Morgunblaðið - 11.06.1996, Page 35

Morgunblaðið - 11.06.1996, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ1996 35 AÐSENDAR GREINAR Reynsla atvinnulífsins af EES og ESB ÞAÐ VELKIST enginn í vafa um mikilvægi utanríkisviðskipta fyrir efnahag okkar íslendinga. Útflutn- ingur vöru og þjónustu nemur lið- lega þriðjungi af landsframleiðslu og þó að það hlutfall sé ekki ósvip- að því sem gerist almennt meðal nágrannaþjóðanna hefur afkoma útflutningsgreina okkar verið ráð- andi fyrir velmegun og lífskjör þjóð- arinnar. Smáþjóð eins og ísland með tiltölulega einhæft atvinnulíf og smáa heimamarkaði á því mikið undir viðskiptum við aðrar þjóðir. Árangur útflutningsgreina okkar ræðst ekki einungis af gæðum þeirra vöru sem við bjóðum, heldur einnig af samkeppnishæfni atvinnu- lífsins og þar með möguleikum þess að keppa við erlenda framleiðslu. Þar skiptir aðgangur að mörkuðum miklu og þær leikreglur sem þjóðir setja sér í viðskiptum hveijar við aðra. Góðu heilli hafa sjónarmið fijáls- ræðis haft undirtökin og hafa mikil- væg skref í þá átt verið stigin með gerð alþjóðasamninga sem hafa að markmiði að auka viðskipti með tollalækkunum og afnámi innflutn- ingshafta. Fyrir okkur íslendinga stendur upp úr aðild að EFTA árið 1972 og stofnun Evrópska efna- hagssvæðisins í ársbyijun 1994. Einhveijir myndu telja GATT- samninginn heyra til þessa hóps, en fram að þessu hefur framkvæmd hans hér á landi verið síst til þess fallin að auka viðskipti milli landa. EES-samningurinn tryggði ekki einungis veruleg tollfríðindi á Evr- ópumarkaði fyrir íslenskar afurðir, heldur býr í samningnum meira öryggi en við höfum áður þekkt, þar sem þjóðir innan EES geta nú leitað réttar síns ef þær telja á sér brotið. Þetta atriði er mikilvægt í samningnum, enda fengu íslend- ingar fljótt að reyna að viðskipta- samningar eru ekki trygging þess að frelsi ríki í viðskiptum, hægt er að beita öðrum leiðum til að viðhalda innflutningsmúrum. Gott dæmi um þetta voru innflutnings- hindranir Frakka skömmu eftir gildistöku EES-samningsins er þeir gripu til margs konar tækni- legra hindrana til að tefja eða koma í veg fyrir afgreiðslu á sjávarafurð- um. Reynsla Norðmanna af EES Hvað sem öllum eft- irlitsstofnunum og dómstólum líður þá er fróðlegt að líta á hvernig fyrirtækjum finnst samningurinn hafa reynst. Ekki alls fyrir löngu könnuðu samtök norskra at- vinnurekenda með hvaða hætti norsk fyr- irtæki yrðu fyrir við- skiptahindrunum við útflutning til Evrópu. Niðurstöður þessara athugana eru ekki síð- ur mikilvægar sökum þess að ísland og Noregur standa bæði fyrir utan ESB eins og kunnugt er og byggja útflutning sinn að verulegu leyti á ákvæðum EES-samningsins. Niðurstaðan var í stuttu máli íslenzku efnahagslífi stafar veruleg hætta af viðskiptahindrunum, segir Guðni Níels Aðal- steinsson, sem hér skrifar um utanríkisvið- skipti, EES og ESB. áfellisdómur yfir EES-samningn- um, því að stærstur hluti norskra útflytjenda, eða um 85%, töldu sig mæta verulegum viðskiptahindrun- um í Evrópu, þrátt fyrir tilurð samn- ingsins. Þetta telja Norðmenn eiga sér tvær skýringar helstar. Annars vegar að hinn sameiginlegi markað- ur sem EES-samningurinn fjallar um sé ekki enn orðinn að veruleika, sé meira í orði en á borði, og hins vegar að EES-samningurinn gangi ekki nógu langt til að gæta norskra hagsmuna. Norðmenn virðast einna helst hafa horn í síðu nágranna sinna Svía. Yfir