Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR 7~ ; ' .ilM'1 Skýrsla forsætisráðherra um laun og lifskjör rædd á Alþingi Staðfestir að íslending- „„ 1- ' „ „Í3 '3 lífcilrin** 'I 7 JE minn. Hann hefur fallið í góðærisyfirlið. . . Umhverfissjóður verslunarinnar 21,7 milljónirtil umhverfísvemdar ÞRÍR aðilar fengn á laugardag úthlutað úr Umhverf- issjóði verslunarinnar samtals 15 milljónum króna. Skógræktarfélag íslands hlaut 5.000.000 króna til uppbyggingar skógræktar hjá aðildarfélögum sínum um allt land, Húsagull á Húsavík fékk 5.000.000 króna styrk en það félag vinnur að uppgræðslu á Hólasandi og Ungmennafélag íslands fékk 5.000.000 til verkefnisins „Flöggum hreinu landi 17.júní“. Þetta var í fyrsta skipti sem sjóðurinn úthlutar styrkjum til umhverfisverndar og fór úthlutunin fram í Húsinu á Eyrarbakka. Úthlutað var 21,7 milljónum króna til 15 aðila víðs vegar um landið. Verkefnin sem hljóta styrki eru fjölbreytt og ná m.a. til hreinsunar, skógræktar, fræðslu og fuglaverndar. Um 100 umsóknir bárust til sjóðsins og lætur nærri að samanlögð upphæð umsókna nemi 100 millj- ónum króna. Umhverfissjóður verslunarinnar fær tekjur af sölu plastburðarpoka í verslunum en merki á haldi hvers poka segir til um hvort verslunin greiði í sjóðinn eða ekki. Nú greiða 119 verslanir um allt land i sjóðinn. Stofnaðilar Umhverfissjóðs verslunar- innar eru Hagkaup, Kaupmannasamtök íslands og Samtök samvinnuverslana. Aðrir aðilar sem hlutu styrki úr Umhverfissjóði DOKTOR Björn Sigurbjömsson, formaður fag- ráðs Umhverfissjóðs verslunarinnar, Bjarai Finnsson, formaður stjórnar Umhverfissjóðs verslunarinnar, Hulda Valtýsdóttir, formaður Skógræktarfélags íslands, og Guðmundur Bjaraason umhverfisráðherra. verslunarinnar að þessu sinni eru Fuglavemdarfélag íslands, sem hlaut 1,5 milljónir til verkefnis sem miðar að endurheimt votlendis í landi Eyrarbakka- hrepps við bakka Ölfusár. Ari Trausti Guðmundsson fékk eina milljón króna til að gera sjónvarpsþætti um umhverfismái. Hagavatnssamtökin fengu eina milljón króna til hækkunar yfirborðs Hagavatns. Lægri styrki fengu Skógræktarfélag Eyfirðinga, Norður Atlantshafslaxsjóðurinn, Sólheimar í Gríms- nesl, Ferðafélag Útivistar, Skógræktarfélag Austur- lands, Skjólskógar, Kvenfélag Ljósvetninga, Skaftár- hreppur og Kvenfélagið Iðja. Éf k m m m ■ ■ mmm mm .rua , Ijósmynd/Bjðm Jóhannsson FRA úthlutun Umhverfissjóðs verslunarinnar á Eyrarbakka. Guðfræði sjávarútvegsins Verðum að virða auðæfi hafsins FYRIR skömmu kom hingað tii lands norskur prestur að nafni Harold Holtermann í boði Biskupsstofu, Sjó- mannadagsráðs Vest- mannaeyja og Landakirkju. Hann hefur vakið athygli landa sinna fyrir að hjálpa fólki í litlum sjávarplássum til að takast á við atvinnu- leysi sökum aflabrests, en auk þess hefur hann beitt sér fyrir því að minna á sérstöðu byggðarlaga við strendur Norður-Noregs. Á sjómannadag hélt hann er- indi um þessi mál í Vest- mannaeyjum og nefndi hann fyrirlesturinn „Guð- fræði sjávarútvegsins". Haft var samband við Har- old og hann spurður fyrst að því hvaða hlutverki hann .telji að kirkjan geti gegnt í fiskveiðimálum? „Ég tel nauðsynlegt að kirkjan sé óhrædd við að gagnrýna stjórn- völd í fiskveiðimálum. Kirkjan getur kannski ekki komið með neinar lausnir, því það er hlutverk stjórnmálamannanna, en hún get- ur bent á önnur sjónarmið og fært umræðu um fiskveiðistjórnun upp á siðferðilegra plan. Til dæm- is getur kirkjan bent stjórnvöldum á að taka meira tillit til lítilla sjáv- arplássa, en mikilvægi þeirra vill oft gleymast þegar ákvarðanir eru teknar um stjórnun fiskveiða. Auk þess tel ég