Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 28
28 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ1996 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ1996 29 piinrgwMalii STOFNAÐ 1913 UTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. AÐ LOKNUM FOR- SET AKOSNIN GUM ÞEGAR þetta tölublað Morgun- blaðsins kemur fyrir augu les- enda er ýmist skammt í að kjörstöð- um vegna forsetakosninga verði lokað eða að úrslit í kosningunum liggja þegar fyrir. Þótt mörgum hafi þótt mikil harka í kosningabar- áttunni að undanförnu er það senni- lega rétt, sem fram kom hjá einum frambjóðendanna í sjónvarpsum- ræðum í fyrrakvöld, föstudags- kvöld, að þrátt fyrir allt hafi kosn- ingabaráttan verið hófsamari en oftast áður. Þeim, sem muna forsetakosning- arnar 1952, ber saman um, að þær séu hinar hörðustu, sem háðar hafa verið til þessa. Þar kom margt til. Stjórnmálabaráttan var þá gífur- lega hörð á dimmustu dögum kalda stríðsins. Stjórnmálaflokkar klofn- uðu í afstöðu til frambjóðenda. Allt stuðlaði þetta að harkalegri kosn- ingabaráttu. Forsetakosningarnar 1968 voru einvígi milli tveggja frambjóðenda og mótuðust að hluta til af því. Þær fóru einnig fram á miklu umróta- tímabili, sem gekk yfir öll Vestur- lönd og teygði anga sína hingað eins og til annarra landa í þessum heimshluta. í því návígi sem hér ríkir eru kosningar, sem snúast í svo ríkum mæli um einstaklingana sjálfa, sem í framboði eru, eins og forsetakosn- ingar gera, óhjákvæmilega mjög harðvítugar. Umtalið um einstaka frambjóðendur manna á meðal verður stundum grimmt og þess hefur gætt í vaxandi mæli síðustu daga, að baráttuaðferðirnar hafa ofboðið ýmsum. Auglýsingar, sem beint var gegn einum frambjóðenda og birtust hér í blaðinu á fimmtudag og föstudag, hafa verið mikið til umræðu. í for- ystugrein Morgunblaðsins í fyrra- dag var gerð grein fyrir afstöðu blaðsins til birtingar þeirra og skal ekki endurtekið hér. Á hinn bóginn eru það ekki ein- ungis þessar auglýsingar, sem hafa valdið stjórnendum Morgunblaðsins áhyggjum síðustu daga heldur ekki síður talsmátinn í þeim aðsendu greinum og bréfum, sem blaðinu hafa borizt undanfarnar vikur. Við birtingu þessara greina og bréfa hefur ritstjórn Morgunblaðsins teygt sig býsna langt og stundum að yztu mörkum meiðyrðalöggjafar í þágu tjáningarfrelsis. Það er hins vegar alvarlegt umhugsunarefni hvers vegna ekki er hægt að takast á í kosningum án þeirra stóryrða í garð andstæðinga, sem einkenna þessi greinaskrif. Nú skal tekið fram, að þótt mörgum þyki nóg um gífuryrði í garð andstæðinga í þeim greinum og bréfum, sem birzt hafa í blaðinu hefur Morgunblaðið neitað að birta allmargar greinar og bréf, sem hafa farið langt út yfir öll mörk í þessum efnum. Þegar blaðið hefur verið sakað um að birta ekki greinar eða bréf, eins og fram hef- ur komið hjá einstökum greinarhöf- undum síðustu daga, er ástæðan í öllum tilvikum sú að viðkomandi texti hefur ekki verið birtingarhæf- ur vegna persónulegra svívirðinga um andstæðinga greinarhöfunda eða bréfritara. Þess hefur gætt, að stuðnings- menn einstakra frambjóðenda hafi kvartað undan því, að of fáar grein- ar hafi birzt til stuðnings þeirra frambjóðanda en of margar til stuðnings öðrum og að jafnræðis hafi ekki verið gætt. Því er til að svara, að ritstjórn Morgunblaðsins stjórnar því á engan hátt hversu margar greinar berast blaðinu til stuðnings eða í andstöðu við ein- staka frambjóðendur. Þetta efni er birt ef það uppfyllir þau skilyrði, sem að framan voru rædd. Þá hefur það