Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 13 LANDIÐ Flateyringum sýndur góðhugur með gjafafé frá Kiwanis Flateyri - í síðastliðinni viku komu félagar í Kiwaniskiúbbnum Þorf- inni á Flateyri saman. Tilefni fundarins var sú ákvörðun Kiwanis- klúbba bæði hérlendis og erlendis að styðja við bakið á Flateyringum með gjafafé. Til að af- henda gjafaféð voru mættir Stefán R. Jóns- son umdæmisstjóri Kiw- anisumdæmis íslands og Færeyja og Ömólfur Þorleifsson kjömm- dæmisstjóri. Ákveðið var að hvetja alla Kiwanisklúbba til að láta fé af hendi rakna. Og Kiwanisfé- lagar létu ekki sitt eftir iiggja. Alls söfnuðust 1.894.500 í íslenskum krónum. Auk þessa framlags hafa sumir klúbbar greitt beint í söfnunina um 500.000 kr. Samtals höfðu því safn- ast 2.400.000 kr. í söfnuninni. Þetta kom fram í ræðu sem Stefán. R. Jóns- son umdæmisstjóri Kiwanisumdæmis íslands og Færeyja hélt þegar hann afhenti þessa rausnarlegu gjöf fyrir hönd Kiwanisfélaga. Magnea Guðmundsdóttir oddviti veitti gjafabréfinu viðtöku. Það kom fram í ræðu Stefáns að gjafafénu eigi að veija í kaup á leiktækjum jafnt úti sem inni í leikskólanum á Flat- eyri. Ef um afgang verður að ræða á að veija þeim peningum til kaupa á íþróttatækjum í nýja íþróttahúsið sem bráðlega verður tekið í notkun. Að lokum lét Stefán þess getið að það væri ánægjulegt að vera í forsvari fyrir hreyfingu sem tekur að sér svona verkefni, að safna til þeirra sem þess þurfa með og einnig um leið að láta gott af sér leiða. Að lokinni ræðu Stef- áns flutti Magnea Guð- mundsdóttir oddviti ræðu. í ræðu hennar kom fram að þrátt fyrir þessar hörmungar sem dunið hefðu yfir, hefðu Flateyringar fundið fyrir svo miklum velvilja og stuðningi bæði hér og víða erlendis að þetta hleypti þrótti í samfélag- ið og kæmi fram í auk- inni bjartsýni á fram- haldið. í ræðu hennar kom einnig fram að frá Færeyingum hefðu borist 27 milljónir íslenskra króna í söfnun sem þeir héldu eftir flóðið. Þessir peningar eiga að fara í byggingu nýs barnaheimilis. Að lokinni ræðu afhenti Magnea umdæmisstjóra Kiwanisumdæmis ís- lands og Færeyja smágjöf í þakkar- skyni. Gjöfm ei-u tveir steinar sem komu niður með flóðinu á tjaldstæð- ið, sem var á sínum tíma laust við steina. Steinar þessir eiga að tákna þau brot sem Flateyringar þurfa að raða saman eftir flóðið og um leið mynda þeir grunn að brotunum sem þarf að raða á í komandi framtíð. Magnea Guð- mundsdóttir veitti gjafafénu móttöku úr hendi Stefáns R.-. Jóns- sonar umdæmis- stjóra Kiwanis- umdæmisins. HÉR sjást hinir brosmildu sjálfboðaliðar Björgunarsveitarinnar Sæbjargar innan um dósafenginn sem þeir hafa safnað saman af miklu kappi og eldmóð. Þess má geta að Flateyringar eiga staðfest met frá Verksmiðjunni Vífilfelli, að drekka manna mest af gosdrykkjum og þá aðallega Coca-Cola. Morgunblaðið/Sigurgeir Jónasson ÞRÍR ættliðir pípulagningamanna, sem starfa við Miðstöðina. Sigursteinn Marinósson, Marinó Sigursteinsson og Bjarni Olafur Marinósson ásamt Marý Kolbeinsdóttur, eiginkonu Marinós, sem sér um afgreiðslu í versluninni. Þrír ættliðir pípulagninga- manna Vestmannaeyjuin - Miðstöðin, pípulagnaþjónusta og verslun, flutti starfsemi sína fyrir skömmu af Faxastíg, þar sem hún hefur verið til húsa í áraraðir, að Strand- vegi 65. Miðstöðin var stofnuð af Marinó Jónssyni, föður Sigursteins, sem í dag rekur Miðstöðina ásamt syni sínum, Marinó. Sigursteinn hóf vinnu við pípulagnir árið 1946 og á því 50 ára starfsafmæli á þessu ári. Marinó sagði í samtali við Morgunblaðið, að hann væri bjart- sýnn á að reksturinn gengi vel á nýjum stað og hann