Morgunblaðið - 21.03.1996, Side 18
18 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Forkosningar í fjórum ríkjum miðvesturhluta Bandaríkjanna
Útnefning Dole tryggð
Chicago, Washington. Reuter.
' Reuter
STUÐNINGSMENN hylla Bob Dole og eiginkonu hans, Eliza-
beth Dole, á fundi í Washington á þriðjudagskvöld.
Reuter
ANNA Grayson með
steininn.
Furðu-
steinnfrá
Marokkó
London. Reuter.
STEINVALA sem fannst í Mar-
okkó fyrir 15 árum er gerð úr
algerlega nýju efni sem ekki
hefur fundist fyrr á jörðunni, að
sögn breskra vísindamanna. Hún
er á stærð við hnefa, skærblá
að lit en skiptir litum, getur orð-
ið tjómagul. Talið er að ryk úr
efninu geti verið eitrað eins og
asbestryk.
Um 40 ný steinefni finnast á
hveiju ári en venjulega er sýnis-
homið svo lítið að það sést vart
með berum augum. Jarðfræðing-
urinn Anne Grayson rakst á
steininn í minjagripaverslun í
Marokkó en gat ekki greint
hann. í fyrra sýndi hún loks sér-
fræðingum steininn og hafa
kannanir þeirra leitt í ljós að
hann er gerður úr mörgum millj-
ónum kristalla sem eru trefja-
kenndir á sama hátt og asbest.
Ryk úr slíku efni getur verið
hættulegt sé því andað að sér,
jafnvel valdið dauða.
Ottast safnara
Fundist hafa kísill, ál, kals-
íum, magnesíum, járn og súrefni
í steininum. „Þegar honum er
velt undir smásjánni breytast lit-
irnir úr rauðfjólubláu yfir í blátt
og síðan ijómagult. Ég hef aldr-
ei áður séð þetta gerast í stein-
efni,“ sagði Grayson. Hún vill
ekki tilgreina nákvæmlega hvar
hún keypti steinvöluna, óttast
að þá muni safnarar gera innrás
á staðinn.
Efnið hefur ekki enn hlotið
nafn. Vísindamenn við náttúru-
fræðistofnunina í London sögðu
í vikunni að efnið hefði verið
rannsakað í ár en margt væri
enn á huldu um eiginleikana.
BOB Dole, öldungadeildarþingmað-
ur í Bándaríkjunum, vann yfirburða-
sigur í forkosningum repúblikana í
fjórum sambandsríkjum, Ohio, Mic-
higan, Illinois og Wisconsin, á þriðju-
dag. Telja fréttaskýrendur að hann
hafi nú fengið nægilega marga full-
trúa til að verða kjörinn forsetafram-
bjóðandi á landsfundi í San Diego í
ágúst.
Sjálfur var Dole í gær varkár sem
fyrr og sagðist vilja bíða með form-
lega yfirlýsingu um að hann hefði
tryggt sér útnefninguna þar til eftir
prófkjörið í Kaliforníu sem er ijöl-
mennasta ríkið. Þar verður kosið í
næstu viku. „Repúblikanar um öll
Bandaríkin hafa nú sameinast um
frambjóðanda," sagði Dole er úrslit-
in voru ljós. „Þeir vilja að íhaldssemi
og heilbrigð skynsemi verði á ný
leiðarljósið í Hvíta húsinu". Lagði
Dole áherslu á að hann vildi gera
grundvallarbreytingar á stjórnar-
stefnunni og það yrði aðeins gert
með því að sigra Biil Clinton.
Buchanan berst áfram
Dole særðist illa í heimsstyijöld-
inni síðari og hefur lítinn mátt í
hægri handlegg. Fyrir nokkrum
árum var hann skorinn upp við
krabbameini í blöðruhálskirtli en
mun hafa náð sér að fullu. Tvær
fyrri tilraunir Dole til að verða út-
nefndur frambjóðandi, 1980 og
1988, mistókust báðar.
