Morgunblaðið - 22.05.1996, Side 6
6 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Edmund Joensen, lögmaður Færeyja, í opinberri heimsókn á íslandi
Samvinna
á mörgum
sviðum
Jónsson ráðuneytisstjóri í sam-
gönguráðuneyti og Kristján Andri
Stefánsson deildarstjóri í forsætis-
ráðuneyti.
Eftir móttökuna héldu gestirnir
að Hótel Sögu og því næst fór lög-
maðurinn og fylgdarlið í forsætis-
ráðuneytið þar sem viðræður fóru
fram við Davíð Oddsson forsætisráð-
herra og Halldór Blöndal samgöngu-
ráðherra. Að sögn Davíðs Oddssonar
var þar meðal annars rætt um hina
miklu aðstoð Færeyinga vegna snjó-
flóðanna á Vestfjörðum, síldarsam-
starfið, hvernig það hefur gengið til
þessa og framhald á því, Vestnor-
ræna sambandið og Vestnorræna
sjóðinn, og óskir Færeyinga um nán-
ara samstarf á sviði fjölmiðlunar.
Vel tekist til í
fiskveiðimálum
Á blaðamannafundi sem haldinn
var eftir viðræðurnar sagðist Ed-
mund Joensen þakklátur fyrir að
hafa fengið tækifæri til að koma í
heimsókn til íslands og hann væri
hingað kominn til að styrkja vináttu-
EDMUND Joensen lögmaður Fær-
eyja kom ásamt Edfríð Joensen, eig-
inkonu sinni, og fylgdarliði í opin-
bera heimsókn til Islands í gær, en
hann mun í dag ferðast um Vest-
firði og skoða m.a. aðstæður á Flat-
eyri og í Súðavík. Færeyingar hafa
gefið rausnarlegar gjafir til upp-
byggingar á þessum stöðum eftir
snjóflóðin í fyrra, og á blaðamanna-
fundi í gær sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra að það ýtti undir
að færeyskir gestir sem jafnan væru
velkomnir á íslandi væru einkar vel-
komnir gestir i dag.
í för með lögmannshjónunum eru
Sámal Petur í Grund, landsstjórnar-
maður, Finn Norman Christensen,
skrifstofurstjóri landsstjómarinnar,
og Maiken Poulsen ritari. Á Reykja-
víkurflugvelli tóku á móti gestunum
Davíð Oddsson forsætisráðherra og
Ástríður Thorarensen eiginkona
hans, en einnig voru viðstaddir þeir
Halldór Blöndal samgönguráðherra,
Ólafur Davíðsson ráðuneytisstjóri í
forsætisráðuneyti, Klaus 0. Kappel
sendiherra Danmerkur, Jón Birgir
Morgunblaðið/Sverrir
EDMUND Joensen lögmaður Færeyja á blaðamannafundi að lokn-
um viðræðum sínum við Davíð Oddsson forsætisráðherra og Hall-
dór Blöndal samgönguráðherra í Stjórnarráðinu í gær.
tengsl og samstarf þjóðanna.
Aðspurður um hvað hann teldi
mikilvægast í samstarfi íslands og
Færeyja sagði hann vel hafa tekist
til í fiskveiðimálum og mikilvægir
væru samningar um gagnkvæmar
veiðiheimildir í lögsögum ríkjanna
og síldarsamningarnir mörkuðu
tímamót. Þetta væri breyting frá því
þegar Færeyingar hefðu fengið ein-
hliða kvóta í íslenskri lögsögu, því
nú veiddu íslendingar síld í fær-
eyskri lögsögu og gagnkvæmur
samningur væri um veiðar á loðnu
og kolmunna.
„Það er þvi vaxandi gagnkvæm
samvinna, en samvinna sem ekki er
gagnkvæm á sér ekki mikla lífs-
von,“ sagði Joensen.
Samningur um
menningarsamstarf í haust
Joensen sagði að á öðrum sviðum
væri samstarfssamningur Flugleiða
og Atlantic Airways mikilvæg, en
samningurinn hefur nú tekið gildi
og fá Grænlendingar aðild að honum
síðar á þessu ári. Þá sagði hann að
rætt væri um að efla feijusamgöng-
ur milli landanna, en Norræna siglir
milli landanna á sumrin.
„Færeyingar, íslendingar og
Grænlendingar ætla að gera samn-
ing um menningarsamstarf síðar á
þessu ári og það er líka mikilvægt
málefni,“ sagði Joensen.
FePðast um Vestfirði
í dag fer Edmund Joensen og
föruneyti í ferð um Vestfirði með
Halldóri Blöndal samgönguráðherra.
Fyrst verður farið til Flateyrar og
þaðan til Þingeyrar, ísafjarðar og
út í Vigur þar sem snæddur verður
hádegisverður. Frá Vigur verður
haldið til Súðavíkur og • síðan til
Bolungarvíkur og ísafjarðar þar sem
gist verður um nóttina. Heimsókn
lögmannsins hingað til lands lýkur
síðdegis á morgun.
Æðsti
kardínál-
inn syngur
messu í
Landakoti
ÆÐSTI kardínáli kaþólsku
kirkjunnar, Bemardin Gantin,
heimsækir ísland á þessu ári.
