Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 17
NEYTENDUR
ÚRVERINU
Fatasaumskeppni
Burda og Eymundsson
BERGÞÓRA Guðnadóttir lenti í þriðja
sæti í keppninni í fyrra.
í JÚNÍ í fyrra var í fyrsta
sinn haldin fatasaums-
keppni Burda og Ey-
mundsson sem er und-
ankeppni keppninnar um
Aenne Burda-verðlaunin,
en sú er haldin í Baden
Baden í Þýskalandi í
október næstkomandi og
mun þá fulltrúi íslands
verða þátttakandi öðru
sinni.
Á síðasta ári varð
Bergþóra Guðnadóttir í
þriðja sæti í keppninni
sem haldin var í Trieste
á Ítalíu. Keppt er um
best hönnuðu og saum-
uðu sumarfötin sem
saumuð eru af áhuga-
fólki. Leyfilegt er að nota Burda-
snið, en ferskar hugmyndir eru til
bóta og fagfólk hefur ekki rétt til
þátttöku. Undankeppnin verður hald-
in 27. maí í Ráðhúsi ReykjavSkur.
Þátttakendur hafa frest til 3. maí til
að senda tvær myndir af fatnaði sem
þeir hafa sjálfir saumað, ásamt upp-
lýsingum um sig og hversu mörg ár
viðkomandi hefur saumað því keppt
er í tveimur flokkum. Um er að ræða
byijendaflokk og síðan flokk þeirra
sem saumað hafa í tvö ár eða lengur.
Þeir sem lenda í fyrsta, öðru og
þriðja sæti fá ýmis verðlaun, t.d.
saumavélar, vefnaðarvöruúttektir,
áskriftir að tímaritum og fleira. Sig-
urvegarar í báðum flokkum fá síðan
ferðina til Baden Baden þar sem
þeir taka þátt í aðalkeppninni og
heildarverðlaunin þar eru um 11
milljónir. Nota má öll efni nema loð-
feld og keppendur verða að sýna
fötin sjálfir.
Senda öllum fermingar-
stúlkum sokkabuxum
ALLAR fermingarstúlkur á land-
inu, um 2 þúsund talsins, fá sendar
Oroblu sokkabuxur frá fyrirtækinu
í sérstakri gjafaöskju.
Ari Singh, forstjóri íslensk-aust-
urlensku heildsölunnar, segir að
þetta séu að vísu ekki sokkabuxur
af nýjustu gerð. Passi þær ekki er
hægt að skipta þeim í öllum verslun-
um sem selja Oroblu.
Þetta er fyrsta sinn sem fyrir-
tækið gefur fermingarstúlkum
sokkabuxur og er þetta gert í til-
efni af tíu ára afmæli fyrirtækisins.
Ari segir að þetta geti hugsanlega
orðið fastur liður í starfseminni.
Hann sagði að gjöfin væri ætluð
sem kynning á sokkabuxunum sem
hafa verið á markaði hérlendis í
hátt í tíu ár.
„Sennilega er þetta stærsta
fermingargjöfin í ár því hverjar
sokkabuxur kosta um 600 kr. út
úr búð. Þetta eru 2 þúsund pör sem
við gefum og andvirðið er 1,2 millj-
ónir kr. Þar fyrir utan sendum við
fermingarstúlkum kort með tilvitn-
un í Biblíuna og bréf til foreldranna
ásamt gjafaöskju sem er framleidd
hérlendis. Kostnaðurinn við þetta
er því yfir tvær milljónir kr.,“ sagði
Ari.
Vörulistarnir Ellos og
JCPenney í nýtt húsnæði
HBD pöntunarfélag hefur flutt sig
um set og er nú til húsa í Völundar-
húsinu á horni Klapparstígs og
Skúlagötu. Félagið er með umboð
og sérpöntunarþjónustu fyrir Ellos
sem er eitt stærsta póstverslunar-
fyrirtæki á Norðurlöndum með höf-
uðstöðvar i Svíþjóð. Þann 1. sept-
Sælgætisterta
Einn botn,
ekki tveir
í FYLGIBLAÐI Morgunblaðs-
ins um fermingar, sem kom út
um síðustu helgi, var uppskrift
að sælgætistertu. Kornflögu-
botnar kökunnar eru sagðir
eiga að vera tveir en miðað við
magn hráefnis í uppskrift er
um EINN botn að ræða.
