Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 36
36 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Óupplýst úthlutunarnefnd eigin heimsku og þvermóðsku. í framhaldi af því var krafa mín stað- fest af stjórn sjóðsins án þess að leitað væri eftir frekari rökstuðningi af minni hálfu enda ekki ástæða til þar sem öll gögn mín lágu fyrir og ÞANN 13. desember 1993 þurfti ég, undirritaður, að leita til umboðs- manns Alþingis með mál sem varð- aði úthlutunarnefnd Iðju, félags verksmiðjufóiks, og stjórn Atvinnu- leysistryggingarsjóðs. Ástæðan var sú að þann 20. janúar sama ár var réttur minn til atvinnnuleysisbóta felldur niður hjá Iðju, auk þess var stjórnsýsluréttur um andmælarétt brotinn á mér. Rökin fyrir ákvörðun úthlutunarnefndar Iðju að fella nið- hr bótarétt minn voru þau að ég átti að hafa hafnað vinnutilboði fyr- ir milligöngu Iðju, sem mér bauðst ásamt 8 öðrum Iðjufélögum. í vinn- utilboðinu var skýrt tekið fram að svara ætti „strax“ og hafa ætti sam- band við tiltekinn verkstjóra og hafði ég samband við hann samdæg- urs. í framhaldi af því hafði ég sam- band við Hildi Kjartansdóttur, starfsmann hjá Iðju, og lét hana vita að ég hefði sinnt umræddu vinn- utilboði en tjáði henni jafnframt að ég væri ósáttur við hvemig að vinnutilboðinu væri staðið og áttum við nokkur orðaskipti út af því. Þann 3. febrúar 1993 ætlaði ég svo að sækja bætur mínar hjá Iðju þar sem ég hafði ekkert heyrt meira í sambandi við vinnuna. Ég hitti þar fyrir umræddan starfsmann hjá Iðju sem upplýsti mig um það að ég hefði ekki sinnt vinnutilboði og þar af leiðandi hafnað vinnu. Ég sætti mig ekki við afgreiðslu mála og leit- aði til stjórnar Atvinnuleysistrygg- ingarsjóðs þann 8. febrúar sama ár, þar sem ég kærði framangreinda afgreiðslu. Þann 1. mars tók stjóm- in mál mitt til meðferðar og stað- festi úrskurð úthutunamefndar Iðju -um niðurfellingu bóta. Vísar stjórn- in þar til 21. gr. laga um hverjir eigi ekki rétt til atvinnuleysisbóta: Starfsmenn stéttar- félaga og úthlutunar- nefnda þurfa, að mati Baldvins Þórs Jóhann- essonar, að kynna sér betur lög og reglugerðir. „Þeir sem neita starfi sem býðst fyrir milligöngu vinnumiðlunar eða á annan sannanlegan hátt, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyr- ir hana og starfskjör öll í samræmi við gildandi kjarasamninga." í einu orði sagt alveg fáránleg niðurstaða stjórnar Atvinnuleysis- tryggingarsjóðs þrátt fyrir að hafa vottorð frá Vinnumiðlun Reykjavík- ur og staðfestingu á að ég hafi aldr- ei hafnað vinnu. Ég sætti mig ekki við úrskurð stjórnarinnar og þó ég hafí reynt að koma málum mínum á framfæri hjá Iðju og Atvinnuleys- istryggingarsjóði um að taka mál mitt til endurskoðunar, þá var því hafnað i ljósi þess að úrskurður stjórnar sjóðsins væri endanlegur og þar við sæti. Framkoma sumra starfsmanna hjá Iðju var auk þess forkastanleg og ekki mannsæm- andi; þar á meðal Hildur Kjartans- dóttir, sem bar mig röngum sökum, þrátt fyrir að hafa vitað að ég hefð sinnt umræddu vinnu- tilboði. Það er alveg furðulegt hvað einn starfs- maður stéttarfélags getur notfært sér stöðu si'na og haft svo mikil áhrif á gang mála eins og raun ber vitni í máli mínu, ein- göngu vegna þess að við lentum í orðaskiptum BIODROGA Lífrænar Engin auka ilmefni. BIODROGA OPIÐ UM HELGAR TIL KL. 21 Skólavöröustíg 8b. KYNNING I NESAPOTEKI, EIÐISTORGI, föstudaginn 22. mars'kl. 14-18. MIKILL AFSLATTUR Happdrætti - ókeypis húðgreining Nýtt greiðslukortatimabil. Vandamálalaus.nir: Slæm húð - bólur - baugar - augnpokar - hrukkur - glansandi húð - varaliturinn helst illa á - rauð húð. Við ráðleggjum og lögum það sem hægt er. og að ég var ekki sáttur við gang mála. Það er mjög slæmt til þess að vita að félagsmaður, sem beittur er órétti af stéttarfélagi sínu, verði bara að sætta sig við það og hreinlega að hneigja sig og beygja til að eiga ekki á hættu að verða traðkaður nið- ur í svaðið. Ég leitaði því til