Morgunblaðið - 11.06.1996, Síða 60
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SIMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181,
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.IS / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚNÍ 1996
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Þéttingar héldu
Ronaldo
sirkusinn
er kominn
FYRSTA sýning Ronaldo sirk-
ussins hefst í kvöld klukkan
20. í gær voru hinir belgísku
sirkuslistamenn að koma sér
fyrir í Hljómskálagarðinum og
æfa nú af kappi fyrir kvöldið.
Sirkus Ronaldo er hér á vegum
Listahátíðar í Reykjavík og
mega borgarbúar eiga von á
að Ronaldo-fjölskyldan setji
svip sinn á bæinn meðan á
dvöl hennar stendur.
Flosi IS er í togi á leið til lands og hallar 40 gráður á sljórnborða
Morgunblaðið/Golli
Nokkur strekkingur var þegar
óhappið varð, en Sævar segir að fljót-
lega hafi lægt og í gær verið mjög
gott veður. Börkur hélt sjó við hlið
Flosa, en varðskipið Týr kom að skip-
unum í gær klukkan 12:02. Þá var
vaxandi halli á Flosa og skipið
þyngra en áður. Dýpstu velturnar
voru um 50° og fór sjór upp á milli-
þilfar og brúardekk. Klukkan 13.20
hafði varðskipsmönnum tekist að
koma taug í skipið og hélt Týr áleið-
is til íslands með Flosa í togi, með
stefnu á Dalatanga, en um tveggja
sólarhringa sigling er til lands. í gær
virtist Flosi velta minna í drættinum,
en hann rétti sig einnig hægar við
úr veltunum.
„Það var tekin sú ákvörðun að
reyna að koma skipinu til íslands og
við vonum að það takist. Það héldu
Síldveiðiskipið Flosi
ÍS-15 lagðist á hliðina
í færeyskri lögsögu.
Varðskipið Týr er nú
með Flosa í togi
áleiðis til íslands.
SÚdar-
hafið
ÍSLAND
FÆREY AR
TÍU manna áhöfn Flosa ÍS 15 komst um borð í Börk NK 122 þegar
Flosi lagðist á stjórnborðshliðina um kl. 19.30 á sunnudagskvöld.
Verið var að dæla síld úr nótinni hjá Berki yfir í lestar Flosa og
voru 50-60 tonn komin í þær þegar skipið hallaðist skyndilega. Áhöfn-
in sá þann kost vænstan að forða sér. Ein hugsanlegra skýringa er
að skilrúm hafi gefið sig og farmurinn færst til í lestinni.
Óhappið varð á síldarmiðunum í
færeysku lögsögunni, um 130 mílur
frá Færeyjum. „Flosi hefur verið á
síldveiðum og var búinn að fá um
hundrað tonn,“ sagði Sævar Birgis-
son, útgerðarstjóri Bakka í Hnífsdal.
Bakki á meirihlutann í útgerðarfé-
laginu Græði hf. á Bolungarvík, sem
er eigandi Flosa. „Börkur var búinn
að fýlla sig og var að gefa Flosa
síld úr nótinni, þegar skipið hallaðist
á stjórnborða. Allir menn voru á
dekki og skipið stöðvaðist í fjörutíu
gráðu halla. Til að gæta fyllsta ör-
yggis var ákveðið að áhöfnin færi
frá borði og gekk mönnunum mjög
greiðlega að komast yfir í Börk, þar
sem fór vel um þá.“
FLOSI ÍS 15.
allar þéttingar, en við vildum ekki
að menn hættu sér um borð,“ segir
Sævar.
Haraldur Einarsson, skipstjóri á
Flosa, er um borð í Tý og fylgir skip-
inu til hafnar, en aðrir í áhöfninni
eru um borð í Berki, á leið til Nes-
kaupstaðar og er áætlað að þangað
komi þeir síðar í dag.
Áhöfnin komst heilu og-
höldnu um borð í Börk
Hurð á leiguflugvéi Péturs Kr. Hafstein og fjölskyldu rifnaði upp 15.000 feta hæð
„Hélt að það væri
okkar síðasta“
Morgunblaðið/Sverrir
PÉTUR Hrafn, Pétur Kr. Hafstein og Hlynur Valsson báru sig
vel í gær eftir svaðilför helgarinnar yfir Snæfellsjökul, en dreng-
irnir segja ótta hafa gert vart við sig við atvikið.
„FLUGVÉLIN hristist öll og
skalf, datt niður og reis aftur.
Síðan rifnaði hurðin upp. Ég var
logandi hrædd og hélt að þetta
væri okkar síðasta," segir Inga
Asta Hafstein. Hún var í sex
manna leiguflugvél ásamt Pétri
Kr. Hafstein eiginmanni sínum
og forsetaframbjóðanda, Pétri
Hrafni syni þeirra og Hlyni Vals-
syni vini hans á leið á framboðs-
fundi á Snæfellsnesi þegar hurð
vélarinnar opnaðist skyndilega.
