Morgunblaðið - 14.04.1996, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
_________BREF TIL BLAÐSIIMS_
' Eilítiðbréfkorntilforseta
bæjarstj órnar Isafjarðar
Frá Sigurði J. Jóhannssyni:
VIRÐULEGI forseti bæjarstjómar!
Ef spurning skyldi vakna hvers
vegna ég vel þá leið að skrifa þér
opið bréf, skal ég svara því strax.
Eg tel ekki annarra kosta völ en
að kalla á áberandi hátt eftir svari
við bréfi mínu til bæjarstjórnar
ísaijarðar, frá 18. des. 1995, sem
sent var þér sem forseta bæjar-
stjórnar. Langlundargeð mitt er
þrotið.
Ég þykist fara nærri um í hvers
9 hendur þú settir bréfið og að
| ætlunin hafi verið að fela þeim
hinum sama að svara því. Skiljan-
legt af þinni hálfu. En, þú áttir
að vita betur. Viðkomandi hefur
ekki fingurbrotnað við bréfaskrift-
ir í máli því, sem bréf mitt snýst
um.
Það styttist í árs afmæli bréfs-
I ins eftirminnilega, sem fulltrúi á
j bæjarskrifstofunni var látinn
9 senda mér og var _ upphafið að
{ máli, sem bæjarráð ísafjarðar tók
fyrir og afgreiddi á fundi 23. okt.
1995, að fengnu bréfi lögfræðings
míns dags. 16. s.m.
Það væri freistandi að rekja
sögu þessa máls. Það væri líka
lærdómsríkt fyrir þá er þurfa eiga
samskipti við bæjaryfirvöld og
i kunna að vera á öðru máli en vald-
** hafarnir. Til þess þarf nokkurt
( blaðarými. Læt ég því kyrrt liggja
{ um sinn a.m.k.
Þegar fyrirsjáanlegt var að
langt þref við bæjarstjóra myndi
ekki skila neinni niðurstöðu, greip
lögmaður minn til þess ráðs að
skrifa bæjarráði ísafjarðar. í bréfi
lögmanns komu fram tvær kröfur:
Sú fyrri fjárhagsleg, í hinni síðari
. var óskað eftir skýringum á um-
' mælum, sem fram komu í bréfi
I ísafjarðarkaupstaðar, dags. 19.
{ júní 1995, en bréf þetta kom í
kjölfar bréfsins dæmalausa frá
fulltrúanum. Sem fyrr segir af-
greiddi bæjrráð bréf lögmannsins
á fundi 23. okt. og fól „bæjar-
stjóra að ganga frá erindinu". Það
tók bæjarstjórann 3 vikur að setja
fingrafar sitt á afgreiðsluna og
þá loks „með vísan til viðræðna
l við bæjarráðsfulltrúa“ þá, er stað-
I ið höfðu að samþykktinni!? Síðan
bættist við viku afgreiðslutími hjá
1 bæjarskrifstofunni, sem þá kom
þessu stórvirki frá sér í svo miklum
.gassagangi, að hluti kröfunnar
gleymdist.
Fimm mánuðir eru nú liðnir frá
afgreiðslu bæjarráðs. Og, Krist-
inn, það eru þrír mánuðir síðan
ég skrifaði ykkur í bæjarstjórn-
inni! Ég er fyrir löngu hættur að
búast við svari bæjarstjóra. Þess
vegna skrifaði ég ykkur. Þess
vegna krefst ég svars af ykkar
hálfu. (Okkar í milli finnst mér
hreint út sagt ótrúlegt að þið sætt-
ið ykkur við að framkvæmdastjóri
bæjarins víki sér undan að svara
nieð formlegum hætti kröfu af því
tagi, sem fram kom í bréfi lög-
niannsins og sniðgangi þar með
samþykkt bæjarráðs). Það er með
ólíkindum, svo notað sé kunn-
Uglegt orð úr bréfí bæjarins frá
19. júní, að bæjaryfirvöld ísafjarð-
ar skuli leyfa sér að viðhafa aðra
eins lítilsvirðingu og felst í þessari
framkomu. Telja forráðamenn
bæjarins að ekki þurfi að svara
bréfum, ef þeim geðjast ekki að
efni þeirra? Svo vitnað sé aftur til
sama bréfs, þá finnst mér ekki
„forsvaranlegt að láta óhreyft" við
framkomu af þessu tagi. Þið hafið
hreint út sagt ekki gott af því að
komast upp með svona vinnu-
brögð.
1 - Bréf mitt frá 18. des. var einn-
ig sent bæjarstjórn Bolungarvíkur
og héraðsnefnd ísafjarðarsýslu,
vegna tengsla þeirra við málið.
