Morgunblaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 15.05.1996, Blaðsíða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 15. MAÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI SKÝRR færir út kvíamar í Eystrasaltsríkjunum Stofnun hugbún- aðarfyrirtækis í Lettlandi íathugun SKÝRR hf. hefur í samvinnu við nokkra erlenda aðila ákveðið að kanna hagkvæmni þess að setja á fót hugbúnaðarfyrirtæki í Riga í Lettlandi. Um yrði að ræða sams konar fyrirtæki og ElSdata Systems Ltd. í Eistlandi sem stofnað var á síðasta ári, en SKÝRR á 25% hlutafj- ár í því fyrirtæki. Aðrir hluthafar eru finnska fyrirtækið KT-Datacent- er Ltd. í Helsinki með 25% og eist- neskir aðilar með 50% hlutafjár. Hagkvæmniskönnunin er fjár- mögnuð af Norræna verkefnaút- flutningssjóðnum, NOPEF, en sjóð- urinn fjármagnaði einnig hag- kvæmniskönnun sem framkvæmd var vegna stofnunar ElSdata á síð- asta ári. Verkefnisstjóri þessa verk- efnis er Torben Friðriksson, sérfræð- ingur í fjármálaráðuneytinu, en hann vann að stofnun ElSdata fyrir hönd SKÝRR, ásamt Jóni Þór Þórhalls- syni, forstjóra SKÝRR. íslenskur hugbúnaður kynntur á sýningu í Tallin Torben segir að undir lok þessa mánaðar verði þeir Jón Þór staddir í Vilnius í Lithauen til að ræða við þarlenda aðila um samstarf um hag- kvæmniskönnun einnig þar í landi, með stofnun samskonar fyrirtækis í Vilnius að markmiði. Torben segir að dagana 24.-27. apríl sl. hafi ElSdata tekið þátt í árlegri tölvusýningu í Tallin í Eist- landi. Þetta var fímmta árið í röð sem þessi sýning var haldin og voru þar kynnt á vegum SKÝRR hf. kerfi eins og BAR (bókhalds- og áætlana- kerfi ríkisins) sem notað hefur verið svo til allstaðar innan ríkisgeirans hér á landi síðan 1986. Kerfi þetta hefur verið í notkun hjá allt að 70 aðilum í Eistlandi um tæplega tveggja ára skeið undir nafninu Eesti-BAR. Einnig voru kerfi eins og Eignaskrárkerfi ríkisins „Stjórnandinn11 sem viðbót við BAR, kallað Eesti-BAR Financials og „Ax- el“, hugbúnaðarkerfi til töflugerðar í íjolbrautaskólakerfum, kynnt á sýningunni og vöktu almennan áhuga margra sýningargesta, að sögn Torbens. ElSdata Systems Ltd. hefur, að sögn Torbens, annars vegar á boð- stólum ýmis hugbúnaðarkerfi á veg- um SKÝRR hf. og KT-Datacenter og hinsvegar ýmis kerfi frá íslensk- um og finnskum hugbúnaðarfram- leiðendum fyrir milligöngu Skýrr hf. og KT-Datacenter Ltd., sem álit- ið er að kynna megi og selja í Eist- landi. Þá annist fyrirtækið ýmiskon- ar ráðgjafaþjónustu og hugbúnað- arvinnu. Framtíð Skotlands- bankaíóvissu London. Reuter. STANDARD LIFE lífeyrissjóðurinn hefur til athugunar að selja stóran hlut sinn í hinum 300 ára gamla Skotlandsbanka (Bank of Scotland) og talið er að ákvörðunin geti leitt til tilrauna fjársferkra aðila til að taka við rekstri bankans. Bankinn hefur staðfest blaðafrétt- ir um að Standard Life íhugi mögu- leika á sölu á 32,2 hlut sínum að öllu eða einhverju leyti. Standard Life hefur átt 900 milljónir punda í bankanum síðan 1985. Sérfræðingar segja að tilkynning- in valdi verulegri óvissu um framtíð bankans. Bankinn er talinn hlynntur því að mikið af eignarhlut Standard Life verði seltr stórum stofnunum, en verið getur að bjóðandi komi fram. Vandséð er hvaða aðili kunni að bjóða í bankann að sögn séfræðing- anna. aco SKIPHOLTI 17 • 105 REVKJAVIK SIMI: 562 7333 ■ FAX: 562 8622 ElSdata, sem er að hluta í eigu SKÝRR, tók nýlega þátt í tölvu- sýningu í Eistlandi. F.v. Torben Friðriksson, varaformaður ElSd- ata, Urmas Kohal, framkvæmdastjóri, Regina Raag, verkefnis- stjóri, Juha Soini, stjórnarmaður, Juri Voore, ráðgjafi, og Vesa Pariviainen, tölvunarfræðingur. Kl Fonysta í faxtækjum ERLENT Fylgi Nastases minnkar Búkarest. Reuter. STUÐNINGUR við framboð Ilies Nastases, fyrrverandi tennisstjörnu, til borgarstjóra í Búkarest virðist vera að minnka samkvæmt skoðana- könnun, sem birtist í blaðinu Libertatea á mánudag. Samkvæmt könnuninni nýtur Nastase, sem býður fram fyrir stjórnarflokk sósíaldemókrata, 24% fylgis og er það átta pró- sentustigum minna fylgi, en hann hafði í mars. Helsti and- stæðingur hans, Victor Ciorbea, var með 18% fylgi. Samkvæmt annarri könnun, sem einnig var birt á mánudag, hafði Ciorbea forystu með 24% fylgi. Þar hafði Nastase 21% fylgi- Borgarstjórnarkosningar verða haldnar í Búkarest 2. júní. VALUJET-flugfélagið varð fyrir áfalli í fyrrasumar er eldur kviknaði í