Morgunblaðið - 11.06.1996, Side 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Sumarlokanir sjúkrahúsanna í Reykjavík verða með svipuðu móti í ár og verið hefur
Legiidögum
fækkað um
rúm 40.000
Sumarlokanir á sjúkrahúsunum í Reylgavík
hófust um síðustu mánaðamót og eru með
svipuðu móti og verið hefur, að því undan-
skildu að fleiri leguplássum á dagdeildum
verður fækkað hjá Ríkisspítölum en í fyrra.
Þrátt fyrir þetta vantar talsvert upp á að
spamaður náist.
HEILDARLOKANIR á deildum
Sjúkrahúss Reykjavíkur í sumar
samsvara 10.926 legudögum, þar
af eru 940 á dagdeild. Erna Einars-
dóttir hjúkrunarframkvæmdastjóri
segir að lokanir deilda virðist með
svipuðu sniði og í fyrra og að 200
milljónir vanti upp á að ráðgerður
spamaður náist. Hjá Ríkisspítölum
verður legudögum fækkað um
29.742, þar af eru 3.800 á dagdeild-
um. Ingólfur Þórisson aðstoðarfor-
stjóri Ríkisspítala segir að með því
sparist 110 milljónir. Samtals er
um að ræða 40.668 legudaga.
Geðdeild Sjúkrahúss Reykjavíkur
í Hafnarbúðum, sem er dagdeild,
verður lokað alveg frá 1.-28. júlí.
Hjúkrunardeild aldraðra á Landa-
koti, 1-B var lokað 1. apríl og verð-
ur ekki opnuð aftur fyrr en 30.
september. Einnig er skurðdeild 2-B
á Landakoti og 3-A, sem er dag-
deild eftir aðgerðir, lokað frá 1.
júlí til 12. ágúst.
Sjúkrahúsin í Reykjavík
endastöðvar
Þá var endurhæfingadeild E-62
lokað um síðustu mánaðamót en
hún verður opnuð aftur 1. septem-
ber. Loks er öldrunarlækningadeild-
inni 3-B á Hvítabandi lokað frá 1.
júlí til 5. ágúst og hið sama gildir
um skurðdeild G-2, sem lokað var
3. júní.
Erna segir erfitt að átta sig
nákvæmlega á umfangi lokananna
vegna sameiningar Borgarspitala
og Landakots. Hún segir 200 millj-
ónir vanta til þess að fyrirhugaður
sparnaður gangi eftir og bendir á
að sjúkrahúsin í Reykjavík séu
nokkurs konar endastöð. Sjúkra-
hús úti á landi geti lokað yfir sum-
artímann vegna skorts á rekstr-
arfé.
„Við getum ekki gripið til sömu
ráðstafana og verðum því að tak-
marka þjónustuna við bráðatilfelli
í sumar,“ segir hún.
Hjá Ríkisspítölum er markmiðið
að spara 400 milljónir á árinu, seg-
ir Ingólfur Þórisson aðstoðarfor-
stjóri. í fyrra var legudögum fækk-
að um 25.587 á Iegudeildum en
25.942 nú en þess má geta að
Fæðingarheimilið var opið í hálft
ár í fyrra. Einnig verður legudögum
á dagdeildum fækkað um 4.020 í
sumar, sem ekki var gert í fyrra
að hans sögn.
Öldrunarlækningadeild var lokað
í lok apríl og jafnframt var fækkað
um tvö rúm á barnaskurðdeild 13-E
frá lokum janúar til síðustu mán-
aðamóta. Fækkað var um fjögur
legupláss á ungbamadeild 13-E í
lok janúar og henni síðan lokað
fram til ágústloka um síðustu mán-
aðamót. Lýtalækningadeild hefur
verið lokuð síðan um áramót.
Þá var dagdeild kvennadeildar
lokuð í janúar og febrúar en gert
ráð fyrir einu leguplássi frá lokum
febrúar út árið. Deild 21 að Bjargi
verður lokað í lok júlí, árið á enda
og barnageðdeild var lokað um síð-
ustu mánaðamót til ágústloka en
þá verður gert ráð fyrir sex plássum
af tíu fram í desember.
