Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 22
MORGUNBLAÐIÐ
2% MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ 1996 ____________________________
LISTIR
Sumartónleik-
ar í Stykkis-
hólmskirkju
„FYRSTA bygging sem grípur auga
þess sem kemur í Stykkishólm er
kirkjan á staðnum. Hún er fögur
og sérkennileg, hönnuð af Jóni
Haraldssyni arkitekt. Hún var vígð
árið 1990. Byggingin er afar svip-
mikil til að sjá og hlýleg og fögur
að innan. Hljómburður kirkjunnar
er með því besta sem gerist hér á
landi og það ásamt nýlegum
Steinway-flygli gerir hana að frá-
bæru tónleikahúsi og hafa tónlistar-
menn sóst eftir að halda tónleika
þar. Þegar er kominn út geisladisk-
ur sem var tekinn upp í Stykkis-
hólmskirkju með leik Guðna Franz-
sonar klarinettleikara og Gerrit
Schuil píanóleikara," segir í frétt
frá Stykkishólmskirkju.
Þar segir jafnframt: „Með þetta
frábæra tónleikahús í huga hefur
nú verið skipulöð röð af sumartón-
leikum í kirkjunni, þeir fyrstu 20.
maí ogþeir síðustu 26. ágúst. Marg-
ir tónlistarmenn íslenskir og erlend-
ir munu koma fram, söngvarar og
hljóðfæraleikarar. Á tvennum
fyrstu tónleikunum munu kennarar
við Tónlistarskóla Stykkishólms
leika, David Enns píanóleikari,
Lana Betts, sem leikur á þver-
flautu, barrokflautu og renisans-
fiautu og Lárus Pétursson gítarleik-
KRISTÍN Bryndís Björnsdóttir
sýnir myndir unnar með vatn-
slitum og olíulitum, klippimynd-
ir og hekluð teppi í Gerðu-
bergi, til loka þessarar viku.
Þetta er fyrsta myndlistarsýn-
ing hennar. Kristín á fimm ára
nám í Myndlistarskóla Reykja-
víkur að baki og eru flest mál-
verkin unnin á námskeiðum
þar. Hún hefur heklað myndir
ari. Lana Betts og David Enns eru
frá Kanada og hafa lokið námi við
McGill-háskóla í Montreal og hafa
þau haldið fjölda tónleika hérlendis
og erlendis. Sérstakt tilhlökkunar-
efni verður að heyra Lönu og Lárus
og dúka um árabil en teppin
sem sjá má í Gerðubergi byrjaði
hún að gera árið 1988. „Þetta
eru teppi unnin í íslenskt ullar-
garn og þau hafa gert heilmikla
lukku á sýningunni. Ég held að
það hafi aldrei verið svona verk
áður á sýningu hér í Reykja-
vík,“ segir Kristín. Hún sýnir
blaðamanni verk sín og mest
er um náttúrustemmningar og
leika verk frá endurreisnartímabil-
inu á gítar og flautu, slík tónlist
heyrist enn of sjaldan á tónleikum.
10. júní fáum við að heyra ungan
baritonsöngvara, Ágúst Ólafsson,
og meðleikara hans, Sigurð Mar-
uppstillingar en einstaka ab-
straktmynd er innan um. Hún
segist fara út í náttúruna til að
skissa og tekur einnig ljósmynd-
ir sem hún vinnur eftir. Myndin
„Myndun lands“ sýnir okkur
eldgos en Kristín segist hafa séð
þau ófá um ævina.
Hún ættuð úr Þingeyjarsýslu
en fluttist ung til VestmannA-
eyja þar sem hún ólst upp. Hún
teinsson, flytja fjölbreytta efnis-
skrá. Meiri söngur verður í júní,
Anna Júlíana Sveinsdóttir og Sól-
veig Anna Jónsdóttir halda þá Ijóða-
tónleika. Tvennir fiðlutónleikar
verða á dagskrá sumartónleikanna,
aðrir með þeim Martin Frewer og
Sigurði Marteinssyni, en hina halda
Elisabeth Zeuthen-Schneider frá
Danmörku og Halldór Haraldsson.
