Morgunblaðið - 11.06.1996, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Hlutafjárútboð
Skagstrendings hf.
Mikil um-
frameftir-
spurn frá
hluthöfum
HLUTHAFAR í Skagstrendingi hf.
á Skagaströnd höfðu skrifað sig fyr-
ir um 73% hærri fjárhæð en var til
sölu í hlutafjárútboði félagsins þegar
forkaupsréttartímabili lauk á laug-
ardag.
Alls voru boðin út bréf að nafn-
virði 50 milljónir króna, en hægt
hefði verið að selja bréf til forkaups-
réttarhafa að nafnvirði um 87 miilj-
ónir. Bréfin voru boðin út á genginu
5,0 og nam því söluandvirði útboðs-
ins_250 milljónum.
Útboðsgengi bréfanna er töluvert
lægra að markaðsgengi þeirra að
undanfömu, en gengi þeirra að und-
anförnu hefur verið á bilinu 6,4-6,5
í viðskiptum á Verðbréfaþingi. í gær
voru kauptilboð í bréfin á bilinu
5,2-6.
Eins og fram hefur komið verður
fjármagninu varið til fjármagna
breytingar á frystitogaranum Amari
HU-1 sem félagið keypti frá Rúss-
landi í desember sl. og til kaupa á
liðlega helmingi hlutafjár í rækju-
verksmiðjunni Hólanesi.
-----» ♦ »----
Vaxtalækk-
*
un hjá Is-
landsbanka
ÍSLANDSBANKI lækkar inn- og
útlánsvexti sína í dag og nemur
lækkunin á bilinu 0,15-0,4%. Kjör-
vextir almennra víxiliána lækka um
0,3% í 8,4% og sama lækkun verður
á kjörvöxtum almennra skuldabréfa-
lána sem verða 8,3% á eftir.
Útlánsvextir eru lægstir hjá Is-
landsbanka eftir þessa lækkun en
Landsbankinn fylgir fast á eftir með
8,5% kjörvexti bæði á almennum
víxillánum og skuldabréfalánum.
Vextir þessara lána hjá Búnað-
arbanka og sparisjóðunum eru lítið
eitt .hærri, en báðar lánastofnanir
lækkuðu vexti sína um síðustu mán-
aðamót.
Innlánsvextir Íslandsbanka lækka
einnig í dag. Vextir á almennum
sparisjóðsbókum lækka úr 0,7% í
0,5% og vextir á vísitölubundnum
reikningum til 12 mánaða lækka úr
3,3% í 3%. Vextir á almennum spari-
sjóðsbókum eru nú hæstir hjá spari-
sjóðunum, þar sem þeir eru 1%, en
lægstir hjá Íslandsbanka.
A vísitölubundnum reikningum til
12 mánaða eru vextir hæstir hjá
Landsbanka og_Sparisjóðum, 3,25%
en lægstir hjá ísiandsbanka, 3%.
Morgunblaðið/Kristinn
Um 80 tonna lyftigeta
EIMSKIP tók í gær í notkun
nýjan hafnarkrana við Sunda-
höfn sem eykur afköst við losun
og lestun skipa til muna. Kran-
inn mun létta mjög á þeim
krana sem fyrir er í höfninni,
Jakanum, en hann hefur verið
í gangi undanfarin 11 ár. Verð
kranans er um 200 milljónir
króna.
„Markmiðið með nýja
krananum er að tryggja sveigj-
anleika og afgreiðsluhraða á
skipum í Sundahöfn þannig að
viðskiptavinir fái sína gáma
sem allra fyrst,“ sagði Hjörleif-
ur Jakobsson framkvæmda-
stjóri hjá Eimskip. „Þetta er
færanlegur hafnarkrani á hjól-
um með um 80 tonna lyftigetu,
en til samanburðar má nefna
að lyftigeta Jakans er 40 tonn.
