Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 10
10 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Hreppsnefnd Reykholtsdalshrepps um Borgar fj ar ðarbraut
Mælt með efri leið
UM 60% kosningabærra manna í
Reykholtsdalshreppi skrifuðu nafn
sitt á undirskriftalista þar sem
mælst er til þess að valin verði
svokölluð neðri leið við lagningu
Borgarfjarðarbrautar. Gunnar
Bjarnason, oddviti hreppsnefndar-
innar, segir að fjöldi manns hafi
haft samband við sig og lýst því
yfir að þeir sjái eftir því að hafa
skrifað sig á listann. Þegar upp sé
staðið séu það ekki í raun nema
um 50% sem standi að baki listan-
um.
Skipulagsyfirvöld og umhverfis-
ráðherra hafa samþykkt tillögu
Vegagerðarinnar um neðri leiðina.
Hreppsnefndin lagði fram aðra til-
lögu sem var ekki send í umhverfis-
mat.
„Ég lít þannig á að úrskurðurinn
þýði aðeins að leið Vegagerðarinnar
sé fær en hann segir ekkert um
hvort aðrar leiðir séu ófærar.
Hreppsnefndin mun beita sér fyrir
því að það verði fundin ásættanleg
lausn sem við teljum vera efri leið-
ina með brúarstæði sem rætt hefur
verið um í seinni tíð,“ segir Gunnar.
Gunnar segir að þeir sem hafi
skrifað sig á listann búi ekki allir
í hreppnum.
„60% af hreppsnefndinni sam-
þykktu að mæla með því að efri
leiðin yrði valin. Við geymum
þennan lista og hann hefur engin
áhrif á okkar störf hér. Ég met
þetta þannig þar sem margir sem
hafa skrifað sig á listann hafa
haft samband og lýst því yfir að
þeir hafi ekki fengið réttar upplýs-
ingar um málið,“ sagði Gunnar.
Mikil reiði í mönnum
Snorri Kristleifsson frá Klepp-
járnsreykjum skrifaði nafn sitt á
undirskriftalistann. Hann segir að
mikil reiði se í mönnum vegna af-
stöðu hreppsnefndarinnar.
„Það er aðeins • verið .að-reyna
að gera þetta tortryggilegt af
meirihluta hreppsnefndar sem
minnihluti íbúa stendur að baki,“
segir Snorri.
Hann segir að á hreppsnefndar-
fundi í fyrrkvöld, sem hann sat sem
áheyrnarfulltrúi, hefði oddviti
hreppsnefndar sagt að hann væri
ákveðinn í því að gera ekki neitt
með undirskriftalistann.
„Þetta segir hann þrátt fyrir að
þarna kæmi yfirlýsing frá 60%
kosningabærra manna í hreppnum
á þeim forsendum að við söfnun
undirskriftanna hefði verið haft
rangt við. Það er tilbúningur og
ekkert annað. íbúum er ekki gefið
tækifæri til þess að ræða þetta
mál,“ segir Snorri Kristleifsson
ísland friðlýst fyrir
kjamorkuvopnum
ÁTTA þingmenn stjórnarandstöð-
unnar á Alþingi _hafa lagt fram
frumvarp Um að ísland verði frið-
lýst fyrir kjarnorku- og eiturefna-
vopnum og umferð kjarnorkuknú-
inna farartækja verði bönnuð á
íslensku yfirráðasvæði,
Þetta frumvarp hefur Verið flutt
þrisyár áðUr á Alþingi, síðást árið
1991. í greinargerð segir að efni
frumvarpsins sé enn í fullu gildi
og þróun í alþjóðamálúm'sé með
þeim hætti að auðvelda ætti fram-
gang þess. Megi þar nefna fram-
lengingu samningsins um bann
við útbreiðslu kjarnorkuvopna og
framvindu Genfaiviðræðna um
algert bann við tilraunum með
kjarnorkuvopn.
Þá sé sú mikla mótmælaalda
sem reis um allan héim í kjölfar
tilraunasprenginga Frakka til
marks um vaxandi andúð almenn-
ings á öllpm kjarnorkuvígbúnaði.