Þegar kökunni er raðað sam-
an kemur því kókosbotninn
neðst, þá rjóminn með súkkul-
aði, döðlum og möndlum næst
en hlutfallið þar fer eftir smekk
þeirra sem eru að baka. Að lok-
um kemur kornflögubotninn
ofan á og síðan karamellubráð-
in. Eitthvað hefur vafist fyrir
sumum hvernig búa eigi til
karamellubráð. Sjóðið saman
ijóma og púðursykur og bætið
út í smjörlíki og vanilludropum.
Látið kólna örlítið og setjið á
kökuna.
ember s.l. tók félagið við einkaum-
boði fyrir JCPenney sem er jafn-
framt eitt stærsta póstverslunarfyr-
irtæki Bandaríkjanna.
Afsláttarmiðar fylgja
Við kaup á vörulistum frá Ellos
og JCPenney fylgja afsláttarmiðar
sem veita rétt á tvöföldu söluverði
listanna'til frádráttar fyrstu pönt-
un, sé ákveðnum skilmálum full-
nægt. Eitthvað er til af varningi
úr listunum í húsnæði pöntunarfé-
lagsins en afgreiðslufresturinn er
frá 3-6 vikum eftir umfangi pant-
ana.
DÆMI um verð. Þessi sumar-
kjóll er úr Ellos-listanum.
Hann kostar 2.235 krónur í
stærðum 34-44.
íshákarl með tilraunaveiðar og vinnslu á beitukóngi
Suðurkóreumenn kaupa
beitukóng úr Hólminum
Stykkishólmi. Morgunblaðið.
ÍSHÁKARL hf. hefur stundað ígul-
keravinnslu í Stykkishólmi undan-
farin 3 ár. Vinnslan hefur tekið
mjög miklum breytingum á þessum
stutta tíma. í byijun var allt hand-
unnið og þurfti' mikinn mannafla
miðað við magnið sem unnið var.
Nú er fyrirtækið komið í sitt eigið
húsnæði og hefur þróað vinnsluna
og vélvætt stóran hluta hennar.
Nú eru hafnar tilraunaveiðar og
vinnsla á beitukóngi til að renna
styrkari stoðum undir rekstur fyrir-
tækisins.
Afurðirnar, ígulkerahrognin, eru
nær eingöngu seldar til Japans og
þykja þar lúxusmatur. Hrognin eru
flokkuð í fjóra litarflokka. Ljósu
litaflokkarnir eru langverðmætastir
en það eru ljósgul og ljósrauð hrogn.
Eftir því sem litirnir dökkna er eftir-
spurnin minni og verðið lægra. ígul-
kerahrognin eru flutt til Japans á
þrennan hátt. Fersk ígulker eru
flutt með flugi tvisvar í viku. Þar
er hrognunum pakkað í 100 g neyt-
endaöskjur. Dökku litaflokkarnir
eru saltaðir í 100 g krukkur og
frystir og eins settir í alkóhólblöndu
og frystir í 15 kg pakkningar.
Flutningskostnaður er mjög hár og
fer kostnaðurinn með umbúðum
upp í 500 kr. fyrir hvert kíló.
Framtíðin óljós
Framtíðin í ígulkeravinnslu er
óljós. Telja forsvarsmenn fyrirtæk-
isins að um ofveiði sé að ræða hér
á Breiðafirði. Nú er svo komið að
það er slagur hjá bátunum upp á
hvern einasta dag að ná sínum
skammti. Fyrir nokkru komu
starfsmenn Hafrannsóknastofnun-
ar til að stofnstærðmæla ígulker
og vona menn að í framhaldi af því
verði höfð meiri stjórn á veiðunum.
En það er augljóst að sú sókn sem
stunduð hefur verið í ígulkeraveið-
um gengur ekki lengur og veiði-
magnið mun minnka á næstu árum.
Því mun vinna við vinnslu ígulkera
minnka og ná yfir færri mánuði.
