Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 30
30 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 31
jMwgmnfrliifrifei
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Haligrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
LESSKILNINGI
ÁBÓTAVANT
FULL ástæða er til þess að taka niðurstöður samanburðar-
rannsóknar um lesskilning íslenskra og hollenskra nema
í ensku við upphaf háskólanáms alvarlega. Stofnun í erlendum
tungumálum við Háskóla íslands gekkst fyrir þessari rann-
sókn, sem leiðir í ljós, að níutíu af hundraði hollenskra ung-
menna, við upphaf háskólanáms, fá hærri einkunn í lesskiln-
ingsprófi í ensku en fyrsta árs nemar við Háskóla íslands.
Niðurstaðan er ótvíræð vísbending um laka enskukunnáttu
íslenskra háskólanema, sem er grafalvarlegt mál, ekki síst,
þegar það er haft í huga, að texti prófsins, sem lagður var
fyrir nemana, er að sögn Jóns Skaptasonar hjá Stofnun í
erlendum tungumálum við Háskóla íslands mun léttari en
texti á ensku, sem háskólanemar þurfa að lesa við upphaf
náms.
Fjöldi íslensku fyrsta árs nemanna sem þreytti prófið var
659 en notast var við 640 úrlausnir og var meðalaldur nem-
anna 23 ár. Það er þess virði að bera niðurstöðurnar saman
við þær hollensku, sem eru frá árinu 1991, því Hollendingarn-
ir voru einungis 18 ára gamlir og höfðu því ekki hafið há-
skólanám sitt. Þrátt fyrir það að meðalaldur próftakenda hér
á landi sé 5 árum hærri en þeirra hollensku, er niðurstaðan
þeim hollensku ótvírætt í vil.
Jón Skaptason gerði grein fyrir ýmsum fyrirvörum í tengsl-
um við samanburðinn í Morgunblaðinu í gær, svo sem þeim,
að hér á landi fer hærra' hlutfall útskriftarnema úr framhalds-
skólum í háskólanám en í Hollandi, þeir íslensku bjuggu sig
ekki sérstaklega undir prófið, en það gerðu þeir hollensku,
og jafnvel hafi hluti íslensku nemanna tekið prófið við ófull-
nægjandi aðstæður.
Sjálfsagt er að taka tillit til þeirra fyrirvara sem stofnunin
gerir, en eigi að síður hlýtur að felast áminning í niðurstöðum
rannsóknarinnar, til þeirra sem stjórna og stunda ensku-
kennslu á grunn- og framhaldsskólastigi hér á landi, um að
taka þurfi til hendi á þeim vettvangi, til þess að íslenskir
háskólanemar standi við upphaf náms jafnfætis háskólanem-
um í helstu viðmiðunarlöndum okkar og byggi á jafn góðum
grunni og þeir. Því er það spor í rétta átt, að Félag enskukenn-
ara, sem efnir til ráðstefnu á morgun, ætlar meðal annars
að fjalla um það hvort ástæða er til að taka upp samræmt próf
í ensku í framhaldsskólum.
Jafnframt er fullt tilefni til að kanna, eins og Jón Skapta-
son bendir á í framangreindu viðtali, hvort lesskilningi al-
mennt hefur hrakað og það væri hægt að gera með því að
leggja sambærilegt próf með sambærilega þungum texta fyr-
ir háskólanemana á íslensku.
HÚSNÆÐIFYRIR
KVIKMYNDASAFN
LOKS er í sjónmáli lausn á viðvarandi húsnæðisvanda
Kvikmyndasafns íslands og er það vel. Gengið hefur
verið frá uppkasti að samningi milli menntamálaráðuneytisins
og Hafnarfjarðarbæjar um að Kvikmyndasafn íslands flytji
til Hafnarfjarðar á næstu mánuðum. Samningsdrögin eru
báðum aðilum til mikils sóma. Þessum samningsdrögum er
ástæða til að fagna, því löngum hefur verið þrengt að starf-
semi Kvikmyndasafnsins í takmörkuðum og ófullnægjandi
húsakynnum.