einnig komið fram, að lesendur átta sig ekki á því hvernig aðsent efni er flokkað í blaðinu og telja af þeim sökum, að um mismunun sé að ræða á milii greinarhöfunda. Segja má, að um fjóra flokka sé að ræða. í fyrsta lagi almennar aðsendar greinar, sem birtar eru með mynd af höf- undi. Gert er ráð fyrir, að þær greinar fari ekki fram úr ákveðinni lengd. í öðru lagi Bréf til blaðsins, sem eru birt í sérstökum dálki og yfirleitt mun styttri. í þriðja lagi lengri greinar, sem birtast í sunnu- dagsblaði í þætti, sem nefnist Skoð- un. Þar birtast einnig myndir af höfundum. í fjórða lagi greinar- gerðir um sérstök málefni en með þeim eru ekki birtar myndir af höf- undum, enda eru slíkar greinar- gerðir oft frá samtökum eða stofn- unum. í tengslum við forsetakosningar voru birt styttri bréf í sérstökum dálki sem auðkenndur var forseta- kjöri. Ennfremur aðsendar greinar auðkenndar forsetakjöri og loks greinargerðir varðandi forsetakjör, sem birtust frá nokkrum aðilum og þá undir sömu formerkjum og aðrar greinargerðir. Ástæðan fyrir því að þetta er rakið hér er sú, að í hita leiksins hefur fólk ekki áttað sig á þessari skiptingu og talið af þeim sökum, að um mismunun á milli greinarhöf- unda og einstakra frambjóðenda væri að ræða. Morgunblaðið hefur hins vegar lagt áherzlu á tvennt í þessum for- setakosningum: í fyrsta lagi að blaðið hefur ekki tekið afstöðu til einstakra frambjóðenda og í öðru lagi að blaðið hefur verið opinn vettvangur fyrir greinar, bréf, greinargerðir og auglýsingar varð- andi forsetakjör. í þessum efnum hefur rík áherzla verið lögð á að jafnræði ríki á milli allra aðila. Við það hefur Morgunblaðið staðið og telur sig geta fært fullgild efnisleg rök fyrir þeim ákvörðunum, sem teknar hafa verið um einstök álita- mál. Það er ljóst af viðbrögðum fólks í hvert sinn, sem tekizt er á í kosn- ingum, ekki sízt þegar um er að ræða kosningar, sem snúast fyrst og fremst um persónur, að mörgum þykir nóg um hversu langt er geng- ið í slíkum umræðum. Það má vera nokkurt umhugsunarefni þeim, sem taka þátt í þeim á opinberum vett- vangi. í þessum efnum sem öðrum er almenningsálitið mikið og nauð- synlegt aðhald. HVERNIG skyldi maðurinn muna það sem meistarinn sagði ekki? Hann á að gruna það. Svo segir í Pétri Gaut, eftir minni. Þetta minnir mig á nýtt óbirt kvæði eftir Kristján Karlsson sem hann sendi mér og er einskonar svar við erindi mínu við hann áður, nokkrum kvæðum. Kvæði Kristjáns er svohljóðandi: Því sem drepur á dreif dagurinn, kvðldið nær aftur að sópa upp eins og af vötnum inn alifugl sem hvarf hátíðleiki heim hnappast að um kvöld allt eins og ævi þín Eyvindur og verk „eitthvað sem ekkert var annað en þetta tvennt hleðst upp sem merking mín?“ merking mín og þín „væri ég þetta þvogl? nei þakka þér fyrir, nei“ jafnvel þín hlýrri hiið? jafnvel mín verstu verk" HELGI spjall varstu þá aldrei neitt? „ég er að lokum eitt: allt sem ég fyrir var þó ekki þetta tvennt þakka þér aftur. Nei. Ekkert sem annar veit ekkert sem kom í Ijós ekkert sem eftir varð“ ég er hættur að skilja. En heyr! Eyvindur getur ekki verið tilvilj- un. Skáldið notar nöfn í kvæðum sínum og þau þurfa ekki að merkja neitt sérstakt en stundum vísa þau veginn. Hér er nafnið ákjósanlegur vegvísir þótt skáldið hafi ekki Fjalla-Eyvind í huga þegar hann yrkir kvæðið. I því er fjallað um höfund og annað sjálf, þetta er auðvitað sama persónan. Hún er að gera upp við sig, meta í hnot- skurn tilgang og mikilvægi lífsins; verk og ævi. En það er ekki höfuð- atriðið í lífí okkar