Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ LISTIR FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 25 Geislandi listfengi TONLIST Gcrðarsafn LJÓÐATÓNLEIKAR Sigriður Ella Magnúsdóttir og Gerrit Schuil fluttu söngverk eftir Mozart, Beethoven, Schubert, Wolf, Thomas og þjóðlagaraddsetningar eftir Britten og Obrador. Sunnudagurinn 17. mars, 1996. ÞAÐ er nokkuð langt síðan Sigríð- ur Ella söng hér síðast, að minnsta kosti er það vel munað, að hún hefur ekki nýlega haldið tónleika hér heima. Tónleikarnir hófust á söngvum eft- ir Mozart, Komm lieber Mai (1791) og Die Verschweigung (1787), lögum sem gerð eru undarlega einföld en seiðmagnaðar tónsmíðar og voru þær fluttar af miklum innileik. Á sama hátt og Mozart, stóð Beethoven við upphaf „Lieder“ söngsins og bera sönglög þessara meistara sterk merki al- þýðu söngsins, þó lagið við Mignon ljóð Goethes, eins og það birtist í „Sex söngvum" gefnum út 1810, hafi aðeins stærri svip og einnig Ich liebe dich, samið 1795. Skil klassískrar og rómantí- skrar tónsetningar er að finna í verkum Mend- elssohns og er Gruss við hina undurfögru kveðju eftir Heine, eitt af því einfaldasta og um leið það sem tærast þekkist í sönglagagerð. Seinna lagið eftir Mendelssohn var Neue Liebe, Ijóðið einnig eftir Heine og er það til í fijálslegri þýð- ingu Jónasar Hallgríms- sonar (Stóð ég úti í tunglsljósi). Bæði lögin, gefin út í Sex söngvum árið 1833, voru afburða fallega flutt. Þrátt fyrir að Lieder hefðin sé talin hafa náð nokkurri reisn hjá P.E. Bach er það fyrst hjá Schubert sem þessi listhefð nær að blómstra og í raun var frumlegt fram- lag Schuberts með þeim hætti, að kalla má, að hann sé í raun skapari Lieder söngsins. Þegar hann semur sína söngva var ljóðatúlkun hans al- ger nýjung, sem fáir skildu, jafnvel ekki vinir hans og enn færri kunnu að flytja þessa tónlist. Að syngja Schubert er sér listgrein, þar sem hvorki má gera of né van, því túlkun- in er fólgin í lagferlinu og undirleikur- inn er með þeim hætti samofin lagi og efni, að ekki má útfæra hann sem eftirhermu-túlkun, heldur eitthvað sem aðeins er gefið í skyn og leika þarf inn í sjálft sönglagið. Þessa list kunnu Schumann og Brahms og lærðu hana reyndar af Schubert. Sigríður Ella og Gerrit fluttu fjögur lög eftir Schubert, Lied der Mignon, Fischerweise, Im Frúhling og Standc- hen. Mignon ljóð Goethes var sérstakt viðfangsefni tónskálda og er sagt að Goethe hafi talið Beethoven misskilja kvæðið. Flestir eru sammála um að tónsetningin eftir Hugo Wolf, sem var einnig flutt á þessum tónleikum, sé glæsilegasta Mignon lagið, þrátt fyrir að Wolf hafí verið gagnrýndur fýrir of mikið tónskraut þar. Það sem er sérkennilegt við Mignon lag Schu- berts, er að margt rninnir þar á lag- gerð Beethovens, er varðar tónteg- undaskipan, hraðabreytingar og tón- hugmyndir, enda þekkti Schubert lag Beethovens, sem var gefið út 1810. Fischerweise og Im Frúhling eru glæsilegar tónsmíðar og Im Frúhling er eitt af þeim lögum sem Schubert notar í öðrum verkum en stefform þess notar hann í lokakafla einnar af síðustu