Morgunblaðið - 11.06.1996, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 25
Nanna systir í
Þjóðleikhús-
inu í haust
NANNA SYSTIR eftir Einar Kára-
son og Kjartan Ragnarsson verður
fyrsta verkefni á stóra sviði Þjóð-
leikhússins á næsta leikári. Verkið
var sýnt hjá Leikfélagi Akureyrar
á síðasta leikári.. Andrés Sigur-
vinsson leikstýrir verkinu og með
helstu hlutverk fara Ólafía Hrönn
Jónsdóttir, Jóhann Sigurðarson,
Örn Árnason, Guðrún Gísladóttir,
Pálmi Gestsson, Tinna Gunnlaugs-
dóttir, Vigdís Gunnarsdóttir,
Hjálmar Hjálmarsson, Róbert
Arnfinnsson og Harpa Arnardóttir.
Fyrsta verkefni á Smíðaverk-
stæðinu verður Leitt hún skyldi
verða skækja eftir John Ford í leik-
stjórn Baltasars Kormáks og er
þetta í fyrsta skipti sem Balatasar
leikstýrir verki fyrir Þjóðleikhúsið.
Hópur valinkunnra leikara af yngri
og eldri kynslóðinni fara með aðal-
hluverkin, svo sem Margrét Vil-
hjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðna-
son, Steinn Ármann Magnússon,
Arnar Jónsson, Bríet Héðinsdóttir
og Erlingur Gíslason.
Á litla sviðinu verður haldið
áfram að sýna verk Karls Ágústs
Ulfssonar, I hvítu myrkri, sem var
sýnt tvisvar nú á Listahátíð. Einn-
ig verða teknar upp sýningar á
Þreki og tárum í haust sem sýnt
hefur verið við fádæma vinsældir
á liðnum vetri og sömuleiðis á
Kardemommubænum.
-----»■-»'"♦.—.
Bókmenntaverðlaun
Halldórs Laxness
Á fimmta tug
handrita barst
BÓKMENNTAVERÐLAUN Hall-
dórs Laxness, sem Vaka-Helgafell
stofnaði til í samráði við fjölskyldu
skáldsins, verða veitt í fyrsta skipti
haustið 1996 en dómnefnd um
verðlaunin hefur nú lokið störfum.
Alls bárust tæplega fimmtíu hand-
rit í keppnina og verða úrslit til-
kynnt í haust og sama dag kemur
verðlaunahandritið út hjá Vöku-
Helgafelli. Verðlaunin nema
500.000 krónum en venjuleg höf-
undarlaun bætast við þá upphæð.
Formaður dómnefndar var Pét-
ur Már Ólafsson, bókmenntafræð-
ingur og aðalritstjóri hjá Vöku-
Helgafelli, e_n með honum í nefnd-
inni voru Ástráður Eysteinsson,
prófessor í almennri bókmennta-
fræði við Háskóla íslands, og Guð-
rún Nordal bókmenntafræðingur.
TOiÆOT)
3stk. ástarbækur í pakka
BfldshólOa 20-112 Reykjavfk - Sfml 587 1410
Blað allra landsmanna!
-kjarni málsins!
Reuter
Virðir fyrir
sér Rússana
ÁSTRALSKI listgagnrýnand-
inn Jeremy Eccles virðir fyrir
sér verk eftir Kandinskíj og
aðra framúrstefnumenn á sýn-
ingu, sem nú stendur í Sydney.
Á sýningunni eru módernisma
í rússneskri myndlist gerð skil,
en verkin eru frá tímabilinu
1907 til 1920 og eftir Kand-
inskíj, Rodtsjenkó, Gontsjarova
og Popova, svo einhverjir séu
nefndir. Hafa mörg verkanna
aldrei verið sýnd utan heima-
landsins.
LAR
Funahölða 6 - Simi: 563 4500
TOYOTA
LYFTARAR