.
Auðveldust cr móttaka svokallaðra
ASCII-skráa, öðru nafni DOS-texta-
akrár. Ritvinnslukerfin Word og Word-
perfect eru einnig auðveld í úrvinnslu.
Senda má greinar til blaðsins á netfang
þess Mbl@centrum.is en nánari upplýs-
ingar þar um má lesa á heimasiðum.
Það eru vinsamleg tilmæli að lengd
greina fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallinubil og hæfilega
línulengd — eða 3600-4000 slög. Höf-
undar eru beðnir að hafa skirnarnöfn
sín en ekki stuttnefni undir greinunum.
+
Þakka auðsýnda samúð og hlýhug við
andlát og útför sambýlismanns míns,
KRISTJÁNS ODDSSONAR,
Víðivöllum 2,
Selfossi.
Sérstakar þakkir vil ég færa flugklúbb-
um Vestmannaeyja og Selfoss.
UNA
PÉTURSDÓTTIR
+ Una Péturs-
dóttir fæddist á
Sauðanesi í Ásum í
A-Húnavatnssýslu
16. febrúar og
hefði því átt aldar-
afmæli í dag ef hún
hefði lifað. Hún lést
í Reykjavík 23. maí
1993. Móðir hennar
var Sigurlaug Jó-
sefína Jósepsdóttir
gullsmiðs á Akur-
eyri, síðar bónda í
Hamragerði í
Skagafirði og víð-
ar. Hann var sonur
Gríms prests á Munkaþverá og
Barði í Fljótum, Grímssonar
græðara á Espihóli í Eyjafirði
og konu hans Ingibjargar Þor-
valdsdóttur, Gissurarsonar í
Skjaldarvík við Eyjafjörð. Fað-
ir Unu var Pétur Guðjónsson,
Einarssonar bónda í Kárdals-
tungu í Vatnsdal, Einarssonar
í Háhamri i Eyjafirði og konu
hans Guðríðar Jónsdóttur. Una
var eina barn þeirra hjóna.
Una ólst upp á Sauðárkróki.
Hún átti tvo hálf-
bræður, Kristján
Benediktsson tré-
smíðameistara, f.
16. nóvember 1885,
og Valdimar Pét-
ursson bakara-
meistara, f. 10. ág-
úst 1911. Þeir eru
báðir látnir.
Fyrri maður Unu
var Benedikt
Sveinsson, f. 15.
september 1885, og
eignuðust þau þrjár
dætur, Huldu Ingi-
björgu, f. 6. septem-
ber 1916, Elínu Olgu, f. 16.
nóvember 1918, og Unní
Rögnu, f. 7. október 1922. Fyr-
ir átti Benedikt einn son, Svav-
ar klæðskera, tónskáld og
hljómlistarmann, f. 20. maí
1912, d. 3. ágúst 1977.
Seinni maður Unu var Ingþór
Sigurbjörnsson málarameist-
ari, f. 5. júní 1909, d. 27. apríl
1992. Sonur þeirra var Sigur-
björn hljómlistarmaður, f. 17.
júlí 1934, d. 6. júlí 1986.
Mýktu sjúka og sára und
svo ég ylinn finni.
Gef þú mér nú góðan blund,
guð, af miskunn þinni.
(Ingþór Sigurbjömsson.)
Elsku mamma.
Þegar ég hugsa til þín þá finnst
mér svo stutt síðan ég talaði við
þig og við fórum með vísurnar eftir
Ingþór. Þá varst þú 97 ára og nú
tæpum þremur áram seinna hefðir
þú orðið 100 ára.
Þegar ég lít til baka yfir þau 70
ár sem við áttum saman þá hlýnar
mér um hjartarætur. Við vorum
miklar vinkonur og gerðum svo
margt saman. Spiluðum á spil, sung-
um falleg lög sem þú kenndir mér
í æsku og alla tónlistina eftir bræð-
ur mína sem við hlustuðum mikið á.
Við þökkum þér, elsku mamma,
umhyggju og kærleik þinn.
Biðjum þann gott allt sem gefur
greiða þann reikninginn. (I.S.)
Það era forréttindi að alast upp
á Sauðárkróki í huganum og vita
um allt þetta góða fólk og mikla
söngfólk sem söng í kirkjunni á
Sauðárkróki fyrir 80 árum með
móður minni.
í minningunni frá barnsaldri er
fallega útsýnið yfir fjörðinn:
Drangey, Málmey, Þórðarhöfði og
heyra sungið Skín við sólu Skaga-
fjörður.
Þér kæra sendi kveðju
með kvöldstjömunni bli >
Það hjarta sem þú átt
en sem er svo langt þér frá.
Þar mætat okkar augu
þó ei oftar sjáumst hér
ó, Guð minn ávallt gæti þín.
Ég gleymi aldrei þér. (Qestur )
Hvíl í guðs friði.
Þín dóttir,
Unnur Ragna.
+
Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu
samúð og hlýhug við andlát og útför
móður, tengdamóður, fósturmóður og
ömmu okkar,
AUÐAR H. ÍSFELD,
Hrafnistu,
Hafnarfirði.
Haukur ísfeld, Kristin G. ísfeld,
Auður Björnsdóttir, Eva Aasted,
Lárus fsfeld, Jón Haukur ísfeld,
Guðmundur Fjalar ísfeld.
Rósanna Hjartardóttir.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför hjónanna
GUÐLAUGAR GUÐMUNDSDÓTTUR
og
MARTEINS L. HELGASONAR,
Austurgötu 21,
Keflavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurnesja og hjúkrun-
arheimilisins í Víðihlíð, Grindavík. Einnig viljum við þakka séra
Jónu Kristínu Þorvaldsdóttur, sóknarpresti í Grindavik, fyrir mikla
hjálp og alúð.
Kristín Guðmundsdóttir,
Sigurgeir Líkafrónsson.