Áfram stafi þó hætta af annarri
kjarnorkunýtingu og því sé engu
minni ástæða nú en áður fyrir
íslendinga að taka af skarið og
friðlýsa land sitt.
Framsókn ekki með
Steingrtmur J. Sigfússon Al-
þýðubandatagi ef fýrsti flutnings-
maður frumvarpsins en aðrir eru
Össur Skarphéðinsson og Guð-
mundur Árni Stefánsson Alþýðu-
flokki, Jóhanna Sigurðardóttir og
Ásta R. Jóhannesdóttir Þjóðvaka,
Bryndís Guðmundsdóttir og Mar-
grét Frímannsdóttir Alþýðu-
bandalagi og Kristín Ástgeirsdótt-
ir Kvennalista.
Þegar frumvarpið var lagt síð-
ast :fram voru Steingrímur Her-
mannsson þáverandi forin'aður
Framsóknarflokks og Páll Péturs-
son félagsmálaráðherra meðan
flutningsmanna en enginn Fram-
sóknarþingmaður er nú meðal
flutningsmanna.
Mikið tjón í Viðey
MIKLAR skemmdir urðu í Viðey
þegar sjór gekk á land í flóðinu
mikla sem varð síðasta öskudag.
Mestar urðu skemmdirnar á Eið-
inu sem tengir saman Vesturey
og Heimaey. Sjór gekk þar yfir,
braut land og eyðilagði akveginn
um Eiðið, göngustíga og fleira.
„Eyjan er skelfilega illa leikin
og ég man ekki eftir öðru eins í
minni tíð,“ segir Örlygur Hálf-
dánarson bókaútgefandi sem
fæddist í Viðey 1929. Hann kveðst
meðal annars kenna uppfyllingu
í Sundahöfn um, sem hafi þrengt
Sundið.
Kostar 2-3 milljónir
í Áttæringsvör við skálann Við-
eyjamaust tók einnig mikið úr
íjörunni, þannig að nú er hár sjáv-
arbakki þar sem áður var lítils-
háttar halli niður í fjöru. Austur
á Sundbakka varð einnig nokkurt
landbrot, bæði við gömlu grútar-
stöðina og í Þórsnesi.
Að sögn séra Þóris Stephen-
sens, staðarhaldara í Viðey, er
gert ráð fyrir að fá þurfi dælu-
skipið Sandey með ofaníburð í
veginn og einnig að flytja vöru-
bíl og gröfu út í eynna, þannig
að um kostnaðarsamar fram-
kvæmdir er að ræða á Eiðinu.
Annars staðar þarf einnig að
sögn Þóris að leggja talsverða
vinnu í að lagfæra skemmdir af
völdum sjógangsins. „Fróðir
menn segja að kostnaðurinn
verði ekki undir tveimur til
þremur milljónum króna,“ segir
Þórir.
Hann kveðst gera ráð fyrir
að sótt verði um aukafjárveit-
ingu vegna þessa til Reykjavík-
urborgar, en ekki sé ljóst hve-
nær ráðist verður í lagfæring-
ar.
Morgunblaðið?Þorkell
EINS og sjá má af þessari mynd sem sýnir Eiðið úr austri, er vegarstæðið bert, hálfs metra þykk-
ur ofaníburður horfinn og nokkurt landbrot greinilegt.
ÚTHLUTUNARNEFNDIR listamannalauna
hafa lokið .störfum, en 575 umsóknir bárust
um starfslaun listamanna 1996. Árið 1995
bárust 563 umsóknir.
Skipting umsókna milli sjóða 1996 var eftir-
farandi:
Listasjóður 146 umsóknir.
Launasjóður myndlistarmanna 219 umsókn-
ir.
Launasjóður rithöfunda 190 umsóknir.
Tónskáldasjóður 20 umsóknir.
Úthlutunarnefndir voru að þessu sinni skip-
aðar sem hér segir:
Sljórn Listasjóðs
Baldvin Tryggvason sparisjóðsstjóri, Lára
Margrét Ragnarsdóttir alþingismaður og Sig-
urður Steinþórsson prófessor.
Úthlutunarnefnd Launasjóðs myndlistar-
manna
Guðný Magnúsdóttir myndlistarmaður,
Hannes Sigurðsson listfræðingur og Júlíana
Gottskálksdóttir listfræðingur.