Þykir mér rétt að geta þess, að
frá fyrrum sveitungum mínum í
Bolungarvík hefur ekkert heyrst
utan eitt lítið tíst, líkt og í snemm-
komnum vorfugli, þreyttum eftir
flugið yfir hafið stóra. Frá héraðs-
nefndinni fékk ég hins vegar bréf
í janúar. Fyrir það hef ég kvittað
með símtali við formann nefndar-
innar. Þótti mér fengur að bréfínu
og yfir því reisn, sem lítt hefur
örlað á til þessa hjá öðrum mót-
herjum mínum í þessu máli.
Annað sem veldur því að ég sé
mér ekki seinna vænna að hefjast
handa til eftirrekstrar, er að innan
tíðar verður gengið til kosninga í
nýju og stærra sveitarfélagi á
norðanverðum Vestfjörðum. Ný
bæjarstjórn tekur þá við. Miðað
við afrek ykkar í málinu til þessa,
kæmi mér ekki á óvart þótt þið
telduð þá, að þetta kæmi ykkur
ekki lengur við. Það væri ekki
ykkar að svara fyrir „syndir for-
veranna“.
Virðulegi forseti!
Velkist mál mitt eitthvað fyrir
þér bendi ég þér á að lesa niðurlag
bréfs míns frá 18. des. sl., sem
bæjaryfirvöld á ísafirði hafa ekki
enn haft dug í sér til að svara.
Þú hlýtur að geta nálgast það á
bæjarskrifstofunni.
Að lokum. Má ég minna þig á
ummæli er eftir þér voru höfð
þegar sameiginlegt framboð
vinstri flokkanna svokölluðu í
væntanlegum bæjarstjórnarkosn-
ingum í nýja sveitarfélaginu skaut
upp kollinum og flokki þínum hafði
borist bréf þar að lútandi. Þú sagð-
ir: „Ég reikna með því að við
mætum að minnsta kosti á einn
fund og hlustum á hvað er í boði,
án nokkurra skuldbindinga, það
er ekki annað en sjálfsögð kurteisi
að svara hréfum. “ (BB 17. jan.
sl. Leturbr.mín)
Þar sem ég veit að þetta var
ekki kosningaloforð ætlast ég til
að þú standir við þessa yfirlýs-
ingu, þótt á öðrum vettvangi sé.
SIGURÐUR J. JÓHANNSSON,
Laugateigi 22.
Ásgarður 39 - opið hús.
dag kl. 14-17 er þetta skemmtilega raðhús til sýnis og tekur Auður á móti
þér og þínum. í húsinu eru 4 svefnherb. og hefur þáð verið töluvert
endurnýjað og er í góðu ástandi. Heitt á könnunni, láttu sjá þig. Áhvflandi
3,0 millj. Verð aðeins 8,3 millj.
Tunguheiði - Kópavogi.
Bílskúr
Skemmtileg ca 100 fm 3ja herb. íb. á 1. hæð i fjórbhúsi ásamt 31 fm bfl-
skúr. Rúmgóð stofa, 2 svefnherb. Frábær staðsetning. Laus til afhendingar.
Verð 8,2 millj.
Opið í dag frá kl. 12 til 14.
Bifröst fasteignasala,
Vegmúla 2 - sími 533-3344.
Sími: 533-4040
Fax: 588-8366
Opiö mánd. - loslud. kl. 9 - 18 op laugard. ki. 11 - 14.
sunnudaga kl. 12 -14.
Dan V.S. Wiium hdl. lögg. fastcignasali -
Ólafur Guftmumlvson. solu.Mjórí Birgir Gcorgvson solum..
Ilorftur llarftaison. sólum. Erlcndur Daviftsson - sölum.
KAS’I’EIGNASAI.A - Ármúla 21 - KcvMavfk - Trausl og örugu lijónusta
Kvisthagi - sérhæð
Mjög góð efri sérh. á þessum eftirsótta stað. Stærð 122 fm auk 34 fm bilskúrs.
Áhv. ca 7,0 millj. hagst. lán. Verð 11,3 millj. 7900.
Ártúnsholt - einbýli
Glæsilegt 250 fm einbýlishús í Kvíslunum. Óskað er eftir skiptum á raðhúsi eða
góðri sérhæð í austurborginni á verðbili 11-13 millj.
Seljahverfi
Góð 4ra herb. endaíbúð á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu. Stærð 96 fm. 3
svefnh. Góðar innr. Fallegt útsýni. Áhv. 5,7 millj. hagst. lán. Verö 7,6 millj.
Mögul. á að taka bíl uppí. 4500.
Smiðjuvegur - miðbær
102 fm íb. á efstu hæð í þríb. (steinhús). Rúmgóð herb. Eign sem býður upp á
mikla möguleika. Verð: Tilboð. 7756.
