Morgunblaðið - 04.06.1996, Blaðsíða 1
• MARKAÐURINN • SMIÐJAN • LAGNAFRÉTTIR • GRÓDUR OG GARÐAR • HÝBÝLI • FRÉTTIR •
fHttrgttnMiiMfe
Prentsmiðja Morgunblaðsins Þriðjudagur 4. júní 1996 Blað C
Lán til
endurbóta
LÆKKUN á lágmarkskostnaði
í húsbréfakerfinu, til þess að
íbúðarhúsnæði teljist lánshæft
vegna meiri háttar endurbóta
eða endurnýjunar, verður til
að auka á húsaviðgerðir, segir
Grétar J. Guðmundsson í þætt-
inum Markaðurinn. / 2 ►
Saga
húsanna
NÝBYGGÐ hús eiga sér stutta
sögu, segir Bjarni Ólafsson í
þættinum Smiðjan. En eftir að
fólk flytur inn í húsin, tekur
saga þeirra og saga íbúanna
að tvinnast saman. Ný hús
þurfa ekki að verða gömul til
þess að eignast sögu. / 12 ►
Ú T T E K T
hús úr
FYRIRTÆKIÐ Krossstál
að Seljavegi 6 í Reykja-
vík er nú að að hefia
innflutning frá Bandarxkjun-
um á íbúðarhúsum með stál-
grind. Allt burðarvirki hús-
anna er úr stáli, bæði stoðir
og sperrur. Krosshamrar,
systurfyrirtæki Krossstáls,
byggir húsin og hefur þegar
fengið nokkrar lóðir fyrir
þau á höfuðborgarsvæðinu.
Stálgrindur sem burðar-
virki í hús eru alls ekki ný
byggingaraðferð hér á landi,
enda stálgrindarhús að
mörgu leyti hagkvæm og
ódýr lausn og þar ræður
skammur uppsetningartími
miklu.
Sem íbúðarhús eru stál-
grindarhús hins vegar næsta
fágæt hér á landi. Þau eiga
aftur á móti Ianga hefð að
baki sér víða erlendis, ekki
hvað sízt í Bandaríkjunum.
Þar hefúr stálið stöðugt verið
að sækja á sem byggingarefni
vegna hækkandi verðs á
timbri.
Pyrsta íbúðarhúsið, sem
Krosshamrar byggja með
þessum hætti, á að vera tilbú-
ið til afhendingar í júlí, en
það á að rísa við Suðurmýri 8
á Selljamarnesi. Síðan verða
byggð þrjú hús upp við
Vatnsenda og þar næst þijú
hús í Borgaliverfi.
í viðtali við Þorgils Axels-
on, byggingatæknifræðing hjá
Krosshömrum, í blaðinu 1 dag
er fjallað um þessi hús. - Þau
eiga að standast vel íslenzka
veðráttu, segir hann. / 16 ►
Höfuðborgarsvæðið
Fullgerðar íbúðir
heldur færri í fyrra
FULLGERÐAR íbúðir á höfuð-
borgarsvæðinu voru nokkru færri á
síðasta ári en árið þar á undan eða
1152 á móti 1208. Er þar byggt á
bráðabirgðatölum frá Þjóðhags-
stofnun. í Reykjavík var lokið við
smíði 692 íbúða í fyrra, en þær voru
715 árið 1994. Athygli vekur sam-
drátturinn milli ára í Kópavogi að
þessu leyti, en þar var lokið við 201
íbúð á árinu 1994 en ekki nema 167 í
fyrra.
Hvergi eru íbúðabyggingar samt
meiri hlutfallslega en í Kópavogi, en
um síðustu áramót voru þar676 íbúð-
ir í byggingu á móti 430 ári á undan.
í Reykjavík voru 888 íbúðir í bygg-
ingu um síðustu áramót, en þær voru
1030 um áramót þar á undan.
Á undanförnum árum heíúr upp-
byggingin í Kópavogi verið mjög
hröð og ný hverfi risið í Kópavogs-
dal, í suðurhlíðum Digraness, á Nón-
hæð og á hinu nýja byggingarsvæði
í Fífuhvammslandi fyrir austan
Reykjanesbraut.
I fyrra voru fullgerðar 152 íbúðir í
Hafnarfirði og byrjað á smíði 141
íbúðar. Þetta eiu mun meiri íbúðar-
byggingar en 1994, en það ár var lok-
ið við 122 íbúðir í bænum og byrjað
á smíði 84 íbúða. Um síðustu áramót
voru 223 íbúðir í byggingu í Firðin-
um.
I Mosfellsbæ hefur átt sér stað
nokkur samdráttur, en í fyrra voru
fullgerðar þar 45 íbúðir og byrjað á
38 íbúðum. Á árinu 1994 voru þar
fullgerðar 77 íbúðir og byrjað á 67
íbúðum.
í Garðabæ voru fullgerðar 38 íbúð-
ir í fyrra, en þær voru 47 árið 1994.
Athygli vekur, hve margar íbúðir
vorufullgerðar á Seltjarnarnesi, sem
er mun fámennara bæjarfélag, en
þar var lokið við 49 íbúðir í fyrra og
við 38 íbúðir árið þar á undan. Um
síðustu áramót voiu þar 76 íbúðir í
byggingu og jafn margar og í Garða-
bæ.
SELTJARNARNES
HAFNARFJÖRÐUF^
1994 1995
Vr'«J.
\ Fullgerðar íbúðir ■
höfuðborgar-
svæðinu 1994-95
\\
FASTEI
N ALAN S K A M O I A
nýtt simumímer
540 50 60
i fáid núnarí upplýsingar
Skandia býðurþér sveigjanleg lánskjör efþú þarft að skuldbreyta eða stœkka vió þig
Skandia
Fyrir hverju eru Fasteignalán Þá sem eiga lítið veðsettar,
Skamiia? auðseljanlegar cignir, en vilja lán
lasteignalán Skandia eru fyriralla á til annarra ijárfestinga.
stór-Reykjavíkursvæðinu sem eru að kaupa sér fasteign og: Kostir Fasteignalána Skandia
Vilja kaupa stórar eignir en fá ekki Lánstími allt að 25 ár.
nægilega hátt lán í húsbréfakerfinu. Hagstæð vaxtakjör.
Þá sem vilja breyta óhagstaxlum eldri Minni greiðslubyrði.
eða styttri lánum. Stuttur svartími á umsókn.
Dœmi um múnaóarie/’ar
ajboij/anir af1.000.000 kr.
Fusteignaláni Skandia *
Vfcxtir(%) löár 15 ár 25 ár
7,0
7,5
8,0
11.610 8.990 7.070
11.900 9.270 7.500
12.100 9.560 7.700
FJÁRFESTINGARFÉLAGIÐ SKANDIA
LAUGAVEGI 170
Miðað er við jafngreiðslulán.
*Auk vcrðbóta
3ÍMM540 SD 0D • FAX 340 50 B1
4-