Morgunblaðið - 22.05.1996, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ1996 25
AÐSENDAR GREINAR
Eðli íslenskra
orkulínda
í UMFJÖLLUN um orkumál í
Morgunblaðinu að undanförnu hefur
stundum verið gengið út frá því að
munur sé á eðli íslensku orkulind-
anna, jarðhita og vatnsorku. Höfund-
ar þessarar greinar telja að hér sé
um misskilning að ræða. Báðar þess-
ar orkulindir eiga rót sína að rekja
til samfeildra orkustrauma í náttúru
landsins. Úrkoman á fjöllótt landið
er undirstaða vatnsorkunnar og stöð-
ugur varmastraumur um jarðskorp-
una veldur því að jarðhitaorka er
mjög aðgengileg á íslandi. Sá varma-
straumur felur í sér flæði hitaorku
úr iðrum jarðar auk flutnings orku
með heitu vatni og kviku. Talið er
að verg (brúttó) orka alls rennandi
vatns á Islandi nemi um 190 TWh
(terawattstundum) á ári. Orku-
straumurinn að neðan er svipaður
að stærð, eða um 270 TWh á ári.
Þeir orkustraumar sem stýra jarðhit-
anum og vatnsorkunni hafa verið
stöðugir í mjög langan tíma. Úrkom-
an hefur að öllum líkindum verið
nokkuð svipuð síðastliðin 10.000 ár,
en orkuflæðið úr iðrum jarðar hefur
lítið breyst í milljónir ára. Af þessum
sökum er oft talað um að orkulindim-
ar jarðhiti og vatnsorka séu endurnýj-
anlegar orkulindir. Notkun slíkra or-
kulinda fellur því vel að hugmyndum
um sjálfbæra þróun.
Þó orkustraumarnir að ofan og
að neðan hafi verið stöðugir í mjög
langan tíma safnast orka fyrir á viss-
um stöðum í báðum tilvikum. Hluti
af úrkomunni binst í jöklum lands-
ins, í stöðuvötnum og í grunnvatns-
kerfum. Á sama hátt er mikill varmi
bundinn í heitum berggrunninum
undir landinu. Við mat á stærð orku-
lindanna þarf bæði að taka tillit til
þeirra orkustrauma sem liggja til
grundvallar og þeirrar bundnu orku
sem getur haft áhrif á nýtinguna.
Eftirfarandi tafla gefur yfirlit um
orkustrauma og bundna orku á ís-
landi. Áætlun á bundinni jarðhita-
orku miðast við berggrunn landsins
ofan 3 km dýpis.
Taflan sýnir að orkustraumarnir
eru sambærilegir að stærð, en að
bundin jarðvarmaorka er um 1.000
sinnum meiri en bundin vatnsorka.
Vergur orku- Verg bundin
straumur orka
Vatnsorka 190 TWh/a 2.500 TWh
Jarðhiti 270 TWh/a 5.800.000 TWh
Þessar aðstæður endurspegla annars
vegar misstór geymslurými ofan og
neðanjarðar og hins vegar mislang-
an viðbragðstíma þeirra náttúruafla
sem að baki liggja. Bundna vatns-
orkan jafngildir meðalúrkomu 13
ára, en bundna jarðhitaorkan sam-
svarar varmastraum að neðan í rúm
20.000 ár.
Við mat á nýtanlegri orku er beitt
ýmsum leiðum til þess að meta hve
mikinn hluta af orkunni í töflunni
Garðsláttuvélar
ÞOR HF
ReykjÐvík - Akurayri
Reykjavík: Armúla 11 - Sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka - Slmi 461-1070
Það gildir bæði um jarð-
hitann og vatnsorkuna,
segja Valgarður Stef-
ánsson og Guðni Ax-
elsson, að orkustraum-
urinn hefur meiri þýð-
ingu en bundna orkan.
má nýta með góðu móti. Koma þá
til tæknileg, fjárhagsleg og pólitísk
sjónarmið. Þessi sjónarmið breytast
mikið í tímans rás. í umræðu um
stærð íslenska orkulinda hefur þró-
ast sú hefð að miða vatnsorkuna við
orkustraum, en jarðhitann við
bundna orku. Þetta hefur því miður
fætt af sér þann misskilning að eðlis-
munur sé á vatnsorku og jarðhita.