Böðvar Bjarki Pétursson, forstöðumaður safnsins, lýsir því
í Morgunblaðinu í gær á hvaða hátt hagur safnins muni vænk-
ast við fullnustu samningsins. Safnið fær frystiklefa í fyrrum
frystihúsi Bæjarútgerðar Hafnarfjarðar fyrir filmugeymslu,
vinnuaðstöðu og skoðun kvikmynda og Bæjarbíó, sem á sér
gagnmerka sögu sem kvikmyndahús, þar sem jafnframt verð-
ur hægt að sýna muni og halda bókasafn.
Þessi breyting mun hafa í för með sér gjörbreyttar og betri
aðstæður fyrir starfsemi safnsins, sem um leið getur sinnt
betur varðveislu og safnamálum kvikmynda en það hefur
getað hingað til.
Akvörðun Hafnarfjarðarbæjar um styrkveitingu til safnsins
upp á 4 milljónir króna, ásamt því að leggja safninu til Bæjar-
bíó, er lofsverður vitnisburður um framsýni ráðamanna þar í
bæ og skilning á mikilvægi safnins. Auk þess mun starfsemi
safnsins í Hafnarfirði án efa skila Hafnfirðingum margvísleg-
um ávinningi þegar til framtíðar er litið og efla og glæða
menningarlíf þeirra.
Með nýjum og öruggum heimkynnum í Hafnarfirði verður
Kvikmyndasafn íslands fært um að geyma og hlú að ávöxtum
íslenskrar kvikmyndagerðar, þeirrar listgreinar, sem með
hvað mestum blóma stendur á íslandi í dag.
„Væntingamar
hafa bmgðist“
Nadia Andrei Jevgení
Arbatova Kozyrev Primakov
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti og Bill Clinton Bandaríkjaforseti
glaðlyndir fyrir utan Hvíta húsið. Utanríkisstefna Jeltsíns upp á
síðkastið hefur hins vegar ekki valdið mikilli gleði á Vesturlöndum.
SAGA Rússlands hefur löngum
einkennst af togstreitu milli
fylkinga, er leita eftir eða
hafna sambandi við Vestur-
lönd. Þessa gætir enn eins og síðast
mátti sjá þegar Andrei Kozyrev, fyrr-
verandi utanríkisráðherra, sætti
harðri gagnrýni fyrir að ganga um
of erinda Vesturlanda. En gagnrýni
á hann kom ekki aðeins frá Evrópu-
fjandsamlegum þjóðemissinnum,
heldur einnig frá umbótasinnum, sem
hlynntir eru Vesturlöndum. Einn
þeirra er Nadia Arbatova, yfírmaður
Evrópudeildar IMEMO, þekktrar
rannsóknarstofnunar um efnahags-
mál og alþjóðatengsl, þar sem hún
hefur haft augun á Suður-Evrópu,
en hún er líka áhugaverður fulltrúi
hinnar margumtöluðu rússnesku „int-
elligensíu", sem gjarnan lítur á sig
sem samvisku Rússlands. Og hér er
ekki átt við langskólagengið fólk,
heldur alla þá sem láta sig framvindu
landsins einhveiju varða. Maður
hennar er einnig fræðimaður, en situr
nú í neðri deild þingsins, Dúmunni,
fyrir Jabloko, Eplið, flokk frjáls-
lyndra. Tengdafaðir hennar var einn-
ig þekktur fræðimaður á sviði alþjóða-
stjómmála og yfírmaður IMEMO.
Rússar vonuðust eftir skjótri
aðlögun að Evrópu
Eftirmaður Kozyrevs er Jevgení
Primakov og í tilefni mannaskipt-
anna er ekki úr vegi að huga að
þeirri stefnu, sem forveri hans Koz-
yrev rak og sem var tekið fagnandi
í Evópu, en af vaxandi gagnrýni
heima fyrir. Arbatova er ekki í vafa
um að í upphafi valdaferils síns 1991
hafi Boris Jeltsín og Kozyrev vonast
eftir skjótri og snarlegri aðlögun
Rússlands að Vestur-Evrópu. Jeltsín
er enn við völd og gæti náð endur-
kjöri í sumar, en þeir sem lögðu upp
í ferðina með honum hafa verið látn-
ir fara eftir því sem hann hefur þurft
að laga stefnu sína að breyttum að-
stæðum heima fyrir. Breyttum að-
stæðum, sem Arbatova álítur reynd-
ar að megi rekja til mistaka hans
og óheppilegrar stefnu.
