Morgunblaðið - 14.04.1996, Side 2

Morgunblaðið - 14.04.1996, Side 2
2 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Skorað á ráðherra að afnema flutningsjöfniin SKELJUNGUR hf. hefur skorað á viðskiptaráð- herra að láta afnema lög um jöfnun á flutnings- kostnaði olíuvara, en Lagastofnun Háskóla Is- lands komst að þeirri niðurstöðu að 4. grein laganna stangaðist á við Samkeppnislög og stað- festi Samkeppnisráð þá niðurstöðu 22. nóvember síðastliðinn. Að sögn Árna Ólafs Lárussonar, framkvæmdastjóra hjá Skeljungi, hefur þess jafnframt verið farið á leit við Samkeppnisráð að ráðið taki málið fyrir að nýju þar sem við- skiptaráðherra hafi enn ekkert aðhafst í málinu og ekkert bendi til þess að úr því eigi að bæta á yfirstandandi löggjafarþingi. Finnur Ingólfsson viðskiptaráðherra sagði í samtali við Morgun- blaðið í gær að honum hefði ekki borist áskorun Skeljungs, en málið hefði verið og væri í skoðun í ráðuneytinu. Árni Ólafur sagði að erindi Skeljungs hefði upphaflega verið sent Samkeppnisráði 4. apríl 1995 og það verið í meðförum til og með 22. nóvember síðastliðins þrátt fyrir tímaákvæði í samkeppnislögum um afgreiðsluskyldu ráðsins. Álit Samkeppnisráðs hefði síðan verið birt við- skiptaráðherra formlega 8. desember, og þannig væru nú enn liðnir fjórir mánuðir án þess að á málinu hefði verið tekið. Ekkert annað kemur til álita en að afnema lögin „Flutningsjöfnunarlögin eru ólög og eru í raun óviðeigandi í þeirri samkeppnisumgjörð sem olíu- viðskiptin eru í, en þetta hefur verið álit okkar um margra ára skeið. Það sem enn þrýstir á um nauðsyn þess að á þessu máli sé tekið er sá ójöfn- uður sem leiðir af í raun og veru samruna tveggja keppinauta okkar þar sem dreifing um 70% magnsins fer um eina hönd en við höldum um það bil 30%. Það gefur augaleið að í slíku um- hverfí hlýtur það að orka mjög tvímælis að leggja þá kvöð á þann smærri sem hefur búið um sig með hagkvæmni að hann þurfí að dæla fé úr rekstri sínum yfír í rekstur stóra aðilans. Það er ekkert annað sem til álita kemur í dag miðað við þá breytingu sem orðin er í þessari samkeppni en að þessi lög verði afnumin. Þetta á ekkert skylt við byggðastefnu, byggðasjónar- mið eða staðsetningu viðskiptamanna. Olían er ekkert öðruvísi en aðrar neysluvörur í landinu og sömuleiðis fleygir sífellt fram þeirri tækni sem viðhöfð er við dreifinguna, en þetta kerfi tekur ekkert tillit til þess,“ sagði Ámi Ólafur. „ÖLL vinna mín í skólanum í vetur er í tölvunni og ég á engin afrit. Þetta kemur sér ekki að- eins mjög illa í prófum í vor held- ur einnig næsta vor, þegar ég tek stúdentspróf," segir Birkir Rún- ar Gunnarsson, nemi í Verslunar- skólanum, og landskunnur sund- kappi, en tölvunni, sem hann notar í skólanum, var stolið fyrir skömmu. Birkir er blindur og tölvan er honum nauðsynleg við skólastarfið. Verslunarskólinn leggur Birki til búnað, tölvu, skjá, prentara og lyklaborð. Birkir notar lykla- borð með blindraletri og getur prentað út á því letri og bókstöf- um, en textinn birtist einnig með bókstöfum á skjánum. í páskafrí- inu var tölvunni sjálfri stolið og blekhylki úr prentara, en skjár, Vinna vetrarins glataðist lyklaborð og annað skilið eftir. Líklegt þykir að hún hafi horfið