píanósónötunum, A-dúr sónötunni. Síðasta lagið eftir Schu- bert var sungið 'með aðstoð sjö ein- söngvara og voru þar á ferðinni Erla Berglind Einarsdóttir, Björk Jóns- dóttir,_ Signý Sæmundsdóttir, Mar- grét Oðinsdóttir, Soffía Karlsdóttir, Þuríður Baxter og Matt- hildur Matthíasdóttir. Lagið heitir Stándchen og er af því nokkur saga. Sagt er að Louise Gosmar, sem lærði söng hjá Önnu Fröhlich er kenndi við konsertor- íuna, hafi beðið Grillp- arzer að yrkja ljóð, sem Schubert var svo beðinn að tónklæða. Schubert brást vel við og samdi tónverk fyrir altrödd, karlaraddir og píanó. Eftir að Anna hafði * minnt Schubert á að hún hefði ekki karlnemend- ur, breytti hann verkinu fyrir kvennakór og var verkið svo flutt á al- mennum tónleikum hjá Fílharmoníska félaginu. Eftir að hafa hlýtt á flutning verksins á Schubert að hafa sagt: „Ja, hérna, Ekki vissi ég að þetta væri svona fallegt." Þetta er rétt hjá Schubert og var auk þess mjög fallega flutt. Það er einhver sér- kennilegur galdur þræddur inn í tónmál Wolfs, svo sem heyra mátti í söngverkunum In der Frúhe, Nimmers- ate Liebe og að ekki sé talað um meistaraverk- ið, Lied der Mignon. Fjórða Mignon lagið sem þau fluttu er eftir Ambroise Thomas, aría úr óperunni Mignon. Tónleikunum lauk með frönskum hjarðljóðum, og þjóð- lögum í raddfærslu Brittens og Obradors. Þegar rætt er um flutning tónlist- ar hjá listafólki eins og Sigríði Ellu og Gerrit Schuil er í raun vart hægt að ijalla um hvort fyrir sig, til þess er hlutverk píanós, sönglínu og texta svo samofið, að eitt er í raun ekki til án annars, sérstaklega í ljóðasöng og reyndar einnig í þjóðlaga radd- færslunum. Það sem einkennir sér- staklega frábæran leik Gerrits, er að leikur hans verður aldrei sér- greindur undirleikur, hann leikur sig inn í sönglagið. Sigríður Ella Magn- úsdóttir gerði það sama, söng sig inn í hljóðumgerð píanósins og því varð flutningurinn í heild mikil list, hvort sem túlkunin átti sér dapurlega eða glaðlega hljóðvist, eins t.d í þjóðlög- unum um Oliver Cromwell (Britten) eða í E1 vito (Obradors). Af Lieder lögunum voru Gruss eftir Mend- elssohn og öll lögin eftir þá Schubert og Wolf stórkostlega vel flutt og hápunktur tónleikanna. Jón Ásgeirsson / Sigríður Ella Magnúsdóttir Gerrit Schuil Amerísku heilsudýnurnar Mikið úrval af Ameriskum rúmgöflum og svefnherbergis- húsgögnum íslensku, Amerísku og Kanadisku Kírópraktorasamtökin setja nafn sitt við og mæla með Springwall Chíropractic 1 yinrúnö- Nú er upplagt að fá sér miða og vera með I á föstudag ag hOtjðU SVO'. Mundu... Skafðu fyrst og horfðu svo! ...að skila afrifunni af Happ í Hendi miðanum á næsta sölustað ef þú færð þrjú merki Sjónvarpsins. Þá áttu möguleika á fjölda vinninga í þættinum hjá Hemma og hver veit nema þú takir þátt í risaskafinu og vinnir uÁBaasm milljón króna. wmw Fylgstu með Happ í Hendi leiknum á Rás 2 alla virka daga milli kl. 11 og 12. Þar áttu líka kost á vinningum. IhJejlectric japiss Happ I Hendi f*st í næstu sjoppu og á bensínstö^vum um land allt.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.