Morgunblaðið - 11.06.1996, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Þýski togarinn Kiel með metafla til Akureyrar
Aflaverðmætið um
160 milljónir króna
ÞÝSKI togarinn Kiel frá Cuxhaven
kom til Akureyrar í gærmorgun
með um 650 tonn af frystum flökum
og er aflinn nær eingöngu þorskur.
Þetta mun vera mesti afli sem fiski-
skip hefur komið með til Akureyrar
úr einum túr og trúlega mesta
magn af flökum sem fiskiskip hefur
komið með að landi hérlendis. Afla-
verðmæti skipsins er um 160 millj-
ónir króna, en afli upp úr sjó er
um 1.700 tonn.
Kiel er í eigu Duetsche Fishfang
Union, DFFU, dótturfyrirtækis
Samheija hf. Að sögn Þorsteins
Vilhelmssonar hjá Samheija, var
skipið á veiðum í Barentshafi og
stóð túrinn yfir í 44 daga. Strax í
gærmorgun hófst löndum úr skip-
inu og verður landað eins og miklu
og hægt er til kl. 16 í dag, en þá
heldur togarinn túmum áfram og
setur stefnuna á Grænlandsmið.
Þorsteinn segir að þar verði reynt
við karfa, þorsk eða grálúðu og að
jafnvel verði kastað á síld í Norður-
sjónum á leiðinni heim til Þýska-
lands.
Síðasta veiðiferð Kiel var enn
Morgunblaðið/Kristján
STRAX í gærmorgun hófst löndun úr þýska risatogaranum Kiel
sem liggur við Oddeyrarbryggju, en á meðan brugðu flestir skip-
verjamir sér í skoðunarferð að Mývatni.
stærri, en þá kom skipið með full-
fermi að landi í Þýskalandi, eða um
820 tonn af flökum. Um helmingur
aflans var þorskur en einnig var
töluvert magn af ufsa og ýsu. Um
borð í Kiel er 44 manna áhöfn og
fóru flestir skipveijarnir í skoðunar-
ferð að Mývatni í gær.
Morgnnblaðið/Bery amín
GUNNAR Valur Eyþórsson og Jóhannes Geir Sigurgeirsson á
nýja gistiheimilinu á Ongulsstöðum.
Nýtt gisti-
heimili
• •
að Onguls-
stöðum
Ej^afjarðarsveit. Morgunblaðið.
JOHANNES Geir Sigurgeirsson
og eiginkona hans Kristín Brynj-
arsdóttir ásamt Gunnari Val Ey-
þórssyni tengdasyni og dóttur-
inni Sveinu Björk hafa á undan-
förnum mánuðum breytt 40 kúa
fjósi í 12 herbergja glæsilegt
gistiheimili á Öngulsstöðum III.
Fyrstu gestirnir sem voru Þjóð-
veijar gistu á Öngulsstöðum um
helgina.
Að sögn eigenda er mikið um
bókanir í sumar og útlitið því
bjart framundan.
Innbrot
í Kjarna-
skógi
TILKYNNT var um innbrot í skrif-
stofu Skógræktarfélags Eyfirðinga
í Kjamaskógi á sunnudagsmorgun.
Rúða á skrifstofuhúsnæðinu hafði
verið brotin og skiptimynnt stolið.
Málið er í rannsókn.
Unglingastúlka var flutt með
sjúkrabifreið á FSA, eftir að Iiún
féll af hestbaki við bæinn Arbæ,
skammt sunnan Grenivíkur á
sunnudag. Að sögn lögreglu voru
meiðsli hennar minniháttar.
Þá voru fimm ökumenn teknir
fyrir of hraðan akstur um helgina
og einn ökumaður var grunaður um
ölvun við akstur. Að öðru leyti var
helgin með rólegasta móti hjá lög-
reglunni.
Sljórn veitustofnana
Uttekt gerð
á samein-
ingu veitna
FORMANNI veitustjórnar Akur-
eyrar ásamt framkvæmdastjórum
Hitaveitu Akureyrar og Rafveitu
Akureyrar hefur verið falið að gera
úttekt á samvinnu eða sameiningu
veitustofnana á Akureyri. Starfs-
hópnum er heimilt að ráða sér
starfsmann tímabundið vegna þessa
verkefnis.
Jafnframt hefur hópnum verið
falið að kanna samstarf eða samein-
ingu við hliðstæða starfsemi í ná-
grannasveitarfélögum bæjarins
með það að markmiði að stækka
markaðssvæði veitnanna. Heimilt
er að kanna samvinnu við aðrar
stofnanir Akureyrarbæjar, t.d. frá-
veitu eða aðrar deildir eftir því sem
við á m.a. varðandi rekstur mötu-
neyta, nýtingu vinnuvéla og fleira
þess háttar.
