Morgunblaðið - 21.03.1996, Qupperneq 22
22 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Barokk á
ísafirði
TÓNLEIKAR á vegum Tónlistar-
skóla ísafjarðar verða haldnir í ísa-
fjarðarkirkju á sunnudag kl. 17.
Efnisskrá tónleikanna er helguð
tónlist fyrri tíma, nánar tiltekið
barokktónlist, en svo er tónlistin frá
tímabilinu 1600-1750 oft kölluð.
Flutt verða verk eftir Bach, Hánd-
el, Corelli, Rameau, Scarlatti og
ýmsa minna þekkta höfunda. Leikið
verður á orgel, fiðlur, selló, harmón-
íku, flautu, blokkflautu, klarinett,
trompet og gítar, auk þess sem
nokkrir söngnemendur syngja. Þá
leikur strengjasveit skólans verk eft-
ir Bach, Hándel og Pachelbel undir
stjórn Janusz Frach.
Flytjendur eru nemendur skól-
ans, aðallega þeir, sem lengst eru
komnir á veg, en einnig koma fram
nokkrir nemendur af yngstu kyn-
slóðinni.
Jónas Tómasson tónskáld mun
kynna verkin og Ijalla um nokkur
helstu stílkenni barrokktímabilsins.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill.
Ljósmynd/Helgi Hinriks
ÍBUAR í Oklahoma um miðja öldina.
*
Oklahoma í Islensku óperunni
NEMENDAOPERA Söngskól-
ans í Reykjavík frumsýndi
síðastliðið föstudagskvöld í Is-
lensku óperunni söngleikinn
Oklahoma eftir Rodgers og
Hammerstein í þýðingu Oskars
Ingimarssonar og Guðmundar
Jónssonar.
Tvær sýningar voru um helg-
ina og uppselt á báðar. Okla-
homa verður því aftur á fjölum
Islensku óperunnar næstkom-
andi laugardagskvöld.
Sýningin í íslensku óperunni
hefst kl. 20 og er miðasala í
óperunni. Miðaverð er 900 kr.
TRÍÓ Ólafs Stephensens.
130 ára
afmælis-
tónleikar
TRÍÓ Ólafs Stephensens kemur
fram á 130 ára afmælistónleikum
í kvöld í Norræna húsinu kl. 20.30.
Tilefnið er sjötugsafmæli Guð-
mundar R. Einarssonar, sem einnig
fagnar fimmtíu ára starfsafmæli
sem tónlistarmaður og sextugsaf-
mæli Ólafs Stephensens. Svo á
Tómas R. Einarsson bara venjulegt
afmæli á mánudaginn kemur!
Efnisleg spor
MYNPLIST
Mokka — Ráðhúsið
MYNDIR/LITSKYGGNUR
Ósk Vilhjálmsdóttir. Opið á tíma
Mokka og Ráðhússins til 16. apríl.
Aðgangur ókeypis.
MENN hafa vafalítið tekið eftir
því að ljósmyndir á borðum og veggj-
um eiga það til að gulna og dofna
í römmunum. Astæðan getur legið
í því að filmuvinnu hefur verið ábóta-
vant, en einnig vegna þess að sólar-
ljósið hefur upplitað myndina.
Það er svo í anda tímanna, að
nota þetta sérstaka ferli í upplitun
mynda sem hnitmiðaða uppistöðu í
listrænum gjörningi, svo sem á sér
stað hjá Osk Vilhjálmsdóttur á
veggjum Mokka kaffís og í Ráðhús-
inu. Hvað myndirnar á Mokka snert-
ir voru þær í litskyggnuformi límdar
upp á stórar gluggarúður á sýningu
í Berlín í hálft ár, þar sem þær upp-
lituðust, dofnuðu og hefðu á endan-
um horfið alveg. Osk og Hjálmar
Sveinsson samstarfsmaður hennar
völdu svo 29 skyggnur úr þessari
sýningu af handahófi, létu stækka
þær og prenta á pappír. Síðan skrif-
aði Hjálmar texta í eins konar dag-
bókarstíl við hveija þeirra.
