Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 43

Morgunblaðið - 11.06.1996, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996 43 HANNES ÞORIR HÁVARÐARSON ■4- Hannes Þórir ■ Hávarðarson var fæddur í Reykjavík 28. ágúst 1934. Hann lést á Sjúkrahúsi Reykja- víkur 25. niaí síð- astliðinn og fór út- förin fram frá Foss- vogskapellu 3. júní. Okkur langar til að minnast í nokkrum orð- um vinar okkar og skulum við þá strax koma okkur að orðinu eins og Hannes sagði svo oft, „Sauðurinn þinn, gerðu þetta strax“ og hló um leið dátt því ávallt var stutt í húmorinn. Hannes vildi öllum gott og var vinur vina sinna — hann var skemmtilega glettinn. Við undirrit- uð og Hannes sprelluðum ýmislegt saman sl. sumar. T.d. þegar við þrjú klæddum okkur upp og fórum i bæinn með hárkollur og þú fórst, Hannes, með bláar fjaðrir um háls- inn og í kjól. Svo um nóttina sátum við á túninu hjá Fríkirkjunni að springa úr hlátri — framhaldið var síðan að fara heim í Fossvoginn og fá okkur eitthvað að borða. Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér, hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. Hvað jafnast á við andardráttinn þinn? Hve öll sú gleði er fyrr naut hugur minn er orðin hljómlaus utangátta og tóm hjá undrinu að heyra þennan róm. Hjá undri því, að líta lítinn fót i litlum skóm og vita að heimsins gijót svo hart og sárt er honum fjarri enn, og heimsins ráð sem brugga vondir menn, já, vita eitthvað anda hér á jörð er ofar standi minni þakkargjörð í stundareilífð eina sumamótt. Ó alheimsljós, ó, mynd sem hverfur skjótt. (Halldór Kiljan Laxness.) Jú, ekki voru allir sáttir við okk- ur, við vorum sjálfum okkur verst en réðumst ekki á aðra, hvorki menn né dýr. Þegar ekki voru til peningar til að kaupa það nauðsynlegasta var farið út að vinna á nóttunni til að safna flöskum, svalirnar í Gyðufell- inu voru stundum fullar af dósum og flöskum, svo var hjólað með þetta í endurvinnsluna eftir því sem þörf var á. Hver getur tekið frá okkur þær minningar sem við eigum um þenn- an góða dreng og góða vin, hann mun ávallt lifa í hjarta okkar og minningarnar sem við áttum með honum munu ylja okkur ávallt. Við munum öll hittast aftur því við trúum á líf eftir dauðann. Minningarnar geymum við vel og munu þær lifa á meðan við lifum. Hvernig var nú með giftinguna sl. sumar. Þegar við þrjú mættum, þið tveir uppáklæddir í kjólfötum og frúin með brúðarslörið — allir ættu erfitt með að trúa að slíkt hefði átt sér stað en þegar líða tók á kvöldið fóru nú allir að trúa þessu og voru þá myndavélarnar á lofti og ham- ingjuóskirnar dundu yfir okkur. Við fórum heim um nóttina að springja úr hlátri, okkur tókst að leika á alla. Jæja, elsku vinur, nú er komið að kveðjustund en við gleðjumst yfir minningunni um góðan dreng, þú varst algjör perla. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Innilegar samúðarkveðjur send- um við þér, Dagbjört, Hilmar Þór og elsku Rangar, systkinum og öðr- um aðstandendum öllum. Við kveðjum Hannes með hjart- ans þökk fyrir allt. Minningin um Hannes mun varðveitt með okkur. Með virð- ingu og vinarkveðju. Guðrún Pétursdóttir. Ég sá Hannes Há- varðarson árið 1974 í Veitingahúsinu Glæsibæ, þá orðinn 18 ára gamall. Hann var þar að skemmta sér með Boga Jónssyni og vissi ég þá ekki hvað þeir voru góðir vinir, en Boga þekkti ég að því marki að hann var frændi Dottý- ar sem var besta vinkona unnustu minnar, sem síðar varð eiginkona mín, Ólínu B. Pétursdóttur. Eg man að ég settist við borðið hjá þeim ásamt Dottý og heilsaði ég þá Boga í fyrsta skipti, en þá hafði ég sest í sætið hans Hannesar. Þá veit ég ekki fyrr en fyrir aftan mig stendur Hannes og klappar á öxl mína um leið og hann segir við Boga: „Það verður bara allt að vera naglfast! Þegar þeir eru nú farnir að stela stólunum undan manni líka“. Ég ætlaði að standa upp en hann ýtti mér niður í sætið og sagði: „Sittu kjur“ og svo hló hann og horfði á mig brosandi, síðan var hann þotinn út á gólf og farinn að dansa. Þessu brosi gleymi ég aldrei, þessi maður var greinilega úti að skemmta sér. Síðan kynntist ég Hannesi 1976 og