Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 26

Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 26
26 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 MORGUNBLAÐIÐ LISTIR - kjarni malsim! Kynning á SVELTE líkamslínunni frá DIOR í dag og á morgun kl. 13.00-18.00. Glæsileg tilboð. SNYRTIYORUVERSIUNIN (jLESIfei: ___ ÍÍMSBBKi Sfmi 568 5 170 Finnski rithöfundurinn Paavo Haavikko hlaut leikskáldaverðlaunin Sýning'unni „Tónlist í grátónum“ að ljúka SÝNINGU Einars Óla Einars- sonar í Ljósmyndastöðinni Myndási, Laugarásvegi 1, lýkur föstudaginn 22. mars. Myndirnar eru af innlend- um og erlendum tónlistar- mönnum, þekktum og minna þekktum listamönnum. Einar Óli stundaði nám í ljósmyndun við Bournemouth and Poole College of Art and Design og útskrifaðist þaðan sumarið 1995. Sýningin er opin virka daga kl. 10-18. Kristbergnr sýnir á Sóloni SÝNING á málverkum eftir Kristberg Pétursson hefst á Sóloni íslandus í Bankastræti laugardaginn 23. mars. Verk- in á sýningunni eru frá dvöl listamannsins á Norrænu listamiðstöðinni í Sveaborg í Finnlandi á síðasta ári. Einnig eru verk eftir Krist- berg til sýnis á Kaffi Oliver í Bankastræti og í húsnæði Hafnarfjarðarleikhússins við Vesturgötu í Hafnarfirði. Sýningarnar standa um óákveðinn tíma. Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir FRÁ uppfærslu Leikfélags ME á Sex persónum í leit að höfundi. Sex persónur í leit að höfundi Egilsstöðum. Morgunblaðið. LEIKFÉLAG Menntaskólans , á Egilsstöðum sýnir um þessar mundir leikritið Sex persónur í leit að höfundi eftir Luigi Piran- dello. Leikstjóri er Margret Gutt- ormsdóttir og er hún jafnframt þýðandi verksins. Leikritið gerist í leikhúsi þar sem verið er að æfa leikrit er skyndilega birtist á sviðinu fjöl- skylda í sorgarklæðum og leitar höfundar síns. Smám saman kem- ur í ljós hver saga þessarar fjöi- skyldu er. Uppsetning leikritsins er í hönd- um nemenda Menntaskólans en þeir hafa unnið við alla þætti verksins, undirbúning og fram- kvæmd. Með aðalhlutverk fara Friðrik Atli Sigfússon, en hann leikur föðurinn, Agnes Vogler í hlutverki móðurinnar, soninn leik- ur Unnar Geir Unnarsson, stjúp- dóttirin er leikin af Kristínu Hólm Þórleifsdóttur og í hlutverki leik- stjórans er Ari Páll Albertsson. Þetta er ijórða uppfærsla Mar- gretar fyrir Leikfélag ME. Mar- gret sagðist sátt við sýninguna, æfingatímabilið hafí tekið á alla. Hún segist ánægðust með að hafa komið verkinu til skila til krakk- anna. „Leikritið er þess eðlis að ef ekki er hægt að glæða það lífi kemst efni þess ekki áleiðis.“ Leik- ritið er sýnt í Alþýðuskólanum á Eiðum. STJÓRN Leiklistar- sambands Norður- landa hefur ákveðið að finnski rithöfund- urinn Paavo Haa- vikko muni hijóta Leikskáldaverðlaun Norðurlanda árið 1996 fyrir leikrit sitt Anastasia og ég. Paavo Haavikko er fæddur 1931 oghefur um árabil verið meðal fremstu rithöfunda Finnlands. Hann hóf feril sinn 1951 með útgáfu ljóðasafns. Haavikko er talinn fjölhæfastur finnskra höfunda, því eftir hann liggja auk ljóða smásögur, skáldsögur, leikrit bæði fyrir útvarp og svið, kvikmynda- og sjónvarpshandrit, óperutextar og sagnfræðirit. Höfundarverk hans telur yffy 100 titla. Paavo Haavikko hefur hlot- ið margháttaða við- urkenningu á höf- undarferli sínum. T.d. hefur hann í 9 skipti hreppt „Finnsku bók- menntaverðlaunin", árið 1969 hlaut hann þau fyrir leikrit sín. „Leikritið Anast- asia og ég segir frá aftöku rússnesku keisarafjölskyldunn- ar og undankomu tveggja yngstu systkinanna, Anast- asiu og Aleksejs. Þau giftast síðan og eign- ast saman soninn