Morgunblaðið - 12.04.1996, Qupperneq 1
64 SÍÐUR B/C
83. TBL. 84. ÁRG.
FÖSTUDAGUR 12. APRÍL 1996 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Feigðar-
flug
iingrar
flugkonu
Cheyenne. Reuter.
SJO ára stúlka, Jessica Dubroff,
fórst ásamt föður sínum og flug-
kennara í gær er hún freistaði
þess að verða yngst bandarískra
flugmanna til þess að fljúga milli
stranda í Bandaríkjunum.
Nokkrum mínútum eftir flugtak
frá flugvellinum í Cheyenne í
Wyoming steyptist Cessna Card-
inal-vélin á nefið niður á húsagötu
í íbúðahverfi. Sjónai-vottur sagði
flugvélina hafa spunnið í jörðina.
Urhellisrigning var og haglél
er Dubroff lagði af stað frá Chey-
enne. Talið er að hún og samferða-
menn hennar hafi beðið samstund-
is bana er flugvélin, sem var eins
hreyfils og fjögurra sæta, skall í
jörðina.
Flugferðin örlagaríka hófst á
Hálfmánaflugvelli við San Franc-
isco í fyrradag. Ráðgerði Dubroff,
sem var frá Pescadero í Kalifor-
níu, að stjórna flugvélinni alla leið-
ina en formlega var flugkenn-
arinn, Joe Reid, flugstjóri ferðar-
innar.
Tekið verði fyrir
metflug barna
Dubroff hóf flugnám fyrir fimm
mánuðum og hafði 40 flugstundir
að baki. Tilgangur ferðarinnar var
að siá met Tony Aliengena sem
flaug níu ára gamall milli stranda
árið 1988.
Sérfræðingar í flugmálum
drógu skynsemi metflugstilrauna
af þessu tagi í efa í gær og sögðu,
að gera þyrfti ráðstafanir til að
letja til slíkra ferðalaga.
Fulltrúi flugmálastjómarinnar
(FAA) sagði að atvikið yrði til þess
að reglur um hveijum beri að stýra-
flugvél verði endurskoðaðar. Sam-
kvæmt lögum fær enginn flugskír-
teini fyrr en við 16 ára aldur.
Til þess að sjá upp fyrir mæla-
borðið sat Dubroff á sessu og
smíða varð framlengingu á fótstig-
in svo hún gæti beitt hliðarstýrum.
Stjórn S-
Kóreu féll
Seoul. Rcuter.
STJÓRNARFLOKKUR Suð-
ur-Kóreu tapaði þingmeiri-
hluta í kosningum,' sem fram
fóru í landinu í gær, að sögn
kóreska ríkissjónvarpsins.
Lengi dags bentu svonefnd-
ar útgöngukannanir þriggja
sjónvarpsstöðva til þess að
stjórnin héldi velli og rúmlega
það. Er á talningu atkvæða
leið kom í ljós að þær spár
áttu ekki við rök að styðjast.
Benti allt til þess að stjórnar-
flokkurinn fengi um 140 þing-
sæti af 299 sætum en hann
hafði 150.
Peres vill ræða
pólítíska lausn
16 farast í Diisseldorf
Lestarslys í Belgíu
BJÖRGUNARMENN bera slas- borginni Roulers í Belgíu í gær
aðan mann úr flaki járnbrautar- með þeini afleiðingum að tveir
lestar sem fór út af teinunum í menn biðu bana og tugir slösuðust.
DUsseldorf. Reuter.
SEXTÁN manns a.m.k. biðu bana
og um 150 manns slösuðust í elds-
voða í flugstöðinni á flugvellinum
í Dússeldorf í Þýskalandi í gær,
tæpur helmingur þeirra lífshættu-
lega.
Talið er að kviknað hafi í vegna
neistaflugs frá verkfærum í blóma-
búð í byggingunni. Tók það mjög
ijölmennt slökkvilið rúmar fimm
stundir að ná tökum á bálinu.
Eldurinn kviknaði í komusalnum
í A-álniu. Breiddist hann mjög ört
út og komst niður í neðanjarðar-
lestastöð. Fylltist flugstöðvarbygg-
ingin öll af reyk.