Flugvélin var á leið frá
Reykjavík að Rifi á Snæfellsnesi
og í um fimm þúsund feta hæð
yfir Snæfellsjökli lenti hún í
uppstreymi sem olli því að vélin
lék á reiðiskjálfi, að sögn Pét-
urs. Drengirnir tveir eru átta
og tíu ára og sátu við hlið hurð-
ina, en Pétur og Inga í sætunum
fyrir aftan þá.
Ekki langur umhugsunartími
Pétur Kr. teygði sig sam-
stundis fram, greip í hurðina og
lokaði henni með snöggu átaki.
Hann varð síðan að halda henni
í falsinu í rúmar tíu mínútur
áður en vélin lenti á flugvellin-
um á Rifi eftir krappt aðflug.
„Þetta var ónotaleg lífsreynsla
meðan á henni stóð. Hurðin
þeyttist upp á gátt og þegar
maður horfir út í himingeiminn
er ekki langur tími til umhugsun-
ar. Ég sat það nærri hurðinni að
ég hafði tök á að grípa í hand-
fang hennar og hélt henni síðan
fastri þar til við lentum. Þetta
var töluvert átak til að byija með
því að mótstaðan er mikil á flugi
í þessari hæð, en síðan lagðist
hurðin að og takið varð Iéttara,“
segir Pétur Kr. Hafstein.
„Ekki má gera úlfalda úr
mýflugu og ég held að við höfum
verið í öruggum og góðum hönd-
um. Flugmaðurinn er reyndur í
starfi og í raun var kannski eng-
inn lifsháski á ferðum, en þetta
er atvik af því tagi sem fæstir
vilja reyna.“
Hlynur sat við hurðina og
kveðst hafa brugðið illa þegar
hurðin hrökk upp.
Aldrei aftur í litla flugvél
„Ég var í belti því vélin hrist-
ist mikið og síðan fauk hurðin
upp allt í einu. Ég var svolítið
hræddur fyrst en fór síðan að
róast eftir að Pétur lokaði hurð-
inni,“ segir Hlynur og þakkar
snarræði hans að ástandið varð
ekki verra.
„Ég ætla aldrei aftur í svona
litla flugvél og var feginn að við
keyrðum til Reykjavíkur í stað
þess að fljúga." Pétur Hrafn tek-
ur í sama streng.
„Það kom kaldur strókur inn
í vélina þegar hurðin opnaðist
og ég var hræddur meðan þetta
gerðist, en núna finnst mér þetta
vera ævintýri og er ekkert flug-
hræddur," segir hann.
Pétur Kr. kveðst ekki hafa
fengið aðrar skýringar á að
hurðin opnaðist en að ókyrrð var
mikil. Ómögulegt sé að segja
hvort hurðinni hafi verið illa
lokað, en hann voni sannarlega
að óhapp sem þetta sé ekki dag-
legt brauð.
„Vanir menn segja að við höf-
um ekki verið í lífshættu, en
undir kringumstæðum sem þess-
um finnst manni ógnin meiri en
hún kannski meiri er í raun,“
segir Inga Ásta.
Smugndeilan
Vildu gagn-
kvæmar
veiðiheimildir
ENN hefur slitnað upp úr viðræð-
um íslands, Noregs og Rússlands
um samkomulag um veiðar okkar
Íslendinga í Barentshafi.
Þjóðirnar funduðu í Ósló um
helgina og voru bundnar töluverð-
ar vonir við samkomulag, sérstak-
lega eftir óformlegar viðræður
ráðamanna hér heima við sjávar-
útvegsráðherra Rússa. Sam-
kvæmt þeim var talað um ákveð-
inn kvóta í Smugunni og síðan
frekari þorskveiðiheimildir innan
lögsögu Rússa og að þeir fengju
heimildir til loðnuveiða hér við
land í staðinn. Norðmenn vildu
þá að hluti veiðiheimilda okkar í
Barentshafi yrði tekinn í norskri
lögsögu og á móti fengju þeir
veiðiheimildir innan lögsögu okk-
ar. Fyrir vikið gekk ekki saman
með þjóðunum þremur.
„Það kom á daginn, að það sem
rússneski sjávarútvegsráðherrann
hafði opnað fyrir í óformlegum
viðræðum við okkur heima á ís-
landi, stóðst ekki fyllilega og átti
það aðallega við um afstöðu Norð-
manna,“ sagði Þorsteinn Pálsson
sjávarútvegsráðherra.
■ Norðmenn kröfðust/18