Morgunblaðið - 21.03.1996, Blaðsíða 50
50 FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
NYJU NILFISK RYKSUGURNAR HAFA FEIKNA SOGAFL
OG FULLKOMNASTA SÍUNARBÚNAÐ SEM VÖL ER Á*
Nilfisk AirCare Filter® Með 2ja laga pappírspoka, grófsíu
og HEPA-síu heldur Nilfisk eftir 99,97% allra rykagna
sem eru stærri en 3/10.000 úr millimetra (0,3 my).
*í sænskri neytendaprófun (Konsumentverket) á 11 þekktum ryksugum var
Nilfisk með HEPA-síu sú eina sem fékk toppeinkunn fyrir síunarhæfni.
NV NILHSk - NU A FRÁBÆRU KYNNINGARVERÐI
NILFISK gerð »» GM-300 GM-310 GM-320 GM-330
Verðlistaverð 24.750 28.400 31.350 33.920
Kynningarafsláttur 3.710 4.260 4.700 5.090
Afborgunarverð 21.040 24.140 26.650 28.830
Staðgreitt -5% 19.990 22.930 25.320 27.390
NILFISK fæst í 4 litum og 4 mismunandi útfærslum. Komdu og kynntu þér kostina. iFOnix HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420
i spnum
eru margir
ESJfl
Suöurlandsbraut 2
ontanir í síma 568 9509
HLAÐBORÐ
í HÁDEGINU
Á KVÖLDIN 1
FURÐU
FURÐUFISKADAGAR
15.-24. mors
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Er verið að
meiða pabba?
„í MYNDINNI Agnesi
er hún látin eiga barn,
sem er rifið úr höndum
hennar þegar hún er
send til aftöku. Mikið
er gert úr því í mynd-
inni, en sannleikurinn
er annar. Agnes átti
ekkert bam, en Natan
átti aftur á móti tvö eða
þijú börn með Skáld-
Rósu og hafði hann litla
dóttur sína um fimm ára
aldur á Illugastöðum.
Hann var sem sagt ein-
stæður faðir. Litla stúlk-
an var hrifsuð úr sínu
rúmi um miðja nótt af
Agnesi, Friðrik og Sig-
ríði sem fór með stúlk-
una í útihús við hliðina,
meðan Agnes og Friðrik
rotuðu Natan. Þegar
Natan hrópar af sárs-
auka, segir litla stúlkan:
Er verið að meiða
pabba? Hún heyrir sem
sagt þegar faðir hennar
er myrtur.
Mikilvægt er að það
komi fram að ekki var
verið að brjóta á Agnesi
með því að taka frá
henni barnið, þar sem
það var ekki til staðar.
Hins vegar er verið að
bijóta núna á afkom-
endum Natans með því
að nefna það ekki að
hann hafi átt barn, og
hvað þá sannleikann í
málinu að barn hans
hafi heyrt þegar faðir
þess var myrtur. Per-
sónu Natans eru þannig
ekki gerð nógu góð skil
í myndinni, bæði með
því að taka frá þann
þátt að hann var faðir,
og eins með því að draga
ekki .nógu skýrt fram
hans stöðu sem eina
læknisins í sveitinni."
Ingibjörg Elín
Sigurbj örnsdóttir.
Tapað/fundið
Peysa fannst
GÓÐ peysa merkt Sigurði
Helgasyni fannst á Þing-
völlum sl. mánudag. Eig-
andinn fær hana afhenta
gegn greinargóðri lýsingu
hjá Ásgerði í síma
553-0908.
Gleraugu fundust
RAUÐBRÚN gleraugu
með koparlitum spöngum
fundust á horni Kringlu-
mýrarbrautar, Álftamýr-
ar og Miklubrautar nýver-
ið. Gleraugun eru með
mjög sterkum gleijum.
Ef einhver hefur týnt
gleraugum sem þessi lýs-
ing passar við getur við-
komandi haft samband í
síma 561-0005.
Lyklakippa fannst
á Lækjartorgi
FJÓRIR lyklar á kippu
fundust- fyrir viku síðan
niðri á Lækjartorgi. Á
kippunni stendur „Jesus
cries for you“. Ef einhver
hefur týnt lyklunum sín-
um getur sá hinn sami
haft samband í síma
568-8940 eftir kl. 16 á
daginn.
Lyklar fundust
á Túngötu
TVEIR lyklar á hvítri Is-
landsbankalyklakippu
ferhyrndri fundust á Tún-
götu 7. mars sl. hjá gamla
IR-húsinu, rétt hjá
Landakotskirkju. Nánari
uppl. í síma 552-1892.
Gæludýr
Köttur á þvælingi
í Hafnarfirði
BRÖNDÓTT fress, sem
var með gula ól, er búinn
að vera á þvælingi við
Úthlíð 5 í Hafnarfirði.
Uppl. í síma 555-1479
eftir kl. 18 á daginn.