„Þeir Jeltsín og Kozyrev vonuðust
til að Rússland gæti samlagast og
gerst aðili að evrópskum stofnunum
eins og Evrópusambandinu og Atl-
antshafsbandalaginu. Þessu hefur
reyndar síðar verið neitað, en það
má minna á að 1992 hélt Jeltsín
ræðu þar sem hann talaði um aðild
að Atlantshafsbandalaginu (NATO).
Viku síðar leiðrétti Kozyrev þetta og
sagði þessa setningu hafa verið vél-
ritunarvillu. Lýðræði átti að koma á
í snatri og sovéska hagkerfið átti að
markaðsvæða jafnsnarlega. Eins og
fyrirsjáanlegt var tókst þetta engan
veginn, heldur leiddi til þeirra erfiðu
aðstæðna, sem nú eru.
Jeltsín og Kozyrev komu fram á
sjónarsviðið í kjölfar upplausnar Sov-
étríkjanna og eina stefna þeirrra var
þessi skjóta aðlögun Rússlands að
Evrópu. Öll áhersla var lögð á að
sannfæra Vestur-Evrópubúa um að
Rússland væri annað en Sovétríkin
og að landinu væri treystandi. En
miðað við ailar aðstæður var þetta
gjörsamlega óraunhæf stefna og
þegar ekki tókst að framfylgja henni
leiddi það til svartsýni. Skipbrotið
ýtti undir niðurlægingar- og höfnun-
artilfinningar meðal Rússa og styrkti
um leið þjóðernissinna.
Það voru mistök að leggja aðeins
áherslu á sambandið við
Evrópu í stað þess að
hugsa fyrir því að styrkja
sambandið við fyrrum
Sovétlýðveldin, sem við
erum tengd bæði efna-
hagslegum og sögulegum
böndum. Utanríkisráðherrann og
aðrir rússneskir leiðtogar voru tíðir
gestir í London, París, Róm og Lond-
on en sáust sjaldan í Prag eða Búda-
pest. Erfiðleikar fyrrum Sovétlýð-
veldanna eru að hluta til Rússum að
kenna, því það hefði hjálpað þeim
ef sambandið hefði verið styrkara. í
Júgóslavíu var heldur ekki komið á
neinum tengslum milli sambandsríkj-
anna og niðurstaðan varð stríð. Við
vorum þó heppnari, en hefðum þurft
að gera meira, ekki síst á sviði efna-
hagssamvinnu."
En ertu viss um að það hafi verið
áhugi í hinum löndunum á samstarfi
við Rússland í Ijósi fyrri samskipta?
„Já, það held ég eindregið, því þau
Það þarf ekki að staldra
lengi við í Rússlandi til
að finna að margir Rúss-
ar álíta að Vesturlönd
hafi hafnað sambandi við
Rússland. Að sumra
mati hefur utanríkis-
stefna Rússa undanfarin
ár ýtt undir þessa höfn-
unartilfinningu og leitt
til svartsýni eftir vænt-
ingar sem perestroikan
vakti. Sigrún Davíðs-
dóttir var í Moskvu ný-
iega og ræddi við Nadiu
Arbatovu, sérfræðing
um Evróputengsl.
hefðu séð sér hag í náinni samvinnu,
ekki síst á sviði efnahagsmála eftir
að efnahagssambandið Comecon var
leyst upp. Áður höfðu Sovétríkin
verið eins og stóri bróðir, sem hin
löndin voru bundin. Við þurftum
áfram hvert á öðru að halda, en
stjórnvöld í Rússlandi hefðu átt að
leggja drög að nýrri samvinnu á
nýjum grundvelli gagnkvæmra hags-
muna. Þetta vanræktum við og nú
hræðast nágrannarnir okkur af því
okkur hefur ekki tekist að koma á
traustu lýðræði. Það er okkur að
kenna að nágrannarnir óttast okkur
og utanríkisstefna okkar hefði átt
að beinast að því að koma á traustu
jafnréttissambandi. Ég lít gagnrýn-
um augum á stækkun Atlantshafs-
bandalagsins, en hún er að hluta til
okkur sjálfum að kenna, því okkur
hefur mistekist að byggja upp
traust.“
„Rússland er ekki þróunarland“
Kozyrev hefur oft nefnt að Evrópa
sé að missa af sögulegu tækifæri til
að aðlaga Rússland Evrópu. Má þá
ekki alveg eins líta svo á að slæm
aðstaða Rússa nú sé Evrópu að
kenna, að hún hafi hafnað Rússlandi
eins og reyndar heyrist oft hér í
Rússlandi?
