Morgunblaðið - 11.06.1996, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 23
LISTIR
Snillingar frá Berlín
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
FRÁBÆRIR hljóðfæraleikarar og samstilltir í leik og túlkun,
segir gagnrýnandi Morgunblaðsins um félagana í Fílharmóníska^
kvartettinum frá Berlín.
TONLTST
íslenska ópcran
KAMMERTÓNLEIKAR
Fílharmóníski kvartettinn frá Berlín
lék verk eftir Haydn, Bartók og
Beethoven. Sunnudagurinn 9. júní,
1996.
TÓNLEIKARNIR hófust á svo
nefndum „Reiter“-kvartett í g-moll
op. 74,3 og er hann í flokki með
sex verkum er nefnast „Apponyi“-
kvartettarnir, sem líklega eru
samdir á tímabilinu sem leið milli
heimsókna höfundarins til Lund-
úna. Þessir kvartettar þykja ekki
standa jafnfætis sams konar verk-
um er Haydn samdi á undan (op.
64) og eftir (op. 76), meðal annars
vegna þess að rithátturinn stendur
oftlega nær hljómsveitarrithætti en
kammerrithætti, eins t.d. hvað
varðar einraddað tónferli og áherslu
á samhljóman. Þrátt fyrir þetta má
heyra í þessum verkum skemmtileg
tilþrif í hljómtengslum og tónteg-
undaskiptum. Hægi þátturinn (í
E-dúr) í „Reiter“-kvartettinum þyk-
ir um margt minna á fyrstu kamm-
erverk Beethovens, er var læri-
sveinn meistara Haydns. Það þarf
vart að tíunda neitt sérstaklega í
flutningi Fílharmóníska kvartetts-
ins frá Berlín, allt var þarna vel
gert og af leikandi músíkaliteti.
Mest nýnæmi var í leik meistar-
anna frá Berlín í sjötta og síðasta
strengjakvartettinum eftir Bartók.
Þetta verk er fyrir margra hluta
sakir sérstætt, en þar nálgast Bart-
ók einfaldleikann og samstæðni í
tóntegundaskipan (eins og í fimmta
kvartettinum) en leikur sér jafn-
framt með stríðnislega gamansemi,
sérstaklega í þriðja þættinum.
Fjórði þátturinn er óvenjulegur,
hægur og dapurlegur, enda saminn
við upphaf heimsstyrjaldarinnar
síðari. Leikur félganna frá Berlín
var frábær og þá sama hvort leikið
var með ýmsar skemmtilegar tóntil-
tektir eða dapurleikann.
Það er sérkennilegt, að strengja-
kvartettinn hjá Haydn-Mozart-
Beethoven-Brahms-Bartók er sér-
stök saga, sem varðar stórkostlega
sköpun mikilla listamanna. Efnis-
skráin var því sérlega áhugaverð,
því Beethoven lærði tæknina hjá
Haydn og Bartók var sérlega hænd-
ur að strengjakvartettum Beet-
hovens og hafði þá gjarnan við
höndina og las þá sér til uppbygg-
ingar. Ópus 130 eftir Beethoven,
B-dúr kvartettinn, er annar af svo
nefndu „vitlausu" kvartettunum,
sex strengjakvartettum, sem eru
meðal merkustu tónsmíða meistar-
ans. Þar er tekist á við nýtt tón-
ferli og samskipan mishljóma, nýja
formskipan og óvenjulega og per-
sónulega tilfinningatúlkun. Form-
skipan B-dúr kvartettsins er 6 þátta
og bætir Beethoven við dansi í þýsk-
um stíl (Alla danza tedesca) og
stuttri Cavatínu. Þetta ægifagra
verk var meistaralega vel flutt, en
flytjendurnir, sem allir starfa í Ber-
línar fílharmoíunni, eru Daniel
Stabrawa á 1. fiðlu, Christian
Stadelmann á 2. fiðlu, Neithard
Resa á lágfiðlu og Jan Diesselhorst
á selló, allt frábærir hljóðfæraleik-
arar, samstilltir í leik og túlkun.
Sem aukalög fluttu félagarnir
hluta úr tveimur verkum, fyrst eft-
ir Erwin Schulhoff (1894-1942),
tjékkneskt tónskáld, er lét lífið í
fangabúðum nasista og er þessi
kvartettþáttur hans stórkostleg
andstæða þeirrar vitfirringar, sem
er eins og ógræðanlegur kalblettur
á sögu Þjóðveija. Seinna verkið er
eftir Reger, en hann var kennari
Schulhoffs og með þessum verkum
bundu snillingarnir frá Berlín sam-
an þá stórkostlegu sögu, sem vitnar
um mikilleik mannsins þrátt fyrir
allt og staðfestir þessi heimsókn
tónlistarmannanna frá Berlín, að
þegar upp er staðið, er það listin
sem gerir allt mannfólk að einni
fjölskyldu og að tungutak hennar
er guðlegt að inntaki.
Jón Ásgeirsson
úr sérvalinni amerískri burstaöri bómull eins og
hún gerist best. High Cotton línan frá RUSSELL ATHLETIC
er úr 95% bómull, 5% polyester og er sérlega hlýr og
endingargóður fatnaður og því
Ómissandi í sumarfríið!
Hettupeysa/rennd - Litir: Ljósgrátt, dökkblátt, dökkgrænt
Stærðir: M,L,XL,XXL - Verð kr. 5.990,-
Hettupeysa m/merki - Litir: Grátt, dökkblátt, dökkgrænt
Stærðir: M,L,XL,XXL - Verð kr. 5.990,-
Kíktu á okkur á vefnum
http://www.vortex.is/hreysti
HREYSTI
SKEIFUNNI19 - S.568-1717 LAUGAVEGI51 - S. 551 -7717
SENDUM í PÓSTKRÖFU
Lúxusútgáfa á einstöku tilboði
43
(0
Við vorum að fá til landsins sérstaka lúxusútgáfu af
Volvo 850 station á einstöku tilboðsverði.
Tilboðið er fólgið í því að þú færð frían aukahlutapakka
að verðmæti hvorki meira né minna en 125.799 kr.
I þessum pakka er:
• Líknarbelgur fyrir farþega
• Fjarstýring fyrir samlæsingu
• Toppbogar
• Hlíf yfir farangursgeymslu
Athugið einnig er tilboð
á Volvo 850 sedan.
VOLVO
BIFREIÐ SEM ÞÚ GETUR TREYST
Volvo 850 station kostar með þessum aukahlutum auk ríkulegs
staðalbúnaðar frá aðeins: 2.798.000 8CI*. Sfy V1. sjáifskiptur.
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010