Þá verða tvennir sellótónleikar, aðr-
ir í júlí með Ásdísi Arnardóttur og
Jóni Sigurðssyni, en hinir verða í
ágúst og munu Sigurður Halldórs-
son og Daníel Þorsteinsson þá leika
verk eftir Beethoven fyrir píanó og
selló. Sjaldan heyrist básúna sem
einleikshljóðfæri, en Daði Þór Ein-
arsson ásamt Ingibjörgu Þorsteins-
dóttur píanóleikara munu flytja
dagskrá með skemmtilegum verk-
um fyrir þetta glæsilega hijóðfæri.
Þær Petrea ðskarsdóttir þver-
flautuleikari og Ingunn Hildur
Hauksdóttir píanóleikari munu svo
ljúka tónleikaröðinni 26. ágúst.
Vonandi munu heimamenn og
gestir Stykkishólms kunna að meta
þessa nýjung í bæjarlífinu, en eitt
er víst að ekkert jafnast á við að
njóta fagurrar tónlistar í helgu húsi,
ganga svo út í kvöldið og njóta
sólarlagsins við Breiðafjörð."
kynntist manni sínum á ísafirði
og eignaðist með honum sex
börn og því gafst minni tími
fyrir listsköpunina sem
blundaði alltaf í henni að henn-
ar eigin sögn. „Bakterían var
alltaf viðloðandi og ég leyfði
henni ekki að koma upp á yfir-
borðið fyrr en nú á seinni árum.
Ég hef voða gaman af þessu,“
sagði Kristín Bryndís.
Vorhátíð
fatlaðra
FULLORÐINSFRÆÐSLA
fatlaðra heldur vorhátíð
fimmtudaginn 23. maí kl.
19-22. Hátíðin verður haldin í
Valsheimilinu við Hlíðarenda.
Ýmsir nemendur koma fram
t.d. hljómsveitin Plútó og leik-
hópurinn Perlan. Einnig verður
sýning á hand- og listverki
nemenda. Ýmsar uppákomur
verða til skemmtunar. Hljóm-
sveitin Stælar leikur fyrir
dansi.
Fullorðinsfræðsla fatlaðra er
námskeiðamiðstöð fyrir
þroskaheft fólk. Þar eru yfir
300 nemendur á öllum þroska-
stigum og með ýmsar ólíkar
fatlanir. Boðið er upp á um 70
mismunandi námskeið sem
varða tómstundir, heimilishald,
vinnufærni og eigin mannrækt,
jafnt líkamlega sem andlega.
í forsvari fyrir hátíðinni eru
skólastjórinn María Kjeld og
skemmtinefndin Ásta ísberg
leikfimikennari og tónlistar-
kennararnir Elísabet Harðar-
dóttir, Ragnheiður Haralds-
dóttir, Sigríður Halldórsdóttir
og Ari Agnarsson.
Alþjóðlegi
jazzdagur-
inn
25. MAÍ næstkomandi verður
Alþjóðlegi jassdagurinn hald-
inn hátíðlega í 6. sinni. Þetta
er í fyrsta
skipti sem Is-
lendingar taka
þátt í hátíða-
höldunum en
jazzhátíðin í
Vestmanna-
eyjum, Dagar
lita og tóna,
helgar jazz-
deginum tón-
leika sína þetta kvöld.
Á hátíðinni koma fram
kvartett Ragnheiðar Ólafsdótt-
ir, kvartett Ómars Axelssonar,
kvartett Hauks Gröndals, Tríó
Ólafs Stephensens, tríó Tómas-
ar R. Einarssonar, kvintett
Steina Steingríms, Vinir Óla,
hljómsveitin Bláin, Háeyrar-
kvintettin og síðast en ekki síst
kvertett Ann Farholt frá Dan-
mörku.
„Ann er ein helsta jazzsöng-
kona Norðurlanda og er fræg
fyrir „skattsöng" sinn, þar sem
hún líkist á stundum saxófón-
leikara eða básúnuleikara. Með
henni eru landar hennar, gítar-
istinn Henrik Bay og bassaleik-
arinn Guffi Pallesen svo og
bandaríski trommuleikarinn
Andy Eberhart. Ann og félagar
munu svo leika og syngja í
Leikhúskjallaranum í Reykja-
vík að kvöldi annars hvíta-
sunnudags kl. 21.30,“ segir í
fréttatilkynningu.