Boris og taka þátt í uppbyggingu Sovétrílganna eins og hverjir aðrir heiðvirðir borgarar," segir í kynningu. Kveikjan að leikriti Haavikkos var frétt í dagblaði árið 1991, sem greindi frá því að hinn 13. júlí sama ár hefði verið komið með níu lík inn á borgarsjúkra- húsið í Swerdiowsk (sem nú hef- ur aftur hlotið sitt gamla nafn Jekaterinburg). Daginn áður hafði verið opnað grafhýsi nokk- urt í grennd við þorpið Kopt- schak, sem álitið var að hefði að geyma líkamsleifar fjölskyldu rússneska keisarans Nikulásar II. í gröfina vantaði beinagrind hins fjórtán ára gamla krónprins Aleksejs og einnar konu. Anastasia og ég var frumflutt í Bonn í Þýskalandi 1994, en hefur nú einnig verið sett upp í Finnlandi. Leikskáldaverðlaunin verða afhent 12. júní nk. í Kaupmanna- höfn, í upphafi Norrænna leik- listardaga þar í borg. Fyrir hönd Leiklistarsambands Islands sátu í dómnefndinni þau Sigrún Val- bergsdóttir og Þórhaliur Sig- urðsson. Finnski rithöfund- urinn Paavo Haavikko. Ragnheiður í Leigjandann RAGNHEIÐUR Steindórs- dóttir hefur nú tekið við hlut- verki Chris í leikritinu Leigj- andanum sem Þjóð- leikhúsið sýnir um þessar mundir á Smíðaverk- stæðinu. Það var Anna Krist- ín Arn- grímsdóttir sem áður iék Chris en Ragn- heiður tók við hlutverkinu fyrir nokkru. Leigjandinn er breskt verð- launaverk eftir Simon Burke, spennuleikrit sem segir frá ungri konu með vafasama fortíð sem reynir að hefja nýtt líf. Ragnheiður Steindórsdóttir KARLAKÓRINN Fóstbræður. Vortónleikar Fóstbræðra SENN líður að 80. árlegu vortónleik- um Fóstbræðra fyrir styrktarfélaga og aðra tónlistarunnendur. Þeir verða haldnir eins og undanfarin ár í Langholtskirkju dagana 26., 27. og 28. mars kl. 20:30 og laugardaginn 30. mars kl. 15:30. Söngstjóri Fóst- bræðra er Ámi Harðarson. Á þessum tónleikum er lagavalið fjölbreytt. Það einkennist fyrst og fremst af íslensku efni. Þá eru á efnisskránni nokkur lög sem flutt voru á tónleikum kórsins í Digranes- kirkju sl. haust. Þar eru meðal ann- ars amerískir negrasálmar og lög úr söngleikjunum South Pacific og Show Boat. Að vortónleikum loknum tekur við undirbúningur að tónleikaferð til Danmerkur, Svíþjóðar, Finnlands og Eistlands og verður hún dagana 23. maí til 5. júní nk. Fyrstu tónleikar kórsins í þeirri ferð verða í konsert- salnum í Tívolí í Kaupmannahöfn 24. maí. Ennfremur verða tónleikar haldnir í Stokkhólmi, Uppsölum, Turku, Helsinki og Tallinn eða sam- tals 6 tónleikar. Meðal annarra tón- leikasala sem sungið verður í eru Jakobskirkjan í Stokkhólmi og Tempelkirkjan í Helsinki. „Efnisskrá kórsins í ferð þessari er fjölbreytt, og er lögð áhersla á að flytja bæði sígiida og nútímatón- list eftir íslenska og skandinavíska höfunda. Meðal höfunda má nefna Þórarin Jónsson, Sigvalda Kaldalóns, Bjarna Þorsteinsson, Jón Leifs,_Jón Nordal, Atla Heimi Sveinsson, Áma Harðarson, Carl Nielsen, Olav Kiel- land, Leevi Madetoja og Jean Sibel- ius,“ segir í frétt frá kórnum. tuHyiMfígf Stíf rúm eru betri fyrir bakið. ÍÍÍS Vísindalegar kannanir sýna að til þess að hryggurinn haldist í eðlilegri stöðu, verður rúmdýnan að gefa nóg eftir til að herðar og mjaðmir sökkvi niður en um leið að vera það stinn að hún leggist vel að mjóbakinu. Aðeins DUX-rúmin sameina þetta. &sýfiff§í Venjuleg rúm í millistærð (Queen-size) hafa 375 - 900 fjaðrir. DUX-rúm af sömu stærð hefur 1680 - 3450 fjaðrir. Fleiri fjaðrir þýða: jafnari stuðningur - minni mótstaða - betri blóðrás. íjSí## ítifi <sg pfáísStt ttmtt þft nœtttfkýtfítftn. pú htsínr eítír*

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.