Lokanirnar spara 110 milljónir
og segir Ingólfur að reynt verði að
mæta fjárhagsáætlun með lækkun
lyfjakostnaðar og annars konar
hagræðingu.
Dagskráin
næstu daga
Þriðjudagur 11. júrtí:
Heimsókn í Garðabæ og Bessastaðahrepp kl. 9-16
Yfirheyrsla á Stöð 2 kl. 20:00
Fundur:
Miðvikudagur 12. júní:
Setið íyrir svörum á
Bylgjunni frá kl. 17-18.
Miðnæturfundur í Grímsey
Mosfellsbær, Áslákur kl. 21:00
Vinir vors og blóma skemmta.
Upplýsingar um forsetakosningarnar
eru gefnar á kosningaskrifstofunni i
Borgartúni 20 og í síma 588 6688
Upplýsingar um atkvæða-
greiðslu utan kjörfundar
eru gefnar i síma
553 3209
Fundur: Húsavík,
Hótel Húsavík kl. 20:30
Sumarlokun spítala í Reykjavík 1996
Ríkisspítalar
Lyflækningadeild 11A
Lyflækningadeild 11B
Oldrunartækn.deild
Húðlækningadeild Víf.
Lýtalækningadeild 13-A
Almenn skurðdeild 12-G
Bæklunariækn.deild 13-G
Ungbarnadeild 13-E
Kvenlækningadeild 21-A
Kvenlækningadeild 21 -A
Deild 26, Laugarásvegi
Deild 32-C, Landspítalanum
Deild 13, Kleppi
Delld 21, Bjargi
Barnageðdeild
Unglingageðdeild
Barnadagdeild
Barnadagdeild
Dagdeild kvennadeildar
Sjúkrahús Reykjavíkur
Bæklunar- og skurðl.d. A-2
Dagdeild geðd. Hafnarbúðir
Þvagfæraskurðl.deild A-3
Almenn skurðl.deild B-6
Heila-háls-nef-eyrna skurðl.d
Hjúkrunardeild aldraðra 1 -B
Augndeild, Skurðdeild 2-B
Dagdeild eftir aðgerðir 3-A
Skurðstofa Fossvogi
Skurðstofa Landakoti
Alm. lyflækningadeild A-6
Bamadeild B-5
Endurhæf.- og taugad. E-62
Öldrunari.cT. B-4, Hvítabandið
Öldrunari.deild 3-B
Gæsludeild G-2
Skurðstofa G-2 ~
Lokað
Lokað
Lokað tiláramóta
Lokað
Lokað tiláramóta
Lokað
Lokað
Lokað
Fækkað um 10 rúm
Fækkað um 10 rúm
Lokað
Lokað
Lokað
Lokað til áramóta
Lokað
Lokað
Lokað
Fækkað um 4 rúm
Fækkað um 4 rúm til
áramóta
Fækkað um 6 rúm
Lokað
Fækkað um10 rúm
Fækkaðum 7rúm
Fækkað um 15 rúm
Lokað
Lokað
Lokað
4 skurðstofum lokað
4 skurðstofum lokað
Fækkað um 15 rúm
Fækkað um 11 rúm
Lokað
Fækkað um 7 rúm
Lokað
Opið á bráðavakt
Lokað
Kynskipta-
aðgerð
í haust
Morgunblaðið/Golli
HEINRICH Pfeiffer tekur við fálkaorðunni úr hendi Vigdísar
Finnbogadóttur.
Alexander von Humboldt-stofnunin
Fyrrverandi forstjóri
sæmdur fálkaorðunni
VIGDÍS Finnbogadóttir, forseti ís-
lands, sæmdi dr. Heinrich Pfeiffer,
forstjóra Alexander von Humboldt-
stofnunarinnar í Bonn árin 1964-
1994, þann 10. júní sl. stórriddara-
krossi hinnar íslenku fálkaorðu fyrir
störf sín til eflingar vísindalegra
samskipta íslendinga og Þjóðveija
um áratuga skeið.