Rafmagnsbíll
Á fundi veitustjórnar nýlega var
einnig rætt um tillögu frá rafveitu-
stjórar þess efnis að Rafveita Akur-
eyrar kaupi rafmagnsbíl sem rekin
yrði sem tilraunaverkefni á vegum
fyrirtækisins með það fyrir augum
að auka notkun innlendrar orku og
jafnfram orkusölu hjá rafveitunni í
framtíðinni.
Veitustjóm fól rafveitustjóra að
kanna hvort á markaðnum fyndist
hentugur og hagkvæmur raf-
magnsbíll í þessu skyni.
------» ♦ ♦----
Biblía
Matthíasar
GUÐFINNA Guðmundsdóttir í
Reykjavík hefur gefið Matthíasar-
safni sem er í húsi sr. Matthíasar
Jochumssonar á Sigurhæðum Biblíu
með eiginhandaráritun sr. Matthí-
asar. Auk þess gaf hún safninu
einnig blaðið „Lýður“ sem er frá
árinu 1889, útgefið af Matthíasi.
Menningarmálanefnd Akur-
eyrarbæjar hefur gert ráðstafanir
til að koma hlutunum fyrir á skrif-
stofu sr. Matthíasar á Sigurhæðum.
LAIMDIÐ
BRAUTSKRÁÐIR nemendur frá Fjölbrautaskóla Vesturlands á
Akranesi á vorönn ásamt skólameistara, Þóri Ólafssyni.
Fjölbrautaskóli Vesturlands
101 nemandi
brautskráður
FJ ÖLBR AUT ASKÓLA Vestur-
lands á Akranesi var slitið 24. maí
sl. og var 101 nemandi brautskráð-
ur frá skólanum að þessu sinni eða
alls 158 á skólaárinu. Þetta er
stærsti hópur sem hefur verið
brautskráður frá skólanum frá upp-
hafi. Alls vora 1.140 nemendur við
skólann og hafa þeir aldrei áður
verið jafn margir.
í skólaslitarræðu skólameistara,
Þóris Ólafssonar, kom m.a. fram
að menntamálaráðherra fól skólan-
um að annast skólahald í Reykholti
í Borgarfirði og hefur verið gert
samkomulag um tveggja ára til-
raunastarf í skólanum þar. Skilyrði
séu til þess að í Reykholti þróist
námstilboð sem sé einstakt í ís-
lenskum framhaldsskólum og henti
breiðum hópi nemenda sem við lok
grunnskóla er óviss um framhaldið
og vill reyna eitthvað nýtt. Fjöl-
brautaskóli Vesturlands er svæðis-
skóli með mjög fjölbreytta starf-
semi. Á þeim mælikvörðum sem
notaðir era til að flokka skóla sést
að hann er með margþættustu
starfsemi allra framhaldsskóla á
íslandi.
15 verðlaunahafar
Fimmtán nemendur fengu viður-
kenningar fyrir ágætan náms-
árangur í ýmsum greinum. Val-
gerður Jónsdóttir, nýstúdent á
málabraut, náði bestum árangri
stúdenta að þessu sinni. Unnur
María Bergsveinsdóttir fékk Lista-
verðlaun NFFA fyrir gott framlag
til lista í skólanum og einnig verð-
laun úr minningarsjóði Elínar Irisar
Jónasdóttur fyrir íslenska ritgerð.
Hallur Þór Sigurðsson hlaut verð-
laun Rótarýklúbbs Akraness fyrir
félagsstörf. Námsstyrkur Akranes-
kaupstaðar, sem nemur liðlega 300
þús. krónum, var afhentur í fimmta
sinn. Að þessu sinni fékk Guðmund-
ur Haukur Jörgensen úr Stykkis-
hólmi styrkinn en hann lauk stúd-
entsprófi frá skólanum sl. haust.
Morgunblaðið/Árni Helgason
SÆMUNDUR Sigurbjörnsson var heiðraður fyrir störf sín á sjó
og Baldur Ragnar Guðjónsson, 8 ára, var heiðraður fyrir þann
dugnað að bjarga vini sínum frá drukknun í Stykkishólmshöfn.
Heiðraður fyrir að
bjarga vini sínum
Stykkishólmi - Sjómannadagurinn
var haldinn hátíðlegur hér í 54.
skipti. Á sunnudeginum var afhjúp-
aður minnisvarði um týnda sjó-
menn, en það gerði Þóra Halldórs-
dóttir, ekkja Gísla Kristjánssonar,
sem drukknaði í desember 1994.
Haldið var í skrúðgöngu til kirkju
þar sem sóknarpresturinn messaði.
Við athöfnina voru fjögur börn skírð
og Sæmundur Sigurbjömsson _var
heiðraður fyrir sjómennsku. Átta
ára dreng, Baldri Ragnari Guðjóns-
syni, var afhent viðurkenning fyrir
að bjarga vini sínum frá drukknun
í vetur.