Þetta eru annars myndir sem
keyptar eru hjá skransölum og eru
sagðar koma úr dánarbúum, „not-
aðar tækifærismyndir", sem einu
sinni voru nýjar og ferskar. Virkar
í tímanum og afmörkuðum hópi til
óblandinnar ánægju, jafnframt vegs-
ummerki og skjalfesting lífs og lífs-
ferils viðkomandi, svo og um tíma-
mót ýmiss konar.
Gerendum var í mun að sýna fólk-
inu sem tók þessar myndir virðingu
og breyttu þeim í engu. Þær voru
framkallaðar, prentaðar og skornar
í sjálfvirkum vélum og eru ekki frá
neinu afmörkuðu tímabili né landi.
Oft er erfitt fyrir skoðandann að
rýna í þessar uppiituðu myndir, sem
eins og hafa misst sjálfsvitund sína
og tilgang, en hér grípur texti
Hjálmars inn, sem er í eins konar
dagbókarstíl og hreyfir við hugar-
flugi skoðandans. Oftar en ekki hitta
hugleiðingamar og sú speki sem þær
í bland innihalda í mark.
Sýningin í Ráðhúsinu saman-
stendur af heilum 9.500 myndum,
sem þekja hluta af suðurglugga
Tjarnarsalar þannig að dagsljósið
sem kemur inn í salinn skín í gegn-
um þær. Þegar dimmir snýst það
við, því þá kemur ljósið að innan og
varpar myndunum út á tjörn. Enn
erfiðara er að rýna í litskyggnurnar
og hér saknar skoðandinn hinna
snjöllu texta á Mokka, en þó er ekki
víst að það sé annað en andblær
myndanna sem á að skila sér, og
gerir það raunar á sérkennilegan
hátt er gjörningurinn gengur upp.
Jafnframt virka skyggnurnar á
glugganum eins og áleitin og marg-
ræð mósaikmynd og hér er ekki svo
lítið af hnitmiðaðri uppbyggingu og
fagurfræði á ferðinni.
Maður er vel sáttur við þennan
gjörning og innsetningu vegna hins
sjónræna innihalds og mörkuðu
vinnubragða. Einnig komst ég ekki
hjá því að verða var við að fram-
kvæmdin vakti viðbrögð hjá fólki,
sem er meira en sagt verður um
obbann af því sem sjáöldrin hafa
minnst við undanfarið.
Vel er búið að sýningunum og
skýringartextar í látlausri skrá
fræðandi og til fyrirmjmdar.
Bragi Ásgeirsson
QUesílequr
bavnAfatticuðu.
Sumavímcuv
t'conufv
ringlunni, sími 568 668j
„Strætið“ í
Mánagarði
Hornafirði - Leikfélag Horna-
fjarðar hefur sýnt Strætið í
leikstjórn Guðjóns Sigvalda-
sonar við góða aðsókn undan-
farnar vikur. Sýningin vekur
ekki bara athygli fyrir góðan
leik þeirra 30 leikara sem fara
með hlutverk heldur Iíka fyrir
vandaða og sérstæða leik-
mynd. Dómnefnd frá Þjóðleik-
húsinu sótti Ieikfélagið heim á
dögunum til að dæma verkið
til sýnis í Þjóðleikhúsinu í vor
en þess má geta að Leikfélag
Hornafjarðar van fyrst áhu.ga-
leikfélaga til að sýna í Þjóð-
leikhúsinu vorið 1994, Djöfla-
eyjuna eftir Einar Kárason.
Nú fer hver að verða síðastur
að sjá sýninguna því að síð-
ustu sýningar eru í kvöld og
annað kvöld.
HINIR árvissu tónleikar
hinna ýmsu hljómsveita Tón-
menntaskóla Reykjavíkur
verða haldnir á laugardag.