Eini keppinautur Dole á þriðju-
KROFU Winnie Mandela um að
fá helming eigna mannsins síns
fyrrverandi, Nelsons Mandela,
forseta Suður-Afríku, var vísað
frá fyrir rétti í Jóhannesarborg
í gær. Mætti hún ekki þegar
málið var tekið fyrir og sendi
engan fyrir sig. Mandela segist
hins vegar fús til að semja við
hana um eðlilegan fjárstyrk.
Lögfræðingur Mandela fór
fram á, að dómarinn vísaði kröf-
unni frá og á það féllst hann
eftir að hafa vakið athygli á, að
hvorki Winnie né lögfræðingur
hennar hefðu látið svo lítið að
mæta til réttarhaldsins. Winnie
rak raunar lögfræðing sinn,
Ismail Semenya, á þriðjudag þeg-
ar kröfu hennar um að skilnaðar-
málinu yrði frestað var hafnað.
Dagblað í Suður-Afríku hefur
dag, Pat Buchanan, fékk aðeins fá-
eina kjörmenn á þriðjudag, best gekk
honum í Michigan og Wisconsin þar
sem hann hlaut 33% og 30% fylfei.
Hann viðurkenndi að Dole myndi
sennilega verða kjörinn á landsfund-
inum en sagðist þó ekki myndu gef-
ast upp. Hann hygðist sem fyrr beij-
ast fyrir hagsmunum launþega sem
ættu atvinnuleysi á hættu vegna
samninga um fijálsari alþjóðavið-
skipti, auk þess myndi hann beijast
gegn fóstureyðingum.
Dole hvatti Buchanan til að fara
að dæmi annarra keppinauta sinna
í forkosningunum og lýsa yfir stuðn-
áætlað, að meta megi eigur
Mandela forseta á 660 millj. ísl.
kr. og Winnie krafðist þess að
fá helminginn í sinn hlut. Er hún
stórskuldug og í miklum vanskil-
um með átta millj. kr. lán á glæsi-
legri villu sinni í Soweto.
Stórskuldug vegna
óhófseyðslu
Mandela hefur lagt ýmis gögn
fyrir réttinn, sem sýna, að Winnie
hefur enga stjórn á eyðslu sinni
og lifir langt um efni fram. Hefur
hann upplýst, að frá því hann
losnaði úr fangelsi 1990 hafi hann
látið Winnie fá meira en 50 millj-
ónir ísl. kr. Þar að auki hefur
hann keypt hús, bíla og fleira
fyrir dætur þeirra tvær.
Fram kom einnig við réttar-
höldin, að laun Winnie sem þing-
ingi við sig og það skilyrðislaust.
Buchanan hefúr sagt að hann myndi
ekki styðja Dole ef Colin Powell,
fyriverandi forseti herráðsins, yrði
varaforsetaefni flokksins. Hægri-
mönnum í repúblikanaflokknum
þykir Powell, sem er blökkumaður,
of hlynntur ýmsum ríkisframlögum
til minnihlutahópa og þar að auki
vill hann ekki banna fóstureyðingar.
Dole sagðist óttast að byði
auðkýfingurinn Ross Perot sig fram
myndi það aðallega skaða sig. Ljóst
þótti 1992 að Perot hefði tryggt
Clinton sigurinn er George Bush var
frambjóðandi repúblikana.
manns fyrir Afríska þjóðarráðið
væru 272.000 ísl. kr. á mánuði
en útgjöldin væru hins vegar 1,8
millj. kr. á mánuði. Færi hún
meðal annars með 170.000 kr. í
föt mánaðarlega, 204.000 kr. í
skemmtanir, 34.000 kr. í snyrti-
vörur og þannig fram eftir göt-
unum.
Mandela sagði við réttarhöldin,
að hjónabandið með Winnie eftir
að hann losnaði úr fangelsi hefði
verið einmanalegur tími. Hefðu
samskipti þeirra í raun ekki ver-
ið nein ef undan væru skilin
„nokkur gamanyrði við opinber-
ar athafnir". Þá sýndi lögfræð-
ingur hans einnig fram á, að
Winnie hefði tekið fram hjá
manni sínum með ungum lög-
fræðingi hjá Afríska þjóðarráð-
inu.
