Morgunblaðið - 21.03.1996, Side 60
OPIN KERFI HF.
Sími: 567 1000
^pVectrí
t
<o>
AS/400 er...
...með PowerPC
64 bita örgjörva
og stýrikerfi
CO> NÝHERJI s
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL(a>CENTRUM.lS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
FIMMTUDAGUR 21. MARZ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Engar nýj-
ar tillögur
á NEAFC-
fundi
ENGINN árangur varð af viðræðum
fiskveiðiríkja við norðaustanvert Atl-
antshaf á aukaársfundi Norðaustur-
Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar
(NEAFC) í London í gær. Engar
nýjar tillögur komu fram um veiði-
stjórnun á úthafskarfa á Reykjanes-
hrygg, en ársfundurinn var boðaður
til að gera lokatilraun til að ná sam-
komulagi um úthafskarfaveiðarnar.
Viðræðum verður haldið áfram í
dag, og er það síðasta tækifæri að-
ildarríkjanna til að ná samkomulagi
áður en karfavertíðin hefst.
Að sögn Guðmundar Eiríkssonar,
formanns íslenzku viðræðunefndar-
innar, treysti hinn norski formaður
á viðræðufundinum sér ekki til að
leggja fram nýja málamiðlunartil-
lögu, en tvær slíkar hafa þegar kom-
ið fram á fyrri fundum.
Guðmundur segir að enn sé deilt
um það hvort taka eigi meira tillit
til hagsmuna strandríkja eða til
veiðireynslu undanfarinna ára við
skiptingu heildarkvótans milli aðild-
arríkja NEAFC. „Úr þessu verður
ágreiningur, sem skiptir þúsundum
tonna,“ segir hann.
Þrír kostir
Guðmundur segir að í fundarlok
eigi aðildarríkin þijá kosti. Sá bezti
sé að samkomulag náist um kvóta-
skiptingu. Annar kostur sé sá að
gera ekkert og viðhalda þannig
óbreyttu ástandi og stjórnlausum
veiðum á Reykjaneshrygg. Þriðji
kosturinn sé sá að greiða atkvæði
um einhveija af framkomnum tillög-
um. Sá kostur bjóði þó þeirri hættu
heim, að ríkin sem verða undir í
atkvæðagreiðslunni virði ekki þá
fiskveiðistjórnun, sem meirihlutinn
sé fylgjandi.
A
Otrúlegar sveiflur í veðrinu á milli ára og auð jörð í ár í stað skafla í fyrra
Hefur verið alveg
dásamlegur vetur
ÞETTA hefur verið alveg dásam-
legur vetur og ég sakna ekki
snjómokstursins," segir María
Steingrímsdóttir, íbúi við Asveg
12 áDalvík.
I gær var hún að sópa stéttina
við húsið en um svipað leyti í
fyrra birtist mynd af Maríu, þar
sem hún stóð uppi á snjóskafli
við húsið og náði skaflinn upp
fyrir þakskeggið.
Þá hafði hús Maríu að mestu
verið á kafi í snjó frá því í janúar
og þurfti hún að láta ljósin loga
í húsinu um hábjartan dag. Nú
hefur tíðin verið önnur og segir
María að mun bjartara sé yfir
bæjarbúum lofi veðrið í hástert.
„Nú situr maður í sólstól á
pallinum framan við húsið og
nýtur sólarinnar. Auk þess höf-
um við verið að klippa runna í
garðinum og ég man ekki eftir
að það hafi verið hægt áður í
mars.“
María segir að bóndarósir sín-
ar hafi ruglast í ríminu og séu
farnar að gægjast upp á yfir-
borðið. Hún verði því að byrgja
þær þar sem enn sé frost á nótt-
unni. „Það tala margir um að
páskahretið sé á næsta leyti en
ég hef ekki trú á að það eigi
eftir að snjóa mikið.“
Morgunblaðið/Rúnar Antonsson
FYRIR réttu ári stóð María Steingrímsdóttir uppi á
háum snjóskafli fyrir framan hús sitt á Dalvík...
Morgunblaðið/Kristján
...í gær var hún hins vegar að sópa stéttina í veðurblíðunni.
Eldur
slökktur í
ViniíS
ELDUR kom upp vélarrúmi fiski-
skipsins Vinar ÍS-8 frá Hnífsdal um
tíuleytið í gærkvöldi. Skipið var þá
statt um hálfa aðra sjómílu undan
Galtarvita. Eldurinn var lítili og náði
áhöfnin fijótlega að slökkva hann.
Engin slys urðu á mönnum, en
fimmtán manna áhöfn er á Vini.
Skipveijar reyndu í gærkvöldi að
koma vél skipsins í gang að nýju.
Flosi ÍS fylgdist með og var ætlunin
að hann tæki Vin í tog og drægi
hann til hafnar ef ekki tækist að
gangsetja vélina.
----♦ ♦ ♦-
30 glannar
Formenn 180 aðildarfélaga Alþýðusambands íslands funda á morgun
í Kópavogi
Miðstjórn ASI sakar ríkis-
stj órnina um griðrof
FRUMVARP félagsmálaráðherra um breytingar á
t__Jjjjgum um stéttarféiög og vinnudeiiur sem lagt
var fram á Alþingi í fyrrakvöld sætir harðri gagn-
rýni forystu ASI og stjórnarandstæðinga á Al-
þingi. Miðstjórn ASI kom saman í gær og í álykt-
un fundarins eru málsmeðferð ráðherra og efni
frumvarpsins sögð árás á verkalýðshreyfinguna
og ríkisstjórnin sökuð um griðrof.
