Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Opinber nær-
ÞIÐ verðið ekkert gerðir ábyrgir fyrir þessum 22 milljörðum strákar. Ég læt bara hana
Ingibjörgu okkar bæta brókarskatti við á sjúka og aldraða.
Fyrstu skriflegu samningarnir um leigu á prestssetrum
Leiga verði 2 - 3% af
fasteignamatinu
ODDI á Rangárvöllum.
STJÓRN Prestssetrasjóðs ætlar að
ráða lögfræðing til að vinna að
gerð fyrstu skriflegu leigusamn-
inganna fyrir prestssetur á land-
in'u. Ragnhildur Benediktsdóttir,
skrifstofustjóri Biskupsstofu, segir
að farið verði eftir starfsreglum
stjómar Prestssetrasjóðs við gerð
leigusamninganna.
Starfsreglurnar gera ráð fyrir
að árlegt afgjald prests nemi 2%
af fasteignamati íbúðarhúss og 3%
af fasteignamati annarra mats-
hluta prestssetursins. Um lækkun
afgjalds í sérstökum tilvikum er
sérstaklega íjallað í starfsreglun-
um.
í 6. grein segir að stjóm prests-
setrasjóðs geti að ósk prests lækk-
að afgjald fyrir prestsetur þegar
aðeins hluti prestsseturs getur nýst
presti af ástæðum honum óviðkom-
andi eða ef greinilegt sé að fast-
eignamat prestsseturs sé hærra en
nýtingarmöguleikar eða arðsemi
þess.
Aðrar ástæður fyrir lækkun
geta verið ef breytilegur rekstrar-
kostnaður prestsseturs er hærri en
eðlilegt getur talist miðað við sam-
bærilegar fasteignir eða ef sérstakt
álag er á prestssetri sem leiðir til
sérstakra skyldna eða umönnunar
við jörðina eða staðinn. Að lokum
er gert ráð fyrir möguleikanum á
því að leiga sé lækkuð vegna lög-
legra leyfa.
84 prestsetur á landinu
Ragnhildur sagði að eðlilegt
hefði verið talið að gera skriflega
leigusamninga eða svokölluð
haldsbréf um leigu presta á prests-
setmm enda væri sá háttur hafður
á vegna leiguhúsnæðis nú á dög-
um. Um er að ræða nokkuð viðam-
ikið verkefni því 84 prestssetur em
á landinu öllu. Prestssetrasjóður
hefur þegar látið útbúa haldsbréf
fyrir prestssetur í þéttbýli og eru
prestarnir með samningana til at-
hugunar. Stjórnin hefur svo ákveð-
ið að fá lögfræðing til liðs við sig
til að ljúka samningsgerðinni og
er stefnt að því að henni verði lok-
ið fyrir næstu áramót.
Ragnhildur sagði að enn væri
ekki komið í ljós hversu miklar
breytingar á leigukjömm samning-
amir hefðu í för með sér en búast
mætti við að hjá einhverjum hækk-
aði leigan.
Ekki algilt
Guðmundur Þór Guðmundsson,
formaður stjórnar Prestssetra-
sjóðs, sagði að ekki yrði hreyft
við leigukjörum presta sem hefðu
tekið við núverandi prestssetrum
sínum fyrir gildistöku laga um
íbúðarhúsnæði í eigu ríkisins frá
1. janúar árið 1969. Prestunum
hefði verið lofað að lögin hefðu
ekki áhrif á leiguna og ekki yrði
heldur hróflað við henni nú. Hann
sagði að aðeins væri um sárafáa
menn að ræða og þegar nýir prest-
ar tækju við yrðu þeir látnir greiða
leigu samkvæmt nýju reglunum.
Hann tók fram að þessir aðilar
hefðu oftar en ekki sinnt ríkara
viðhaldi á eigin reikning en aðrir.
Eins o g áður segir miðast leigan
við fasteignamat og tekur fast-
eignamatið m.a. mið af arðsemi
eignarinnar, t.d. hlunnindum ýmiss
konar. Leigan verður því hærri
eftir því sem hlunnindin á jörðinni
eru meiri.
Iþróttamaður Reykjavíkur 1995
Yonandi hvatn-
ing fyrir stelpur
GuðríAur Guðjónsdóttir
GUÐRÍÐUR Guð-
jónsdóttir hand-
knattleikskona og
þjálfari Fram hefur leikið
485 leiki með meistara-
flokksliði félagsins og verið
einn aðal burðarás þess
síðastliðin tuttugu ár. Þá á
hún að baki 84 landsleiki
I handknattleik auk þess
að vera markvörður
kvennaiandsliðsins í knatt-
spyrnu í sjö fyrstu land-
sleikjum þess. Guðríður lék
knattspymu með Fram og
Breiðabliki allt til ársins
1986 að hún lagði takka-
skóna á hilluna. Guðríður
hefur tólf sinnum orðið ís-
landsmeistari innanhúss
með meistaraflokki Fram
og tíu sinnum bikarmeist-
ari. Hún hafði sagt skilið
við landsliðið í handknatt-
leik fyrir nokkru er hún
svaraði kalli landsliðsþjálfarans í
vetur og lék gegn Rússum. í þeim
leik sleit Guðríður krossbönd í hné
og hefur verið frá æfingum og
keppni síðan.
Hvaða þýðingu hefur þessi
viðurkenning, Iþróttamaður
Reykjavíkur, fyrir þig?
„Hún segir mér að ég hafí á
undanförnum árum verið að vinna
gott starf og þegar litið er aftur
er verið að verðlauna frammistöðu
mína undanfarin ár fremur en síð-
astliðið ár sérstaklega. Ég er mjög
stolt af þessari viðurkenningu og
hún kom mér mjög á óvart og er
tvímælalaust mesti heiður sem ég
hef fengið. Þá er þetta ekki síður
heiður og viðurkenning fyrir
kvennahandknattleik hér á landi.