tókst þá með okk- ur ævarandi vinátta. Hannes var traustur og tryggur vinur. Hann var húmoristi fram í fingurgóma og hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kom. Hannes var sú manngerð sem fýlgdist vel með atburðum líðandi stundar, hann var vel lesinn og vel að sér í þáttum þjóðlífsins. Það var hægt að tala um alla skapaða hluti við Hannes, hann var ótæmandi uppspretta fróðleiks. Hannes var fljótur að kynnast fólki, það var alltaf líf í kringum hann og fólk sóttist eftir félagsskap hans. Það kom mér alltaf jafnmikið á óvart hvernig Hannes spilaði úr hlutunum, það kom honum ekkert á óvart, hann var alltaf rósemin uppmáluð sama hvað gekk á. Hann hélt alltaf höfði og það segir mikið um þennan sómasvein. Þú kenndir mér, vinur minn, að vera ekki bitur út í lífið. Þú kenndir mér svo margt Hannes, þegar við sátum heima í stofu hjá þér og þú spurðir allt í einu: Stebbi, hvað áttu marga vini? og ég svaraði hvort ég ætti að vera í allan dag að telja þá upp. Þá hló sá gamli og sagði mér að hugsa málið, og þegar ég taldi upp nokkur nöfn greip hann fram í fyrir mér og sagðist ekki hafa verið að spyrja um drykkjufé- laga heldur vini og svo kallaði hann mig, góðlátlega, sauð. Þegar ég sá að ég gat talið vinina á fingrum annarrar handar fannst mér þeir fáir, og spurði hann: en þínir? Ég tel þá líka á fíngrum ann- arrar handar, við erum bara heppn- ir Stebbi minn, því hvað heldur þú að sé mikið til af fólki út um allan bæ sem býr í kjöllurum eða uppí burst og er bláfátækt og á enga vini. Hann vissi hvað hann sagði og ég vissi hvað hann meinti. Hannes vann bæði til sjós og lands en lengst af vann hann hjá Slippfélaginu í Reykjavík eða frá 1973-1989, með smá hléum frá. Hannes var vel liðinn jafnt á vinnu- stað sem utan og af öllum sem umgengumst hann. Ég heyrði hann aldrei kvarta, hvað sem á móti blés, og var þó líf hans ekki allt dans á rósum. Ég heyrði heldur aldrei neinn tala illa um Hannes og segir það mikið um persónuna Hannes Há- varðarson. Ég gleymi aldrei jólunum sem við áttum saman, (þau jólin var bara íslensk kjötsúpa og Camembert og eitt kerti á milli okkar, drukkið Egils jólaöl og allt á kostnað kaupfé- lagsins. Það eru yndislegustu jól sem ég hef lifað. Eg stend við allt sem ég lofaði þér þegar ég vissi hvert stefndi). Þú einn veist hve sárt ég sakna þín, ég minnist þín eins og ég þekkti þig. Og með þessum fátæklegu orð- um kveð ég þig, elsku besti vinur minn, og minningarnar geymi ég í hjarta mér. Ragnar minn, Ragnheiður, Hilmar, Diddi, Bogi, Didda, Frissi og Gurra. Og Dagbjört Hulda og Agnar. Ykkur votta ég mína dýpstu samúð. Sigurður Stefán Almarsson. MAGNEAINGILEIF SÍMONARDÓTTIR + Magnea Ingileif Símonar- dóttir fæddist í Hafnarfirði 14. október 1908. Hún lést á St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 29. maí síðastliðinn og fór út- förin fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði 6. júní. Hún bauð af sér góðan þokka. Þessi staðhæfing kemur fyrst og síðast upp í hugann þegar samveru- stundir með Magneu eru rifjaðar upp. Ég fékk tækifæri til að kynn- ast Magneu er ég hóf sambúð með Guðmundi, barnabarni hennar. Þá bjó hún á Hrafnistu í Hafnarfirði ásamt Sigurði, manni sínum. Það er erfitt að koma áhrifunum sem hún hafði í orð. En með hóglæti sínu og innri reisn vakti þessi gamla kona áhuga minn. Mér fannst gam- an að koma til hennar og það fannst barnabarni hennar líka. Við rennd- um stundum við þegar ég sótti Onnu Guðrúnu á leikskólann og hún var komin upp á lag með að segja „Fara til Magneu langömmu" þó að orðaforðinn væri ekki stór. Lang- amma fann alltaf eitthvað sem mátti leika sér með og svo átti hún mola í skjóðu handa litlum munni. Það var gaman að setjast niður og ræða við Magneu. Hún hafði frá mörgu að segja úr liðinni tíð. Það var áhugavert að heyra um forna lífshætti en þó fannst mér merkileg- ast að heyra hvernig hún hafði glímt við og fundið sér farveg í þröngum aðstæðum þar sem nútíma lífsþægindi og lausnir skorti. Ég dáðist að langlundargeði hennar og hæfileika að aðlaga sig aðstæðum. Þegar hún missti sjónina að mestu leyti kom