Úthlutunarnefnd Launasjóðs rithöfunda
Dr. Guðrún Nordal, Gunnlaugur Ástgeirsson
og Sigríður Th. Erlendsdóttir.
Úthlutunarnefnd Tónskáldasjóðs
Bernharður Wilkinsson, Rut Magnússon og
Sigurður Halldórsson.
Eftirtöldum listamönnum voru veitt starfs-
laun sem hér segir, en þau eru nú rösklega
90 þúsund krónur á mánuði.
Úr Listasjóði:
3 ár
Auður Hafsteinsdóttir, Helga Ingólfsdóttir.
1 ár
Guðmundur Ólafsson, Jón Aðalsteinn Þor-
geirsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir.
6 mánuði
Andrés Sigurvinsson, Björn Thoroddsen,
Dennis Jóhannesson, Elsa Waage, Guðmundur
Óli Gunnarsson, Hafliði Arngrímsson, Hilmar
Oddsson, Hlín Agnarsdóttir, Hrafn Gunnlaugs-
son, Hrafnhildur H. Guðmundsdóttir, Inga
Bjarnason, Jóna F’innsdóttir, Kristinn H. Árna-
son, Nanna Ólafsdóttir, Pétur Jónasson, Rúnar
575 sóttuum
listamannalaun
Gunnarsson, Selma Guðmundsdóttir, Signý
Sæmundsdóttir, Sigríður J. Kristjánsdóttir,
Sigurður Flosason, Sigurður Hóarsson, Sigur-
jón Jóhannsson, Sverrir Guðjónsson, Tómas
R. Einarsson, Þórarinn Eyfjörð, Þórunn Sigurð-
ardóttir, Örn Magnússon.
Ferðastyrki úr Listasjóði hlutu
Daði Kolbeinsson, Edda Jónsdóttir, Eydís
Franzdóttir, Gísli Snær Erlingsson, Guðjón
Sigvaldason, Guðni Franzson, Guðrún Birgis-
dóttir, Guðrún S. Gísladóttir, Hlíf B. Sigutjóns-
dóttir, Jón Stefánsson, Laufey Sigurðardóttir,
Martial Guðjón Nardeau, Ólafur Arni Bjarna-
son, Páll Eyjólfsson, Pálmar Kristmundsson,
Peter Máté, Ragnar Björnssón, Sigurður
Bragason, Símon H. Ivarsson, Steinarr Magn-
ússon, Þorgerður Ingólfsdóttir, Þórhildur Þor-
leifsdóttir, Þórunn Guðmundsdóttir.
Úr Launasjóði myndlistarmanna:
3 ár
Finnbogi Pétursson, Ingólfur Arnarsson, Ragn-
heiður Jónsdóttir, Þorvaldur Þorsteinsson.
1 ár
Bjarni H. Þórarinsson, Eggert Pétursson,
Finna B. Steinsson, Guðrún Kristjánsdóttir,
Haraldur Jónsson, Jón Óskar, Kristín Jónsdótt-
ir.
6 mánuði
Árni Ingólfsson, Ásdís Sigurþórsdóttir,
Gunnar Karlsson, Hannes Lárusson, Hrafnkell
Sigurðsson, ívar Brynjólfsson, Kjartan Ólason,
Kolbrún Björgólfsdóttir, Kristín Guðjónsdóttir,
Magnús Pálsson, Rósa Gísladóttir, Sigurður
Örlygsson, Sólveig Eggertsdóttir, Steingrímur
Eyfjörð Kr.
Ferðastyrk úr Launasjóði myndlistar-
manna hlaut
Illugi Eysteinsson.
Úr Launasjóði rithöfunda:
3 ár
Ólafur Haukur Símonarson, Sigurður Pálsson.
1 ár
Birgir Sigurðsson, Böðvar Guðmundsson,
Einar Kárason,_ Fríða Á. Sigurðardóttir, Guð--
mundur Páll Ólafsson, Guðrún Helgadóttir,
Gyrðir Elíasson, Ingibjörg Haraldsdóttir, Ólaf-
ur Gunnarsson, Pétur Gunnarsson, Sigurður
A. Magnússon, Steinunn Sigurðardóttir, Svava
Jakobsdóttir, Vigdís Grímsdóttir, Þorsteinn frá
Hamri, Þórarinn Eldjárn.