Óskandi er að þetta verði einnig
hvatning fyrir yngri steípur að
stunda íþróttir."
Fylgir þessari nafnbót einhver
kvöð svo sem að kynna íþróttir
fyrir ungmennum?
„Nei, það gerði það ekki. Nafn-
bótinni fylgir veglegur bikar og
peningaupphæð sem rann til hand-
knattleiksdeiidar Fram.“
Móðir þín, Sigríður Sigurðar-
dóttir, var landsliðsmaður í hand-
knattleik og önnur tveggja kvenna
sem hafa verið útnefndar íþrótta-
maður ársins. Varð sú útnefning
til að hvetja ykkur systurnar þrjár
til að leggja stund á íþróttir?
„Að sjálfsögðu var það. En ekki
síður faðir minn, Guðjón Jónsson.
Þau voru bæði á kafí í handknatt-
leik og pabbi var reyndar líka í
knattspyrnu. Við lá að ég færi á
fyrstu æfínguna er ég var í vöggu
og þess vegna kom ekkert á óvart
að ég fetaði sömu braut.“
Nú meiddist þú illa í hné í lands-
leik á dögunum, hvert verður fram-
haldið hjá þér í handboltanum?
„Það verður tíminn að leiða í
ljós. Allt þar til í fyrra að ég sleit
liðbönd í fíngri hafði ég
sloppið nokkuð áfalla-
laust í gegnum minn
feril. En tvo síðustu
vetur hef ég verið
óheppin. Ljóst er að
fímm til sex mánuðir munu líða
áður en ég get farið að beita mér
af alvöru. Eg hef verið að gera
grín að því að ég hef tvisvar sinn-
um gefið út yfirlýsingu um að ég
væri hætt, en byrjað fljótlega aft-
ur. Þannig að ég vil ekkert gefa
út um framhaldið."
En löngunin er alltaf til staðar?
„Já, það er hún. Okkur hefur
líka gengið vel í vetur. Andrúms-
loftið er gott í handboltanum og
þar á ég marga vini. Starfíð í
kringum meistaraflokk kvenna hjá
Fram hefur verið yndislegt með
góðu fólki eins og Sigurði Inga
Tómassyni formanni meistara-
flokksráðs kvenna, Jóhönnu Hall-
dórsdóttur, Guðríði Halldórsdóttur
►Guðríður Guðjónsdóttir var í
síðustu viku útnefnd íþrótta-
maður Reykjavíkur fyrir árið
1995. Hún er þjálfari og leik-
maður 1. deildar liðs Fram í
kvennahandknattleik. Guðriður
er 34 ára, gift Hauki Þór Har-
aldssyni og eiga þau tvö börn,
Guðjón 10 ára og Sigríði 4 ára.
Guðríður er íþróttakennari við
Fjölbrautaskólann í Ármúla og
hefur verið þar í rúm tíu ár.
og Kristínu Orradóttur. Þessi hóp-
ur hefur starfað með okkur í vetur
og í fyrravetur og unnið mikið og
óeigingjarnt starf. Það gefur okkur
í liðinu mikið að vita af þessu fólki
með okkur. Félagsskapurinn hefur
haldið mér gangandi. Fram er með
elsta liðið í deildinni og sagt er
að það sé svo gaman hjá okkur
að stelpumar komi aftur þótt þær
fari í barnsburðarleyfi, ólíkt því
sem víða er. í Framliðinu eru
mæður fímmtán barna, þar af eru
sex konur sem eiga tvö börn hver.
Þetta fínnur þú ekki í öðrum félög-
um. Þá hefur velgengnin að sjálf-
sögðu skipt máli. Við höfum verið
sigursælar og þess vegna hefur
verið erfíðara að slíta sig frá fé-
lagsskapnum."
Er kvennahandknattleikurinn á
uppleið eða stendur hann í stað?
„Unglingastarfið er öflugra hjá
félögunum en oft áður. Eg hef
reyndar verið svo lengi að ég hef
horft á uppbyggingu á unglinga-
landsliðunum í þrí- eða fjórgang.
Það hefur verið byrjað af krafti og
öll landslið starfað og svo einhverra
hluta vegna hefur allt hrunið nema
A-landsliðið. Þannig gengur þetta
ekki upp til lengdar. Árið 1988
þegar við áttum sterkasta kvenna-
landslið sem við höfum átt, að mínu
mati, voru öll unglingalið í gangi.
Þá var mikið að gerast. Er Slavko
Bambír, sem þjálfaði öll
þessi lið, hætti hrundi
allt. Erla Rafnsdóttir tók
við eldra liðinu nokkru
síðar en þá var ekkert
starf hjá yngri liðunum.
Nú er Kristján Halldórsson lands-
liðsþjálfari og öll yngri liðin eru að
æfa. Nú eigum við fullt af góðum
stelpum í átján ára landsliðinu og
þeim verður að halda við efnið og
skapa verkefni. A-liðið verður að
vera til staðar, en ef yngri liðin
verða lögð niður geta menn alveg
eins flautað A-liðið af um leið.
Brottfall stúlkna úr handknattleik
hefui' verið mikið undanfarin ár og
í vetur eru aðeins tíu lið á íslands-
mótinu í öðrum flokki kvenna og
mörg þeirra eingöngu skipuð leik-
mönnum úr þriðja flokki. Ef félög-
unum og HSÍ tekst að halda utan
um þann hóp verður hægt að
byggja upp gott kvennalið hér með
tímanum."
Mesti heiður
sem ég
hef fengið