Morgunblaðið - 22.05.1996, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 19
ERLEIUT
Handtökur í Burma
Bangkok. Reuter.
HERINN í Burma hefur handtekið a.m.k. 40 lýðræðissinna frá í fyrra-
dag en þeir ráðgerðu að sækja fund á heimili umbótaleiðtogans
Aung San Suu Kyi um næstkomandi helgi. Suu Kyi sagði í símtali
við fréttamenn Reuters að fundurinn yrði eftir sem áður haldinn.
Náinn samverkamaður Suu
Kyi skýrði frá handtökunum í
gær símleiðis frá Rangoon. Hann
sagðist vita um rúmlega 40 um-
bótasinna sem teknir hefðu verið
fastir en talan kynni að vera
miklu hærri.
Hinir handteknu eru allt menn
sem náðu kosningu í þingkosn-
ingum 1990 en flokkur Suu Kyi
hlaut þá rúmlega 80% þingsæta.
Herstjórnin kom þó í veg fyrir
að lýðræðisleg stjórn tæki við
völdum og hélt Suu Kyi í stofu-
fangelsi árum saman.
Ráðgerðu stuðningsmenn Suu
Kyi að hittast á heimili hennar
nk. sunnudag og mánudag og
minnast þess, að þá verða sex
ár liðin frá þingkosningunum.
Reuter
LÖGREGLUMENN í sveitum sem beijast gegn mafíunni leiða
Giovanni Brusca á milli sín í gær á brott frá lögreglustöðinni
í Palermo á Sikiey. Lögreglumennirnir bera grímur til að
mafían beri ekki kennsl á þá.
Blóðþyrstur
mafíuforingi
klófestur
Palermo. Reuter.
ÍTALSKA lögreglan var borin lofi
í gær fyrir að hafa gómað æðsta
mafíuforingja Sikileyjar, Giovanni
Brusca, í fyrradag. Hann er talinn
hafa sjálfur ýtt á hnapp fjarstýring-
ar sem sprengdi sprengju er varð
dómaranum Giovanni Falcone,
konu hans og þremur lífvörðum að
bana í Palermo í maí 1992. Þing-
menn og ráðherrar og Oscar Luigi
Scalfaro forseti lýstu ánægju með
handtökuna.
Brusca hefur farið huldu höfði
en hann er 36 ára. Hefur honum
verið lýst sem blóðþyrstasta
mafíósanum sem leitað var að.
Hann er talinn hafa verið útnefnd-
ur leiðtogi mafíuforingjanna er
Salvatore „Toto“ Riina var klófest-
ur í janúar 1993. Auk þess að hafa
stjórnað tilræðinu gegn Falcone var
hann eftirlýstur vegna sprengjutil-
ræða í Róm, Mílanó og Flórens sem
urðu fímm manns að bana.
Mafíósar í haldi, sem vitnað hafa
gegn gömlu félögum sínum, segja,
að Brusca hafi skipulagt og stjórn-
að sprengjutilræðinu á hraðbraut
fyrir utan Palermo 23. maí 1992
er setið var fyrir bílalest Falcone
dómara. Sprengjunni var komið
fyrir í afrennslislögn sem lá undir
veginum og var hún svo öflug að
svæðið var eins og tunglgígur eftir
tilræðið. Hafi Brusca haldið um
fjarstýringu sem kom sprengjunni
af stað.
Falcone stjórnaði um tíma leit
ítölsku lögreglunnar að félögum í
mafíunni. Morðið á honum og sam-
starfsmanni hans, Paolo Borsellino,
sem myrtur var með bílsprengju í
Palermo tveimur mánuðum seinna,
varð til þess að leit að mafíuforingj-
um var stórhert um leið og aðgerð-
ir gegn glæpasamtökunum.
Sömuleiðis er Brusca sakaður
um að hafa í fyrra kyrkt Giuseppe
Di Matteo, 11 ára son mafíósa sem
gerðist uppljóstrari. Líkið leysti
hann síðan upp í sýrubaði. Með
ódæðisverkinu vildi hann refsa föð-
urnum fyrir samvinnu við lögreglu.