hvaða lífi við höfum lifað eða hvaða verk við höfum unnið. Annað er mikilvæg- ara, það sem aðrir vita ekki og við tölum ekki um við aðra. Ekkert sem annar veit, segir í kvæðinu. Það skiptir öllu máli, það eitt. Hvorki titlar né veraldlegt prjál svonefnt, heldur það sem er satt í lífi okkar. Það er innsti sannleikur- inn um okkur sjálf sem einn skiptir máli þegar upp er staðið. Um hann er ekki skrifað í minningagreinum og hann er ekki tíundaður í Sam- tímamönnum, því enginn þekkir hann nema við sjálf. Við ein. 0g um hann er ekki talað, einfaldlega vegna þess að hann er viðkvæmur og dýrmætur leyndardómur sem við eigum ein. Og deilum ekki með öðrum. Ekki frekar en Fjalla- Eyvindur sem ræktaði með sér þennan sannleik án þess hann fleipraði um það við aðra. Þessi sannleikur var hvorki ævi hans sem þótti heldur brösugleg né verk hans sem voru ekki endilega nein góð- verk; heldur ástin í brjósti hans sem allir blésu á. Hún gerði hann að utangarðsmanni í allra augum en í augum hans sjálfs var hún kjarninn í sjálfu uppgjörinu, sannleikurinn sem allt líf hans snerist um. And- stæðurnar sem leiddu til einnar nið- urstöðu. Það er þessi utangarðsást sem er fagnaðarerindið í lífi okkar, þessi einmana sannleikur, án skilnings, án þjóðfélags — um hann er skáld- ið að yrkja. Hið þjóðsögulega hjartalag sem Guð horfir á þegar hann kveður upp dóminn mikla á efsta degi. En enginn þekkir for- sendur þessa dóms nema hann — og við sjálf. Og það er þess vegna sem við trúum á Guð. Hann þekkir okkur og mundi aldrei dæma okkur á röngum eða óviðkomandi forsend- um. M. REYKJAVIKURBRÉF BANDARIKIN og KÍNA náðu um miðjan mánuð- inn samkomulagi er kom í veg fyrir við- skiptastríð milli ríkj- anna. Bandaríkjastjórn hafði boðað refsiaðgerð- ir gegn Kína ef ekki yrði gripið til aðgerða vegna víðtækra brota á höfunda- og einkarétti og Kínveij- ar hótað að svara í sömu mynt. Deila þessi hafði staðið í rúmt ár en á síðustu stundu náðist málamiðlun þar sem Kínveijar skuldbundu sig m.a. til að loka verk- smiðjum er m.a. framleiddu hugbúnað og geisladiska í trássi við höfundarétt. Viðskiptastríð milli Kína og Bandaríkj- anna hefði haft alvarlegar afleiðingar fyr- ir heimsviðskipti. Þótt því hafi verið af- stýrt í bili eru mörg deilumál milli ríkjanna á viðskiptasviðinu enn óleyst. Pólítískar deilur vegna hótana Kína í garð Tævan, vopnasölu og stöðu mannréttindamála hafa ekki orðið til að auðvelda lausn þess- ara deilna, ekki síst á kosningaári í Banda- ríkjunum. Þá torveldar það alla viðskiptasamninga við Kína að ríkið á ekki aðild að Heimsvið- skiptastofnuninni (WTO) og þeim alþjóð- legu viðskiptasamningum á borð við GATT er tengjast henni. Óvíst er hvenær af að- ild Kína getur orðið þó svo að umsókn um slíkt liggi fyrir. Kína er fjölmennasta ríki veraldar og hagvöxtur hefur verið ótrúlegur þar á síð- asta áratug. Stór svæði ríkisins er varla hægt að flokka lengur með þróunarríkjum heldur miklu frekar með „tígrum“ Suð- austur-Asíu. Flest bendir til að Kína eigi eftir að verða efnahagslegt stórveldi á næstu áratugum, bæði vegna hinnar öru þróunar efnahagsmála sem innlimunar Hong Kong á næsta ári. Það fer því að verða brýnt hagsmuna- mál annarra ríkja að Kínveijar gerist aðil- ar að hinu alþjóðlega viðskiptaumhverfi með formlegum hætti. Þar með væri hægt að skjóta deiluefnum til Heimsviðskipta- stofnunarinnar í stað þess að hóta við- skiptastríði. Eigi það að gerast verða Kínveijar hins vegar að fylgja þeim reglum sem þar gilda og búa fyrirtækjum sem stunda viðskipti í