mikilvægt að kirkjan treysti sambandið milli fólksins og náttúrunnar og minni á nauð- syn þess að umgangast náttúru- auðlindir með virðingu, ekki síst fiskinn í sjónum því lífsafkoma sjávarplássa er undir honum kom- in. Þá getur kirkjan hvatt fólk til að standa saman og takast sam- eiginlega á við vandamál sem fylgja til dæmis aflabresti." Hvers vegna ákvaðst þú að helga þig þessum málefnum? „Ætli ástæðan sé ekki fyrst og fremst sú að ég hef verið sóknar- prestur í litla sjávarplássi, Stam- sund, í Norður-Noregi, undanfarin þrettán ár.í lok áttunda áratugar- ins varð mikill aflabrestur í Nor- egi. Heildarkvóti var minnkaður og því fengu margir bátar, einkum þeir minni, engan kvóta. Þetta olli miklu atvinnuleysi, aðallega í þeim byggð- arlögum þar sem fólk átti lífsafkomu sína undir auðæfum hafsins. I Stamsund varð ég var —■ við áhrif atvinnuleysisins í öllum þáttum samfélagsins. Til dæmis varð ég var við æ fleiri félagsleg vandamál hjá skólabörnum. Stjórnvöld í Noregi sýndu lítinn skilning á vandamálum sjávar- plássanna og var því ekki mikla aðstoð að fá úr þeirri átt. Prestur- inn stendur hins vegar nær fólkinu og fór ég að velta því fyrir mér hvaða hlutverki kirkjan gæti gegnt á svo erfiðum tímum. í framhaldi af því ákvað ég ásamt fleirum að halda svokallaða fiski- messu í Stamsund í byrjun árs 1990. Messan vakti mikla athygli í Noregi og var mjög vel sótt af heimamönnum, en þar var einkum einblínt á þau vandamál sem fylgja samfélagi lítilla sjávar- plássa. í kjölfar messunnar var svo ákveðið að koma á þverfagleg- um vinnuhópi sem myndi stuðla að framtíð sjávarplássa meðfram norðurströnd Noregs og fást við Harold Holtermann ►Séra Harold Holtermann er fæddur í Noregi 28. febrúar 1951. Að loknu menntaskóla- prófi hóf hann guðfræðinám í Óslóarháskóla og lauk prófi í þeim fræðum árið 1978. Eftir námslok hóf hann störf sem prestur í Tromso en síðastliðin þrettán ár hefur hann verið sóknarprestur í Stamsund, við norðurströnd Noregs. Harold hefur á undanförnum árum vakið athygli fyrir framgöngu sína í málefnum norskra út- gerðarmanna, sjómanna og fiskverkafólks og minnt á sér- stöðu þeirra byggða við sjávar- síðuna sem eiga tilveru sína undir auðæfum hafsins. Harold er kvæntur Liv Holtermann og eiga þau þrjú börn. Sérstaða sjávarplássa mikilvæg þau vandamál sem fylgja afla- bresti. Síðan þá hef ég starfað ötullega í þeim hópi auk fiskifræð- inga og stjórnmálamanna." Hvað telur þessi hópur að megi betur fara við ákvarðanatöku í fiskveiðimálum ? „Við teljum það afar mikiivægt að stjórnvöld og fólk almennt átti sig á ábyrgð sinni gagnvart auðæfum hafsins, en jafnframt verði að taka tillit til þess hve afkoma sjávarplássa er háð fiskinum i sjónum. Aflabrestur hefur ekki bara áhrif á útgerðar- mennina, heldur sjó- ..... mennina, maka þeirra og börnin. Allt er svo samtengt í litlum sjávarplássum. Stjórnun fiskveiða verður því að vera sann- gjörn; ekki má bara taka mið af efnahagslegum sjónarmiðum heldur skiptir mannlífið líka máli.“ Hvað geta íslendingar lært af þessu? „Að mörgu leyti eiga íslensk sjávarþorp margt sameiginlegt með fískiþorpum í Norður-Noregi. Náttúran og menningin er mjög svipuð, en auk þess er afkoma margra sjávarplássa á íslandi mjög háð fiskinum í sjónum, eins og í Norður-Noregi. Ég tel það mikilvægt að fulltrúar kirkjunnar á íslandi geti ráðfært sig við kirkj- una í Noregi og kynnt sér það hvernig hægt er að varpa öðru ljósi á fiskveiðimál. Auk þess er mikilvægt að kirkjunnar menn geti rætt saman á siðferðilegum nótum þrátt fyrir deilur á milli stjórnvalda.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.