6 mánuði
Andrés Indriðason, Árni Bergmann, Árni
Ibsen, Bjarni Bjarnason, Björn Th. Björnsson,
Bragi Ólafsson, Egill Egilsson, Elísabet K.
Jökulsdóttir, Erlingur E. Halldórsson, Geir-
laugur Magnússon, Gerður Kristný Guðjóns-
dóttir, Guðmundur Andri Thorsson, Guðmund-
ur Steinsson, Gunnhildur Hrólfsdóttir, Hall-
grímur Helgason, Hannes Sigfússon, Hjörtur
Pálsson, Iðunn Steinsdóttir, Isak Harðarson,
Jónas Þorbjarnarson, Kristín Matja Baldurs-
dóttir, Kristín Ómarsdóttir, Kristín Steinsdótt-
ir, Magnús Þór Jónsson, Margrét Lóa Jónsdótt-
ir, Nína Björk _ Árnadóttir, Oddur Björnsson,
Olga Guðrún Árnadóttir, Ragnar Ingi Aðal-
steinsson, Rúnar Helgi Vignisson, Sigfús
Bjartmarsson, Steinunn Jóhannesdóttir, Vil-
borg Davíðsdóttir, Þorgeir Þorgeirsson, Þor-
valdur Kristinsson.
Ferðastyrki úr Launasjóði rithöfunda
hlutu
Anna S. Bjömsdóttir, Ágústína - Jónsdóttir,
Hrafn Andrés Harðarson, Ingibjörg Hjartardótt-
ir, Kristján Jóhann Jónsson, Örnólfur Ámason.
Úr Tónskáldasjóði:
3 ár
Hjáimar H. Ragnarsson.
1 ár
Haukur Tómasson.
6 mánuði
Ríkarður Örn Pálsson, Stefán S. Stefánsson.
Auk þess voru veitt listamannalaun til eftir-
talinna sem fengu listamannalaun áður fyrr
og voru 60 ára og eldri við gildistöku laganna
um listamannalaun, sbr. 3. gr. laga nr. 35/1991
og ekki fengu starfslaun. Styrkurinn jafngildir
starfslaunum í einn mánuð.
Agnar Þórðarson, Ármann Kr. Einarsson,
Benedikt Gunnarsson, Bragi Ásgeirsson, Einar
G. Baldvinsson, Eiríkur Smith, Elías B. Hall-
dórsson, Eyþór Stefánsson, Filippía Kristjáns-
dóttir, Gísli J. Ástþórsson, Gísli Halldórsson,
Gísli Magnússon, Gísli Sigurðsson, Guðmunda
Andrésdóttir, Guðmundur L. Friðfinnsson,
Guðmundur Jónsson, Guðmundur Ingi Krist-
jánsson, Gunnar Dal, Gunnar Eyjólfsson, Helgi
Sæmundsson, Herdís Þorvaldsdóttir, Hjörleifur
Sigurðsson, Hróifur Sigurðsson, Hörður Ág-
ústsson, Jóhannés Jóhannesson, Jóhannes Geir
Jónsson, Jóhannes Helgi Jónsson, Jón Ásgeirs-
son, Jón Dan Jónsson, Jón Þórarinsson, Jónas
Árnason, Kjartan Guðjónsson, Kristinn Halls-
son, Kristinn Reyr, Magnús Blöndai Jóhanns-
son, Magnús Jónsson, Ólöf Pálsdóttir, Pjetur
Friðrik Sigurðsson, Róbert Arnfinnsson, Rúrik
Haraldsson, Rögnvaldur Sigurjónsson, Sigurð-
ur Hallmarsson, Sigurður Sigurðsson, Skúli
Halldórsson, Stefán Júlíusson, Steingrímur St.
Th. Sigurðsson, Sveinn Björnsson, Veturliði
Gunnarsson, Vilborg Dagbjaifsdóttir, Þuríður
Pálsdóttir, Örlygur Sigurðsson.