Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 6
6 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flutti síðasta mál sitt
fyrir Hæstarétti
BALDVIN Jónsson hæstarétt-
arlögmaður flutti sitt síðasta
mál fyrir Hæstarétti í gær en
hann er orðinn 85 ára gamall.
Baldvin er þó ekki sestur í helg-
an stein þvi hann starfar enn á
sinni eigin lögmannastofu en
segist ætla að fara að draga
úr vinnu. „Eg hefði óskað þess
að ég hefði verið að flytja
fyrsta málið mitt fremur en það
síðasta en því fæ ég ekki
breytt,“ segir Baldvin.
Passaði embætti fyrir
Hermann
Baldvin lauk laganámi frá
Háskóla íslands árið 1937,26
ára að aldri, og réðst strax sem
fulltrúi til Lögmannsins í
Reykjavík og starfaði þar í þrjú
ár. 1940 gerðist hann lögmaður
Búnaðarbankans,
„Ég passaði það embætti fyr-
ir Hermann Jónasson, þáver-
andi forsætisráðherra, sam-
kvæmt samkomulagi okkar í
igilli. Hann ætlaði sér þetta
embætti þegar hann hætti í póli-
tíkinni. Það var miklu moldviðri
þyrlað upp í kringum þetta í
blöðunum á þessum árum. Póli-
tískir andstæðingar Hermanns
sögðu að hann hefði ýtt efnileg-
asta lögfræðing landsins út úr
embætti þegar hann tók við
því,“ sagði Baldvin.
Hann hóf síðan rekstur
sinnar eigin lögmannastofu
sem hann hefur rekið síðan.
Sjónvarpsfíkill
í seinni tíð
„Á þessum tíma var ég í svo
mörgum öðrum störfum að ég
hafði í raun engan tíma fyrir
lögfræðina. Ég var formaður
bankaráðs Landsbankans,
Sjúkrasamlags Reykjavíkur og
sat í Ríkisskattanefnd," segir
Baldvin.
Hann hóf að flytja mál fyrir
Hæstarétti árið 1954. „Eg er
síðasti lögfræðingurinn sem
gekkst undir erfiðustu þrautina
til þess að öðlast régtindi til að
flytja mál fyrir Hæstarétti. Það
tók mig fimm ár. Síðan hélt
Lögmannafélagið fund og benti
á að það hefði tekið mig, og
aðra sem á undan mér komu,
fimm ár að öðlast þessi rétt-
indi. Lögmannafélagið réðst
harkalega á Hæstarétt vegna
þessa og þá opnuðust allar gátt-
ir,“ segir Baldvin.
Baldvin er heilsuhraustur.
Kona hans, Emilía Samúels-
dóttir, lést fyrir rúmlega einu
ári og býr Baldvin nú einn í
fimm herbergja íbúð. Börn
þeirra uppkomin eru þijú. „Ég
er orðinn sjónvarpsfíkill í
seinni tíð. Ég hef gaman af
fornri menningu og auk þess
finnst mér afskaplega gaman
að M.A.S.H. þáttunum banda-
rísku,“ segir Baldvin.
Morgunoiaoio/ivnsuiin
BALDVIN Jónsson flytur sitt síðasta mál fyrir Hæstarétti í gær. í bakgrunni frá vinstri eru
hæstaréttardómararnir Hjörtur Torfason, Pétur Kr. Hafstein, Haraldur Henrýsson, Guðrún
Erlendsdóttir og Hrafn Bragason.
Kristinn Gunnarsson, Alþýðubandalagi
Skerða þarf opin-
ber lífeyrisréttindi
EINN þingmanna Alþýðubandalags-
ins lýsti þeirri skoðun á Alþingi á
þriðjudag að vilji alþingismenn ekki
afla tekna til að standa undir lífeyris-
réttindum opinberra starfsmanna
verði að skerða réttindin.
Verið var að ræða frumvarp um
réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
Nokkrir þingmenn Alþýðubandalags-
ins gagnrýndu frumvarpið harðlega,
einkum Ögmundur Jónasson.
Kristinn H. Gunnarsson sagði hins
vegar að stefna ætti að því að sam-
eina verkalýðshreyfinguna og færa
saman réttarstöðu ríkisstarfsmanna
og starfsmanna á almennum mark-
aði. Þá ætti að dreifa valdi til ein-
stakra stofnana ríkisins og taka
strax á því gríðarlega vandamáli að
veitt væru lífeyrisréttindi til opín-
berra starfsmanna sem væru meiri
en iðgjöld stæðu undir.
„Að því marki sem frumvarpið
fellur að þessum sjónarmiðum er það
. til bóta,“ sagði Kristinn.. Hann bætti
við að ýmis atriði í frumvarpinu
væru óviðunandi, svo sem að opin-
berir starfsmenn geti staðið utan
stéttarfélaga.