um- boðsmanns Alþingis með málið og í fram- haldi af því ritaði um- boðsmaður Alþingis bréf, þann 31. janúar 1994, til stjórnar At- Baldvin Þór Jóhannesson vinnuleysistryggingar- sjóðs og ósk- aði eftir því að stjórn sjóðsins skýrði afstöðu sína vegna meðferðar máls- ins og úrskurð hans og skilgreindi málefnaleg rök vegna þess. Nokkrar ítrekanir frá umboðsmanni Alþingis þurfti þar til svar barst frá stjórn sjóðsins. Mál mitt var í framhaldi af því á dagskrá stjórnar sjóðsins þann 31. október 1994, þar varð sama niðurstaðan, ég hafði hafnað vinnu. Þann 14. nóvember gafst mér kostur á að koma fram með athugasemdir til umboðsmanns Al- þingis vegna niðurstöðu stjórnar sjóðsins og sendi ég þær þann 18. nóvember 1994. Álit umboðsmanns Alþingis um mál mitt var það að mér hafí ekki verið gefinn kostur á því að koma fram andmælum við greinargerð úhlutunamefndar Iðju eða að koma að frekari upplýsingum um málsat- vik og er málsmeðferðin gagnrýnd, þar sem greinargerðin byggði að stómm hluta á frásögn eins starfs- manns úthlutunamefndarinnar. Auk þess láðist stjórn sjóðsins að sjá til þess að aflað yrði vottorðs frá vinnumiðlun Reykjavíkur um atvinnuleysi mitt og hafí stjórn At- vinnuleysistryggingar- sjóðs ekki vandað með- ferð málsins sem skyldi og ekki lagt fullnægj- andi grundvöll að þeirri ákvörðun að staðfesta synjun úthlutunar- nefndar Iðju um greiðslu atvinnuleysis- bóta til mín. Er þetta lýsandi dæmi - um óheiðarleg vinnubrögð. Þann 15. ágúst 1995 var niðurstaða um- boðsmanns Alþingis sú, að undirbúningur að þeirri ákvörðun stjórnar Atvinnuleysis- tryggingarsjóðs, að staðfesta synjun úthlutunarnefndar Iðju, hafi verið ófullnægjandi og að stjórn sjóðsins ætti að taka mál mitt til meðferðar á ný. Þann 23. ágúst sendi ég stjórn Atvinnuleysistryggingarsjóðs kröfu um að mál mitt yrði tekið til með- ferðar á ný og þar óskaði ég eftir því að ég fengi þær bætur sem ég átti inni frá þeim tíma er bótaréttur minn var að ófyrirsynju felldur nið- ur og til þess tíma er ég fékk vinnu. Stjórn sjóðsins tók kröfu mína fyrir á fundi sínum þann 11. september og bókaði eftirfarandi: „Stjórnin vís- ar málinu til úthlutunarnefndar Iðju og óskar eftir að nefndin taki af- stöðu til máisins." Þann 25. október sendi ég ítrekun varðandi kröfu mína til stjórnar sjóðsins þar sem ég hafði ekkert heyrt um framgang mála. Þann 18. desember fékk ég loks bréf frá Atvinnuleysistrygging- arsjóði þess efnis að afgreiðsla máls- ins hefði dregist vegna þess að út- hlutunarnefnd Iðju hefði neitað að úrskurða í málinu og vísað því aftur til stjórnar sjóðsins. Úthlutunar- nefnd Iðju hunsaði þannig álit um- boðsmanns Alþingis og fór ekki að lögum. Undirstrikaði hún þannig staðfesti það óréttmæti fyrri úr- skurðar. Einnig var á það bent að vinnutilboðið væri ekki frá vinnum- iðlun eins og lög gera ráð fyrir. Jafnframt var sent erindi til úthlut- unarnefndar Iðju þar sem henni er falið að greiða mér bæturnar og minnt á að hlýta ákvæðum stjórn- sýslulaga og fyrirmælum stjómar Atvinnuleysistryggingarsjóðs. Þann 20. desember 1995 hafði ég samband við Iðju, mann að nafni Garðar og innti hann eftir þeim bótum sem ég átti inni hjá þeim. Hann tjáði mér að hann kannaðist ekkert við bætur til mín og hann vissi ekkert um kröfu þess efnis. Ég hafði samband við lögmann stjórnar Atvinnuleysistryggingar- sjóðs sem aðstoðaði mig við að koma skilaboðum til Iðju um kröfu mína og að mér yrðu greiddar bæturnar. í ljósi þessarar þrautagöngu minnar um að fá þennan óréttmæta úrskurð úthlutunarnefndar Iðju leið- réttan, sem tók mig 3 ár, er mér spurn: Eru starfsmenn úthlutunar- nefnda svo óupplýstir um lög og reglur eða eru þeir bara svona full- ir af þvermóðsku? En þar sem um aðeins eitt starf var að ræða skv. vinnutilboðinu, sem upphaflega kom öllu þessu af stað, og við vorum 8 sem fengum það og áttum að svara strax, og miðað við það „vesen“ sem ég hef þurft að ganga í gegnum, þá er mér