„Bæði og... en Evrópu-
löndin skildu að skjót að-
lögun var ómöguleg. Það
tók Portúgal sautján ár að
aðlagast hinum Evrópu-
löndunum, þar sem sjö ár fóru í aðild-
arviðræður og tíu í aðlögunartíma-
bil. Samt var efnahagsástand þeirra
mun betra en okkar.
Mistök Evrópulandanna voru ekki
að þau snerust gegn snarlegri aðlög-
un Rússlands, heldur að þau studdu
tákn um lýðræði en ekki lýðræðið
sjálft. Með stuðningi sínum við Jelts-
ín hafa Vesturlönd endurtekið mis-
tökin frá Gorbatsjov-tímanum. Þau
hafa stutt einstaka menn, ekki sjálft
lýðræðið. í byijun þokaði Jeltsín
Rússlandi í lýðræðisátt, en menn
breytast og það á að dæma þá eftir
verkunum einum saman.
Þegar Jeltsín greip til vopna til
að bæla niður andstöðu í október
1993 var litið svo á í Rússlandi að
deilan stæði milli löggjafarvaldsins
og framkvæmdavaldsins, sem er
heldur ekki óþekkt á Vesturlöndum.
En það var heldur enginn Rússi í
vafa um að Jeltsín greip til vopna
af því hann hafði það á tilfinning-
unni að Vesturlönd stæðu að baki
honum. Þau álitu Jeltsín tákn lýð-
ræðis og það hjálpaði.
Ég var hér í borginni þá og fyrir
mér var þetta ekkert annað en borg-
arastyijöld. Ég ætla hvorki að rétt-
læta þingið né Jeltsín og hans lið,
en blóðugar aðgerðir voru bara ekki
heppilegasta ráðið. Þess í stað hefði
Jeltsín annaðhvort getað boðað til
þingkosninga og forsetakosninga
samtímis og þá farið fram sjálfur eða
reynt að ræða málin frekar. Það
hefðu verið lýðræðislegar leiðir.
Vesturlönd bera ábyrgð á þessum
tvískinnungi hér hvað lýðræðið varð-
ar. Það sem er gott fyrir Evrópu er
líka gott fyrir Rússland og öfugt.
Það eiga ekki að gilda einhveijar
sérstakar reglur fyrir rússneskt lýð-
ræði og aðrar fyrir evrópskt, heldur
á að dæma rússneskt lýðræði á evr-
ópskum mælikvarða. Rússland er
ekki eitthvert þróunarland."
Sovétkerfið grundvallað á
gömlum hugmyndum
En nú er kominn nýr utanríkisráð-
herra og hann hefur einmitt byrjað
á að heimsækja nágrannalöndin. Að
hverju þyrfti hann að einbeita sér?
„Til þess að útskýra hvers vegna
þörf er á breiðari utar.ríkisstefnu er
nauðsynlegt, að leiða hugann að
grundvallarhugmyndafræði Rúss-
lands, sem er miklu eldri en Sovét-
kerfið.
Ég lít svo á að upplausn Sovétkerf-
isins hafi ekki aðeins rústað því kerfi,
heldur einnig rússnesku hugmynd-
inni um Rússland sem Guðs útvalda
land, landið sém færi sína eigin sér-
stöku einstefnuleið. Þessi hugmynd
var helsti tálminn á síðustu öld fyrir
aðlögun Rússlands að Evrópu og það
var orðið Ijóst í byijun þessarar ald-
ar að hún stóð í vegi fyrir þróun
Rússlands, þróun í átt til Evrópu.