Hann mun syngja hátíðar-
messu í Kristskirkju í Landa-
koti laugardaginn 27. júlí og
flytja hátíðarræðu, en þá verð-
ur þess minnst að 100 ár eru
frá því St. Jósefssystur komu
til íslands.
Bemardin Gantin er fæddur
í Benin í Afríku 1922. Hann
tók biskupsvígslu 1957. Árið
1973 kvaddi Páll VI páfi hann
til Rómar, þar sem hann var
skipaður ritari Stjómardeildar
trúboðs og 1977 var hann skip-
aður kardínáli. Sjö ámm síðar
var honum falin stjóm skrif-
stofu til eflingar réttlæti og
friði og síðan 1984 hefur hann
verið yfirmaður Stjómdeildar
biskupa. Fyrir þremur árum
var Gantin skipaður yfirmaður
kardínálasamkundunnar og er
hann fyrsti þeldökki kardínál-
inn til að veita samkundunni
forstöðu. Yfirmaður kardíná-
lasamkundunnar verður páfi
við lát núverandi páfa þangað
til nýr páfi hefur verið kjörinn.
Þegar Jóhannes Gijsen, bisk-
up kaþólskra á íslandi, var á
ferð í Róm i mars sl. lét Gant-
in kardínáli þá ósk í ljós að
heimsækja Ísland. Biskupinn
bauð honum þá að taka þátt í
hátíðarhöldum í tilefni af aldar-
afmæli St. Jósefssystra hér á
landi í júlílok þessa árs. Kard-
ínálinn féllst á það og syngur
hann hátíðarmessu í Krists-
kirkju í Landakoti 27. júlí og
flytur hátíðarræðu.
47,7% styðja stjómina
NÆRRI helmingur kjósenda styð-
ur ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks, samkvæmt
niðurstöðum skoðanakönnunar,
sem Félagsvísindastofnun Háskóla
íslands gerði fyrir Morgunblaðið í
síðustu viku.
Af þeim, sem svöruðu spurn-
ingu um það hvort þeir væru
stuðningsmenn ríkisstjórnarinnar
eða andstæðingar, sögðust 47,7%
stuðningsmenn stjórnarinnar,
22,7% hlutlausir og 29,6% and-
stæðingar.
Þriðjungur stuðningsmanna
Alþýðuflokks styður stjórnina
Ef litið er á stuðning við ríkis-
stjórnina í kjósendahópi einstakra
flokka kemur í ljós að mikill meiri-
Hvort mundir þú segja að
þú værir stuðningsmaður
ríkisstjórnarinnar eða
andstæðingur?
Hlutfail þeirra sem svara
Maí 1996
Ipik Stuðnings-
I-/ -/o/ menn
- -, - /y
' . ■
■ ..........
Hlutlausir
Andstæðingar
hluti stuðningsmanna stjórnar-
flokkanna, eða 70-80%, er jafn-
framt fylgismenn stjórnarinnar.
Yfirgnæfandi meirihluti stuðnings-
manna Alþýðubandalags og
Kvennalista er mótfallinn stjórn-
inni og allir sjö stuðningsmenn
Þjóðvaka. í hópi stuðningsmanna
Alþýðuflokksins er staðan hins
vegar með öðrum hætti. Þar segj-
ast 30% styðja stjórnina, 25% eru
hlutlausir og 45% eru stjórninni
andvígir.
Könnunin var gerð 11.-18. maí.
Úrtakið var 1.500 manna slemb-
iúrtak úr þjóðskrá og var nettó-
svörun 72,1%. Félagsvísindastofn-
un telur úrtakið endurspegla nokk-
uð vel þann hluta þjóðarinnar sem
er á aldrinum 18-75 ára.
Forseti
írlands í
heimsókn
Umboðsmaður um Hegningarhúsið
Stærð sjónvarpa og
símanotkun samræmd
UMBOÐSMAÐUR Alþingis gerði
athugasemdir við aðbúnað fanga í
Hegningarhúsinu við Skólavörðu-
stíg sl. sumar, en í áliti hans frá því
í apríl sl. kemur fram að úr flestu
hefur verið bætt. Hann fer þó fram
á að reglur um stærð sjónvarps-
tækja fanga verði samræmdar raun-
verulegri framkvæmd og að fangar
í Hegningarhúsinu hafi sama rétt
til notkunar síma og fangar í öðrum
fangelsum landsins.
Umboðsmaður gerði athuga-
semdir við að birta væri óviðunandi
í tveimur fangaklefum, lítið loft-
streymi væri inn um glugga í nokkr-
um klefum og bæta þyrfti aðstöðu
til líkamsræktar. Fangelsismálayfir-
völd hafa nú tekið þijá klefa úr
notkun sem fangaklefa og er einn
þeirra heimsóknarherbergi, einn
setustofa og í einum er grunnað-
staða til líkamsræktar. Þá var loft-
ræsting bætt.
