Morgunblaðið - 22.05.1996, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
LAIMDIÐ
Morgunblaðið/Frimann Ólafsson
BRÚÐHJÓNIN Haraldur Björn Björnsson og Sandra Miinch óku
um í gamalli hestakerru eftir hjónavígsiu í Grindavíkurkirkju og
vöktu athygli bæjarbúa.
Brúðhjón óku um í
gamalli hestakeiru
Heilsugæslustöðin á Akureyri
Fjölskylduráð
gjöfin flytur
Grindavík
Þau vöktu óneitanlega athygli
brúðhjónin sem óku um Grinda-
vík eftir hjónavígslu á sunnudag-
inn. Þar fóru þau um í gamalli
hestakerru í eigu Guðmundar
Sigurðssonar hestamanns sem
hefur undanfarin ár snúið sér að
hestaleigu fyrir íslenska og er-
lenda ferðamenn.
Kerruna kvaðst Guðmundar
hafa fengið á Hellu fyrir tveimur
árum og verið að reyna fyrir sér
með að leigja hana út. Hún hefur
Húsavík - Hvammur, heimili aldr-
aðra á Húsavík, minntist þess um
síðustu helgi að 15 ár voru liðin frá
því að fyrstu íbúamir fluttu í
Hvamm og 20 ár eru liðin frá stofn-
un samtakanna Dvalarheimilis aldr-
aðra sf. í Þingeyjarsýslu. En það er
félagsskapur 11 sveitarfélaga frá
og með Ljósavatnshreppi til Raufar-
hafnar, en forveri var Styrktarfélag
aldraðra í Þingeyjarsýslum, sem þá
hafði starfað um nokkurt skeið og
starfar enn.
Egill Olgeirsson, stjórnarformað-
ur dvalarheimilisins, sagði sögu
samtakanna og sagði að samstarf
hinna 11 sveitarfélaga hefði verið
og væri sérstaklega gott. Hann gat
helstu framkvæmda félagsins, sem
væm á Húsavík; Hvammur, heimili
aldraðra, Litli-Hvammur, Brekku-
hvammur og Miðhvammur, en þar
era verndaðar þjónustuíbúðir. Einn-
ig rekur félagið dagvistun á Kópa-
skeri og íbúðir og dagsþjónustu á
Raufarhöfn. Egill gat þess að þó
þetta væru stórir áfangar væri
framkvæmdum síður en svo lokið,
því takmarkið væri að halda áfram
byggingu með það í huga að veita
öldraðum ánægjulegt ævikvöld.
einnig verið notuð á hátíðisdögum
í Grindavík og verður væntnlega
notuð á hátíð sem verður haldin
í Grindavík dagana fyrir sjó-
mannadaginn.
Brúðhjónin fóru um aðalgötuna
í Grindavík ásamt meðreið-
arsveinum sem báru fána tveggja
þjóða, Islands og Þýskalands, það-
an sem brúðurin kemur og héldu
frá Grindavíkurkirkju til Hafur-
bjarnarins þar sem slegið var upp
brúðkaupsveislu þeim til heiðurs.
Hörður Arnórsson, sem verið
hefur forstjóri Hvamms frá upp-
hafi, gat margþættrar þjónustu,
sem aldraðir hlytu á vegum heimil-
isins, en á heimilunum eru 130 íbú-
ar. Heimilið er rekið á svonefndum
daggjöldum og hefur aldrei orðið
halli á rekstrinum þau 15 ár sem
það hefur starfað, svo framlag
eignaraðila hefur allt farið í upp-
byggingu, en ekki í rekstur.
Sýslubúum var boðið til samkomu
í hinum vistlega samkomusal heimil-
isins og jafnframt að sjá sýningu á
handverki aldraðra og þeim boðið
að skoða hin miklu húsakynni heim-
ilisins og jafnframt til skemmtisam-
komu, þar sem meðal annars Starfs-
mannakór Hvamms og sjúkrahúss-
ins söng og Kór aldraðra, sem starf-
ar á vegum Félags eldri borgara,
undir stjórn Benedikts Helgasonar
og við undirleik Bjargar Friðriks-
dóttur. Formaður Félags eldri borg-
ara ávarpaði samkomuna og þakk-
aði það mikla starf, sem forsvars-
menn hefðu sýnt í verki.
Að lokum var afhjúpað stórt og
mikið listaverk eftir Tryggva Ólafs-
son, myndlistarmann, sem prýðir
samkomusal heimilisins.