Fjárkröfum Winnie vísað frá
Hefur 272.000 kr. í laun en einkaeyðsla 1,8 millj. á mánuði
Jóhannesarborg. Reuter.
KÆLISKAPAR
ÞU GETUR TREYST FAGOR
3
►V°TTA
tUoOVEBO'
RONNING
BORGARTÚNI 24
SÍMI 562 40 11
; : ■
afík
I
FAGOR S30N
Kælir: 265 I - Frystir: 25 I
HxBxD: 140x60x57 cm
Innbyggt frystihólf
***■ 41.800
FAGOR D27R
Kælir: 212 I - Frystlr: 78 I
HxBxD: 147x60x57 cm
Stgr.kr.
49.800
FAGOR C34R - 2 pressur
Kælir: 290 I - Frystlr: 110 I
HxBxD: 185x60x57 cm
Tvöfalt kælikerfi
s* " 78.800
Aðeins
leyfi fyrir
50 gesti
DISKÓTEKIÐ í Manila á
Filippseyjum, sem brann með
þeim afleiðingum, að 151 mað-
ur létu lífið, hafði aðeins leyfi
fyrir 50 gesti. Þeir voru hins
vegar á fjórða hundrað þegar
eldurinn kom upp aðfaranótt
sl. þriðjudags. Rafael Alunan,
innanríkisráðherra Filippseyja,
skýrði frá þessu í gær og Fidel
Ramos forseti sagði að embætt-
ismenn, sem ekki hefðu sinnt
skyldu sinni yrðu ákærðir fyrir
manndráp.
Yfirgáfu
vopnlausa
beltið
HERMENN Bosníustjómar
fóru frá vopnlausa beltinu við
Sarajevo í gær eftir að hafa
þráast við í nokkra daga. Vopn-
lausa svæðið, sem skilur svæði
Serba frá svæði sambandsríkis
Króata og múslima, er íjögurra
km breitt og þar má ekkert
herlið halda sig né vera með
neinn vopnabúnað.
Saksóknarar í Haag fjölluðu
í gær um mál þriggja serb-
neskra liðsforingja, Mile
Mrksic, Miroslav Radic og Ves-
elin Sljivancanin, sem ákærðir
eru fjarstaddir um fjöldamorð
á Króötum i Vukovar 1991. Var
fullyrt að þar hefðu hafist að-
gerðir sem síðar voru nefndar
þjóðahreinsanir.
Sverfur að í
N-Kóreu
KÍNVERSKT skip, sem flutti
matvæli til Norður-Kóreu, sökk
í illviðri á Tævansundi á þriðju-
dag og er 15 manna saknað.
Er slysið mikið áfall fyrir N-
Kóreu því að farmurinn, 6.538
tonn af hrísgijónum, hefði get-
að satt hungur 726.000 manna
í mánuð.
Áfrýjun
hafnað
ÞRÍR breskir dómarar tóku sér
aðeins 15 mínútur til að hafna
áfrýjun Rose-
mary West en
hún var dæmd
fyrir að hafa
myrt níu ung-
ar konur og
stúlkur ásamt
manni sínum,
Frederick
West. Hann
hengdi sig í fangaklefa. West
mun nú veija ævidögunum í
fangelsi í Durham ásamt ann-
arri konu, Myru Hindley, en
1966 voru hún og ástmaður
hennar, Ian Brady, dæmd í lífst-
íðarfangelsi fyrir að pynta og
myrða tvo drengi, 10 og 17
ára. Þau játuðu síðar á sig tvö
önnur morð.
Baltar ræða
varnarsam-
starf
YFIRMENN herja baltnesku
þjóðanna þriggja, Eistlands,
Lettlands og Litháens, sögðu í
gær að varnarbandalag ríkj-
anna væri ekki líklegt en þeir
vildu eindregið auka samvinnu
sína. Lögð var áhersla á að
komið yrði upp sameiginlegri
yfirstjórn í lofthelgi landanna.