Kristinn sagði áð lífeyrismál opin-
berra starfsmanna væri einn alvar-
legasti vandi ríkissjóðs og myndi fara
vaxandi að óbreyttu. Ekki yrði vikist
undan því að grípa þar til aðgerða.
Lífeyrisskuldbindingar A-hluta ríkis-
sjóðs umfram það sem til væri í sjóði,
næmu um 67 milljörðum og hækkuðu
árlega um 3,6 milljarða umfram ið-
gjöld. Auk þessara skuldbindinga
væri áætlað að skuldbindingar stofn-
ana B-hluta ríkissjóðs væru um 12
milljarðar.
„Það gengur ekki að safna árlega
upp skuldbindingum og vísa á fram-
tíðina til greiðslu. Það er óviðunandi
fyrir þá sem búa við lífeyrisréttindi
sem takmarkast af iðgjöldum, að
þurfa í framtíðinni að greiða sér-
stakan skatt til að standa undir rétt-
indum annarra. Það á ekki að veita
betri lífeyrisréttindi en iðgjöld standa
undir. Vilji alþingismenn viðhalda |
óbreyttum réttindum opinberra
starfsmanna ber þeim að afla tekna
til að standa undir þeim. Vilji menn
ekki afla nægilegra tekna verður að
skerða réttindin," sagði Kristinn.
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að hann hefði sem best:
getað flutt ræðu Kristins, um það
hvernig lífeyrismálin blöstu við full-.
trúum landsbyggðarinnar og þess;
fólks sem ekki væru opinberir starfs-1
menn.
Andlát
RAGNAR
GUÐLEIFSSON
RAGNAR GuðleifsSon,
kennari og fyrrverándi
formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Kefla-
víkur, er látinn á 91.
aldursári. Ragnarý var
fæddur í Keflavík 27.
oktober 1905. Hann
lauk kennaraprófi 1933
og starfaði sem kennari
í Keflavík 1933-36 og
aftur 1954-75.
Ragnar var kosinn
formaður Verkalýðs- og
sjómannafélags Kefla-
víkur 1935 og gegndi
því embætti í 35 ár. Hann gegndi
einnig trúnaðarstörfum fyrir Alþýðu-
flokkinn og sat m.a. í flokksstjórn
um áratugaskeið. Ragnar tók nokkr-
um sinnum sæti á Al-
þingi sem yaraþing-S^j
maður á sjöúbda ára-í 1
tugnum. Ragnar-'sat í*|S
bæjarstjórn Kéflavflcurfe
frá 1938-1974 og varí ,
oddviti Keflavíkur--’3-,
hrepps frá 1946-50.
Hann var bæjarstjpri. fi,...
Keflavík 1950-54.
Ragnar var tví- j
kvæntur. Fyrri kona
hans var Guðbjörg
Þórðardóttir, en hún. ,
lést 1939. Seinni kona
hans var Björg Sigurð-K
ardóttir kennari. Hún lifir mann sinní;
Þau eignuðust eina dóttur, Sigrúnu.*
Ragnar átti einnig einn stjúpson,|
Sveinbjörn Jónsson.
Fyrirhuguð samvinna og verkaskipting sjúkrahúsanna í Reykjavík og á Reykjanesi
Ekki allir á eitt sáttir
um ágæti tillagnanna
TILLÖGUR nefndar um samvinnu
og verkaskiptingu sjúkrahúsanna í
Reykjavík og á Reykjanesi mælast
misvel fyrir meðal forráðmanna
sjúkrahúsanna. Hrafnkell Óskars-
son, yfirlæknir Sjúkrahúss Suður-
nesja, gerir athugasemd við að
leggja eigi skurðstofu sjúkrahússins
niður og Árni Sverrisson, fram-
kvæmdastjóri St. Jósefsspítala í
Hafnarfirði, lýsir yfir óánægju sinni
með að gert sé ráð fyrir að leggja
niður bráðavaktir á lyflæknadeild.
Jóhannes Pálmason, forstjóri
Sjúkrahúss Reykjavíkur, segir til-
lögurnar almennt skynsamlegar.
Vigdís Magnúsdóttir, forstjóri
Landspítalans, vildi ekki tjá sig um
tillögurnar þar sem hún hefði ekki
fengið þær frá ráðherra.
Góður umræðugrundvöllur
„Ég get ekki annað en fagnað
því að vilji er til að líta á málið frá
þessu sjónarhomi og horfa um leið
til framtíðar," sagði Jóhannes
Pálmason. „Þarna er kominn mjög
góður umræðugrundvöllur, sem
hægt er að byggja á um málefni
sjúkrahúsanna."
Sagði hann að eftir væri að ræða
einstök efnisatriði tillagnanna.