En þróunin frá þessari hugmynd var
rofín með Októberbyltingunni. Það
er óneitanlega kaldhæðni örlaganna
að Bolsévikkarnir, sem voru á móti
zarnum og valdi hans, skyldu taka
upp þessa einstefnuleið, sem hafði
ráðjð ríkjum á keisaratímanum.
Á Vesturlöndum heyrist gjarnan
sú hugmynd að Sovétríkin hafi tapað
kalda stríðinu og það leitt til upp-
lausnarinnar. Það er ekki rétt, heldur
tók að halla undan fæti þegar slökun-
arstefnan kom til. Upplausn járn-
tjaldsins gróf undan Sovétkerfinu,
því járntjaldið hélt því saman. Kerfið
þreifst við tveggja póla kerfi, þar sem
efnahagslífíð var undirlagt her-
gagnaiðnaðinum. Það grundvallaðist
á því að Sovétkerfið stæði eitt og
einangrað gegn umheiminum, sem
er sama hugmyndin og sú gamla um
Rússland sem Guðs útvalda land.
Nú hef ég af því áhyggjur að
mistök undanfarinna ára leiði til þess
að þessi gamla hugmynd komist aft-
ur á kreik og leiði til einangrunar
Rússlands enn á ný. Öll utanaðkom-
andi einangrun og höfnun mun leiða
til þess að Rússland einangrist og
það gæti haft mjög neikvæðar afleið-
ingar. Það verður aldrei stöðugleiki
í Evrópu án þátttöku Rússa og það
verður aldrei lýðræði í Rússlandi án
aðstoðar Evrópu.
Framtíð Evrópu er óviss
vegna evrópskra vanda-
mála. En það eru til öfl í
Evrópu, sem helst vildu
einangra Rússland og
rússnesk áhrif við fyrrum áhrifa-
svæði Sovétríkjahna, svo Rússland
yrði nokkurs konar stuðpúði Evrópu
gegn múhameðstrúarmönnum. Þetta
er hættuleg stefna, því hún leiðir til
einangrunar Rússa og er vatn á
myllu þeirra landa minna sem vildu
sjá nýtt rússneskt heimsveldi rísa.
Það sem þarf er því vel ígrunduð
stefna, þar sem markmiðið væri að
Rússland aðlagaðist Evrópu jafnt og
þétt og að landið Evrópuvæddist
smátt og smátt.. Þetta þarf að gerast
á þremur sviðum. í fyrsta lagi þarf
að köma á fót lýðræði í Rússlandi
og hér geta Evrópulöndin hjálpað til
með stuðningi við allar stofnanir
þjóðfélagsins, til dæmis verkalýðs-
félögin og aðra félagsstarfsemi, svo
lýðræðið nái að gegnsýra þjóðfélag-
ið. Hér á ekki að útiloka neinn, held-
ur ekki kommúnistana, því ekki má
gleyma að þeir eru fulltrúar fyrir
verulegan hluta þjóðarinnar.
í öðru lagi er þörf á að hrinda í
framkvæmd samstarfi Rússa og Evr-
ópusambandsins, sem lögð voru drög
að á leiðtogafundinum á Korfu 1994
og það gæti orðið vísir að efnahags-
legum stöðugleika. Sem stendur eru
ESB og Rússland ójafnir aðilar og
ESB verður fyrir alla muni að forð-
ast að nýta sér ójöfnuðinn og fara
með Rússland eins og þróunarland.
Það myndi hafa slæm áhrif, því hér
heyrist alltof oft að önnur lönd séu
bara að nota Rússland. í þriðja lagi
þarf að koma á samvinnu á sviði
utanríkismála. Stækkun NATO gæti
leitt til ögrana og nýrrar skiptingar
Evrópu, en samvinna gæti dregið úr
þessari hættu.
Stærstu mistök Vesturlanda eftir
upplausn Sovétveldisiná og áhrifa-
svæða felast í því að skipta þessu
sama svæði upp í stað þess að líta
á það sem eina heild. Stækkun NATO
tekur aðeins tii hluta þessa svæðis,
en til þess að viðhalda evrópsku varn-
arsamhengi þarf að taka tillit til alls
svæðisins. Annars skapast tómarúm
og það gæti leitt til alvarlegra vand-
ræða fyrir samband Rússlands og
Vesturlanda."
