Morgunblaðið - 22.05.1996, Side 17

Morgunblaðið - 22.05.1996, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 17 VIÐSKIPTI Hagnaður British Airways eykst um 30% London. Reuter. Hagnaður British Airways (BA) jókst um 30% á milli ára og er þetta met hjá fyrirtækinu. Starfsmenn munu fá greiddar háar kaupbætur vegna þessa mikla hagnaðar, en fjár- festar velta fyrir sér fréttum um samstarf við American Airlines. BA hermir að hagnaður fyrir skatta hafi numið 585 milljónum punda á síðasta fjárhagsári tii 31. marz og starfsmönnum verði greidd- ar 94 milljónir punda í kaupbætur samkvæmt áætlun um hagnaðar- hlutdeild. BA sagði að samstarf við USAir, ástralska flugfélagið Qantas og fleiri hefði skilað 150 milljóna punda rekstrarhagnaði, sem jókst um 17,8% í 728 milljónir punda. Sagt skilið við USAir? Robert Ayling aðalframkvæmda- stjóri vildi ekki ræða bollaleggingar um að BA muni koma á fót nýju bandalagi við American Airlines, sem er í eigu AMR Corp. Blaðafréttir herma að BA kunni Hann sagði að allt flug BA á styttri leiðum í Evrópu væri í athugun. Hann útilokaði ekki þann möguleika að BA notaði færri flugvélar og gerði meira af því að fela sérleyfishöfum að fljúga undir merkjum BA á stutt- um leiðum til að draga úr kostnaði. Einnig hefur verið rætt um sam- starf við hollenzka flugfélagið KLM. BA stendur þegar í eignatengslum við evrópsku fyrirtækin Deutsche BA og TAT í Frakklandi. Bæði félög- in eru rekin með tapi, en sameigin- legt tap þeirra minnkaði í 68 milljón- ir punda úr 90 milljónum 1994/95. BA flutti 36,1 milljón farþega á síðasta ári að farþegum Deutsche BA og TAT meðtöldum. Farþegum aðalfélagsins fjölgaði um 5,8% í 32 milljónir. Starfsmenn BA eru 55.000 og fá greidd laun fyrir 13 mánuði með nýja kaupaukanum. Lægsta kaup starfsmanna í Bretlandi eru 1.210 pund. í fyrra fengu starfsmenn um 66 milljónir punda í bónus. Stefnumótun í FERÐAÞJÓNUSTU <§Pseagate Harðir diskar aco SKIPHOLTI 17 -105 REYKJAVÍK SÍMI: 562 7333 ■ FAX: 562 8622 að taka upp samstarf við American, annað hvort til að efla samstarfið við hið bágstadda bandaríska flug- félag USAir Group á austurströnd- inni eða koma í staðinn fyrir það. Ayling sagði aðeins að samstarfið við USAir héldi áfram að skila BA um 70 miiljóna punda hagnaði á ári. Air France Europe með neyðarráð- stafanir París. Reuter. AIR FRANCE EUROPE, dótturfyr- irtæki hins kunna franska flugfé- lags, hefur kynnt áætlun um að bjarga félaginu frá fjárhagshruni. Félagið hyggst bjóða upp á skutlu- flug, það er ódýrar og tíðar áætlunar- ferðir, en hætta við ferðir, sem tap hefur verið á og fækka störfum. Air France Europe stendur frammi fyrir hruni vegna aukinnar sam- keppni síðan félagið missti einokun á áætlunarferðum innanlands. Rekstrarkostnaður hefur verið mikill og evrópsk flugfélög munu láta að sér kveða þegar áætlunarflug verður gefið fijálst 1997. Samkvæmt áætluninni verða skor- in niður um 900-950 störf af rúm- lega 10.000 með starfslokasamning- um við flugvirkja og aðra tækni- menn, flugfreyjur og flugmenn. Kl. 09.30 Halldór Blöndal samgönguráðherra setur ráðstefnuna og fjallar um tilgang stefhumótunar í ferðaþjónustu. Kl. 10.30 Gæðastjómun í fcrðaþjónustu Kristófer Oliversson, Hagvangi Kl. 10.45 Markaðssókn ferðaþjónustunnar Pétur J. Eiríksson, markaðsstjóri Flugleiða Kl. 11.00 Ferðamannaverslun Haukur Hauksson, íslenskri verslun Samgönguráðherra Halldór Blöndal boðar til ráðstefnu til kynningar skýrslu um stefnumótun í ferðamálum, að Hótel Loftleiðum, þriðjudaginn 28. maí kl. 9.30. KI. 11.15 Afþreying í ferðaþjónustu Jóhann D. Jónsson, ferðamálaíulltrúi Reykjaness Kl. 11.30 Fyrirspumir og umræður Kl. 12.10 Hádegisverður Kl. 13.15 Ferðaþjónusta og umhverfisvernd Hörður Sigurbjarnarson, formaður umhvcrtisnefndar í Mývatnssveir Kl. 13.30 Sjálfbær ferðamennska Helga Haraldsdóttir, forstöðumaður hjá Ferðamálaráði fslands KI. 13.45 Menntun og rannsóknir í ferðaþjónustu Tómas Ingi Olrich, alþingismaður Kl. 14.00 Undirstaða tölfræðigreiningar og markaðsrannsókna Bjarnheiður Hallsdóttir, ferðamálaffæðingur Kl. 14.15 Ráðstefhur, fundir og hvataferðir Jóhanna Tómasdóttir, framkv.stj. Ráðstefnuskrifstofu fslands Kl. 14.30 Samgöngur - undirstaða ferðaþjónustu Ómar Benediktsson, stjómarformaður fslandsflugs Hreinn Haraldsson, Vegagerðinni KI.15.00 Kaffihfé Kl. 15.30 Fyrirspumir og umræður Ráðstefhan er opin öliu áhugafólki um ferðaþjónustu og er aðgangur ókeypis. í hádeginu verður í boði máltíð á vægu verði. Samgönguráðuneytið Maí 1996 Kl. 10.00 Gerð og tillögur stefhumótunar Magnús Oddsson, ferðamálastjóri Kl. 10.15 Rekstrarumhverfi ferðaþjónustunnar Erna Hauksdóttir, ffamkvæmdastjóri SVG GREINAKLIPPUR RUNNAKLIPPUR TRJÁKLIPPUR ÞÖR HF Reykjavík - Akureyri Reykjavík: Ármúla 11 - Sími 568-1500 Akureyri: Lónsbakka - Síml 461-1070 Gísli B

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.