eða við Kína upp á eðlileg skilyrði. Höf- undaréttardeilan við Bandaríkin er greini- lega til marks um að nokkur bið verður á því að Kínveijar verði undir WTO-aðild búnir. Kínversk stjórnvöld sögðust vera sammála Bandaríkjamönnum í deilunni en jafnframt að erfitt væri að hafa eftirlit með öllu í þetta stóru og fjölmennu ríki þar sem þróunin væri jafnör og raun ber vitni. Þótt ýmislegt kunni að vera til í því má þó á móti benda á að Kínveijar hafa til þessa ekki verið í vandræðum með að fylgjast með pólitískri starfsemi í landinu. Deilan við Kína er hins vegar ekki eina viðskiptaorustan sem Bandaríkjastjórn hefur háð upp á síðkastið og má nefna fjölmörg ágreiningsatriði við Japani í því sambandi. Á síðasta ári lá við viðskipta- stríði við Japan vegna innflutnings banda- rískra bifreiða þangað eh því tókst að af- stýra á síðustu Stundu. Á mörgum öðrum sviðum hafa á síðustu mánuðum komið upp deilur á milli Banda- ríkjastjómar og annarra ríkja vegna við- skiptamála þó svo að þær deilur hafi ekki ávallt vakið jafnmikla athygli og deilurnar við Kína og Japan. Bandaríkin hafa verið í forystu í baráttunni fyrir fijálsari við- skiptum í heiminum og ekki hikað við að láta hart mæta hörðu þegar svo ber við. Að undanförnu hafa bandarísk stjómvöld gagnrýnt Evrópusambandið harðlega fyrir linkind í samskiptum við ýmis ríki og sagt sem svo: Þið látið okkur vera í fremstu víglínu, bijóta múrinn og vera í hlutverki vonda mannsins. Þegar búið er að ná tilætl- uðum árangri komið þið, sem ekki hafið látið styggðaryrði falla í garð viðkomandi ríkis, og njótið góðs af árangrinum. Þetta kann vel að eiga við hvað til dæmis Kína varðar en Bandaríkin hafa síðastliðið ár sætt töluverðri gagnrýni Evrópuríkja vegna afstöðu þeirra í viðskiptasamning- um um þjónustuviðskipti. Aukinn skilningur á þjónustuvið- skiptum RISAVAXIÐ skref í átt að fijálsari við- skiptum í heiminum var tekið er sam- komulag náðist í Uruguay-lotu GATT-viðræðn- anna og með stofn- un Heimsviðskiptastofnunarinnar (WTO). Einn mikilvægasti árangur viðræðnanna var að í fyrsta skipti náðist almennt rammasamkomulag um þjónustuviðskipti (GATS) og slík viðskipti felld undir sömu almennu reglur og vöruviðskipti í GATT- samkomulaginu og þar með starfsemi WTO. Þetta er ekki síst mikilvægt í ljósi þeirra eðlisbreytinga er orðið hafa á hagkerfum iðnríkjanna á síðastliðnum áratugum. Auð- sköpun og hagvöxtur byggir ekki lengur á hefðbundinni framleiðslu öðru fremur heldur miklu frekar þjónustuviðskiptum af ýmsu tagi. í mörgum iðnríkjum er talið að þjónustuviðskipti standi nú bak við 60-80% vergrar þjóðarframleiðslu og at- vinnusköpunar. I Bandaríkjunum starfa nú átta af hveijum tíu við þjónustuvið- skipti. Fyrir tuttugu árum sjö af hveijum tíu. Þá verða langflest ný störf til innan þjónustugeirans. Svo aftur sé tekið dæmi af Bandaríkjunum þá urðu á síðasta ári til tæplega 1,7 milljónir nýrra starfa í þjón- ustugeiranum á sama tíma og framleiðslu- störfum fækkaði um tæplega 150 þúsund. Skilin milli þjónustu- og framleiðslu- starfa verða aftur á móti sífellt óskýrari, ekki síst vegna örrar tæknivæðingar og nýrrar tölvutækni. Fjölmargir starfsmenn í hefðbundnum framleiðslugreinum, svo sem bílaiðnaði eða framleiðslu heimilis- tækja, stunda í raun fyrst og fremst þjón- ustuviðskipti. Tækniframfarir og hagræð- ing gera að verkum að sífellt færri hendur þarf til við sjálfa framleiðsluna. Þessarar þróunar gætir einnig í íslensk- um frumatvinnugreinum, sjávarútvegi og landbúnaði. Sú alþjóðavæðing sem átt hefur