helmingur svarenda nefnir að varan sjálf, gæði hennar eða vottorð hafi orðið tilefni til við- skiptahindrana, en hafa ber í huga að hluta af þessum atrið- um má telja eðlilegar kröfur markaðarins til vörunnar..Samt er ljóst að verulegar hindranir liggja í því að yfirvöld taka ekki gild norsk vottorð eða viðurkenn- ingar eða hafa sérstak- ar kröfur umfram það sem almennt þekkist. Það kemur kannski ekki á óvart miðað við reynslu íslendinga að Frakkland er eitt þeirra þriggja landa sem oftast var nefnt í þessu samhengi. Þegar norskir atvinnurekendur voru spurðir hvaða atriði þeir teldu vera helstu hindranir í útflutningi sínum nefndu þeir helst tolla, landa- mæraeftirlit og upprunareglur. Samtök norskra atvinnurekenda sögðu þessar niðurstöður sýna að EES-samningurinn tryggði ekki öruggan aðgang að sameiginlegum markaði Evrópuríkja, meðal annars vegna þess hve lítt þekktur samn- ingurinn er meðal ESB-ríkja. Finnskir atvinnurekendur hafa aðra sögu að segja í skýrslu sinni telja norskir at- vinnurekendur EES-samninginn ekki nægjanlegan í viðskiptum sín- um við aðrar Evrópuþjóðir og höfðu reyndar þá skoðun að Noregur ætti betur heima innan ESB. Það er því fróðlegt að kanna reynslu Einna eftir að hafa verið innan veggja ESB í rúmlega eitt og hálft ár. Samtök finnskra atvinnurekenda gerðu nýverið svipaða könnun og systursamtök þeirra í Noregi. Nið- urstöðumar sýna að stór hluti at- vinnurekenda í útflutningsgreinum eða 60%, telur fyrirtæki sín hafa hagnast við aðild Finnlands að ESB. Niðurstaðan var einnig sú að stærri fyrirtæki högnuðust almennt meira en þau smærri. Meginskýr- inguna á bættum rekstrarskilyrðum töldu atvinnurekendur vera þær að aðgangur að sameiginlega markað- inum væri betri, Finnland væri bet- Guðni Níels Aðalsteinsson Aðvöran til Ég tel mér skylt að vara eigendur spari- sparifjáreigenda FJÁRMÁLARÁÐ- HERRA lýðveldisins íslands og þingmenn þess telja lýðveldið svo vel stætt að það hafi efni á að glata lánst- rausti þegna sinna. Á lokadegi þings lýðveld- isins voru samþykkt lög um skattlagningu sparifjár. Slík skatt- lagning gerbreytir for- sendum sparnaðar ein- staklinga ekki aðeins í framtíðinni heldur einnig í fortíðinni. Lýðveldið ísland hefur íjármag'nað halla ríkissjóðs að nokkru leyti með sölu svokallaðra spariskírteina. Til að selja spariskírteinin hafa íjár- málaráðherrar allra tíma notað skattfrelsi sem gulrót. Önnur skuldabréf hafa ávallt verið eigna- skattskyld. Af þeirri ástæðu hefur Ríkissjóður náð betri kjörum en aðrir lántakendur hér á landi. Nú hafa þingmenn með fjármála- ráðherra í broddi fylkingar breytt einhliða þeim samningi sem gerður 4 hefur verið um lánskjör eldri spariskírteina. Lánskjörum er breytt aftur í tímann, þ.e. að áfallnir vextir og verð- bætur frá útgáfudegi spariskírteinanna verða skattlögð '/ið inn- lausn eftir gildistöku laganna 1. janúar 1998. Lánveitendur, eig- endur spariskírtein- anna, eiga aðeins einn kost til að losna undan þessum klækjum. Sá kostur er að innleysa sín spariskírteini fyrir gildistöku laganna. Nú hefur fjármálaráðherra not- fært sér rétt Ríkissjóðs til að breyta kjörum ákveðinna flokka spariskír- teina með innköllun þeirra. í stað innkallaðra spariskírteina eru boðin til sölu eldri spariskírteini með áföllnum vöxtum og verðbótum. Með því að kaupa þessi spariskír- teini eru kaupendur að greiða 10% skatt af áföllnum vöxtum og verð- bótum við kaup spariskírteina