Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 5
H a úld;íui'Jí\;í>jí=íd'J]i'Jdí\dh]ld
pD ;i = /iiJAWÍiiUa DD DD3=l'j r
■\DH1LD >U\3;iDUf Í3U\1'JD3.
IA BJORG ARAOOTTIR
HJÚKRUWARFRÆOIIMGUR, UERKEFIMISSTJI
HEILSUEFLINGAR Á VEGUM LANDLÆKIMISI
OG HEÍLBRIGÐISRÁÐUIMEYTISIIMS.
PALMI V. JÓWSSi
. YFIRLÆKIMIP
SJÚKRAHÚS
UIÐ LÆKIMÁI
ISIIMS
..SERSTAKLEGA BORINI,
UIMGLIIMGSSTÚLKUR OG
KOIMUR EFTIR MIÐJAIM ALDUR
Kalkið er sérlega mikilvœgt fyrir börn á
meðan beinin eru að vaxa, unglings-
stúlkur og konur um og eftir miðjan aldur.
Kalkmagn í beinum
Beinin í líkamanum eru lifandi vefur sem er í
Mjólk út í geiminn
CC
9
Beinþynning herjar einkum á konur sem
komnar eru yfir tíðahvörf. Unglings-
stúlkum og ungum konum er þó einkar
mikilvœgt að gœta vel að heilsu beina
sinna, þar sem styrkleiki beinanna við
upphaf tíðahvarfa rœður miklu um það
hversu alvarlegt vandamál beinþynn-
ingin verður.
Samkvæmt könnunum Manneldisráðs fær fjórða
hver unglingsstúlka minna en ráðlagðan
dagskammt af kalki daglega. Þessar stúlkur
verða að teljast í sérstökum áhættuhópi hvað
snertir beinþynningu síðar á lífsleiðinni. Til þess
að forðast beinþynningu síðar á lífsleiðinni virðast
holl hreyfing og rétt mataræði þau ráð sem best
duga. Nægileg mjólkurneysla nú getur borgað
sig margfalt síðar á lífsleiðinni.
Hvað er beinþynning?
Beinþynning er alvarlegt heilsufarsvandamál hér
á landi eins og víða annars staðar. Beinin verða
stökk, hryggjarliðir geta fallið saman og önnur
bein brotna við minnsta átak. Lærlegg,
mjaðmarbeini og beinum í fram- og upphandlegg
stafar sérstök hætta af beinþynningu.
Talið er að þriðja hver kona fái einkenni
beinþynningar einhvern tíma á ævinni, en
sjúkdómurinn er meira en þrisvar sinnum
algengari hjá konum en körlum.
Rannsóknir á beinþéttni og brotatíðni benda til
þess að hér á landi verði 1200-1500 beinbrot
ár hvert vegna
beinþynningar. Þar
áf verða um 200
mjaðmarbrot. Flest
þessara brota verða
við óverulega áverka.
Smábeinóttar og
grannvaxnar konur
hafa meiri tilhneigingu
til beinþynningar en
þær sem þéttari eru á
ALDUR 30 50 70 Velli.
stöðugri þróun alla ævi. Við fæðingu innihalda
beinin um 25 g af kalki. Kalkmagnið eykst jafnt
og þétt í uppvextinum og nær hámarki (kringum
25 ára aldur. Á þessum aldri eru um 1200 g af
kalki í beinum karlmanna
en um 900 g í beinum
kvenna. Eftir það fer
kalkmagn beinanna hægt
minnkandi í fyrstu en
kalktap (beintap) getur
orðið mjög ört, einkum
meðal kvenna. Hjá þeim
getur beinmassi minnkað
um 4-8% á ári fyrstu
5-8 árin eftir tíðahvörf og
konur um sjötugt hafa að
meðaltali aðeins um 650 g
af kalki í beinum sínum.
Hvað er til ráða?
Beinþynning er líklega að hluta til arfgengur kvilli
og ræðst öðru fremur af minnkandi framleiðslu
kvenhormónsins estrógens. Engu að síður benda
rannsóknir til þess að þeim mun meira sem
llkaminn fær af kalki á Iffsleiðinni, þvf minni sé
hættan á alvarlegri beinþynningu.
Ráðlugður dagskammtur af kalki og l)-vítamíni
1-10 ára 11-19 ára 20 ára og eldri Bamshafandi konurog . brjóstamæður
D-vítamín: 400 ae (10 uol 400 ae 400 ae 400 ae
Kalk: 800 mg 1200 mg 800 mg 1200 mg
Margir sérfræðingar telja að kalkþörf kvenna eftir tíðahvörf sé 1200-1500 mg.
Geimfarar eiga á hættu að tapa miklu kalki
áferðum sínum út fyrir gufuhvolflð. Þegar
þyngdaraflið hœttir að valda stöðugu álagi
á beinin þurfa þeir að eyða miklum tima í
sérstakar líkamsœfingar til þess að forðast
bráða beinþynningu af kalkskorti.
Sem betur fer ncegir okkur á jörðu niðri að
stunda hœfilega heilsurœkt, borða hollan mat
og drekka nóg afmjólk!
70% af kalkinu úr mjólkurvörum
í baráttunni við beinþynningu er einfaldasta vopnið
þó líklega að halda kalkbúskap líkamans í góðu
iagi. Líkaminn nýtir að jafnaði einungis um 30%
af því kalki sem hann fær en rannsóknir sýna þó
að nýting kalks úr mjólk og mjólkurmat er mun
betri en nýting kalks úr flestum öðrum fæðu-
tegundum. Fyrir utan kalkið sjálft er-D-vítamín
líkamanum nauðsynlegt, en eitt af hlutverkum
þess er að auká nýtingu kalks úr fæðunni. Um
70% af því kalki sem við fáum úr fæðunni kemur
úr mjólk og mjólkurmat.
í franskri rannsókn sem gerð var árið 1992 fékk
hópur kvenna yfir 80 ára aldri daglegan auka-
skammt af kalki (1200 mg) og D-vítamíni (800 ae).
Meðal þeirra fækkaði lærbrotum um rúmlega
40% miðað við sambærilegan hóp sem fékk
hvorki kalk né D-vítamín. Aðrar rannsóknir benda
til hliðstæðra áhrifa meðal kvenna á aldrinum
60-80 ára. Fitusnauð mjólk og léttar mjólkun/örur
henta því flestu fólki alla ævi.
Látum beinagrindina eldast með líkamanum, ekki
á undan honum!
Helstu heimildir: M. Chapucy o.fl.: Vitamin D3 and calcium to prevent hip
fractures in elderly women, New England Joumal of Medicine 327, 1992.
Dawson-Hughes o.fl.: A controlled trial of the effect of calcium supplementation
on bone density in postmenopausal women, New England Joumal of
Medicine 328,1993. Landlæknlsembættið. Laufey Steingrímsdóttir o.fl.:
Hváð borðar íslensk æska? (Manneldisráð íslands, 1993).
Rétt eins og vöðvar og aðrir lifandi vefir, styrkjast
beinin við notkun. Hreyfingarleysi eykur líkurnar
á beinþynningu en einnig hafa reykingar, ofneysla
áfengis og óhófleg kaffidrykkja verið sett (
samband við þennan illvíga sjúkdóm.
TVÖ
'k DAG
-alla cevil
MJÓLK ER GÓO
ÍSLENSKUR MJÓLKURIÐNAÐUR
HVÍTA HÚSIÐ / SÍA GSP ALMANNATENGSL LJÓSM.: LÁRUS KARL