Gorbatsjov reyndi að
breyta ásýnd Sovétrílqanna,
ekki sjálfu kerfinu
Þú nefndir áður að tilvistargrundvöll-
ur Sovétríkjanna hefði verið skipting
heimsins í tvær blokkir. En hvenær
varð þér ljóst að Sovétríkin voru að
liðast í sundur?
„Það var 19. ágúst 1991, þegar
valdaránið var gert gegn Gorbatsjov
til að vernda Sovétkerfið. Gorbatsjov
rak íjarska gætna innanríkisstefnu
og þorði alls ekki að hrófla við sam-
bandinu við Sovétlýðveldin af ótta
við að það leiddi til upplausnar og
hann gat til dæmis ekki hugsað sér
efnahagslegt sjálfstæði Eystrasalts-
landanna. En hann var of varkár og
hefði átt að endurskoða sáttmála
Sovétríkjanna um samband mið-
stjórnarinnar við lýðveldin.
Þegar kom fram á 1991 sá hann
að eitthvað yrði að gera til að hindra
upplausn og byijaði því að endur-
skoða sáttmálann. En þessi endur-
skoðun stöðvaðist með valdaráninu.
Þótt það væri gert til að hindra upp-
lausn, leiddi það síðan til hennar, því
í kjölfarið lýstu Moldavía, Úkraína
og fleiri lýðveldi yfir sjálfstæði.
.Kommúnistar, þjóðernissinnar og
aðrir sökuðu síðan Jeltsín um að
hafa leyst Sovétríkin upp, en það er
rangt. Hann skrifaði reyndar undir
pappírana, en hin raunverulega upp-
lausn varð 19. ágúst 1991.
Harmleikur Gorbatsjovs var að
hann leitaðist við að breyta ásýnd
Sovétríkjanna, ekki sjálfu kerfinu.
Hann ætlaði sér að koma á sósíal-
isma með bros á vör og þess vegna
hrinti hann af stað perestroiku og
glasnost. En þróunin fór lengra en
hann var tilbúinn til að fara. Hann
var varkár kommúnisti og ekki und-
ir það búinn að landið færi fram úr
honum.
Meðan á perestroikunni stóð vænti
fólk breytinga í lýðræðisátt, mikið
var rætt um stjórnmál og vænting-
arnar héldust fram yfír upplausn
Sovétríkjanna, en þær hafa
brugðist. Okkur tókst ekki
að breyta hagkerfinu
þannig að það hefði í för
mér sér efnahagsbata fyrir
venjulegt fólk og þetta
hefur leitt af sér svartsýni og fortíð-
arþrá. Ég lít svo á að við séum enn
á leið í lýðræðisátt og einmitt af því
við erum á leiðinni er erfítt að skýra
fyrir Rússum stækkun NATO. Af
hvetju ætti hennar að vera þörf úr
því enginn sagði neitt þegar Rússar
réðust inn í Tsjetsjníu?“
Nú verða forsetakosningar í Rúss-
landi í sumar. Hver býstu við að
útkoma þeirra verði?
„Það má búast við að Jeltsín vinni,
mest vegna tregðulögmálsins. Sumir
óttast kommúnista, aðrir þjóðernis-
sinna og Zhirinovský. Jeltsín er full-
trúi hins þekkta svo atkvæði greitt
honum er atkvæði gegn hinu
óþekkta, en ekki með honurn."
Ekkí lýðræði
án aðstoðar
Evrópu
Rússar og
ESB starfi
saman
Fjárhagsáætlanir sveitarfélaga til lengri tíma
Reynir á styrk
kjörinna fulltrúa
Karl Björnsson, bæjar-
stjóri á Selfossi, segir að
fjárhagsáætlun til langs
tíma sé nauðsynlegt
stjórntæki við rekstur
sveitarfélaga en það
reyni á styrk kjörinna
fulltrúa og embættis-
manna. Finnur hann
aukinn áhuga á því að
fara að lagaákvæðum
um gerð þriggja ára
áætlana. Karl segir
Helga Bjarnasyni frá
reynslu Selfyssinga.
