Morgunblaðið - 14.04.1996, Side 46
46 SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996
MORGUNBLAÐIÐ
í ÞRÓTTIR
KORFUKNATTLEIKUR
Grindvíkingarfögnuðu fyrsta íslandsmeistaratitli karla vel og lengi
Ogleymanleg
sigurhátíð
bæjarbúa
unnist oft þykja þetta sjálfsögð tíð-
indi. En að koma hingað og sjá blys
og móttökur með þeim hætti sem
voru hér verður ógleymanlegt og ég
samfagna Grindvíkingum að eignast
íslandsmeistara."
Meiriháttar upplifun
Margeir Guðmundsson er formað-
ur Körfuknattleiksdeildarinnar í
Grindavík. „Þetta er meiriháttar upp-
lifun. Þetta er búið að vera langþráð
takmark hjá Grindavík og þá sérstak-
lega fyrirliðanum Guðmundi Braga-
syni sem er búinn að bíða í áratug
eða meira. Við vorum svolítið svart-
sýnir þegar við byrjuðum í haust því
hópurinn var ekki mjög breiður en
síðan kom Ingi Kalli [Ingi Karl Ing-
ólfsson] ti! baka og Brynjar Harðar-
son gekk til liðs við okkur þannig
að það styrkti hópinn og þettá hjálp-
aði. Síðan fengum við þennan frá-
bæra útlending sem er alveg eins og
gullmoli. Ég þykist viss um að það
íslandsmeistarar Grindavíkur 1996
Morgunblaðið/Þorkell
FREMRI röð frá vinstrl: Helgi Jónas Guðfinnsson, Unndór Sigurðsson, Ingi Karl Ingólfsson, Hjörtur Harðarson, Árni S. Björns-
son og Ágúst Bjarnason, aðstoðarmaður. Aftari röð frá vinstri: Friðrik Ingi Rúnarsson, þjálfari, Brynjar Harðarson, Marel Guð-
laugsson, Guðmundur Bragason, fyrirliði, Rodney Dobard, Páll Axel Vilbergsson, Sigurbjörn Einarsson, Guðlaugur Eyjólfsson,
Dagbjartur Willardsson, aðstoðarþjálfari, og Brynjar Pétursson, nuddari.
Morgunblaðið/Frímann
Traustar stoðir
HALLDÓR Ingason er frumkvöðull körfuknattleiks í Grinda-
vík og sagt er að hann hafi smíðað fyrstu körfuna sem var
sett upp í bænum. Halldór sem er föðurbróðir Guðmundar
Bragasonar, fyrirliða liðsins, er til vinstri með Margeiri Guð-
mundssyni, formanni körfuknattleiksdeildar, en á myndinni
til hliðar er stuðningsmaður nr. 1, Sigríður Guðlaugsdóttir.
sem hann sýndi í síðasta leiknum
hefur aldrei sést hér á landi áður.
Við Grindvíkingar getum þvl verið
stoltir af liðinu okkar og þá meina
ég hveijum og einum I liðinu því þar
eru allir mjög góðir," sagði Margeir.
Grét af gleði
„Það var yndislegt að vinna I
kvöld. Ég var alveg viss um að þetta
væri komið í höfn þegar fjórar mínút-
ur voru eftir og ég var búin að segja
við sjálfa mig að ég ætlaði ekki að
gráta á leiknum en ég stóðst ekki
freistinguna þegar Gummi tók við
bikamum og ég grét og grét en það
voru gleðitár. Eg var alveg sátt við
það þegar þeir töpuðu á þriðjudaginn
því þeir [Keflvíkingar] voru alltaf á.
eftir okkur en ég lærði það að mað-
ur á ekkert að segja of mikið og
bara eiga þetta fyrir sjálfan sig. Ég
var dálítið hrædd í leiknum í Kefla-
vík þegar munurinn var orðinn fjögur
stig en þá hugsaði ég að það gengi
ekki og þá bara kom þetta!“ sagði
Sigríður sem ber merki stuðnings-
manns númer 1 á bakinu í hveijum
leik og hefur vakið athygli fyrir
styrkan stuðning á hliðarlínunni og
verið framarlega í flokki ötulla stuðn-
ingsmanna Grindavíkurliðsins.
Grindavíkurbær fyrirmyndar-
íþróttabær
Jón Gunnar Stefánsson bæjarstjóri
í Grindavík var í hópi stoltra stuðn-
ingsmanna á sigurhátíðinni. „Við í
bæjarstjóminni metum þennan
árangur mikils og teljum þetta mikla
lyftistöng fyrir samfélagið í bænum
því hér horfa allir í sömu átt á þess-
ari stundu og taka þátt í þessari
gleði. íþrótta- og æskulýðsstarf bæj-
arins á eftir að njóta þessa árangurs
og hvetur til virks starfs innan
íþróttahreyfingarinnar og með henni.
