Morgunblaðið - 09.05.1996, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1996 21
ERLENT
Meciar aft-
urkallar
andófslög
VLADIMIR Meciar, forsætis-
ráðherra Slóvakíu, lýsti yfir því
að setningu umdeildra laga,
sem ætlað var að sporna við
andófi og
hefðu gefið
víðtækar
handtöku-
heimildir, yrði
slegið á frest
um óákveðinn
tíma.
Samkvæmt
lögunum, sem
voru keyrð
gegnum þingið í mars, en for-
seti landsins sendi þangað aftur
til frekari umræðu, hefði mátt
fangelsa fólk fyrir að skipu-
leggja mótmæli, koma röngum
upplýsingum á framfæri og
andróður eða fyrirhugaðan and-
róður gegn ríkinu.
Meciar sagði á fyrsta blaða-
mannafundinum, sem hann hef-
ur haldið í eitt ár, að þetta úti-
lokaði ekki „hugmyndina um
lög til varnar ríkinu", en þau
mættu ekki stangast á við við-
tekin mannréttindi.
Mikið tjón
af eldum
í Mongólíu
ELDARNIR, sem nú hafa logað
í skógum og ökrum Mongólíu í
rúmlega þijár vikur, hafa valdið
veikburða efnahag landsins
miklu tjóni. Að sögn Ians Sloa-
nes, sendiherra Breta í Mongól-
íu, hefur ekki borist nægileg
aðstoð frá útlöndum til að beij-
ast við eldana og hjálpa þeim
sem misst hafa heimili sín.
17 manns hafa látið iífið í
eldunum, sem hafa farið yfir
80 þúsund ferkílómetra svæði.
Tjónið er talið nema 120 millj-
örðum króna.
Neyðarfundi
um Líberíu
aflýst
SVÆÐISBUNDNUM neyðar-
fundi um ástandið í Líberíu
hefur verið aflýst. Opinbera
skýringin var í gær sögð sú að
gefa ætti stríðsaðilum í Líberíu
kost á því að koma sér saman
um að halda samkomulag síð-
asta árs um að binda enda á
borgarastyijöldina í landinu
fyrir leiðtogafund Vestur-Afr-
íkuríkja í ágúst, en hermt er
að hin raunverulega ástæða sé
sú að flestir þeir leiðtogar, sem
boðaðir höfðu verið til fundarins
í Ghana, ákváðu að hunsa hann.
Stríðsglæparéttarhöldin í Haag
Sakbomingar úr röðum allra deiluaðila
títcr Rpntpr W
Haag. Reuter.
DÓMARAR í stríðsglæparéttarhöld-
unum í Haag yfir Bosníu-Serbanum
Dusan (Dusko) Tadic fengu í gær
að heyra vitnisburð breska sagnfræð-
ingsins James Gow sem er sérfræð-
ingur í sögu Júgóslavíu. Skýrt var
frá því í gær að dómstóllinn hefði
tekið í sína vörslu múslimann Zejnil
Delalic liðsforingja sem sakaður er
um morð, nauðganir og pyntingar í
Celebici-fangabúðunum við borgina
Konjic í miðhluta Bosníu.
Þýska lögreglan handtók Delalic í
Múnchen í mars. Króatinn Zdravko
Mucic, sem stjórnaði búðunum, var
handtekinn í Vín í mars og verður
réttað í málum þessra manna og
tveggja annarra sem gættu serb-
neskra fanga í Celebici.
Tadic er ákærður fyrir svipaða
glæpi og Delalic í alræmdum ein-
angrunarbúðum í Prijedor-héraði þar
sem sem múslimar og Króatar voru
hafðir í haldi. Veijandi Tadic segir
að vitni í málinu hafi villst á mönn-
um; annar maður með sama eftir-
nafni hafi framið ódæðin.
Gow, sem kennir við Lundúnahá-
skóla, lýsti upplausn ríkjasambands
Júgóslavíu í upphafi áratugarins en
átökin milli þjóðanna í Bosníu hófust
1992 í kjölfar þeirra atburða. Hann
sýndi með aðstoð korta þróun búsetu
þjóðabrotanna og breytingar á landa-
mærum Bosníu. Við andlát kommún-
istaleiðtogans Josips Titos árið 1980
hefðu byijað deilur í ríkjasambandinu
og engin málamiðlun fundist. Er
gripið hefði verið til aukinnar mið-
stýringar af hálfu sambandsstjómar-
innar hefðu einstök ríki ákveðið að
segja skilið við hana. Afleiðingar
þessara óútkljáðu deilna urðu síðan
blóðug átök og þjóðahreinsun.
Auk vitnisburðar Gows voru sýnd-
ar myndir frá breska sjónvarpinu,
BBC, þar sem serbneskir harðlínu-
menn úr röðum þjóðemissinna skýra
frá því að Slobodan Milosevic Serbíu-
forseti hafi veitt aðstoð við þjálfun
herflokka Serba í austurhluta Króa-
tíu. Sagði Gow að þetta sýndi vel
samstarf þessara hálf-sjálfstæðu
hópa við ráðamenn Serbíu.
Dómstóll Sameinuðu þjóðanna í
Haag var settur á laggirnar 1993
og hafa alls 57 manns verið ákærðir
fyrir stríðsglæpi í löndum gömlu
Júgóslavíu, flestir þeirra eru Serbar.
Þrír dómarar, Bandaríkjamaður,
Ástrali og Malasíumaður, munu í
sameiningu kveða upp úrskurð í
máli Tadic en ólíklegt er að það verði
fyrr en eftir nokkra mánuði.
Tilbod fimmtudag
til sunnudags
Kantplast 9 metrar kr. 580 (hæð 16,5 sm)
Moltukassi 340 lítrarkr. 4.900
Hjólbörur 80 lítra kr. 3.900
Þörungamjöl 5 kg. kr. 3 98
Verð áður kr. £98^