F'lugvellinum var lokað eftir að
eldurinn kom upp en hann kviknaði
um klukkan 16 að staðartíma. Veg-
um að flugvellinum var lokað og
flugumferð til Dússeldorf beint til
Kölnar.
Reuter
BRAK flugvélar Jessicu Dubroff á slysstað í íbúðarhverfi í
Cheyenne í Wyoming. Á annarri innfelldu myndinni er hún
við stjórnvöl flugvélarinnar og á hinni kveður hún móður sína
og systur í Kaliforníu við upphaf metflugstilraunarinnar.
Tel Aviv, Beirút. Reuter.
SHIMON Peres forsætisráðherra
ísraels sagðist í gær opinn fyrir
pólitískri lausn átakanna í Líbanon
síðustu daga og kvaðst vona að
hizbollah-skæruliðar drægju réttan
lærdóm af hefndaraðgerðum ísra-
ela í gær.
ísraelskar herþotur gerðu loft-
árásir á bækistöðvar hizbollah í
úthverfum í suðurhluta Beirút og
annars staðar í landinu til að hefna
eldflaugaárása hizbollah-liða á
norðurhluta ísraels á þriðjudag er
36 óbreyttir borgarar særðust.
Fjórir menn a.m.k. féllu í loft-
árásum ísraela i gærmorgun. Amir-
am Levine hershöfðingi, stjórnandi
norðurhers ísraels, sagðist gera ráð
fyrir að aðgerðir gegn skotmörkum
skæruliða myndu standa í nokkra
daga.
Hassan Nasarallah, fram-
kvæmdastjóri hizbollah-samtak-
anna, sagði í gærkvöldi, að loft-
árása ísraela yrði hefnt „svo um
rnunaði", bæði með árásum á norð-
urhluta Israels og aðgerðum annars
staðar.
Vopnasmiðjuni-
ar styðja Jeltsín
Moskvn. Rputor
RÚSSNESKIR hergagnaframleiðendur hétu Borís Jeltsín stuðningi
í forsetakosningunum í júní að uppfylltum ákveðnum skilyrðum, sem
forsetinn ákvað samstundis að verða við. í tilkynningu hergagnafram-
leiðenda sagði, að „ígrunduð athugun" sérfræðinga tæknivæddustu
iðnaðarstarfsemi Rússlands hefði leitt til þeirrar niðurstöðu, að valda-
skipti væru ekki aðeins óskynsamleg heldur beinlínis hættuleg. „Við
styðjum því Borís Níkolajevítsj Jeltsín til forseta," sögðu þeir.
Jeltsín féllst á skilyrði vopna-
framleiðenda um tafarlausa ríkis-
aðstoð bæði vegna framleiðslu inn-
anlands og til útflutriings.
Einnig að opinber hergagnakaup
yrðu fjármögnuð með skjótvirkari
hætti og ríkisábyrgð yrði veitt vegna
lána sem vopnafyrirtæki yrðu að
taka til þess að breyta framleiðslu
sinni og hverfa frá hergagnafram-
leiðslu.
Forsetinn sagðist hafa gefið
stjórninni fyrirmæli um að grípa til
ýmissa ráðstafana til aðstoðar her-
gagnaframleiðslunni, m.a. afnema
ýmiss konar útflutningsgjöld. Sagði
hann stjórnina hafa fundið tvöþús-
und milljarða rúblna utan fjárlaga
til þess að fjármagna iðngreinina.
Hert á mörkun landamæra
Jeltsín brást í gær reiður við full-
yrðingum héraðsstjóra í austurhluta
landsins, sem kvaðst hafa sannfært
forsetann um að hætta merkingu
landamæra Rússlands og Kína þar
sem það hefði í för með sér eftir-
gjöf landsvæða.
Forsetinn sagðist hafa gefíð út til-
skipun í gær um að merkingum skyldi
hraðað en honum er í mun að ekkert
verði til að skyggja á opinbera heim-
sókn hans til Peking 24. aprfl.
í ferðinni er ráðgert að undirrita
samninga sem tryggja eiga frið á
landamærum Kína, Rússlands, Kaz-
akhstans, Kyrgyztans og Tadjíkíst-
ans.