Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Deildarstjóri
innlendrar
dagskrárdeildar
Sextán
manns
vilja
stöðuna
SEXTÁN sóttu um stöðu
deildarstjóra innlendrar dag-
skrárdeildar Ríkissjónvarps-
ins, en umsóknarfrestur um
stöðuna rann út í síðustu
viku.
Búist er við að Útvarpsráð
veiti umsögn sína um um-
sækjendur á næsta fundi
ráðsins á miðvikudaginn í
næstu viku og útvarpsstjóri
gangi frá ráðningu dagskrár-
stjóra í kjölfarið.
Þeir sem sóttu um stöðuna
eru eftirtaldir: Agnes Johan-
sen, dagskrárstjóri bamaefn-
is á Stöð 2, Ásgeir Valdimars-
son, hagfræðingur, Ásthildur
Kjartansdóttir, kvikmynda-
gerðarmaður, Bryndís
Schram, framkvæmdastjóri
Kvikmyndasjóðs, Einar Valur
Ingimundarson, verkfræðing-
ur, Halldór E. Laxness, leik-
stjóri, Helgi H. Jónsson,
fréttamaður, Helgi Péturs-
son, markaðsstjóri, Hjálmtýr
Heiðdal, kvikmyndagerðar-
maður, Jón Gunnar Grjetars-
son, sagnfræðingur, Óli Öm
Andreasen, kvikmyndagerð-
armaður, Sigurður Hr. Sig-
urðsson, kvikmyndagerðar-
maður, Sigurður Valgeirsson,
ritstjóri Dagsljóss, Sólveig
Pálsdóttir, leikari, Sveinn M.
Sveinsson, kvikmyndagerðar-
maður, og Þorsteinn Jónsson,
kvikmyndagerðarmaður.
Benjamín
dúfa á hátíð
í Malmö
ALÞJÓÐLEG kvikmyndahátíð
bama- og unglingamynda, sem
haldin'er í þrettánda sinn í Malmö
í Svíþjóð, hefst í þessari viku.
Aðstandendur hátíðarinnar fóru
fram á að fá að sýna mynd Gísla
Snæs Erlingssonar, Benjamín dúfa
sem opnunarmynd hátíðarinnar í
dag.
FRÉTTIR
Reykleys-
ið verð-
launað
Tóbaksvarnanefnd og Krabba-
meinsfélagið söfnuðu ösku-
bökkum í samvinnu við Apótek-
arafélagið og íslenska útvarps-
félagið á reyklausum degi í
gær. Oskubökkunum var safnað
í apótekum, sem jafnframt buðu
afslátt af nikótínvörumý og bár-
ust bakkar frá á þriðja hundrað
einstaklinga, að sögn Hrundar
Sigurbjörnsdóttur hjá Krabba-
meinsfélaginu. Skiluðu sumir
fleiri en einum.
Einn þeirra sem kusu að losa
sig við öskubakkann var Stefán
Aðalsteinsson í Reykjavík en
hann orti:
Á öngul þinn ég bitran beit
er barn ég lék að eldi
og öskubakkinn argur leit
i augu mér að kveldi.
Krabbameinsfélaginu barst á
þriðja hundrað yfirlýsinga frá
reyklausum 8.-10. bekkjum
grunnskóla landsins. Sjö reyk-
lausir 8. bekkir og 50 reyklaus-
ir einstaklingar í 9. og 10. bekk
voru verðlaunaðir og hlutu
nemendur í 8. bekkjum sem
dregnir voru til verðlauna
myndskreytta boli. Bekkirnir
eru 8.SI í Réttarholtsskóla, 8.F
Grunnskóla Grindavíkur, 8.ÞÓ
Æfingaskóla KHÍ, 8. bekkur
Stórutjarnaskóla, 8.GR Voga-
skóla, 8.S Verkmenntaskóla
Austurlands og 8. bekkur
Laugagerðisskóla.
Morgunblaðið/Frímann
ÁTTUNDI F í Grunnskóla Grindavíkur var einn sjö reyklausra bekkja í
grunnskólum sem hlutu verðlaunaboli fyrir að reykja ekki.
Fiskveiðideilur
Islands og Noregs
Ráðstefna
í Bodo
JÓN Baldvin Hannibalsson, formað-
ur Alþýðuflokksins, og Kristján
Ragnarsson, formaður LÍÚ, verða
meðal ræðumanna á ráðstefnu Sjáv-
arútvegs- og tækniháskólans í Bodo
í Noregi á morgun, föstudag. Um-
fjöllunarefnið er fiskveiðideilur Is-
iands og Noregs.
Frummælendur og þátttakendur í
pallborðsumræðum verða, auk Jóns
Baldvins og Kristjáns, ýmsir norskir
stjómmálamenn, sérfræðingar og
talsmenn hagsmunasamtaka í sjáv-
arútvegi. Þá munu þeir Þorsteinn
Már Baldvinsson, framkvæmdastjóri
Samherja á Akureyri, og Páll Jóns-
son, fyrrverandi Smugusjómaður og
nemandi við norska háskólann, taka
þátt í pallborðsumræðum.