Síðan Alexander von Humboldt-
stofnunin hóf styrkveitingar til
rannsókna- og vísindastarfa hafa
45 íslendingar verið við framhalds-
nám og vísindastörf í Þýskalandi
þar af um 30 eftir heimsstyrjöldina
síðari. Styrkir stofnunarinnar eru
með þeim bestu sem völ er á og
eingöngu veittir mjög efnilegum
erlendum vísindamönnum yngri en
40 ára. Sé miðað við höfðatölu eru
íslendingar, eins og svo oft áður, í
fyrsta sæti.
Meirihluti þeirra íslendinga sem
hlotið hafa styrki stofnunarinnar
starfa við kennslu og rannsóknir í
Háskóla íslands. Styrkimir spanna
öll svið hug- og raunvísinda. Flestir
styrkjanna hafa komið í hlut jarðvís-
indamanna, alls 8 styrkir, en fast á
eftir fylgja læknar með 7 styrki og
þá lögfræðingar með 5 styrki alls.
Þótt dr. Pfeiffer sé kominn á
eftirlaun starfar hann enn við Alex-
ander von Humboldt-stofnunina í
hlutastarfi við að halda uppi tengsl-
um við fyrrum styrkþega stofn-
unarinnar. Stofnunin leggur mikla
áherslu á ræktarsemi við fyrrum
styrkþega sína með viðbótarstyrkj-
um síðar á starfsferlinum til bóka-
og tækjakaupa. Ennfremur er fyrr-
verandi styrkþegum stundum boðið
til Þýskalands í kynnisferðir eða til
frekari rannsóknastarfa um nokk-
urra mánaða skeið. Til þess að
halda uppi sem bestum tengslum
milli fyrrum styrkþega hafa verið
stofnuð Humboldt-félög víða um
heim. Alexander von Humboldt-
félagið á Islandi var stofnað árið
1979. Fyrsti formaður þess var dr.
Oddur Guðjónsson sendiherra. Nú-
verandi formaður félagsins er dr.
Sigfús A. Schopka fiskifræðingur.
LANDLÆKNISEMBÆTTIÐ og
Kynfræðifélagið héldu málþing um
kynskipti sl. föstudag. Þar kom
m.a. fram að fyrirhugað er að fram-
kvæma fyrstu kynskiptaaðgerðina
hér á landi í haust.
Á málþinginu kom fram að vitað
er um átta íslendinga sem hafa
leitað sér aðstoðar vegna vilja til
að skipta um kyn, þijár konur og
fimm karla. Ólafur Ólafsson land-
læknir sagði í samtali við Morgun-
blaðið að samkvæmt lögum um
heilbrigðismál ættu allir jafnan rétt
á heilbrigðisþjónustu. „Fólki var
lengi synjað um að komast í kyn-
skiptaaogerðir hér á landi og það
braut í raun í bága við lögin. Slíkar
aðgerðir eru lítið vandamál fyrir
þjóðfélagið en geta skipt gífurlegu
máli fyrir þá örfáu einstaklinga sem
eiga í hlut.“
Fyrirhugað er að framkvæma
fyrstu kynskiptaaðgerðina hérlend-
is í haust. í því tilviki er um að
ræða konu sem finnur sig ekki í
kvenhlutverkinu en upplifir sig þess
í stað sem karlmann. Undirbúning-
urinn fyrir aðgerðina er mjög viða-
mikill, fyrst fara fram nákvæmar
rannsóknir á viðkomandi einstakl-
ingi, bæði líkamlegar og sálfræði-
legar. Hormónameðferð stendur
síðan yfir í heilt ár fyrir aðgerðina,
og einstaklingurinn lifir á þeim tíma
í hlutverki hins kynsins og gengur
reglulega til geðlæknis.
Landlæknir hefur skipað vinnu-
hóp um kynskipti, en í honum sitja
sérfræðingar á þeim sviðum sem
málið varða. Torvald Höjerback frá
Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Sví-
þjóð hefur verið vinnuhópnum til
aðstoðar við undirbúninginn og far-
ið er eftir vinnureglum sem viður-
kenndar eru á Norðurlöndum. Beinn
kostnaður við kynskiptaaðgerð hér
á landi er á bilinu 200 til 300 þús-
und krónur.