Þá vorum við að fá þær fréttir að
ISÍ hefur útnefnt Grindavíkurbæ sem
fyrirmyndarbæ hvað varðar aðbúnað
til íþróttaiðkana og ekki skemmir það
fyrir gleðinni. Grindavíkurbær hefur
ætíð styrkt afreksfólk á sviði íþrótta
til utanlandsferða og þegar að því
kemur að þeir taka þátt í Evrópu-
keppni mun reyna verulega á stuðn-
ing bæjarbúa," sagði Jón Gunnar við
Morgunblaðið.
Sigurvíman var ekki runnin af
mönnum daginn eftir því allir fánar
blöktu við hún og fátt um meira tal-
að á vinnustöðum í bænum en titil-
inn. Það var auðheyrt að bæjarbúar
voru stoltir af strákunum sínum og
vonast til að hægt verði að halda í
þá fyrir næstu leiktíð svo að fleiri
titlar vinnist í Grindavík.
ÞAÐ ER óhætt að segja að sigurstemmning hafi ríkt í Grindavík á
fimmtudagskvöld þegar bæjarbúar flykktust út á götu til að taka á
móti hetjunum sínum og fagna með þeim íslandsmeistaratitli sem
körfuknattleikslið bæjarins vann með eftirminnilegum hætti í Keflavík.
skrifar frá
Grindavik
Stemmningin var lík því sem sést
hefur erlendis þegar sigurveg-
arar eru hylltir því múgur og marg-
mmmbbbhb menni safnaðist sam-
Frimann an við verslunarmið-
Ólafsson stöðina og beið þar.
Á svæðinu var fjöldi
bíla sem blikkuðu
Ijósum og þeyttu flautur þegar rúta
með liðið ók inn í bæinn í lögreglu-
fylgd og blys var tendrað. Fólk þyrpt-
ist um rútuna og fylgdi henni í stæði
við félagsheimilið Festi þar sem búið
var að auglýsa opið hús. Þar byijaði
liðið á því að syngja óopinberan sig-
ursöng sigurvegara „We Are the
Champions" við mikinn fögnuð þar
sem margir tóku undir og ekki var
örgrannt um að tár sæist í augna-
krókum manna.
Það hlýnaði mörgum um hjarta-
rætur þegar nýkjörinn formaður
UMFN, Kristbjörn Albertsson, steig
á svið og flutti liðinu og bæjarbúum
hamingjuóskir frá Njarðvíkingum
sem hafa háð margar rimmur við
Grindvíkinga á körfuboltavellinum
undanfarin ár. Hann afhenti Guð-
mundi Bragasyni blómvönd og kall-
aði síðan á Njarðvíkinginn og þjálf-
ara Grindvíkinga, Friðrik Inga Rún-
arsson, og afhenti honum blóm.
Hann sagði að lokum að hann-ósk-
aði liðinu alls hins besta í framtíð-
inni en lofaði um leið að Njarðvíking-
ar myndu veita liðinu verðuga keppni
á körfuknattleikssviðinu næsta vet-
ur.
Get hætt stoltur
Kolbeinn Pálsson formaður Körfu-
knattleikssambands íslands flutti lið-
inu því næst hamingjuóskir. Hann
lætur nú af störfum sem formaður
KKÍ eftir næsta þing þannig að þetta
er með síðustu störfum hans fyrir
sambandið. Hvemig fannst honum
keppnin? „Hún var svolítið einkenni-
leg því leikimir unnust með miklum
mun á hvorn veginn sem var. Engu
að síður var þetta mjög skemmtiieg
barátta og við skulum gera okkur
grein fyrir því að þetta voru lið núm-
er þijú og fjögur í undankeppninni
en þau léku mjög skemmtilegan
körfubolta. Síðasti leikurinn var mjög
vel leikinn af Grindvíkinga hálfu og
þar var keppnisskapið númer eitt, tvö
og þijú. Þeir ætluðu sér að vinna
þennan leik og gáfu aldrei eftir. Þeir
spiluðu vamarleikinn framarlega og
það var ástæðan fýrir yfirburðum
Grindvíkinga. Það var svo ánægjuleg
uppbót í lokin að sjá troðslumar hjá
útlendingi Grindvíkinga sem gaf
leiknum ákveðinn glans en vegna
yfirburðanna hefði hann annars ekki
orðið jafn glæsilegur. Vegna þessa
endis finnst mér Grindvíkingar svo
sannarlega eiga titilinn skilið."
Hvernig fannst svo Kolbeini
stemmningin í Grindavík? „Við skul-
um bara skoða hvernig tekið er á
móti liðinu hér. Þar sem titlar hafa