Sú er ekki raunin, því báðar orku-
lindirnar eru endurnýjanlegar í þeim
skilningi að þau náttúruöfl sem stýra
orkuframboðinu hafa verið stöðugt
í gangi í mjög langan tíma. Ekki
er fyrirsjáanlegt að miklar breyting-
ar verði þar á í náinni framtíð.
Þegar kemur að nýtingu vatns-
afls, jafnt sem jarðhita, er það bæði
orkustraumurinn og bundna orkan
sem stjórna því magni sem hægt er
að nýta. Sú orka sem við nýtum
hvetju sinni kemur að hluta úr orku-
straumnum og að hluta úr bundinni
orku. Sem dæmi má nefna að þó
orkugeta vatnsaflstöðva sé eingöngu
miðuð við framlag úr orkustraum,
hefur komið í ljós að bráðnun eða
stækkun jökla hefur veruleg áhrif á
rennsli jökuláa. Framlag úr bundinni
orku er í slíkum tilvikum háð árferði.
Við jarðhitanýtingu er erfiðara
að segja til um hve mikill hluti nýttr-
ar orku kemur frá orkustrauminum
Guðni
Axelsson
Valgarður
Stefánsson
og hve mikill frá bundinni orku. Ef
nýtingin er eingöngu sjálfrennsli úr
hver eða laug má segja að öll nýting-
in komi frá orkustraumnum. Jafnvel
þó að boraðar séu nokkrar holur til
þess að auka sjálfrennslið er nýting-
in að meginhluta til framlag úr orku-
straumnum. Ef staðbundin jarðhita-
nýting er aukin enn meir, t.d. með
dælingu, kemur að því að jarðhita-
vökvinn fer að draga til sín varma
úr berginu, þ.e. úr bundnu orkunni.
Framlag bundnu orkunnar er í slíku
tilviki háð því hve mikil staðbundna
nýtingin er.
I öllum þeim jarðþitakerfum sem
nú eru í nýtingu á íslandi (um 200
talsins) er það fyrst
og fremst vatnsrennsli
íjörðu, sem takmarkar
nýtingarhraða, en
ekki varminn sem
bundinn er í jarðlög-
um. Flest þessara
jarðhitakerfa hafa
verið nýtt í einn til tvo
áratugi og nokkur
þeirra enn lengur.
Samt hafa aðeins örfá
jarðhitakerfi náð því
marki að hægt sé að
greina þær tak-
markanir sem bundna
orkan getur haft á
staðbundna nýtingu.
Því verður að hafa það
hugfast að langmestur
hluti jarðhitanýtingarinnar er
framlag úr orkustraumnum.
Nýting jarðhita jafnt sem vatns-
orku byggir bæði á nýtingu orku-
straums og bundinnar orku. Það er
því allt of mikil einföldun að heim-
færa nýtinguna á annan hvorn þess-
arra þátta. í raun gildir það bæði
fyrir nýtingu jarðhita og vatnsorku
að orkustraumurinn hefur meiri þýð-
ingu en bundna orkan. Við mat á
jarðvarmaorku landsins þarf þvi
bæði að taka tillit til varmastraums
og bundinnar orku.
Höfundar eru cðlisfræðingur sem
starfa við jarðhitarannsóknir.
Ekkert stofngjald og fyrstu þnr mcmuðimir ókeypis *
Talhólf er örugg geymsia skiiaboða
Talhólfíð svarar með þinni eigin rödd
Ósýniiegur
símsvari á filbo&i
* Mœgt er að náigast skilaboð í talhólfið hvaðan sem er
• Taihóif byggir á skýrri og stafrœnni upptöku
■ Talhóifið iœtur þig vita ef ný skiiaboð hafa borist
Talhóifið segir hvenœr skiiaboðin voru iesin inn
TALHÓLF
IPÓSTS OGSÍMA
Aðeins eiff símfal - og þú erf koininn me5 falhóif
Hringdu í grœnf númer 800 6388 Opi6 9.00 -18.00
* Eftir fyrstu þrjé mánuðina eru greiddar ársfjórðungslega 374 kr. Talhólf
hefur sitt eigið símanúmer sem hringja má beint í. Til að tengja hólfið þinu
númeri nýtir þú þér þjónustuna SÍMTALSFLUTNING sem kostar 3,32 kr. á
minútu. Ef þú hringir í talhólfiö eða talhólfið í þig greiðast 3,32 kr. á mínútu.
PÓSTUR OG SÍMI