Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 15
LANDIÐ
Skólaheimsókn
í Byggðasafnið
að Skógum
Morgunblaðið/Hanna Hjartardóttir
Kirkjubæjarklaustri - Á dögunum fóru nemendur úr
elstu bekkjum Kirkjubæjarskóla í heimsókn í Byggða-
safnið í Skógum. Þar tók á móti þeim Þórður Tómas-
son, safnvörður, sem fræddi nemendur um hina ýmsu
hluti safnsins og fléttaði um leið inn í atvinnusögu hér-
aðsins, landbúnaði og sjósókn, og benti á handverk,
húsagerð, smíði skipa o.fl.
Er ástæða til að hvetja skóla til þess að heimsækja
þetta merkilega safn og ekki síst að fá fræðslu undir
handleiðslu Þórðar sem kunnur er af störfum sínum.
Nemendur fóru um allar vistarverur safnsins, allt frá
skjalasafni og til Skógarkirkju sem er í byggingu.
íbúðarhús-
næði eykst í
Gaulverja-
bæjar-
hreppi
Gaulveijabæ - Nokkuð líflegt hef-
ur verið í byggingu íbúðarhúsnæðis
í Gaulverjabæjarhreppi á mæli-
kvarða fámenns sveitarfélags.
Fjögur íbúðarhús hafa risið hér
undanfarna mánuði í sveitinni.
Á bæjunum Hólmaseli og Árbæj-
arhjáleigu hafa verið reist hús í
viðbót við þau sem fyrir eru og því
tvíbýlt á báðum bæjum. Á Eystri-
Hellum er langt komin bygging
húss í stað þess sem varð eldi að
bráð í september sl.
Loks er nýflutt inn í fyrstu kaup-
leiguíbúðina á vegum Gaulveija-
bæjarhrepps. Húsið er rúmlega 130
fm timburhús á tveimur hæðum.
Byggt er í nágrenni Gaulverjaskóla,
félagsheimilisins Félagslundar og
Gaulveijabæjarkirkju samkvæmt
skipulagi sem Verkfræðistofa Suð-
urlands hefur annast. Er þar gert
ráð fyrir alls sjö byggingarlóðum.
Morgunblaðið/Valdimar Guðjónsson
NÝJA kaupleiguíbúðin í
Brandshúsum, Gaulverjabæj-
arhreppi.
Sumarlest-
ur barna á
Selfossi
Selfossi - Sumarléstur fer nú
fram í þriðja sinn á vegum
Bæjar- og héraðsbókasafnsins
á Selfossi. Um er að ræða
lestrarhvetjandi námskeið með
það að markmiði að viðhalda
þeirri lestrarkunnáttu sem
börnin hafa tileinkað sér í skól-
anum.
Námskeiðið miðast við
9-11. ára börn, en bæði yngri
og eldri börn eru velkomin að
vera með. Sumarlesturinn
stendur yfir fram til 28. júní.
Hver þátttakandi fær sérstakt
bókasafnsskírteini og bók til
að færa inn lesnar bækur svo
og dagatal þar sem merktar
verða inn uppákomur í tengsl-
um við sumarlesturinn.
í ár er sumarlesturinn unn-
inn í samvinnu við Mjólkurbú
Flóamanna, en þema þessa árs
er: Mjólkin okkar.
NICOLAS CAGE
ELISABETH SHUE
LEAVING
OFURÖLVI
Kvikmyndin „Leaving Las Vegas“ fjallar um mann, sem ákveður að
drekka sig í hel í Las Vegas. Þar kynnist hann vændiskonu og úr
verður ein sérstæðasta ástarsaga kvikmyndanna.
Viðfangsefni SÁÁ er að hjálpa þeim, sem vilja losna úr viðjum
vímunnar, mönnum á borð við söguhetju myndarinnar. SÁÁ mun
njóta allra tekna af miðasölu á frumsýningu „Leaving Las Vegas“, í
viðurkenningarskyni fyrir meðferðarstarf sitt.
✓
„Leaving Las Vegas“ hefur verið tilnefnd til fernra Oskarsverðlauna,
þar á meðal fyrir besta leik aðalleikara og leikstjórn.
Frumsýnd í Regnboganum föstudaginn 22. mars kl. 21.00.
/ /
Miðasala á frumsýningu hjá SAA, Síðumúla 3-5,
Úlfaldanum og Mýflugunni, Ármúlal7a og
í Regnboganum.
MEISTARINN EHF
HANDSALI
AUGLÝSINGAR - SKILTAGERÐ
SILKIPRENTUN
SJÓVÁ-ALMENNAR
SÁA þakkar fyrir veittan stuðning
Samtök áhugafólks
um áfengis- og
vímuefnavandann