Skýrslan væri vel unnin og nefnd-
inni til sóma en þarna væru atriði
sem þyrfti að skoða og komast að
sameiginlegri niðurstöðu um.
Átt undir högg að sækja
Hrafnkell Óskarsson segir að til-
lögurnar hafí sérstaklega verið
kynntar fyrir yfirstjórn Sjúkarhúss
Suðurnesja. „Það sem snýr að okk-
ur er að við erum með lítið sjúkra-
hús og höfum átt undir högg að
sækja," sagði hann. „Hér er rekin
fæðingarþjónusta og almenn deild
og til þess að styðja við hana höfum
við verið með fimm skurðdaga á
viku. I undirnefnd um skurðlækn-
ingar var lagt til að skurðstofuvakt-
ir verði lagðar niður.“
Hrafnkell sagðist hafa gert tvær
athugasemdir við tillögur nefndar-
innar, sem hann hafi óskað svara
við, en ekki fengið. Tillögurnar geri
ráð fyrir aðgerðum á kvensjúk-
dómadeild en hvorki verða heimilað-
ar aðrar almennar skurðaðgerðir
né bæklunaraðgerðir. „Þannig að
ég á von á að það verði unnið betur
úr þessu,“ sagði hann. „Það hefur
komið fram að við séum með
ákveðna yfirbyggingu og mátti
skilja það þannig að um sérhæfðar
aðgerðir væri að ræða en svo er
ekki. Við gerum engar sérhæfðar
aðgerðir en skerum upp við botn-
langa, gallblöðrum og tökum æxli.
Það eru engin skynsamleg rök fyrir
því að hætta svo einföldum aðgerð-
um. Skurðstofan hjá okkur er ódýr-
ari og legudagar einnig.“
Þá sagði hann að tillögurnar
gerðu ráð fyrir að sinna ætti öldruð-
um og langlegusjúklingum. Á
fímmta hundrað manns væru árlega
lagðir inn á almennu deildina, þar
af væru um tvö hundruð bráðatil-
felli. Lungnasjúklingar og sjúkling-
ar með annarskonar sýkingar sem
væru tiltölulega auðveldar viðfangs
væru lagðir inn en svo virtist sem
ekki væri tekið tillit til þess. „Þá
er spurningin, ef við eigum einung-
is að sinna langlegu- og öldrunar-
sjúklingum og hætta að taka inn
krabbameinssjúklinga eins og nú
er gert, hvort þessir sjúklingar eigi
að fara úr sinni heimabyggð síðustu
vikurnar og leggjast inn í Reykja-
vík. Ég held að nefndin hafi ekki
áttað sig á þessu,“ sagði Hrafnkell.
Rökstuðning vantar
Árni Sverrisson, framkvæmda-
stjóri St. Jósefsspí* ala í Hafnar-
firði, sagði að þar væru menn ósátt-
ir við að í tillögunum kæmu fram
sambærilegar hugmyndir og í til-
lögum tilsjónarmanns frá því í haust
um að leggja niður bráðavaktir á
lyflæknadeild. Óskað hafi verið eft-
ir rökstuðningi að baki þessari
ákvörðun, sem enn hafi ekki feng-
ist. Heilbrigðisráðherra hafí skipað
fagnefnd fyrir áramótin og var nið-
urstaðan sú að sjúkrahúsin í
Reykjavík yrðu að fá aukið fjár-
magn til að geta sinnt aukinni þjón-
ustu. Sparnaður yrði því enginn.
„Nú höfum við fengið það staðfest
að hvorki er ijárhagslegur né fag-
legur ávinningur af þessari breyt-
ingu,“ sagði hann. „Svo virðist sem
búið sé að taka um þetta ákvörðun
fyrir lögnu að einungis tvö sjúkra-
hús sinni bráðavöktum burtséð frá
því hvort það sé dýrara. Þá viljum
við meina að fólkið sem notið hefur
þessarar þjónustu hér á svæðinu
muni fá verri þjónustu en ella og|
við erum ósátt við það.“
Árni sagðist vera sérstaklega
ánægður með að þessar hugmyndir
sem þarna væru komnar fram væru
frá upphaif til enda unnar af starfs-
fólki í heilbrigðiskerfinu. Nefndi
hann sem dæmi um áhugaverða
tillögu að gert væri ráð fyrir að
myndaðir yrðu kjarnar sérfræðinga
sem færu á milli stofnana. „Þetta
er hugsað fyrst og fremst á skurð-
læknasviðinu þar sem sjúkrahúsin|
verða flokkuð niður til ákveðinna
aðgerða og síðan færast sérfræð-T,
ingarnir á.milli stofnana eftir þvi|.
sem við á,“ sagði hann. „Ég heldl
að þetta eigi eftir að skila sér'íf
sparnaði og hagkvæmni þegar til.
lengri tíma er litið.“