FJÖLSKYLDURÁÐGJÖF ' Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri er
flutt á 5. hæð Amaro-hússins en hún
var áður handan götunnar í húsi
Akureyrar apóteks.
Tilefni flutningsins era hagræð-
ingaraðgerðir sem nauðsynlegt hefur
reynst að fara út í vegna niðurskurð-
ar fjárheimilda í heilbrigðiskerfinu,
segir í tilkynningu vegna flutnings-
ins. Grípa hafi orðið til bráðabirgða-
lausna til að koma starfseminni fyr-
ir, en brýnt sé að húsnæði Heilsu-
gæslustöðvarinnar í heild komist sem
fyrst í það horf sem framkvæmdaá-
ætlanir segi til um.
Þjónusta fjölskylduráðgjafar
hófst árið 1988 og var þá um braut-
ryðjendastarf að ræða. Starf fjöl-
skylduráðgjafa er mikilvæg viðbót
ANNA Rún Kristjánsdóttir, sem
er 15 ára gamall nemendi í 9b í
Glerárskóla, hefur náð ólympíulág-
markinu í 100 metra bringusundi
fatlaðra, það er 2:25 en hún synti
fyrir skemmstu á 2:10.19 á móti í
HoIIandi, Open Holland. Hún ætlar
að nota sumarið til að æfa sig af
kappi fyrir ólympíuieikana í Atl-
anta í Bandaríkjunum sem haldnir
verða í ágúst næstkomandi.
Onnu Rún hefur gengið vel í
íþróttinni að undanförnu, hún tók
þátt í Malmö-open í byrjun apríl
og sigraði í þremur greinum, 50
metra bringusundi, 25 metra
skriðsund, 25 metra bringusund
og fékk silfurverðlaun í 25 metra
baksundi. Anna Rún æfir með
Sundfélaginu Óðni.
Sundáhugi í fjölskyldunni
Hún á von á að sumarið verði
heldur strembið, en hún ætlar að
æfa átta sinnum í viku, alla virka
daga og bæta við morgunæfingum
þrisvar í viku. „Ég ætlaði í sumar-
búðir fyrir fatlaða í Danmörku, en
þangað hefur ég alltaf farið. Ég
verð að hætta við það og einbeita
mér að æfingunum," sagði Anna
Rún. Hún byrjaði að æfa sund 8
ára gömul, en áhugi fyrir sund-
íþróttinni er mikill í fjölskyldunni.
Anna sagði að móðir sín, Helga
Alfreðsdóttir hafi synt mikið á
yngri árum og eldri systkini henn-
ar, Hjörvar og Inga Hrönn æfa
bæði sund. „En pabbi er ekki mik-
ið í þessu,“ sagði hún um föður
sinn, Kristján Björn Garðarsson.
Anna flutti með fjölskyldu sinni
til Danmerkur þegar hún var
þriggja ára þar sem hún bjó um
skeið, en einnig átti fjölskyldan
heima í Bandaríkjunum í eitt ár.
við störf heimilislækna og heilsu-
gæsluhjúkrunarfræðinga til að unnt
sé að veita fólki úrlausn daglegra
heilsufarsvandamála sem upp koma
hjá venjulegum fjölskyldum, auk
aðstoðar við kreppu- og áfallaúr-
vinnslu. Þættir eins og fræðsla um
tilfinningalegar þarfir og leiðir til
heilbrigðra samskipta, aukin sjálfs-
styrkur og ábyrgð á eigin heilsu og
lífsstíl eru mikilvægir í nútímasam-
félagi, samskipti fólks við heilsu-
gæsluna eru almennt mikil og því
er þar grundvöllur til að hafa jákvæð
áhrif á þessa þætti.
Þjónustan er veitt fólki að kostn-
aðarlausu en tímapantanir eru á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri.
Gera má ráð fyrir nokkurra vikna
bið nema eitthvað sérstakt komi til.
Þegar Anna var í 5. og 6. bekk
grunnskóla átti hún heima á
Blönduósi, en síðustu ár hefur fjöl-
skyldan búið á Akureyri. Anna
æfði sund bæði í Danmörku og
Bandaríkjunum og sagðist hafa
haft góða þjálfara og lært mikið.