hreyfli í flugtaki með þeim afleiðingum að þotan eyðilagðist. Flugfreyja hlaut slæmt brunasár og nokkrir farþeg- ar meiddust lítilsháttar. Hreyflarnir voru keyptir notaðir frá Tyrklandi en í ljós kom að eldurinn kviknaði af völdum tæring- ar sem hulið var yfir þar í landi í stað þess að gera við hana. Hrasaði um flug- ritann SEABORN Beck Weathers ræðir við blaðamenn eftir að hafa verið bjargað af Everest. Er hann kalinn á kinnum og nefi. Tveir klifurmenn lifðu af stórhríðar- byl á Everest Kathmandu. Reuter. KRAFTAVERK þykir að tveir fjallagarpar frá Taiwan og Bandaríkjunum skyldu lifa af harða vist í efstu hlíðum Everest- fjallsins eftir að fárviðri skall á er leiðangursmenn voru á leið af tindi fjallsins. Atta menn úr þremur leiðangrum eru taldir hafa farist í veðrinu. „Ég var án matar, vatns, súr- efnis, svefnpoka og tjalds í 63 klukkustundir," sagði Gau Ming- ho, 47 ára ljósmyndari og foringi leiðangurs frá Taiwan á hóteli í Kathmandu í gær. Hann kól á höndum, fótum og nefi og var dúðaður af umbúðum. A mánudag var hann og bandaríski fjallgöngumaðurinn Seaborn Beck Weathers, sóttir af herþyrlu í búðir í 5.900 metra hæð á Everest-fjallinu en svo hátt til fjalla hefur sjúkraflug ekkii verið farið áður. „Ég er ánægður en mjög veik- burða,“ sagði ljósmyndarinn frá Taipei. Hann komst á tind Ever- est á föstudag klukkan þrjú eft- ir hádegi en hreppti ásamt fleir- um stórhríðarbyl á leiðinni af tindinum, sem er 8.848 metra hár. „Ég var þá í 8.500 metra hæð, sat nánast fastur en komst niður um 200 metra þar sem ég varði nóttinni." Gau sagðist hafa verið svo kaldur og stífur á höndum er hann vaknaði að útilokað var fyrir hann að nota talstöð sem hann hafði meðferðis. „Þegar ég vaknaði hafði ég glatað tímaskyni og átti erfitt með að átta mig. Fingurnir höfðu kalið, ég var veikburða og gat ekki staðið í fæturna," sagði hann. Nepalskur leiðsögumaður fann Gau síðdegis, kom á hann böndum og bar hann á bakinu niður í búðir í 7.900 metra hæð á laugardagskvöldi. Annar leið- sögumaður, sherpi, hjálpaði hon- um síðar niður í næstu búðir þar sem tveir bandarískir læknar hlúðu að honum. Weathers, 49 ára meinafræð- ingur frá Dallas í Texas, kól einn- ig á höndum, nefi og kinnum. Þjáðist hann af augnmeini í klifr- inu og komst ekki alveg á sjálfan tindinn. Miami, Atlanta. Reuter, Daily Tclegrapli. RANNSÓKN hófst í gær á flugrita DC-9 þotu bandaríska flugfélags- ins ValuJet sem fórst með 109 manns innanborðs skammt frá Miami á Flórída sl. laugardag. Fannst flugritinn, svonefndur svartur kassi, fyrir tilviljun er kaf- ari, sem leitaði líka farþega, hras- aði um hann í eðju á slysstað í Everglades-blautlendinu. Þar er enn leitað að hljóðrita sem varð- veitir samtöl flugmanna. .Komið hefur í ljós að flugmenn urðu að kalla til flugvirkja til að gera við sjálfvirk öryggi fyrir elds- neytisdælur þotunnar fyrr um dag- inn sem hún fórst. Margsinnis hafði þotunni verið snúið við vegna bilana á undanförnum tveimur árum. Hún var af gerðinni DC-9- 32, knúin Pratt & Whitney hreyfl- um. Farþegarnir 104 voru nær allir bandarískir, meðal annars fórst fimm manna fjölskylda sem var að snúa heim úr viku siglingafríi við strendur Flórída. Leit að þeim sem fórust hefur lítinn árangur borið. Ekkert lík hafði fundist í gær, aðeins fjöldi lítilla líkamshluta. í dag fer fram minningarathöfn í Flórída um þá sem fórust með ValuJet-þotunni. Slysið hefur sagt til sín á fjár- málamarkaði því hlutabréf í Valu Jet lækkuðu um 23% í verði í gær en bréf annarra flugfélaga breytt- ust ekki í verði. Þá hafa margir afpantað ferðir með félaginu. Fé- lagið hefur flutt um 20.000 far- þega á dag og sérfræðingar sögðu að útilokað væri að segja á þessu stigi um framtíð félagsins. Leiddi athugun loftferðaeftirlitsins (FAA) í ljós alvarlegar brotalamir í rekstri ValuJet kynni það öðru fremur að skaða það til langframa. Með öllu er óljóst hvað olli því að þotan stakkst nær lóðrétt í jörð- ina norðvestur af Miami-flugvelli, 20 mínútum eftir flugtak. Er hún hafði verið á lofti í um átta mínút- ur tilkynntu flugmennirnir um að reykur bærist fram í stjórnklefann. Þá var þotan í 10.500 feta hæð og sagðist flugstjórinn ætla snúa aftur til flugvallarins í Miami. Þangað komst hún aldrei því eftir 20 mínútna flug og er hún átti um 24 km ófama til baka hvarf hún af ratsjám, stakkst til jarðar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.