sér stað í efnahagslífi heimsins síðustu ár hefur fyrst og fremst verið á sviði þjónustuvið- skipta. Fjármagns- og verðbréfamarkaðir tengjast í gegnum tölvunet. Pappírslaus viðskipti eru stunduð ríkja á milli. Hugbún- aður og aðrar upplýsingavörur flæða um heiminn óháð landamærum um ljósleiðara og gervihnetti. Forsenda þessa hefur verið aukið frelsi í þjónustuviðskiptum og forsenda þess að alþjóðlega upplýsingaþjóðfélagið verði að veruleika er að þjónustumarkaðir verði opnaðir í auknum mæli frá því sem nú er. Þróunin á vettvangi GATT Laugardagur 29. júní Morgunblaðið/Ásdís LANGT ER SÍÐAN fyrstu tilraunir til að ná almennu samkomulagi um þjónustuviðskipti hófust. Robert Strauss, þáverandi viðskiptafulltrúi Bandaríkjanna, gerði árangurslausa til- raun til að fá þjónustuviðskipti inn í Tókýó- lotu GATT-viðræðnanna á síðari hluta átt- unda áratugarins. Þótt hann hafi ekki haft erindi sem erfíði varð umræðan í kringum þetta kveikjan að miklu átaki hagsmunaaðila á sviði þjónustuviðskipta um allan heim. Á fyrri hluta níunda áratugarins fóru hjólin að snúast hraðar samhliða auknum skilningi á mikilvægi þessa geira. Þjón- ustuviðskipti voru hluti af fríverslunar- samningi Bandaríkjanna og ísrael árið 1985 og við upphaf Uruguay-lotunnar árið 1986 var samþykkt að þjónustuvið- skipti ættu að vera hluti af GÁTT. Innan Evrópusambandsins beindu menn einnig augunum að þjónustuviðskiptum í auknum mæli og þau voru snar þáttur í áformum um hinn innri markað er varð að veruleika árið 1993. Þetta hafði bein áhrif á okkur íslend- inga er við gerðumst aðilar að hinu Evr- ópska efnahagssvæði og fjórfrelsinu, fijálsu flæði vöru, fjármagns, vinnuafls og þjónustu. Aukið frelsi í t.d. trygginga- og bankaviðskiptum hér á landi má því ekki síst rekja til þessarar þróunar. í samkomulagi Bandaríkjanna, Kanada og Mexíkó um myndun fríverslunarsvæðis í Norður-Ameríku (NAFTA) voru víðtæk ákvæði um aukið frelsi þjónustuviðskipta. Eftir að samkomulag náðist um nýtt GATT-samkomulag var ákveðið að halda áfram viðræðum um tiltekin svið þjónustu- viðskipta. Má þar nefna fjármagnsvið- skipti, sjóflutninga og fjarskiptamál. Eru þessar viðræður í raun áfram hluti af Uruguay-lotunni og því ótengdar hug- myndum um viðræður á nýjum sviðum, t.d. varðandi samkeppnislöggjöf og um- hverfismál. Ríkisrekin einokunarfyrirtæki eru markaðsráðandi í flestum ríkjum í síma- og fjarskiptamálum og því nauðsynlegt að finna pólitíska lausn á því sviði. Hófust viðræður um víðtækan fjarskiptasamning í maí 1994 og var stefnt að því að ná samkomulagi fyrir 30. apríl á þessu ári. Á síðustu stundu tilkynntu hins vegar Banda- ríkjamenn að þeir teldu þau tilboð er fyrir lægju ófuflnægjandi. Voru tilboð Asíuríkja sérstaklega tilgreind í því sambandi en annaðhvort uppfylltu þau ekki kröfur Bandaríkjastjómar eða höfðu hreinlega ekki verið lögð fram. Bandaríkin hafa verið gagnrýnd harð- lega fyrir afstöðu sína í þessu máli og færð hafa verið sterk rök fyrir því að til- boð margra þróunarríkja hafi í raun verið ótrúlega hagstæð miðað við aðstæður. Nær ekkert þeirra hafi í hyggju landvinninga í fjarskiptamálum og því skiljanlegt að þau séu hikandi við að opna eigin markaði upp á gátt fyrir öflugri erlendri samkeppni. Þær röksemdir eiga þó ekki við um auðug ríki á borð við Singapore og Suður-Kóreu. Donald S. Abelson, aðalsamningamaður Bandarílq'astjómar í íjarskiptamálum, sagði í nýlegu viðtali við Morgunblaðið að heimurinn gæti misst af einstöku tækifæri ef ekki næðist samkomulag fyrir 15. febr- úar á