beint Vilhjálmur Bjarnason skírteina, segir Vil- hjálmur Bjarna- son, við skiptakjör- um fjármálaráð- herra á „vaxta- kjördegi“ 20. júní. í ríkissjóð enda þótt lokauppgjör fari fram síðar. Þar sem ég er áhugamaður um fijálsan sparnað og löggiltur verð- bréfasali tel ég mér skylt að vara eigendur spariskírteina við skipti- kjörum fjármálaráðherra á „vaxta- kjördegi“ 26. júní. Sparifjáreigendur, Ríkissjóður sem lántaki hefur ákveðið að gefa frá sér lánstraust sitt. Þið eigið annarra kosta völ. Notið þá kosti og gangið ekki í gildru fjármálaráð- herra og hafnið skiptikjörum. Inn- leysið öll ykkar spariskírteini fyrir gildistöku fjármagnstekjuskatts til að losna við afturvirka skattlagn- ingu. Höfundur er viðskiptafræðingur og löggiltur verðbréfamiðlari. ur þekkt en áður og að viðskiptaað- ilar treystu betur landi sem er inn- an ESB en utan. Einnig var nefnt að landamæraeftirlit væri ekki sama hindrunin og áður. Þessar niðurstöður eru í sam- ræmi við lýsingu Norðmanna á sín- um vandamálum en almennt töldu finnskir atvinnurekendur innri markaðinn standa undir þeim vænt- ingum sem þeir höfðu áður en aðild varð að raunveruleika. En engin rós er án þyrna. Þegar finnskir atvinnurekendur voru beðnir að nefna helstu vandamál sem upp hefðu komið eftir ESB- aðildina, var virðisaukaskattskerfið ofarlega á lista. Þetta á sínar eðli- legu skýringar þar sem virðisauka- skattur hefur nýlega verið tekinn upp í Finnlandi og atvinnurekendur eru óvanir þessari skattlagningu. Skrifræðið innan ESB fékk einnig ádrepu, því öll samantekt á tölum fyrir opinbera aðila hefur aukist verulega eftir inngöngu í ESB og töldu atvinnurekendur þessa upp- lýsingaöflun vera verulega íþyngj- andi fyrir rekstur sinn. Viðskiptasamningar sem stuðla að auknum viðskiptum milli landa með afnámi tollmúra og innflutn- ingshafta eru sýnilega ein af undir- stöðum hagvaxtar og velmegunar. Forsenda fyrir sérhæfingu og efna- hagslegri samvinnu eru sameigin- legar leikreglur og því meiri sem samruninn er því auðveldar virðast viðskiptin ganga. Reynsla Norð- manna sýnir að EES-samningurinn dugar skammt ef þjóðir reyna að beita viðskiptaþvingunum, en Finnar, sem eru komnir inn í Evr- ópusambandið, virðast ekki verða varir við þessar hindranir. Spurningunni sem enn er ósvarað er hvort Islendingar geti ásamt Norðmönnum gert samninginn um Evrópskt efnahagssvæði að þeim samningi sem honum var ætlað að vera, þannig að fijálst flæði vöru, þjónustu, íjármagns og vinnuafls verði tryggt. Full ástæða er til að óttast að svo verði ekki. Reynsla Norðmanna er til vitnis um það að brotalöm er á því að þjóðir virði ákvæði samningsins og að fyrir- tækjum sé ókunnugt um tilurð samningsins. Þó að mörg önnur atriði verði að vega og meta þegar kveðið er upp úr hvort hagsmunum íslands sé betur borgið innan eða utan ESB, þá er ljóst að íslensku atvinnulíf stafar verulega hætta af viðskiptahindrunum og verður að líta á það sem eitt lóð á vogarskál- arnar þegar afstaða verður tekin. Höfundur er hagfræðingur VSÍ. BÖKHALDSKERFI STÓLPI fyrir Windows er samhæfður Word og Excel. Sveigjanleiki í fyrirrúmi. KERFISÞRÓUN HF. Fákafeni 11 - Sími 568 8055 ] Óskalisti brúðhjónanna Gjafaþjónnsta fyrir brúðkaupið (yN SILFURBÚÐIN W/ Kringlunni 8-12 •Slmi 568 9066 - Þurfœröu gjöfina - MAPEI múr viðfferðar eim til framtíðar! MAPEI viðurkennt af RB HÚSASMIÐJAN

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.