SKÁK
llmsjón Margcir
Pctursson
Hvítur leikur og vinnur
STAÐAN kom upp í viður-
eign stórmeistara og tölvu
í Skákfélagi Intemetsins,
ICC. Níundi stigahæsti
skákmaður heims, Aleksei
Shirov (2.690) hafði hvítt
gegn skáktölvunni Ferret,
sem er heimsmeistari smát-
ölva í áhugamannaflokki
1995. Um er að ræða hráa
þýðingu á virðulegum titli
tölvunnar, sem þýðir þó
ekki að hún sé „áhuga-
skáktölva" og vinni á dag-
inn við útreikninga og ann-
að en tefli á kvöldin. Þetta
er hins vegar keppni forrita
sem ekki eru á almennum
markaði. Ferret er þó mjög
öflugt forrit, skrifað fyrir
Unix vélar, sem skákþáttur-
inn hélt reyndar að gætu
varla flokkast undir
smatölvur.
í haust vann Ferret
stórmeistarann Boris
Gulko í samskonar ein-
vígi. En Shirov var vel
undirbúinn. Hann hefur
stillt liði sínu upp til árás-
ar og nú kemur höggið:
27. Rf5!! - gxf5 28.
gxf5 - Rh5 29. Bg7+!
- Rxg7 30. Dh6 - Hg8
31. f6! - Bxf6 32. Dxf6
- Be8 og tölvan gafst
upp, því nú fór reiknigetan
að bera árangur og hún sá
fram á að vera óveijandi
mát í fjórða leik eftir 33.
Hxg7!
Shirov tefldi skákina í
„hreinum anti-tölvustíl“.
Einn þeirra fyrstu til að
sýna fram á slíkan veikleika
tölvuforrita var íslenskur
skákáhugamaður, Eyjólfur
Ármannsson. Skákir hans
gegn tölvum birtust t.d. í
erlendum fagtímaritum. Á
morgun skulum við skoða
seinni skák Shirovs við
Ferret.
Farsi
Víkveiji skrifar...
IKJÖLFAR morðanna hrotta-
legu í Dunblane í Skotlandi í
síðustu viku er Thomas Hamilton
réðst með alvæpni inn í barnaskóla
í þorpinu hafa orðið talsverðar
umræður í Bretlandi um skotvopn
í eigu einstaklinga. Umræður af
þessum toga mættu gjarnan fara
fram hérlendis og ef grannt væri
skoðað kæmi örugglega ýmislegt í
ljós hér á landi varðandi vopnaeign
landsmanna.
xxx
*
ASAMA tíma og harmleikur-
inn í Skotlandi átti sér stað
voru starfsmenn á blaðinu Vestra
á Isafirði að ganga frá til prentun-
ar ágætu viðtali við Atla Rúnar
Stefánsson, sem á eitt stærsta
byssusafn á íslandi í einkaeign.
Margt athyglisvert kemur fram í
þessu viðtali og m.a. segir Atli
Rúnar frá því að hann eigi gott
samstarf við yfirvöld og reyni að
vinna með þeim.
„Ég held að þau séu eins sann-
gjörn í minn garð og þau geta ver-
ið. Ég hef þá reynt að sýna á móti
að ég gangi sómasamlega frá þess-
um hlutum og hugsi vel um þetta.
Svona safn er orðið þess eðlis að
það verður að hiíta einhveijum regl-
um. Það er nokkuð öruggt gagn-
vart innbrotum og öðru að ég held
að það verði ekki tryggt öllu betur.
Eg held líka að safnarar eins og
ég séu að gera yfirvöldum nokkurn
greiða með því að hirða óæskilega
hluti úr umferð. Þegar slíkir hlutir
eru komnir í hendurnar á safnara
eru þeir settir á skrá svo auðvelt á
að vera eftir það að fylgjast með
þeim,“ segir Atli Rúnar.
xxx
IVIÐTALINU kemur fram að
engin heildarskrá sé yfir byssu-
eign í landinu, en skotvopnaskrár
séu færðar heima í héraði. Hann
er spurður hvort mikið sé af óskráð-
um byssum í umferð:
„Ég held að það sé geysilega
mikið af byssum úti. Við getum
kannski frekar orðað það þannig
að það er mjög mikið af óskráðum
byssum til, en þær eru kannski
ekki svo mikið í umferð. Menn eiga
þetta oft sér til ánægju, eða fólk
situr uppi með þetta og veit ekkert
hvað það á að gera við gripina. Það
sem ég hef handleikið sjálfur hér
mjög nálægt ísafirði, skiptir tugum
af óskráðum byssum.“
Aðspurður um hvort eitthvað sé
hér af öflugum vopnum segir hann
að ef svo sé þá fréttist ekki af því.
Vélbyssur og önnur slík tæki liggi
að minnsta kosti ekki á lausu. Hins
vegar sé mjög mikið af skammbyss-
um af öllum tegundum og gerðum
og sumt mjög gamalt og hafi aldrei
verið skráð. „Sumt er nýtt og enn
er verið að flytja inn,“ segir Atli
Rúnar Stefánsson í samtalinu í
Vestra.
Víkverji dagsins er þeirrar skoð-
unar að margt sem fram kemur í
þessu samtali, _t.d. um skráningu
vopna í eigu íslendinga, sé þess
eðlis að yfirvöld hljóti að skoða
þessi mál náið.