Morgunblaðið - 21.03.1996, Page 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996 53
FÓLK í FRÉTUM
DIVINE Brown hefur heldur bet-
ur haft nóg að gera síðan hún
komst í heimsfréttirnar fyrir ör-
stutt ástarævintýri með breska
leikaranum Hugh Grant siðasta
sumar. Fljótlega eftir það seldi
hún sorpblaðinu News of the
World sögu sína á 4,6 milljónir
króna. Þá lá leið hennar til Bras-
ilíu, þar sem hún þáði 1,3 milljón-
ir króna fyrir að koma fram í
undirfataauglýsingu. Eftir það lék
hún í auglýsingu fyrir útvarps-
stöðina KXZY í Kaliforníu. Hún
hljómaði nokkurn veginn svona:
Þulur: Frægir breskir leikarar
vita það. Vinnuþjarkar í Suður-
ríkjunum vita það. Ognúna er
öllum heiminum kunnugt um það.
Segðu þeim það, Divine!
Divine: E-Zee erákjósanleg út-
varpsstöð til að hlusta á ... í
vinnunni . . .
Divine aðstoðaði líka við að
auglýsa opnun kynlífssjónvarps-
stöðvarinnar Fantasy Channel í
Bretlandi og var upp úr því
ráðin sem fréttaritari hennar
í Bandaríkjunum. Þar að auki
hefur hún gefið út fyrstu
hljómplötu sína, með laginu
„The Real Story“. í því er saga
kynna hennar af Grant rakin
frá upphafi til enda.
Einstæð móðir með
þijú börn
Hvað hefur hún gert við all-
an peninginn sem hún hefur
fengið upp á síðkastið? „Ég hef
alltaf haft peningamál mín á
hreinu. Ég legg þá inn í banka
og borga reikningana. Ég á þrjú
börn, þannig að peningarnir fara
ekki í súginn."
Hún lítur semsagt á sig sem
útivinnandi einstæða móður.
„Börnin mín búa hjá mér. Ég
niyndi ekki vita mitt rjúkandi
ráð ef svo væri ekki. Mamma
ól mig nefnilega vel upp.
Hún var aldrei atvinnu-
Iaus,“ segir Divine og ekki
er laust við að henni vökni
eilítið um augu.
„Ég var kölluð Pönnu-
kaka þegar ég var lítil.
Divine er bara sviðsnafn.
Þau kölluðu mig Pönnu-
köku vegna þess að ég
vildi aldrei pelann. Ég
fór strax í pönnukökurn-
ar þegar ég var smábarn.
Það var það eina semég
lagði mér til munns. Ég
var þrjósk, en líka trúuð.
Uppáhalds myndin mín
var Snæfinnur snjókarl,
vegna þess að hann gaf
margar jólagjafir.Hann var
mjög gjafmildur. Ég er það
líka. Ég er mjög gjafmild að
eðlisfari."
Hún er
gjafmild
Nauðsynlegt að lífga
upp á tilveruna
Ef hún rækist á Elizabeth Hur-
ley, kærustu Grants, hvað myndi
hún segja? „Ég myndi bjóða henni
góðan dag. Svo myndi ég segja
henni að hún yrði af og til að lífga
upp á tilveruna." Lífga upp á til-
veruna? „Ef maður vill halda í
manninn sinn verður maður að
kunna að hafa ofan af fyrir hon-
um. Þetta snýst um að koma
manninum sínum til. Maður
verður að höfða til
kynhvatarinnar, láta
hann vita að „Elsk-
an, þú þarft
ekki að sækj-
ast eftir neinu
neins staðar.
Vegna þess að
það [sem þú
sækist eftir] er
hérna heima.“
Þetta er ástæðan
fyrir öllum þessum
fjölda venjulegra
manna sem heimsótti
okkur [vændiskon-
urnar] þegar ég var á
götunni. Giftra
manna.
Þetta er ástæðan fyr-
ir gjörðum Hughs
Grants. Það var ekki
nógu mikið lífgað upp á
tilveruna heima hjá honum.
Þar var enga fullnægingu
að fá. Og hann er svo kyn-
þokkafullur!"
1NÉÍ&\. Byggt á Esquire
TÓNLISTARSAMBAND
alþýðu, Tónal, hélt 20 ára
afmælistónleika í Há-
skólabíói síðastliðinn laug-
ardag. Á tónleikunum
fluttu kórar og lúðrasveit
sambandsins fjölbreytta
efnisskrá, ýmist einir sér
eða í sameiningu. Alls
komu fram þrettán kórar
og ein lúðrasveit. Lagið
Vetrarmávur eftir Þorkel
Sigurbjörnsson við ljóð
eftir Jón úr Vör var frum-
flutt og auk þess kom Sig-
rún Hjálmtýsdóttir fram.
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra og Rut Ingólfsdóttir eiginkona
hans voru heiðursgestir.
Garcia leikur lögreglumann
► S AMNINGAVIÐRÆÐUR við Andy Garcia um
að leika í myndinni „Desperate Measures" eru nú
á lokastigi. Myndin fjallar um lögreglumann og
eltingarleik hans við glæpamann sem hefur líf
sonar þess fyrrnefnda í hendi Sér. Sonurinn þjá-
ist af hvítblæði. Leiksljóri myndarinnar er Barbet
Schroeder, en handritshöfundar David Klass og
Neal Jimenez.
Schroeder, sem leikstýrði síðast Meryl Streep
og Liam Neeson i myndinni „Before and After“,
hefur einnig leikstýrt myndunum „Reversal of
Fortune" og „Single White Female". Garcia er
ekki óvanur því að leika lögreglumann, enda hef-
ur hann verið í því gervi í myndunum „The
Untouchables" og „Internal Affairs".
Michael Keaton hefur tekið að sér hlutverk
glæpamannsins, en hann lék síðast í myndinni
„Multiplicity", sem frumsýnd'verður í sumar.
Ráðgert er að tökur á „Desperate Measures"
hefjist í lok maí eða byijun apríl.
ANDY Garcia er
ekki óvanur því
að leika lög-
reglumenn.
Morgunblaðið/Þorkell
HREYFILSKÓRINN flutti nokkur lög.
Afmælistónleikar
íkvöld milii kl. 19.30 og 22.00
ísíma55t 1012.
Orator,
félag laganema.
Reuter
Collins kynnir
nýja bók
JOAN COLLINS, leikkonan ung-
lega, sést hér í sjónvarpsþættinum
„Live with Regis and Kathie Lee“
ásamt stjórnanda þáttarins, Regis
Philbin og gamanleikaranum Don
Rickles. Joan er nú stödd í New
York, þar sem hún kynnir nýjustu
bók sína, „Infamous".
Nýlega átti hún í málaferlum við
útgáfufyrirtæki nokkurt, en hún
hafði gert samning við það um að
skila handritum að tveimur bókum.
Að mati stjórnenda fyrirtækisins
voru handritin ófullnægjandi og
féllst rétturinn á að sú hefði verið
raunin varðandi annað þeirra.
Afigangseyrir: 400 kr. fyrir fúliorðna.
200 kr. fyrir 12 ára og yngri.
Undarásir.
Sýning Raffi Liven.
Úrslit.
Mótsslit.
verður haldið í íþrótthúsi
Hauka við Strandgötu
laugardaginn 23. mars.
Raffi Liven 8 DAN
Heimsmethafi í að brjóta múrsteina.
Heimsmetabók Guiness.