Morgunblaðið/Ásdfe
KARL Björnsson hefur sjálfur komið sér upp tækni til að sjá strax
afleiðingar allra ákvarðana á fjárhag Selfossbæjar.
VIÐ NÁUM ekki tökum á
fjármálum sveitarfélag-
anna nema með því að
gera fjárhagsáætlanir til
fjögurra ára eða lengri tíma og að
kjörnir fulltrúar og embættismenn
virði þær sem stjórntæki,“ segir
Karl Björnsson, bæjarstjóri á Sel-
fossi. Á undanfömum árum hefur
hann varað við skuldasöfnun sveit-
arfélaga og tvisvar verið fenginn til
að lesa yfir hausamótunum á sveit-
arstjórnarmönnum á árlegri fjár-
málaráðstefnu Sambands íslenskra
sveitarfélaga.
í upphafi árs gera sveitarfélögin
almennt fjárhagsáætlun fyrir það
ár en fá gera einnig stefnumark-
andi fjárhagsáætlun til þriggja ára
til viðbótar þótt það sé skylt sam-
kvæmt sveitarstjórnarlögum. Nokk-
ur sveitarfélög hafa verið að prófa
sig áfram með þessa áætlanagerð
á síðustu árum en fæst hafa sam-
þykkt þær formlega í bæjarstjórn.
Karl Björnsson segir að menn hafi
verið að þróa aðferðir við þetta verk
enda ekki verið til nægilega góð
tæki til að vinna með.
Tíu ára áætlun
í nóvember síðastliðnum sam-
þykkti bæjarstjórn Selfoss fjárhags-
áætlun fyrir árin 1996-1998 en
áður höfðu slíkar áætlanir verið
hafðar til viðmiðunar án þess að fá
endanlegt samþykki bæjarstjórnar.
Jafnframt hefur verið unnið að gerð
rammaáætlunar til lengri tíma, eða
tíu ára, og voru drög að henni til
umræðu í bæjarstjórn fyrir
skömmu, einkum vegna ákvörðunar
um það hvenær fært þætti að
byggja nýjan skóla á Selfossi.
Karl og Helgi Helgason bæjarrit-
ari hafa unnið mest við áætlana-
gerðina og nota til þess töflureikna.
Karl segist ekki vera neinn tölvusér-
fræðingur en hann hafi ákveðið að
eyða í þetta tíma enda sé það mikil-
vægt fyrir stjórnendur að koma
sjálfir að slíkri vinnu, þeir fái meiri
tilfinningu fyrir verkefninu.
Hvenær á að byggja skóla?
Hann byrjaði á því að fara yfir
fjárhagsáætlanir og ársreikninga
nokkur ár aftur í tímann til þess
að meta og sjá þróun ýmissa fjár-
hagsstærða. Það sé nauðsynlegur
grunnur fyrir framhaldið. Bæjar-
stjórn ákvað langtímamarkmið um
skuldastöðu sveitarfélagsins, meðal
annars út frá getu þess til að standa
undir afborgunum og vöxtum. Karl
segir að síðan hafi verið safnað ósk-
um stjórnenda bæjarstofnana um
framkvæmdir, kaup á búnaði og
viðhaldi. Ekki sé hægt að verða við
nema broti þeirra óska við gerð eins
árs íjárímgsáætlunar en reynt að
raða brýnustu nauðsynjum á næstu
þijú ár.
Bæjarstjórnin á Selfossi stefnir
að því að lækka skuldir verulega á
næstu árum, til þess að geta ráðist
í byggingu þriðja skólans í bænum
en það er orðið brýnt vegna fólks-
fjölgunar og ákvæða laga um ein-
setningu grunnskólans. Með aðstoð
forritsins og gagnagrunnsins sem
Karl hefur útbúið er á augabragði
hægt að sjá afleiðingar ákvarðana
sem teknar eru. Kjörnir fulltrúar
og embættismenn sjá strax hvaða
áhrif framúrkeyrsla eins árs hefði
á vexti og greiðslubyrði næstu ár.
Einnig er nauðsynlegt að bæta við
rekstrarkostnaði vegna nýrra þjón-
ustuþátta og gerir áætlanakerfið
ráð fyrir því.