Aðstaðan á Blönduósi var ekki
eins og best verður á kosið, laugin
12,5 metrar. „Ég man ég var rosa-
lega stolt einu sinni þegar ég kom
heim og hafði synt 100 ferðir.“
Eftir góðan árangur á mótinu
í Malmö var ljóst að Anna gæti
náð ólympíulágmarkinu og því var
stefnan sett á mótið í Hollandi þar
sem hún náði lágmarkinu með
miklum ágætum. „Þetta var ekk-
ert inni í myndinni hjá mér fyrst,
ég vissi ekkert af þessu fyrr en
Ragnheiður Runólfsdóttir, þjálfi
minn sagði mér þetta eftir mótið
í Malmö. Ég er því ekki búin að
æfa lengi markvisst að því að ná
þessu lágmarki," sagði Anna. „Ég
trúði því eiginlega ekki fyrst að
ég ætti möguleika á þessu, en
finnst það mjög gaman núna að
vera á Ieiðinni út.“
Stefnir að verðlaunasæti
Anna verður meira og minna í
sundlaugunum við æfingar í sum-
ar, ætlar að æfa þrisvar í viku kl.
7 á morgnana auk hefðbundinna
æfinga á hveijum virkum degi.
„Það er mjög gaman að þessu,
sérstaklega þegar vel gengur og
maður sér árangurinn, að maður
getur bætt sig,“ sagði Anna sem
einnig stefnir að því að komast á
ólympíuleikana í Sydney árið
2000. „En fyrst ætla ég að stefna
að því að vinna til verðlauna í
Atlanta og ætla að reyna að leggja
hart að mér við að ná því marki.“
Morgunblaðið/Hólmfríður
ÓLI Iijálmar í gijótinu suður
á Flesjum þar sem hann fann
flöskuskeytið.
Fann flösku-
skeyti suður
á Flesjum
ÓLI Hjálmar er ungur gríms-
eyskur piltur semer mjög gefinn
fyrir fjöruferðir. í einni fjöru-
ferðinni fann hann tveggja lítra
kókflösku sem væri ekki í frá-
sögu færandi nema fyrir það að
innihaldið var allóvenjulegt. Það
var flöskuskeyti sem reyndar er
sent frá Grímsey 6. mars 1993
af kennara sem þá starfaði í
eynni, Ingimar F. Jóhannssyni
sem býr í Reykjavík. I skeytinu
biður hann viðtakanda aðsenda
sér póstkort og það mun Óli
Hjáimar gera hið fyrsta.
Mývatnsrannsókn-
ir, veiðistjóri og
hreindýraráð
Samein-
ing
könnuð
GUÐMUNDUR Bjarnason
umhverfisráðherra hefur skip-
að nefnd til að gera athugun
á hugsaniegri sameiningu
Náttúrurannsóknarstöðvarinn-
ar við Mývatn, embættis Veiði-
stjóra og hreindýraráðs við
setur Náttúrufræðistofnunar
íslands á Akureyri. Nefndinni
er jafnframt ætlað að kanna
möguleika á flutningi yfir-
stjórnar Náttúrufræðistofnun-
ar Islands frá Reykjavík til
Akureyrar.
Athugunin er gerð í sam-
ræmi við þá stefnu ríkisstjórn-
arinnar að sameina og fækka
ríkisstofnunum, en í þessu til-
viki er um að ræða stofnanir
sem að mörgu leyti sinna svip-
uðum verkefnum. Nefndin á
að skila tillögum sínum fyrir
1. október næstkomandi í bún-
ingi frumvarps um breytingar
á þeim lögum sem fyrrgreindar
stofnanir starfa eftir.
Formaður nefndarinnar er
Guðjón ólafur Jónsson, aðstoð-
armaður umhverfisráðherra,
en auk hans eiga sæti í nefnd-
inni Árni M. Mathiesen al-
þingismaður, Ingimar Sigurðs-
son, skrifstofustjóri í um-
hverfisráðuneytinu, Snævar
Guðmundsson viðskiptafræð-
ingur og Vaigerður Sverris-
dóttir alþingismaður.
Morgunblaðið/Silli
HÖRÐUR Amórsson, forstjóri Hvamms, og Egill Olgeirsson,
stjórnarformaður dvalarheimilisins.
Hvammur minn-
ist tímamóta
Morgunblaðið/Kristján
HELGA Rún Kristjánsdóttir tekur þátt í ólympíuleikum fatlaðra í
Atlanta í sumar, hér er hún við Sundlaug Glerárskóla með þjálfara
sínum, Ragnheiði Runólfsdóttur.
Tekur þátt í ólympíuleikum
fatlaðra í sundi í Atlanta
Stífar æfingar
framundan í sumar