Morgunblaðið - 14.04.1996, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 14.04.1996, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996 15 Búkolla sýnir Skugga- Svein Laxamýri. Morgunblaðið. LEIKFÉLAGIÐ Búkolla frum- sýndi nýlega leikritið Skugga- Svein fyrir fullu húsi í Ljósvetn- ingabúð. Var mjög góður rómur gerð- ur að sýningunni en mikil vinna hefur verið undanfarið hjá því fólki sem að sýningunni stendur. Með helstu hlutverk fara Jó- hannes Haraldsson, sem leikur Skugga-Svein, Sigurður Hálf- dánarson, sem leikur Sigurð lög- réttumann í Dal, Guðrún Lára Pálmadóttir, sem leikur Ástu dóttur hans, og með hlutverk Haraldar fer Böðvar Baldurs- son. Ketill skrækur er leikinn af Sigurði Haraldssyni, Ásdís Þórsdóttir leikur Grasa-Guddu og Ragnar Þorsteinsson fer með hlutverk Lárentíusar sýslu- manns. Aðrir leikarar eru Marteinn Gunnarsson, Tómas Pétursson, Kolbrún Úlfsdóttir, Benedikt Arnbjörnsson, Ingólfur Víðir Ingólfsson, Sigurður Birgisson, Hólmar Gunnarsson, Erlingur Vilhjálmsson og Baldur Krist- jánsson. Leikstjórinn Sigurður Hallm- arsson hefur áður leikstýrt hjá Búkollu, en áhugamannafélag þetta, sem var stofnað 1992, skipar nú fastan sess í leikhús- lífiÞingeyinga. Áður hafa þau sýnt Biðla og bijóstahöld, Plóg og sljörnur, Stútungasögu og Draugaglett- ur. Sigurður Hallmarsson segir að hér á landi færist það í auk- ana að endurvekja gömul vinnu- brögð og gamalt handverk og uppfærsla þessi sé í takt við það. Sömuleiðis finnst honum að þegar margt sækir að frá öðrum þjóðum, bæði gott og illt, sé full ástæða til að minna okk- ur á að við eigum þjóðleg gildi sem okkur finnst sjálfsagt að hafa í heiðri. Hann segir marga hafa komið til sín og spurt hvort LISTIR Morgunblaðið/Atli Vigfússon ELSKENDURNIR. Guðrún Lára Pálmadóttir og Böðvar JÓHANNES Haraldsson í Baldursson, í hlutverkum Ástu og Haraldar. hlutverki Skugga-Sveins. ekki væri kominn tími til að sýna Skugga-Svein enn á ný, en langt er síðan Þingeyingar fengu tækifæri að sjá leikritið heima í héraði. Ljósvetningabúð, sem kalla má Leikhús Þingeyinga, var upphaflega ekki byggt í þeim tilgangi að sýna þar leikrit, en segja má að dýptin á sviðinu gefi marga möguleika og segir Sigurður að það hafi Iengi verið áhugamál sitt að sýna í húsinu. í leikhléi bauð Búkolla frum- sýningargestum kaffi og konf- ekt í tilefni dagsins. l.tlb. 6. árg/96 c_Armani á íslandi! Umfjöllun um tískukóng. ma Engm kemst með tærnar þar sem þær hafa hælana Kjörbók Landsbanka íslands hefur í 12 ár verið hagstæðasta og vinsælasta óbundna bankabók landsins. Þann tíma hefur innstæða yfir 80.000 þúsund íslendinga vaxið og dafnað - rétt eins og Vala Flosadóttir 18 ára Evrópumeistari í stangarstökki. Báðar eru fremstar á sínu sviði hér á landi og þótt víðar væri leitað. KJÖRBÓK langbesta óbundna leiðin L Lapdsbanki íslands Banki allra landsmanna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.