Þó bæjarstjórnarmenn á Selfossi
væru sammála um nauðsyn skólans
urðu þeir sammála um að taka
hann hann ekki í notkun fyrr en
árið 2001, þegar þeir höfðu prófað
sig áfram með það hvað fjárhags-
staða bæjarins leyfi. Það þýðir að
mögulegt er að byija _ á fram-
kvæmdinni árið 1999. Áætlað er
að skólinn kosti 250 milljónir kr.
og þegar hann er settur inn á áætl-
un einu eða tveimur árum of
snemma, áður en búið er að greiða
fyrri skuldir nægjanlega mikið nið-
ur, sést hvað það hefur afdrifarík
áhrif á fjárhag bæjarins í framtíð-
inni. í þessu tilviki margborgar sig
að brúa bilið með ódýrum bráða-
birgðalausnum.
Reynir á fulltrúa
„Svona vinnubrögð reyna mjög á
kjöma fulltrúa í sveitarstjórnum.
Þeir verða að setja sér markmið um
þróun fjármála sveitarfélagsins. Og
þeir þurfa að forgangsraða verkefn-
um þó það sé erfitt og geti kostað
það að áhugamál þeirra lendi utan
áætlunartímabilsins. Sveitarstjórn-
armenn sem gangast undir þessi
vinnubrögð geta ekki lofað hinu og
þessu óábyrgt, þeir verða að sýna
kjósendum fram á að sveitarfélagið
hafi efni á því eða þá hveiju eigi t
að fresta á móti. Annars geta menn (
lent í hinum verstu ógöngum með ;
ijármálin eins og dæmin sanna,“
segir Karl. t
Hann hælir bæjarstjórnarmönn- ’
um á Selfossi. Segir að þeir hafi :
haft vissa fyrirvara þegar gengið í
var frá langtímaáætlun fyrr í vetur í
en svo hafi komið í ljós við gerð |
fjárhagsáætlunar fyrir árið 1996 i
að hún félli svo til alveg að fyrsta
ári langtímaáætlunarinnar.
Ætti að vera skilyrði fyrir
iánveitingum
Karl Björnsson er í stjórn Lána-
sjóðs sveitarfélaganna. Hann segir
að verið sé að breyta umsóknar-
eyðublöðum sjóðsins og á nýja form-
inu sé gert ráð fyrir því að níenn
tilgreini upplýsingar úr þriggja ára
áætlunum. „Eg tel að þeir sem lána
sveitarfélögunum fé ættu að óska
eftir slíkum upplýsingum þannig að
þeir geti sjáifir metið áhrif lánveit-
inga sinna fram í tímann,“ segir
hann.
Almennt hafa sveitarfélög ekki
gert fjárhagsáætlanir til langs tima,
það hafa stóru sveitarféiögin á höf-
uðborgarsvæðinu til dæmis enn ekki
gert, en Karl telur að aukinn áhugi
sé hjá þeim að taka alvarlega laga-
ákvæði um þriggja ára fjárhags-
áætlun. Hann segir að allmargir
sveitarstjórnarmenn, meðal annars
borgarfulltrúar í Reykjavík, hafi
haft samband við sig til að fá áætl-
anir Selfossbæjar til skoðunar og
telur að það sé til marks um að
breytingar séu að eiga sér stað.
Hann segir líka að nýjustu upplýs-
ingar bendi til þess að sveitarstjórn-
armenn séu að ná betri tökum á
fjárhag sveitarfélaganna eftir fram-
kvæmdagleði undanfarinna ára sem
því miður hafi allt of oft verið lítil
eða engin innistæða fyrir.
Haldið áfram
„Mér finnst viðbrögðin hér á
Selfossi vera á þá leið að ólíklegt
sé að menn vilji hverfa frá þeirri
stefnu sem mörkuð hefur verið,“
segir hann. Þetta eigi ekki einung-
is við bæjarstjórnarmenn heldurl
einnig stjórnendur bæjarstofnanaj
sem nú geti skipulagt starf sitt l
lengra fram í tímann í ljósi þeirraj
fjárveitinga sem þeir viti um á|
næstu árum.