úr skólastofunni á 3. hæð Versl- unarskólans föstudaginn 29. mars, því fólk sem var á nám- skeiði í stofunni á laugardag tel- ur að hún hafi ekki verið þar þá. „Ég hef því miður ekki tekið afrit af gögnunum í tölvunni, af því að það er dálítið mál að taka slíkt afrit oft,“ segir Birkir. „Ég verð ekki fyrir fjárhagslegu Ijóni sjálfur, þar sem skólinn á búnað- inn, en ég bið þjófinn um að skila mér tölvunni, harða diskinum eða afriti af efni hans. Það kem- ur sér mjög illa að missa allar glósur vetrarins og ég lendi einn- ig í vandræðum næsta vor, þegar ég þarf að lesa fyrir stúdents- próf.“ Þorvarður Elíasson, skóla- stjóri Verslunarskólans, sagði að fengi Birkir ekki tölvuna kæmi það niður á honum við próf í vor, því ekki yrði hægt að prófa hann nema munnlega. Annar kostur væri sá að sleppa prófum og meta frammistöðu hans í vet- ur. Hvorugur kosturinn væri réttlátur miðað við próftilhögun hjá öðrum nemendum. Morgunblaðið/Ámi Sæbcrg Morgunblaðið/Jón Svavarsson Fegurðardrottning kjörin HARPA Rós Gísladóttir, 18 ára Garðbæingur, var kjörin fegurð- ardrottning Reyhjavíkur í feg- urðarsamkeppni Reykjavíkur 1996 sem fram fór á Hótel ís- landi í fyrrakvöld. Harpa Rós var jafnframt kjörin jjósmyndafyrir- sæta keppninnar. Talið frá vinstri á myndinni eru Hrafnhild- ur Hafsteinsdóttir fegurðar- drottning íslands 1995, Harpa Rós Gísladóttir, fegurðardrottn- ing Reykjavíkur 1996, María Helga Gunnarsdóttir, sem varð í þriðja sæti í keppninni, og Berg- Ijót Þorsteinsdóttir, sem varð í öðru sæti og jafnframt lqörin vinsælasta stúlkan í keppninni. Japanskeppnin í handbolta Island leikur um gullið ISLENSKA landsliðið í handknatt- leik hefur ekki tapað stigi í átta þjóða keppninni í Japan og leikur til úrslita í mótinu árla í dag, sunnu- dag. ísland mætti Suður-Kóreu í undanúrslitum í gærmorgun og eft- ir að hafa verið marki undir í hálf- leik, 13:12, sneru strákamir leikn- um sér í hag um miðjan seinni hálf- leik og unnu 27:24. „Við áttum erfitt uppdráttar í fyrri hálfleik og vorum mest fímm mörkum undir, 12:7, en eftir að við jöfnuðum 21:21 og náðum svo tveggja marka forystu ókyrrðust móthetjamir og við héldum fengn- um hlut,“ sagði Þorbjöm Jensson, landsliðsþjálfari, við Morgunblaðið eftir leikinn. Valdimar Grímsson gerði sjö mörk, þar af eitt eftir hlé. Olafur Stefánsson var með fimm mörk og öll í seinni hálfleik. Aðrir sem skoruðu vom Róbert Sighvats- son 4, Davíð Ólafsson 3, Dagur Sigurðsson 3, Júlíus Jónasson 3/3 og Sigurður Bjamason 2. Lee Suk-Hyung, verðandi mark- vörður FH, varði vel fyrir Suður- Kóreu í fyrri hálfleik. ísland og Noregur leika um gull- ið en Noregur vann Bandaríkin 29:18 í hinurti undanúrslitaleiknum. „Leikir íslands og Noregs hafa ver- ið jafnir undanfarin ár en við erum staðráðnir í að sigra,“ sagði Þor- björn. Fulltrúi ísfirðinga var ekki kjörinn í aðalstjórn Orkubús Vestfjarða Isfirðingar gengu af fundi FULLTRÚI ísfirðinga var ekki kjörinn í aðalstjórn Orkubús Vest- fjarða á aðalfundi Orkubúsins á föstudag, þrátt fyrir það að bæjar- félagið eigi rúmlega þriðjungshlut í fyrirtækinu. Þegar þetta var ljóst gengu full- trúar ísfírðinga af fundinum, þar sem þeir töldu ástæðulaust að sitja hann lengur úr því þetta hugarfar væri