Morgunblaðið/Eyjólfur Magnússon
HUNDRUÐ fugla urðu svartolíu að bráð um helgina, þeirra á meðal þessi langvia. Þegar svartolían
er búin að vinna sigur á fuglinum ber brimið sandbreiðu að landi sem afmáir verksummerkin.
Hundruð fugla verða
svartolíu að bráð
Á ANNAÐ hundrað olíublautra
fugla fannst í fjörunni milli
Skaftárósa og ósa Eldvatna síð-
astliðinn mánudag og er um
svartolíumengun að ræða, að
sögn Eyjólfs Magnússonar, deild-
arstjóra hjá Hollustuvernd ríkis-
ins. Flestir fuglanna, aðallega
langvía og fýll, reyndust dauðir
að Eyjólfs sögn.
Hollustuverndinni barst tilkynn-
ing frá sýslumanninum í Vík á
mánudag en þá höfðu bændur af
Meðallandi gengið fram á fjölda
olíublautra fugla milli Skaftárósa
og Skarðsfjöruvita. Einnig spurð-
ist til fugla í sama ástandi í fjör-
unni fyrir neðan Vík.
Enginn olíuflekkur
Eyjólfur segir að flogið hafi
verið yfír sjó við fyrrnefndar fjörur
og fimm sjómílur frá landi en eng-
inn olíuflekkur hafi fundist.
Starfsmaður frá Hollustuvernd fór
á vettvang á þriðjudag og segir
Eyjólfur að þá hafi fundist um 30
dauðir fuglar og fjórir lifandi. Var
vargur búinn að éta allt kjöt af
hræjunum.
„Olíunni hefur örugglega verið
dælt frá skipi og fuglinn synt inn
í flekkinn. Þegar hann fær olíuna
á sig fer hann að landi til að reyna
að hreinsa sig,“ segir Eyjólfur.
Niðurstöður rannsóknanna bárust
í gær og segir Eyjólfur að kannað
verði hvaðan olían geti verið kom-
in. Vill Hollustuvemd árétta enn
einu sinni, eins og tekið var til
orða, að sjófarendur hætti að dæla
olíu í sjóinn og skaða umhverfið.
Húsafriðunarnefnd ríkisins samþykkir að friða innra skipulag Miðbæjarskólans
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
FRIÐA á herbergjaskipan Miðbæjarskólans.
Innviðir fari við útlit
HÚSAFRIÐUNARNEFND ríkis-
ins hefur samþykkt að undirbúa
friðun innra skipulags Miðbæjar-
skóla. Magnús Skúlason, fram-
kvæmdastjóri Húsafriðunarnefnd-
ar, tekur fram að innra skipulag
og ytra útlit spili saman og ytra
útlit hússins sé friðað. Hafíð sé
samráð við Húsafriðunarnefnd í
tengslum við fyrirhugaðan flutn-
ing Fræðslumiðstöðvar Reykja-
víkur í húsið. Starfsemi Náms-
flokka Reykjavíkur verður áfram
rekin í hluta hússins.
Magnús sagði að Miðbæjarskól-
inn væri elsta barnaskóiahúsið í
Reykjavík. „Innra skipulag hefur
verið eins frá upphafi og því ákjós-
anlegt að hrófla ekki við her-
bergjaskipan. Þá spila innra
skipulag og ytra útlit auðvitað
saman. Húsið er friðað að utan
og inni eru gangar og skólastofur
hvern með sinn fjórskiptan
gluggann. Ef farið er að hræra í
því yrði ytra útlitið einnig fyrir
skaða,“ sagði Magnús.
Mikilvægt að einhver
starfsemi fari fram í húsinu
Hann sagði að nefndin hefði
ekki vald til að skipta sér af því
hvers konar starfsemi færi fram
í húsinu. „Æskilegt væri að þar
væri skólastarfsemi, en mikilvæg-
ast er að einhvers konar starfsemi
fari fram í húsum sem við viljum
varðveita."
Magnús sagði að samráð vegna
breytinganna væri hafið. Hann
hefði ásamt Þorsteini Gunnars-
syni, formanni nefndarinnar, sótt
undirbúningsfund með byggingar-
deild Reykjavíkurborgar og fleir-
um. „Á fundinum voru viðraðir
möguleikar á að setja upp einhvers
konar milliveggi til að skipta skóla-
stofum í skrifstofur. Við viljum
helst ekki sjá milliveggi heldur
finnst okkur eðlilegra að notast sé
við skilrúm. Annars staðar í húsinu
mætti koma fyrir viðtalsherbergi,“
sagði Magnús og tók fram að enn
væri ekki ljóst hvað þyrfti að skipta
mörgum stofum. Fleiri breytingar
þyrfti að gera, t.d. koma fyrir lyftu
og salemisaðstöðu fyrir fatlaða.