Erfitt að nálgast
nógu lítil sjónvörp
Umboðsmaður er sáttur við þess-
ar breytingar, en bendir á að enn
standi sú kvörtun fanga, að þeim
sé gert að eiga ekki stærri sjónvörp
en með 14” skjá. Mun erfíðara sé
að útvega slík sjónvörp en önnur
af algengari stærð, með 18 ”-21”
skjá. I vissum tilvikum sé þó heim-
ilt að hafa stærri sjónvörp en 14”.
Þetta segir umboðsmaður að þurfi
að samræma.
Þá bendir umboðsmaður einnig
á, að fangar á Litla-Hrauni og Kvía-
bryggju hafi afnot af kortasíma og
beinir því til Fangelsismálastofnunar
að fangar í Hegningarhúsinu njóti
sambærilegra kosta í símamálum.
MARY Robinson forseti írlands
kemur til íslands í opinbera heim-
sókn 28. maí ásamt eiginmanni sín-
um, Nicholas Robinson. Forseta-
hjónin dve^ja á landinu til 30. maí.
Forseti Islands tekur á móti
gestunum og situr Irlandsforseti
málsverði forsætisráðherra og
borgarstjóra.
Mary Robinson hefur óskað eft-
ir því sérstaklega að heimsækja
Hæstarétt og Alþingi en hún er
doktor í lögfræði og varð prófess-
or 26 ára gömul. Jafnframt fer
hún í heimsókn í lagadeild HI.
Fylgdarkona hennar meðan á
dvölinni stendur verður Guðrún
Erlendsdóttir, fyrrverandi forseti
Hæstaréttar.
Þá fer Mary Robinson í Lista-
safn íslands og á Kjarvalsstaði þar
sem sýningin Náttúra íslands verð-
ur í undirbúningi fyrir Listahátíð.
Skautasvellið í
Laugardal
ÍBR sjái
um yfir-
byggingu
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
tillögu vinnuhóps á vegum
íþrótta- og tómstundaráðs um
formlegar viðræður við ÍBR um
hönnun, útboð, framkvæmdir og
fjármögnun á byggingu yfir
skautasvellið í Laugardal. Jafn-
framt verði kannaður möguleiki
á rekstri á svellinu á vegum ÍBR.
í erindi vinnuhópsins kemur
fram að honum hafi verið falið
að leita nýrra leiða í hönnun,
útboðum, framkvæmdum, fjár-
mögnun og ef til vill á rekstri
svellsins. Hefur hópurinn í sam-
ráði við byggingadeild borgar-
verkfræðings látið gera nýja
kostnaðaráætlun varðandi yfir-
bygginguna og úttekt á rekstr-
argrundvelli svellsins eftir að
þeirri framkvæmd Iyki.
SÁÁ fær lóð
við Efstaleiti
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að veita SÁÁ, Samtökum
áhugafólks um áfengis- og
vímuefnavanda, vilyrði fyrir 2
þús. fermetra lóð við Efstaleiti 7.
Að sögn Theódórs Halldórs-
sonar framkvæmdastjóra SÁÁ,
er gert ráð fyrir að samtökin
reisi um 1.400 fermeta hús við
Efstaleiti, þar sem starfsemi
samtakanna yrði sameinuð und-
ir einu þaki. Áætlaður heildar-
kostnaður er um 120 milljónir
og sagði Theódór að hugsan-
lega yrði byggt í áföngum.
„Við erum með göngudeild við
Síðumúla 3-5 og þar erum við
einnig með forvarnadeild,"
sagði hann.
„Skrifstofumar og útgáfu-
starfsemin eru í Ármúla 20 og
félagsheimilið er í Ármúla 17A.
Þessa starfsemi ætlum við að
sameina undir einu þaki.“
MR fær styrk
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
að veita Menntaskólanum í
Reykjavík rúmlega 579 þús.
króna styrk vegna 150 ára af-
mælishátíðar skólans.
Styrkurinn svarar til leigu á
Laugardalshöll en talið var að
Háskólabíó myndi ekki rúma
hátíðargesti á afmælishátíðinni
þann 30. maí næstkomandi.
Lítil vél
lenti á Nesja-
vallavegi
LÍTILLI tveggja manna, eins
hreyfils flugvél af gerðinni
Cessna 152, var lent á Nesja-
vallavegi á mánudag vegna
gangtruflana. Tveir menn voru
í vélinni og sakaði þá ekki.
Vélin skemmdist ekkert við
lendinguna, sem tókst mjög vel.
Vélin er í eigu flugskólans
Flugtaks. Samkvæmt upplýs-
ingum lögreglu flaug flugmað-
urinn, sem er að ljúka atvinnu-
flugmannsprófi, til Hveragerðis
og var á leið til Reykjavíkur
aftur, um kl. 15, þegar mótor
vélarinnar fór að hiksta og
missa afl. Vélin var þá í 2000
feta hæð og ákvað flugmaður-
inn að lenda á beinum kafla
Nesjavallavegar.
Lending vélarinnar gekk að
óskum og skömmu síðar komu
flugvirkjar á vettvang. Þeir
fundu bilun í blöndungi og var
hann lagfærður á staðnum.
Flugkennari settist að því búnu
upp í vélina, tók á loft af vegin-
um og flaug til Reykjavíkur.