Blásarar og
strengjasveit
Tónmennta-
skólans
HLJÓMSVEITARTÓNLEIKAR
á vegum Tónmenntaskóla
Reykjavíkur verða haldnir á
laugardag kl. 14. Þetta eru hin-
ir árvissu tónleikar ýmissa
hljómsveita skólans. Fram
koma yngri og eldri strengja-
sveit og yngri og eldri blásara-
sveit ásamt léttsveit skólans.
Aðgangur að tónleikunum er
ókeypis og öllum heimill meðan
húsrúm leyfir.
Farand-
sýningin
„Á norrænni
slóð“
FARANDSÝNINGIN „Á nor-
rænni slóð“ verður opnuð sam-
timis alls staðar á Norðurlönd-
unum laugardaginn 23. mars
á norrænum degi. Björn
Bjarnason, menntamálaráð-
herra opnar sýninguna hér á
landi kl. 14 í Héraðsbókasafni
Kjósarsýslu, Þverholti 2, Mos-
fellsbæ.
í kynningu segir: „Sýningin
er hluti af Nordliv-verkefni
Norrænu félaganna sem er
ætlað að efla umræðu um það
sem sameinar Norðurlöndin og
skilur þau að og hvaða máli
samvinna skiptir fyrir okkur.
Á sýningunni eru ljósmynd-
ir, teikningar og kort ásamt
texta og má líkja henni við
ferðalag um sögu Norðurland-
anna. Viðkomustaðirnir sýna
okkur þróun landanna til dags-
ins í dag. Á leiðinni er dregin
upp mynd af sameiginlegri
fortíð, góðri sem slæmri. En
einnig þeirri einstöku aðstöðu
sem Norðurlandabúar eru í til
að hafa áhrif á framtíðarþróun
í Evrópu og heiminum. Það
getum við aðeins með því að
vita hver við sjálf erum, hvað
við stöndum fyrir og hvað við
getum lært af öðrum."
Farandsýningin „Á nor-
rænni slóð“ verður á ferð um
landið næstu tvö árin og verð-
ur sett upp á byggða- og bóka-
söfnum og í skólum víða um
land.
Maraþon-
tónleikar
LÉTTSVEIT Tónlistarskólans
í Keflavík heldur maraþontón-
leika á sal Tónlistarskólans við
Austurgötu 13 á laugardag frá
kl. 14-20.
Léttsveit Tónlistarskólans í
Keflavík er 20 manna sveit
undir stjórn Karenar Stur-
laugsson. „Hljómsveitin spilar
tónlist frá fimmta áratugnum,
„Big Band Swing“ og önnur
vinsæl lög líðandi stundar,“
segir í kynningu.
Þetta er liður í fjáröflunar-
starfi sveitarinnar vegna fyrir-
hugaðrar ferðar til Orlando,
vinabæjar Keflavíkur, í maí.
Léttsveitin verður rneð kaffi-
og vöfflusölu á meðan mara-
þontónleikarnir standa yfir.
Einnig gefst tónleikagestum
færi á að kaupa sér lag, stjórna
sveitinni og fleira í þeim dúr.
Tréskurðar-
sýning
NEMENDUR Hannesar
Flosasonar sýna tréskurðar-
verk í íspan húsinu við Smiðju-
veg í Kópavogi næstkomandi
laugardag og sunnudag kl.
14-18 báða dagana.
Þetta er áttunda sýning
skurðlistarskóla Hannesar frá
byijun 1972. Þar er nú í boði
námsbraut í 7 stigum með allt
að 250 verkefnum, sem hæfa
öllu áhugafólki um tréskurð-
arlist.
Símbréfalist
SÝNING á list í formi símbréfa
og símsvaraskilaboða verður
opnuð á laugardag kl. 16 í
Sýningarsalnum við Hamarinn,
Strandgötu 50 í Hafnarfirði.
Sýningin stendur til tnið-
vikudagsins 3. apríl og er opin
frá kl. 14-18 alla daga nema
mánudaga.