jafnaðargeð hennar vel í ljós. Hún kvartaði ekki hátt. Henni fannst reyndar óþægilegt að geta ekki lesið lengur. En fyrr en varði var hún búin að læra á nýjar að- stæður. Hún nýtti sér strax aðstoð Blindrafélagsins. Fékk sendar spól- ur með fréttum og skáldsögum. Innan nokkurra mánaða fór hún aftur að mála á tau þó að sjónin væri mjög takmörkuð. Þannig var Magnea, aldrei kvartsár, alltaf hóg- vær, elskuleg, jákvæð, eftirtektar- söm og viðræðúgóð. I þögn sinni og lítillæti lét hún þó engan vaða yfir sig. Hún vildi hafa sitt rými og skapaði sér það. Hún var mjúk eins og vatnið sem þó holar stein- inn. Líklega vissi hún ekki af því veganesti sem hún gaf mér, því þegar ég reyndi að koma því að dró hún úr öllu saman eins og hóg- værra er siður. Ég hef lært mikið af jákvæðu viðhorfi hennar og vil þakka það. Nú er Magnea gengin á vit feðra sinna, horfin okkur, en þokki henn- ar og hógvær reisn sitja eftir í minn- ingunni. Lærdómurinn sem af lífs- afstöðu hennar má draga, verður ekki frá þeim tekið sem það nam. Fjölskylda min er þakklát fyrir kynnin af þessari merkilegu konu og viljum við votta öllum syrgjend- um hennar samúð. Bára Friðriksdóttir og Guð- nmndur Ásmundsson. SOFFÍA GUNNARSDÓTTIR + Soffía Gunnarsdóttir fædd- ist á Bankastöðum á Tjör- nesi 27. september 1940, en ólst upp í Vestaralandi í Axarfirði. Hún lést 2. júní síðastliðinn og var útförin gerð frá Skeggja- staðakirkju 8. júní. Elsku Soffía. Mig langar að skrifa þér lítið bréf og þakka þér fyrir alla hlýjuna og hjálpsemina í desember 1993 þegar við lágum saman á Fjórð- ungssjúkrahúsinu á Akureyri. Ég fór í aðgerð á fæti og mátti ekki stíga í fótinn svo ég var í hjóla- stól. Ég var svo heppin að lenda á stofu með þér. Við náðum strax saman og urðum perlu vinkonur, þú varst alltaf boðin og búin að keyra mig um allt og meira en það, og manstu þegar við vorum að æfa okkur á kvæðinu um Stebba strý og svo var þetta allt vitlaust einsog við vorum búnar að hafa fýrir því að læra að bera nafn læknisins okkar rétt fram. Og svo fyrripart- inn, sem við sömdum og fórum með í kjallaranum til að láta botna. Allt var þetta svona, við héldum uppi fjöri á stofunni og á öðrum stofum. Þetta er ógleymanlegur tími, sem við áttum saman. Elsku Soffía mín, ég vil þakka þér allt. Hvíl þú í friði. Aðstandendum vil ég senda mín- ar innstu samúðarkveðjur. Gréta Guðvarðardóttir, Akureyri. Frágangur afmælis- og minningargreina Mikil áhersla er lögð á, að handrit séu vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Það eykur öryggi í textameðferð og kemur í veg fyr- ir tvíverknað. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCII skráa sem í daglegu tali eru nefndar DOS-textaskrár. Þá eru ritvinnslukerfin Word og WordPerfect einnig nokkuð auðveld úrvinnslu. Það eru vinsamleg tilmæli blaðsins að lengd greina fari ekki yfir eina örk a-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd - eða 2.200 tölvuslög Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Elskuleg móðir mín, tengdamóðir og amma, SIGURLAUG SIGURJÓIMSDÓTTIR frá Norðfirði, sem lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann 3. júní, verður jarðsungin frá Fossvogs- kirkju miðvikudaginn 12. júní kl. 15.00. Jarðsett verður í Fossvogskirkjugarði. Sigurlaug Jóhannsdóttir, Guðmundur Kjartansson, Jóhann Örn Guðmundsson, Hólmfríður Sunna Guðmundsdóttir, Kjartan Guðmundsson. t Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ÁRNA JÖSEPSSONAR. Einnig þakkir til séra Flóka Kristinssonar fyrir hlýhug og ómetan- legan stuðning. Guð blessi ykkur öll. Guðrún Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Lokað Vegna jarðarfarar SVAVARS GUÐBRANDSSONAR, rafvirkja, verða skrifstofur okkar lokaðar eftir há- degi í dag, þriðjudaginn 11. júní. Rafiðnaðarsamband ísiands, Lífeyrissjóður rafiðnaðarmanna, Rafiðnaðarskólinn, Ákvæðisvinnustofa rafiðna. Lokað vegna jarðarfarar ERLENDAR ERLENDSSONAR, fyrrverandi leigubifreiðastjóra, verður lokað eftir hádegi miðvikudaginn 12. júní. ísloft blikk- og stálsmiðja ehf., Bíldshöfða 12, Reykjavík.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.