*
Attunda-
stigs próf-
tónleikar
TÓMAS Guðni Eggertsson
píanóleikari flytur próftónleika
sína í sal skólans í dag, miðviku-
dag kl. 18.30.
Tómas er nemandi Vilhelm-
ínu Ólafsdóttur. Verkefnin sem
Tómas leikur eru Prelúdía og
fúga í c-moll eftir J.S. Bach,
Etýða í d-moll op. 72 eftir M.
Moszkowski, Sónata í As-dúr
op. 26 ertir Beethoven, 2. kafla
úr Sónötu op. 64 eftir E.
Rautavaara, • Allegro úr Fasc-
hingsschwank aus Wien op. 26
eftir Schumann.
Tónleikarnir eru öllum opnir
og aðgangur ókeypis.
Söngskólinn í Reykjavík
Skólaslit o g
lokatónleikar
TUTTUGASTA og þriðja starfsári Söngskólans
í Reykjavík er nú að ljúka og hafa 170 nemend-
ur stundað nám við skólann í vetur, 140 í dag-
skóla og 30 á kvöldnámskeiðum. Nemendur luku
í vetur samtals 162 stigprófum í söng og/eða
píanóleik, ásamt tilheyrandi kjarnagreinum. Auk
þess útskrifast 7 nemendur með burtfarar- eða
söngkennarapróf. Innritun fyrir næsta vetur
stendur yfir og verða inntökupróf þriðjudaginn
4. júní nk.
32 kennarar, þ.e. söngkennarar, píanókennar-
ar og kjarnagreinakennarar eru starfandi við
skólann, þar af 11 í fullu starfi. Skólastjóri er
Garðar Cortes.
Söngskólinn fær árlega prófdómara á vegum
„The Associated Board of the Royal Schools of
Music“ í London. Prófdómari í vor var prof.
Mark Wildman, yfirmaður söngdeildar The Roy-
al Academy of Music í London.
Skólinn útskrifar að þessu sinni 5 nemendur
með burtfararpróf (Advaneed Certificate) og 2
með söngkennarapróf. Burtfararpróf tóku Elma
Atladóttir, Eyrún Jónasdóttir, Hulda Björk Garð-
arsdóttir, Kolbrún Ásgrímsdóttir og íris Erlings-
dóttir. Þær eiga þó allar eftir lokaáfanga prófs-
ins, einsöngstónleika. Söngkennaraprófi LRSM
(Licentiate of the Royal Schools of Music) luku
Elín Huld Árnadóttir og Ragnheiður Hall.
7 nemendur luku 8. stigi, lokaprófi úr al-
mennri deild og hafa þeir þegar sungið sína loka-
tónleika í Islensku óperunni.
Skólaslit og afhending grófskírteina verða
fimmtudaginn 23. maí i íslensku óperunni.
Skólaslitin hefjast kl. 19.30. Kl. 20.30 verða
lokatónleikar skólans, þar sem fram koma nem-
endur frá 3. stigi og uppúr. Efnisskráin er fjöl-
breytt, íslensk og erlend sönglög og aríur og
samsöngsatriði úr söngleikjum, óperettum og
óperum. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.
NÝÚTSKRIFAÐIR söngvarar ásamt skóla-
stjóra á tröppum Söngskólans. F.v. fremsta
röð: Garðar Cortes skólasfjóri, Elín Huld
Árnadóttir, Eyrún Jónasdóttir, Ragnheiður
Hall, Hulda Björk Garðarsdóttir. 2. röð: Kol-
brún Ásgrímsdóttir, Elma Atladóttir, íris
Erlingsdóttir. 3. röð: Jón Rósmann Mýrdal,
Kristbjörg Kari Sólmundsdóttir, Guðbjörg
R. Tryggvadóttir, Diljá Sigursveinsdóttir.
Aftasta röð: Rein A.II. Korshamn, Soffía Stef-
ánsdóttir, Kristjana Stefánsdóttir.
HEKLAÐ veggteppi eftir Kristínu.
KRISTÍN Bryndís Björnsdóttir
Fyrsta sýning þingeyskrar listakonu
Morgunblaðið/Kristinn
Ann Farholt