Brusca var handtekinn ásamt
Vincenzo bróður sínum á felustað
þeirra í villu á suðvesturhluta Sikil-
eyjar. Þeir höfðust við í húsinu
ásamt eiginkonum og fjölskyldum.
Það þykir kaldhæðnislegt, að bræð-
urnir voru að horfa á heimildaþátt
um tilræðið við Falcone er lögregl-
an handtók þá.
Kína heldur viðskipta-
vild í Bandaríkjunum
Peking. Reuter.
KINVERSK stjórnvöld fögnuðu i
gær þeirri ákvörðun Bills Clintons
Bandaríkjaforseta að veita Kínveij-
um áfram hagstæðustu viðskipta-
kjör. Kínveijar hvöttu þó Banda-
ríkjamenn til að hætta að endur-
skoða viðskiptakjörin á hverju ári
og sögðu að slíkt fyrirkomulag
væri úrelt.
Clinton tilkynnti á mánudag að
hann hefði fallist á að Kínveijar
nytu áfram bestu viðskiptakjara
án nokkurra skilyrða.
„Ég tel þessa ákvörðun Clintons
mjög viturlega,“ sagði Ciu Tiankai,
talsmaður kínverska utanríkisráðu-
neytisins. Hann hvatti hins vegar
Bandaríkjastjóm til að hætta ár-
legri endurskoðún viðskiptakjar-
anna, sem hann sagði ekki til þess
fallna „að stuðla að stöðugum og
eðlilegum efnahags- og viðskipta-
tengslum ríkjanna“. „Við vonum að
Bandaríkjamenn geti breytt þessu
úrelta og ranga fyrirkomulagi."
Clinton sagði að ef orðið yrði við
kröfum um að hætt yrði að veita
Kínveijum hagstæðustu viðskipta-
kjör vegna mannréttindabrota í
Kína myndi það skaða bandaríska
hagsmuni.
Útflutningurinn
til Kína eykst
Viðskiptakjör Kínveija falla úr
gildi 2. júlí verði þau ekki endurnýj-
uð. Forsetinn þarf að skýra þinginu
frá ákvörðun sinni fyrir 3. júní og
þingið hefur tvo mánuði til að fjalla
um málið og getur hafnað fram-
lengingunni í atkvæðagreiðslu.
Búist er við að hart verði tekist á
um málið á þinginu.
Útflutningur Bandaríkjamanna
til Kína jókst um tæp 27% í fyrra
og nam 12 milljörðum dala, jafn-
virði 815 milljarða króna, og áætlað
er að hann veiti 170.000 Banda-
ríkjamönnum atvinnu. Kínveijar
seldu hins vegar Bandaríkjamönn-
um varning fyrir 45,6 milljarða
dala, 3.000 milljarða króna, og
munurinn er 33 milljarðar dala,
2.200 milljarðar króna.
Sumaruppfærsla!
Innritun er hafin í sumarnámskeið Símenntar TVÍ
Fyrstu námskeiðin hefjast
mánudaginn 20. maí.
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 568 8400 (Helga og Arndís),
http://tvi.is/simennt, eða á skrifstofunni,
Ofanleiti 1, Reykjavík.
simerifit fvi
Ofanleiti 1 • 103 Reykjavík • Sími 568 8400
Tölvuháskóli Verzlunarskóla íslands (TVÍ) hefur starfað í 9 ár og útskrifað um 200
kerfisfræðinga sem flestir eru starfandi í íslenskum hugbúnaðariðnaði. Kerfisfræðingar
TVÍ eru orðlagðir fyrir trausta og hagnýta þekkingu sem nýtist vel í starfi.
Með Símennt TVÍ býðst starfsfólki í hugbúnaðargerð og tölvuþjónustu nýr valkostur
í símenntun. í maí og júní verða í boði 15 síðdegisnámskeið sem flest eru byggð á
kennsluefni Tölvuháskólans.
3-5 daga hnitmiðuð
námskeið um:
• Internetið, vefsíðugerð og netforrritun
• Hlutbundna forritun í C++ og Delphi
• Hlutbundna greiningu og hönnun
• Forritun fyrir Windows 95
• Gagnamiðlun frá AS/400
• Kerfisforritun fyrir UNIX
• Verkefnastjórnun, tölvuöryggi, vélbúnað