uppi, að sögn Halldórs Jóns- sonar, bæjarfulltrúa sjálfstæðis- manna á ísafirði. ísfírðingar hafa ekki átt fulltrúa í aðalstjóm fyrir- tækisins um nokkurra ára skeið og á aðalfundi fyrirtækisins í fyrra var fulltrúi þeirra einnig felldur í stjóm- arkjöri. Aðalstjórn Orkubús Vestfjarða er skipuð fímm fulltrúum. Tveir þeirra eru skipaðir af fjármála- og iðnaðarráðherra, en hinir þrír eru kjörnir af sveitarfélögum á Vest- fjörðum. Fyrir aðalfundinn á föstudag komu bæjarfulltrúar á Isafirði sér einróma saman um að gera tillögu um Kolbrúnu Halldórsdóttur, bæj- arfulltrúa Sjálfstæðisflokksins á ísafirði, í stjórnina. Sú tillaga hlaut ekki náð fyrir augum kjömefndar og töldu Isfirðingar þá að blokk hefði verið mynduð gegn þeim og þýðingarlaust væri að láta reyna á málið í kosningum. Með ólíkindum Halldór sagði að það væri með ólíkindum að ekki væri hlustað á bæjarstjórn ísafjarðar í þessu sam- starfi um Orkubúið og aðrir yrðu að svara fyrir af hveiju það væri ekki gert. ísfirðingar hefðu verið óánægðir með ákveðna hluti hjá fyrirtækinu og hefðu þar af leið- andi viljað ná þeim áhrifum sem þeim bæri í stjórn fyrirtækisins. Eftir kosningamar í hinu nýja bæjarfélagi í norðurhluta sýslunnar í vor mun það eiga meirihluta í Orkubúi Vestfjarða og hafa stjórn- arkjör í hendi sér. Forsetaembættið er í eðli sínu pólitískt ►Viðtal við Davíð Oddsson for- sætisráðherra um eðli forsetaemb- ættisins, störf ríkisstjómarinnar og ýmis önnur mál. /10 Ekkjuveldið í Asíu ►Þótt virðing fyrir réttindum kvenna sé ekki einkennandi fyrir ríkin á Indlandsskaga fara konur þar víða með völd. /16 Hugvitið í askana látið ►í Viðskiptum/Atvinnulífí á sunnudegi er fjallað um fyrirtækið Taugagreiningu hf. /22 Tifandi tímasprengja ►Veirusjúkdómur sem barst úr eldisminkum í villiminka gæti vald- ið erfiðleikum í loðdýraeldi nú. /20 B ► 1-28 Frjáis í fjallasal ►Jón Haraldsson í Gautsdal þekk- ir erfiði einyrkjans af eigin raun. Hann er nágranni huldufólks og hitti dauðan mann á Sauðárkróki. /1 Manneskjan frá mörg- um sjónarhornum ►Matti Ó. Stefánsson hefur rekið nuddstofu í nokkur ár. Hann er menntaður í Bandaríkjunum í mál- efnum hugar og líkama. /2 í fótspor jólasveinsins á Kili ►Jósef Hólmjárn kom nýlega til byggða eftir 18 daga viðbufðaríka gönguskíðaferð yfir landið. /14 FERÐALÖG ► 1-4 Sífellt fleiri vilja taka á móti ferðamönnum ►Fjölgun hefur orðið á starfsleyf- um til ferðaskrifstofa og skipu- leggjenda hópferða um Island. /1 Stefnumótun í ferða- þjónustu til 2002 ►Vinna við stefnumótun í ferða- þjónustu fyrir A-Skaftafellssýslu til 2002 er að hefjast. /4 D BÍLAR ► 1-4 Legacy Outback á 3,2 milljónir ►Subaru Legacy Outback er hálf- gildings jeppi, hærri en Legacy og með stærri hjólum. /1 Reynsluakstur ►Peugeot 406, rúmgóður, fimm manna, framdrifinn bíll með góð- um staðalbúnaði. /4 FASTIR ÞÆTTIR Fréttir 1/2/4/8/bak Leiðari 26 Helgispjall 26 Reylq'avíkurbréf 26 Minningar 30 Myndasögur 36 Bréf til blaðsins 36 ídag 38 Brids 38 Stjömuspá 38 Skák 38 Fólkífréttum 40 Bíó/dans 42 íþróttir 46 Útvarp/sjónvarp 48 Dagbók/veður 61 Mannlifsstr. 8b Kvikmyndir llb Dægurtónlist 10b INNLENDAR FRÉTTIR: 2-4-8-BAK erlendar fréttir- 1&6

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.