Vesturgata
Rumgóð 3ja-4ra herb. íbúð á 3. hæð i nýl. húsi. Stærð 104 fm. Gott skipulag.
Góðar innr. Mikið útsýni. Áhv. ca 3,5 millj. byggsj. rik. fb. er laus strax. 7893.
Vesturberg
54 fm 2ja herb. íb. á 2. hæð ífjölb. Rúmgóð herb. Parket. Hús nýviðg. að utan.
Áhv. 3,8 millj. Verð 5,0 millj. 7889.
Engjasel
4ra herb. endaíb. á 3. hæð ásamt stæði í bílageymslu. 3 svefnherb. Stórar
suðursv. með miklu útsýni. Stærð íbúðar 102 fm. Áhv. 500 þús. Verð 7,5 millj.
Laus fljótl. 7875.
SUNNUDAGUR 14. APRÍL 1996 37
%
(t
FASTEIGNA
MARKAÐURINN ehf
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMAR 551-1540, 552-1700, FAX 562-0540
GLÆSILEGT RAÐHUS
VIÐ TJARNARMYRI, SELTJARNARNESI
Vorum að fá í einkasölu nýlegt stórglæsilegt raðhús sem er tvær hæðir og kjallgri
rgeð innb. bílskúr samtals að gólffleti 252 fm. Á neðri hæð eru 3 saml. stofur, gesta-
snyrting, eldhús, þvottaherb. o.fl. Á efri hæð eru 3 svefnherb. og vandað flísal.
baðherb. Kjallari með góðu tómstundaherb., geymslum, þvottaherb., baðherb. o.fl.
Vönduð gólfefni; parket og flísar. Mikið skáparými. Fallegur arinn. Rækt-
uð lóð. Hiti í stéttum. Eign í sérflokki.
%
-P FASTEiGNAMARKAÐURINN chf
Óöinsaötu 4. Símar 551-1540. 552-1700
Til sölu - opið hús
Holtsbúð 59 - Garðabæ
Til sýnis milli kl. 2 og 5 sunnudag
sérstaklega glæsilegt einbýlishús 2ja hæða með 75 fm
bílskýli.
Upplýsingar gefur Helga í síma 565 6315 og hjá:
FJÁRFESTING
FASTEIGNASALA?
Borgartúni 31,105 Rvík, s. 562 4250.
Cögfr.: Pétur Þór Sigurðsson, hdl.
iíÓLl
FASTEIGNASALA
Sf 5510090
Grófarsmári 1-3
Gullfallegt 187 fm parhús með
innb. bílsk. sem afh. fullfrág. að
utan með grófjafnaöri lóð en
fokhelt að innan. Verð aðeins 8,9
millj. Mögul. að fá húsin lengra
komin ef vill. Fráb. staðsetn.
6699.
- HOLL
ný tækni
aukin þjónusta
Opið hús í dag frá kl. 14-17
Hraunbær 102b - 3. hæð
Falleg 97 fm 4ra herb. íb. á 3. hæö.
Stutt í alla þjónustu. Parket. Flísar.
Fráb. útsýni. Áhv. 4,5 millj. í byggsj.
og húsbr. Verð 7,4 millj. Jakob býöur
ykkur velkomin í dag milli kl. 14 og 17.
4041.
Drápuhlíð 42 - kjallari
Mikiö endurn. og falleg 72 fm 3ja
herb. kjíb. meö sérinng. íb. er laus
strax. Nú er bara aö skoöa og flytja
beint inn. Verö 6,1 millj. Eiríkur
veröur í opnu húsi i dag milli kl. 14 og
17. 3802.
Granaskjól 4 - efri sérh.
Stórgl. nýuppgerð 5 herb. efri sérhæö
í virðulegu tvíb. á einum besta staö í
vesturbænum. Áhv. hagst. lán 6 millj.
Verö 10,5 millj. Hildur býður ykkur
velkomin í dag milli kl. 14 og 17. 7879.
Dofraborgir 11 - einb.
Bráðskemmtil. og vel skipul. 170 ím
einb. á einni hæö sem er til afh. strax
fokh. aö innan og fullb. að utan. 4
svefnherb. Góöur garöur. Verö
aðeins 8,9 millj. Stefán veröur á
staönum mllli kl. 14 og 17 I dag.
5003.
Dalhús 80 - einb.
Glæsil. og fráb. vel staösett 261 fm
einb. meö góöum bílsk. rétt viö stórt
óbyggt útvistar- og iþróttasvæöi.
Þetta er fráb. staöur til aö ala upp
börn, skólinn viö höndina, svo ekki sé
talaö um skíöasvæöið. Makaskipti
vel hugsanleg. Áhv. 11 millj. húsbr.
Verð 18,5 millj. Bergný býöur ykkur
velkomin i dag milli kl. 14 og 17.
5019.