„Miðstjórn ASÍ fordæmir að stjómvöld skuli
einhliða hafa lagt fram frumvarp til breytinga á
vinnulöggjöfinni. Frumvarpið er lagt fram á sama
tíma og aðilar vinnumarkaðarins voru í samninga-
viðræðum um samskiptamál sín á milli. í þeim
viðræðum lágu hugmyndir og tillögur ASl að
nauðsynlegustu breytingum fyrir. Með kynningu
á væntanlegu lagafrumvarpi sleit félagsmálaráð-
^-^-terra þeim viðræðum,“ segir í ályktuninni.
Mun líklega tefja næstu
samningsgerð
Miðstjórn ASÍ segir frumvarpið árás á verka-
lýðshreyfinguna sem muni rýra sjálfstæði stéttar-
félaga. Hefur verið ákveðið að boða formenn allra
aðildarfélaga ASÍ, sem eru um 180 talsins, til
"^’tindar á Hótei Sögu á morgun, föstudag, til að
ræða frekari viðbrögð.
Félagsmálaráðherra
segir ekki traðkað á
rétti neins manns
Benedikt Davíðsson, forseti ASÍ, segir að ef
frumvarpið verði að lögum óbreytt sé líklegt að
það muni tefja verulega fyrir gerð komandi kjara-
samninga. Hann segir að mikil fundahöld verði
um þetta mál innan verkalýðshreyfingarinnar á
næstunni og það verði ofarlega á baugi á þingi
ASÍ í maí. „Það er aðeins einn tónn í hreyfingunni
í þessu máli,“ segir hann.
„Óskiljanleg árás samvinnumanns“
Björn Grétar Sveinsson, formaður VMSÍ, segir
að félagsmálaráðherra hafi kosið að keyra málið
áfram með offorsi. Þarna sé um að ræða óskiljan-
lega árás samvinnumanns á verkalýðshreyfing-
una. „Það er alveg fullvíst að það verður bitið
þarna á móti,“ segir Björn Grétar.
Orðaskipti urðu einntg um frumvarpið í umræðu
um störf Alþingis í gær og líktu nokkrir stjórnar-
andstæðingar því við sprengju. Svavar Gestsson,
Alþýðubandalagi, sagði að frumvarpið hefði sagt
í sundur friðinn á Alþingi og kvaðst hann óttast
að ríkisstjórnin hefði einnig sagt í sundur friðinn
í landinu með því að leggja frumvarpið fram.
Hafa ekki alræðisvald lengur
Páll Pétursson félagsmálaráðherra sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að ekki væri traðkað á rétti
nokkurs manns í þessu frumvarpi heldur væri
verið að færa meginákvarðanir í kjaramálum í
lýðræðisátt. Þeir þröskuldar sem væru í frumvarp-
inu um afgreiðslu samninga og boðun vinnustöðv-
ana væru mjög lágir.
„Hins vegar kann að vera að einhveijum sem
sitja í stjórn eða trúnaðarmannaráðum verkalýðs-
félaganna þyki dregin einhver burst úr nefi sínu,
að þeir hafi ekki alræðisvald lengur og þurfi að
leita í baklandið. Ég er hissa á þeim að vera svona
óttaslegnir við umbjóðendur sína og treysta þeim
svona illa. Ef samningur er ómögulegur á ekki
að vera nokkur vandi að hóa saman liði til að
fella hann og ef miðlunartillaga er ósanngjörn á
það að vera forystu félags í lófa iagið að afla
fylgis þeirri hugmynd að fella hana,“ sagði félags-
málaráðherra.
Frumvarpið verður tekið til umræðu á Alþingi
í dag.
■ Málið er allt komið í uppnám /4
FJÖLDI ökumanna steig of fast á
bensíngjöfina í umdæmi Kópavogs-
lögreglunnar í gær.
Að sögn lögreglu voru 30 manns
teknir fyrir hraðakstur og sýndu
sumir ökumenn vítavert gáleysi að
hennar mati. Taldi lögreglan að
góðviðri og vorstemmningu væri um
að kenna og var enn að stöðva öku-
þóra seint í gærkvöldi.
Engar upplýsingar fengust um
hraða enda vill lögreglan ekki hvetja
neinn til að slá gömul met, að eigin
sögn.
Einkabíl-
númer kosti
25 þúsund
GJALD fyrir einkabílnúmer
verður 25 þúsund krónur, sam-
kvæmt tillögu allsheijarnefnd-
ar Alþingis.
Fyrir Aiþingi liggur frum-
varp dómsmálaráðherra um
að bíleigendur geti fengið sér-
stök skráningarmerki á bíla
sína og raðað á þau bókstöfum
og/eða tölustöfum að vild. Í
frumvarpinu var gert ráð fyrir
að greiða þyrfti 50 þúsund
krónur fyrir rétt að einka-
merkjum, en það fannst alls-
heijarnefnd of hátt.