vonaðist til að með tilkomu nýja húsnæðisins gæti Miðstöðin bætt þjónustu sína við Eyjabúa enn frekar. Lífeyrissjóður sjómanna MEGIN- NIÐURSTÖÐUR ÁRSREIKNINGS LÍFEYRISSJÓÐSINS 1995 ásamt upplýsingum um starfsemi sjóðsins á árinu Á árinu 1995 greiddu 1.152 launa- greiðendur iðgjöld til sjóðsins fyrir 7.099 sjóðfélaga. í árslok 1995 voru á skrá hjá sjóðnum samtals 33.726 ein- staklingar. f stjórn sjóðsins árið 1995 voru: Bjarni Sveinsson Guðjón Jónsson Guðmundur Ásgeirsson Guðmundur Hallvarðsson Gunnar I. Hafsteinsson Þórhallur Helgason Framkvæmdastjóri sjóðsins er Árni Guðmundsson. Efnahaqsreikninqur 31.12.1995 í þús. kr. Veltufjármunir ............................4.631.055 Skammtímaskuldir ...........................-155.160 Hreint veltufé ............................4.475.895 Fastafjármunir Skuldabréf .........................17.327.430 Hlutabréf...............................94.913 Erlend verðbréf .......................429.700 Varanleair rekstrarfiármunir ...........42.442 Hrein eian til areiðslu lífevris ...22.370.380 Ýmsar kennitölur: Lífeyrir sem hlutfall af iðgjöldum.............42.9% Kostnaður sem hlutfall af iðgjöldum............2.58% Kostnaður sem hlutfall af eignum ............0.18% Raunávöxtun m.v. lánskjaravísitölu ............6.80% Meðalraunávöxtun síðustu 5 ára ................7.18% Verðbréfakauo 1995: I þús. kr. Húsbréf....................................1.725.080 Skuldabréf banka og sparisjóða ..............904.328 Fjárfestingalánasj. atvinnuveganna ..........482.858 Erlend verðbróf .............................352.971 Skuldabréf bæjar- og sveitafélaga............339.334 Ríkisbréf ...................................210.154 Veðskuldabréf ...............................192.934 Skuldabréf sjóðfélaga ......................171.070 Skuldabréf fyrirtækja .......................118.761 Hlutabréf .................................. 29.870 Samtals kr. .........................4.527.360 Yfirlit um brevtinqar á hreinni eiqn til greiðslu lífevris fvrir árið 1995 [ þús. kr. Fjármunatekjur, nettó .......................1.073.693 Iðgjöld .....................................1.441.279 Lífeyrir .....................................-618.664 Kostnaður (rekstrargjöld-rekstrartekjur)......- 37.201 Matsbrevtinaar.................................654.881 Hækkun á hreinni eign á árinu................2.513.988 Hrein eian frá fvrra ári ...................19.856.392 Hrein eian í árslok til greiðslu lifevris . .22.370.380 Lífevrisqreiðslur 1995: í þús. kr. Örorkulífeyrir ................................287.921 Ellilífeyrir ..................................222.212 Makalífeyrir ...................................72.874 Barnalífevrir ..................................37.401 Samtals kr. ............................620.408 Verðbréfaeiqn 31.12.1995: í þús. kr. Húsbréf......................................8.146.473 Skuldabréf Húsnæðisstofnunar ................5.279.243 Skuldabréf banka og sparisjóða ..............2.264.256 Spariskírteini ríkisins......................1.724.020 Skuldabréf sjóðfélaga........................1.469.719 Skuldabréf bæjar- og sveitafélaga ............951.096 Fjárfestingalánasjóður atvinnuveganna..........833.021 Ríkisbréf .....................................456.587 Erlend verðbréf .............................429.700 önnur markaðsskuldabréf........................252.411 Skuldabréf fyrirtækja .........................183.314 Hlutabréf ....................................94.913 Samtals kr. .........................22.084.753
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.