spurn: Hvað varð um hina 6 sem ekki fengu vinnu? Skyldu þeir hafa fengið sömu útreið og ég? Mér sýnist að svo virðist sem kominn sé tími á það að starfsmenn þess stéttarfélags og úthlutunar- nefndar, sem hlut eiga að máli, kynni sér betur lög og reglur og sæki námskeið í umgengni og mannlegum samskiptum. Höfundur er bifvélavirkjanemi. Skyldur og ábyrgð bílasala sali skal staðfesta að fullnægjandi ástandslýsing sbr. 1. mgr. fylgi öku- tæki...). í fyrrnefndri Okuþórsgrein var Vignir spurður hvort hann væri tilbúinn að gefa skriflega upplýs- ingar um að logið hefði verið að honum. Svar Vignis var: „Svo fram- arlega sem ég get verið öruggur um að það bitni ekki á mér, þá í GREIN Vignis Arnarsonar, lög- gilts bifreiðasala, í Morgunblaðinu 21. desember sl. er eftirfarandi til- vitnun í lög nr 69/1994: „Bifreiða- sali skal afla upplýsinga sem stað- festar skulu skriflega af seljanda, um akstur og ástand ökutækis.“ Síðan segir orðrétt í grein Vignis: „Þetta er túlkað þannig að ef eig- andi hefur tekið upp vél og/eða gír- kassa og á ekki nótur fyrir því, og hlutirnir bila, þá eigi að vera hægt að krefja bifreiðasalann um bætur.“ Þetta er ekki rétt hjá Vigni. Bif- reiðasalinn ber ekki ábyrgð á viðgerðinni heldur ber hann ábyrgð á því að allar þær upp- lýsingar, sem eru forsenda kaupanna, séu til staðar og undirritaðar af seljanda, en slíkt er þó ekki alltaf fyrir hendi, eins og gerðist í máli því sem var til umijöllunar í Öku- þór 4. tbl. 1995. í umfjöllun Ókuþórs, sem var greinileg kveikja að fyrrnefndri grein Vignis í Morgunblaðinu, var sagt frá kaupum á notuðum jeppa. Á söluskilti í glugga bíls- ins stóð að bæði vél og gír- kassi væru nýupptekin og að nótur fylgdu. Síðar kom í ljós að svo var ekki. Bílasalar bera ekki ábyrgð á gerðum eða frásögnum annarra, segjaÆvar Friðriksson og Stefán Ásgrímsson, í grein þessari. Ævar Friðriksson Stefán Ásgrímsson geri ég það. Ef seljandinn hins veg- ar segir, - þetta er bara lygi í bíla- salanum, - þá stendur orð á móti orði og hver á þá að bera ábyrgð- ina?“ En hér er einmitt mergur máls- ins: Ef bílasalinn hefði haft upplýs- ingarnar staðfestar skriflega af selj- andanum, hefði verið hægt að lög- sækja seljanda, eða kaupandi hefði náð fram rétti sínum á annan hátt ef um svik hefði verið að ræða. Að framansögðu er ljóst að bif- reiðasalinn ber ekki ábyrgð á því sem aðrir segja, eða þeim göllum sem geta leynst í bif- reiðuhi, en hann á að sjá til þess að ferilskrá liggi frammi og staðreyna að ekki hvíli veðbönd á bifreiðinni og að allar ástandsupplýsingar séu skriflega staðfestar af selj- anda. Einnig ber að vara sérstaklega við því ef um er að ræða tjónabifreið, vegna þess að þær bifreiðar hafa verulega annmarka í sölu, m.a. þá að bifreiðaumboðin vilja ekki kaupa slíkar bif- reiðar, (t.d. vegna uppítöku í verð nýrrar). Bifreiðasalar eru að sjálfsögðu ábyrgir fyrir þeim tjónum sem við- Nokkru eftir kaupin brotnaði gír- kassinn í bílnum og fljótlega eftir að búið var að gera við hann bilaði vélin einnig. í umfjöllun Ökuþórs um málið er haft orðrétt eftir Vigni: „Ég segi við þig eins og ég hef sagt við lögmann FÍB, að ef einhver kem- ur hér inn og lýgur að mér um eitt- hvað þá liggur það alveg ljóst fyrir að ég ætla ekki að bera ábyrgð á þeirri lygi.“ Skrifleg stað- festing seljanda Það er ekki ætlast til þess að bifreiðasalar beri ábyrgð á gerðum eða frásögnum annarra, en þeir eiga að sjá til þess að seljandi staðfesti skriflega þær upplýsingar sem hann lætur frá sér og áhrif hafa í sam- bandi við bifreiðakaup. (Lög 69/1994, 4. gr. 2. mgr. - Bifreiða- skiptamenn þeirra „kunna að verða fyrir vegna ásetnings eða gáleysis bifreiðasala," eins og segir í 3. gr. 4. tölulið laga um sölu notaðra öku- tækja. Ævar Friðriksson er tækniráð- gjafi FÍB, Féiags íslenskra bif- reiðaeigenda og Stefán Ásgríms- son er ritstjóri Okuþórs, félags- blaðs FÍB.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.