Við reiknum með því að kran-
inn lyfti 20-25 gámum á klukku-
stund meðan Jakinn lyftir 25-30
gámum. Afkastagetan í Sunda-
höfn eykst því um nær 80%.“
Nokkur umframafkastageta
verður í Sundahöfn með til-
komu nýja kranans, en á móti
kemur aukið rekstraröryggi
með tveimur krönum.
17 milljarðar á lausu á flármagnsmark-
aði vegna innlausnar ríkissjóðs
Samkeppni
á markaðnum
tekin að harðna
SAMKEPPNIN um sparifé lands-
manna fer harðnandi þessa dagana
í tengslum við stóra innlausn á
þremur flokkum spariskírteina rík-
issjóðs nú um mánaðamótin, sam-
tais að fjárhæð um 17 milljarðar
króna. Verðbréfafyrirtækin hafa
verið að auglýsa verðbréfasjóði sína
í tengslum við þessa innlausn að
ógleymdri auglýsingaherferð Lána-
sýslu ríkisins til þess að endurfjár-
magna innlausnina.
Gunnar Helgi Hálfdánarson, for-
stjóri Landsbréfa, segir að það
verði einna helst innlánsstofnanir
og verðbréfasjóðir sem komi til með
að veita ríkissjóði samkeppni um
þessa fjármuni. Hins vegar bendir
hann á að samkeppni verðbréfa-
sjóðanna sé Lánasýslu ríkisins vart
þung í skauti enda fjárfesti sjóðirn-
ir þeim fjármunum sem þeir hafi í
vörslu sinni að langstærstum hluta
í ríkisverðbréfum.
„Virk sjóðastjórnun gengur út á
að reyna að færa sig eftir vaxtalín-
unni eftir því hvort horfur eru á
vaxtahækkunum og vaxtalækkun-
um. Menn telja að þannig megi búa
til aukin verðmæti sem skila sér
síðan til hlutdeildarskírteinishafa
þrátt fyrir að þessir sjóðir hafi
ákveðinn rekstrarkostnað," segir
Gunnar Helgi.
Ekki bara verið að ota
fram eigin sjóðum
Sigurður B. Stefánsson, fram-
kvæmdastjóri Verðbréfamarkaðar
íslandsbanka, segir að vissulega
hafi orðið vart harðnandi sam-
keppni í tengslum við þessa inn-
lausn Lánasýslunnar nú um mán-
aðamótin. Hins vegar felist sú sam-
keppni ekki einungis í því að reyna
að ota fram eigin verðbréfasjóðum
heldur einnig að veita viðskiptavin-
um fyrirtækjanna sem besta þjón-
ustu. Hún geti allt eins falist í því
að hafa milligöngu um kaup á
spariskírteinum á skiptikjörum.
Sigurður segir áberandi að ein-
staklingar séu farnir að huga að
þeim kostum sem í boði séu í tengsl-
um við þessa innlausn. „Við höfum
verið að hafa samband við okkar
viðskiptavini vegna þessa allt frá
því að tilkynnt var um þessa inn-
lausn. Þetta snýst hins vegar ekki
um það hvert peningarnir fara
heldur að veita viðskiptavinunum
ráðgjöf og greiða götu þeirra m_eð
það sem þeir ætla að gera. Eg
hugsa t.d. að meirihlutinn af okkar
viðskiptavinum sem eiga spariskír-
teini í þessum flokkum muni fjár-
festa áfram í spariskírteinum."
Erfltt að etja kappi við
ríkið í markaðssetningu
Brynhildur Sverrisdóttir, fram-
kvæmdastjóri Fjárfestingafélags-
ins Skandia, segir hins vegar að
þar hafi verið afráðið að fara ekki
út í neina sérstaka auglýsingaher-
ferð enda sé erfitt að keppa við
ríkið á þessum vettvangi. „Við get-
um ekki gengið í vasa skattaborg-
aranna til að borga fyrir okkar
auglýsingar. Við höfum auglýst
okkar verðbréfasjóði óháð þessari
innlausn og ég á von á því að við
munum halda áfram á þeim nót-
um.“
Misjöfn viðbrögð við gármagnstekjuskatti og yfirlýsingu Landsbankans
Munum standast samkeppm
VIÐBRÖGÐ banka og sparisjóða
gagnvart hinum nýjum lögum um
fjármagnstekjuskatt sem alþingi
samþykkti í síðustu viku eru nokkuð
misjöfn. Landsbankinn hefur þegar
boðað hækkun innlánsvaxta frá
næstu áramótum í því skyni að
bæta sparifjáreigendum skattlagn-
ingu sem ákveðin var í lögunum.