Annarra möguleika leitað
Af þessum sökum hafa forsvars-
menn íshákarls hf. leitað eftir öðr-
um möguleikum til að halda úti
starfsemi allt árið. Eitt af því sem
þeir hafa skoðað eru veiðar á beitu-
kóngi. Hefur verið lögð mikil vinna
í markaðskönnun sem nú hefur
skilað árangri. Ishákarl hefur náð
samningi við aðila í Kóreu um kaup
á beitukóngi. Nú á eftir að kanna
hvernig gengur að veiða beitukóng
í því magni sem þarf til að skapa
vinnslunni hráefni.
Tilraunaveiðar í gildrur
Á næstu vikum fara fram til-
raunaveiðar í gildrur á Breiðafirði.
Beitukóngur er hrææta og því þarf
að leggja beitu í gildrurnar. Mikinn
fjölda þarf af gildrum og verður
hver bátur sem kemur til með að
stunda þessar veiðar með nokkur
hundruð gildrur. Það er búið að
leggja í mikinn kostnað við undir-
búning. Ef vel tekst til er vonast
til að vinnsla beitukóngs standi yfir
í 7-8 mánuði á ári og ígulkera-
vinnslan brúi bilið sem eftir lifir
ársins.
Morgunblaðið/Páll Þór Guðmundsson
LOÐNUNNI dælt um borð í Hugin VE á miðunum.
ÞAÐ var mjög rólegt yfir loðnu-
veiðunum í gær. „Þetta er að
verða búið,“ sagði Guðmundur
H. Guðmundsson, skipstjóri á
Hugin. „Báternir eru hér sunnan
og vestan við Snæfellsjökul og
það er sáralítið að finna. Menn
eru á því að þetta séu allra síð-
ustu dagarnir."
Hann sagði að engin veiði
hefði verið hjá bátunum í gær-
morgun. Þótt bátarnir hefðu
kastað hefðu torfurnar verið það
litlar að ekkert hefði komið út
úr því. „Við erum komnir með
Rólegt yfir
loðnuveið-
unum
400 til 500 tonn,“ sagði hann.
„Það er renniblíða og aðeins
veiði í björtu ef eitthvað er. Bát-
arnir láta bara reka á kvöldin
og fram í birtingu." Hann sagð-
ist ætla að sjá til með daginn í
gær hvað yrði um framhaldið.
Heildarveiði á vetrarvertíð
yfir 560 þúsund tonn
Heildarveiði á vetrarvertíðinni
er nú komin upp í 560.330 tonn.
Sex íslensk skip lönduðu um 4
þúsund tonnum á þriðjudag og
eitt erlent skip landaði rétt rúm-
um 700 tonnum hjá SR-mjöli hf.
á Reyðarfirði. í gær landaði svo
Beitir 1.014 tonnum á Neskaup-
stað og Hólmaborg 1.464 tonnum
hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar.
„Glettilega góður hálfur mánuður“
„ÞETTA er búinn að vera glettilega
góður hálfur mánuður," segir Jósa-
fat Hinriksson, eigandi J. Hinriks-
sonar hf. „Þessar tvær vikur eru
með þeim stærstu." Ég held að við
höfum þó einhvern tíma komist í
80 tonn áður í einurn mánuði.“
Hann segist ekki vilja útvarpa verð-
mætunum: „Ég tala bara í tonnum.“
Á tímabilinu 1. mars til 15. mars
voru seld tólf pör af toghlerum sem
voru samtals 52,74 tonn. Þrír tog-
Góður gangur hjá
J. Hinrikssyni
hlerar fóru um borð Hslensku skip-
in Guðbjörgu ÍS-16, Ásbjörn RE-50
og Sigurbjörgu ÓF-1. Þrír toghlerar
fóru til Namibíu, tveir til Noregs
og sinn til hvers landanna Skot-
lands, Bandaríkjanna, Færeyja og
Kanada.
Einnig tók J. Hinriksson hf. þátt
í sjávarútvegssýningu í Aberdeen 14.
til 16. marg síðastliðinn. Þar voru
seld sjö og hálft par sem voru sam-
tals 14 tonn. Að auki á eftir að
ákveða þyngd og afhendingartíma á
þremur til íjónim pörum til viðbótar.
„Það er mjög góður uppgangur núna
á Bretlandseyjum í sjávarútveginum
og sýningin var vel sótt,“ segir Jósa-
fat. „Við tókum fyrst þátt í sýningu
í Aberdeen árið 1982 og vorum fyrst-
ir íslendinga til að sýna þar.“