Aðrar bankastofnanir hafa ekki
tekið slíkar ákvarðanir.
Hallgrímur Jónsson, sparisjóðs-
stjóri Sparisjóðs vélstjóra og for-
maður bankaráðs Sparisjóðabanka
íslands, segir fjármagnstekjuskatt-
inn til mikillar bölvunar fyrir banka-
stofnanir. Sparisjóðirnir hafi barist
gegn þessum skatti og talið hann
óskynsamlegan.
„Við erum alfarið á móti fjár-
magnstekjuskattinum, en það á al-
veg eftir að koma í ljós hvernig
hægt er að bregðast við honum.
Samkeppnin um lántakendur er
hörð og það er ekki hægt að hækka
vexti til þeirra eins og markaðurinn
er í dag. Vaxtamunurinn er orðinn
mjög lítill og hefur stöðugt farið
lækkandi. Það verður því mjög erf-
itt að halda vaxtastigi uppi á innlán-
um. Sennilega verður reynt að
draga úr rekstrarkostnaði enn frek-
ar.“
Hallgrímur bendir á að sparisjóð-
irnir séu með hæstu innlánsvextina
á markaðnum í dag. „Við munum
að sjálfsögðu standa okkur í sam-
keppninni eins og við höfum ævin-
lega gert.“
Aðrir hljóta að svara
vaxtahækkun Landsbanka
Sigurveig Jónsdóttir, blaðafull-
trúi Islandsbanka, segir þá skoðun
ríkjandi innan bankans að það væri
óeðlilegt að lántakendur greiddu
fjármagnstekjuskattinn fyrir spari-
fjáreigendur. „Landsbankinn er
hins vegar mjög markaðsleiðandi
banki og aðrir hljóta að svara þvi
ef hann hækkar vexti. íslandsbanki
mun áfram vera samkeppnishæfur
í vöxtum. Það hefur verið mjög góð
ávöxtun á innlánsfé í íslandsbanka
og þess verður gætt áfram að sam-
keppnisstaðan haldist."
Stefán Pálsson, bankastjóri Bún-
aðarbankans, segir að ennþá hafi
ekki hafi verið fjallað sérstaklega
um álagningu íjármagnstekjuskatts
innan bankans. „Við vöruðum hins
vegar við skattinum og töldum að
hann gæti haft þau áhrif að vextir
hækkuðu í landinu.“
SMnbrú
('Sts&éttatiffoá/
3JA RETTA MÁLTÍÐ
KB. 1 s\s>s\
Veitingastaður vib Austurvöu • Boiidapantanir í síma 56241,55
Harðir
diskar
aco
SKIPHOLTI 17 • 105 REYKJAVÍK
SÍMI: 562 7333 ■ FAxj 562 8622
Erlend
fjárfesting í
sjávarútvegi
VORFUNDUR Útflutningsráðs Fé-
lags íslenskra stórkaupmanna verð-
ur haldinn í Skála á Hótel Sögu
kl. 12 í dag. Á fundinum verður
rætt um fjárfestingar erlendra aðila
í íslenskum sjávarútvegi og munu
þeir Pétur Reimarsson, fram-
kvæmdastjóri Árness hf., og Pétur
Blöndal alþingismaður flytja fram-
söguerindi.
Að erindunum loknum verður
opnað fyrir almennar umræður.
Þátttökugjald með hádegisverði er
2.500 krónur.
I
>
i
>
í
i
i
I
:
>