næsta ári. Fjarskiptamarkaðurinn í heiminum velt- ir 513 milljörðum dollara á ári eða sem svarar um 34 þúsund milljörðum íslenskra króna, að mati WTO. Velta upplýsingaiðn- aðarins í heiminum er nær þrisvar sinnum meiri eða 1,3 milljarðar dollara á ári. Þarna er því um gífurlega hagsmuni að ræða. Abelson segir í viðtalinu að það væru ekki síst fyrirtæki í Asíu er hefðu mestan hag af auknu frelsi þó_ svo að þau reyni að sporna gegn því. „Ég held að það sé útbreitt viðhorf hjá ríkisstjórnum þessara landa að þær telja sig geta komist upp með að gera minna en aðrir. Þetta eru mjög verndaðir markaðir. Ástæða þess að þeir geta fylgt þessari stefnu er að þetta eru sveigjanlegir markaðir og þeir hafa þegar þá fjárfestingu, sem þeir telja æski- lega, án þess að skuldbinda sig gagnvart öðrum ríkjum,“ segir Abelson. Það er athyglisvert að það var einnig afstaða Asíuríkja er kom í veg fyrir að samkomulag næðist um fjármagnsvið- skiptasamning en þeim viðræðum hefur verið frestað fram á næsta ár. Fjármagns- markaðir þessara ríkja eru í mörgum tilvik- um mjög lokaðir fyrir erlendri samkeppni og er Japan líklega besta dæmið þar um. Þetta kann að þjóna hagsmunum peninga- stofnana en ekki fyrirtækjum og einstakl- ingum er hafa þar með ekki aðgang að hagkvæmustu eða fullkomnustu kostunum hveiju sinni. Að mati Alþjóðabankans verða Asíuríki á næsta áratug að fjárfesta í samgöngumannvirkjum fyrir um 1,5 milljarða dollara og verður þorri þess fjár- magns að koma úr bankakerfinu en ekki alþjóðlegum lánastofnunum á borð við Alþjóðabankann. Það ætti því ekki síst að vera hagur Asíuríkja að eiga aðgang að sem hagkvæmustu fjármagni. Einnig hefur gengið erfiðlega að ná niðurstöðu í samningaviðræðum um sjó- flutninga og hættu Bandaríkjamenn þátt- töku í viðræðunum í maímánuði. í raun er það því tregða Bandaríkjastjórnar, hvort sem hana má réttlæta eður ei, sem komið hefur í veg fyrir árangur í öllum helstu þáttum GATS-viðræðnanna. Horfttil framtíðar VON MARGRA ER sú að auðveldara muni reynast að ná samkomulagi í GATS-viðræðunum á næsta ári þegar forsetakosningarnar í Bandaríkjunum eru yfirstaðnar. En sú staðreynd að erfiðlega hefur gengið að ljúka þeim samningaviðræðum, er hér hafa verið raktar, hefur hins vegar vakið upp spurningar um hvort æskilegt sé að hefja nýja umfangsmikla viðræðu- lotu í anda Uruguay-lotunnar. Þeirri skoðun hefur m.a. verið varpað fram af Leon Brittan, sem fer með við- skiptamál innan framkvæmdastjórnar Evr- ópusambandsins, en hann hefur hvatt til að ný viðræðulota verði hafin árið 1999. Niðurstaða í þeim viðræðum gæti legið fyrir árið 2010. Sumir vilja hins vegar horfa lengra fram á veginn og hafa til að mynda Ian Lang, viðskiptaráðherra Bret- lands, og Renato Ruggiero, framkvæmda- stjóri WTO, lagt til að stefnt verði að því að koma á frjálsum heimsviðskiptum árið 2020. Það væri æskileg „framtíðarsýn til lengri tíma“, svo notuð séu orð Lang í ræðu er hann hélt hjá bresk-ameríska verslunarráðinu í London í aprílmánuði. Á sama tíma vara menn við því að ekki megi einblína það mikið á háleit framtíðar- markmið að menn missi sjónir af umfangs- minni, en engu síður brýnum verkefnum á viðskiptasviðinu. Aðildarríki samtaka ríkja í Asíu og Kyrrahafí hafa ákveðið að mynda svæðis- bundið fríverslunarsvæði fyrir árið 2020. Sú hætta er vissulega til staðar, líkt og m.a. Ruggiero hefur ítrekað bent á, að heimurinn muni á næstu áratugum skipt- ast í tvö til þijú viðskiptasvæði, bundin við ákveðnar heimsálfur, sem hvert fyrir sig hefði tilteknar reglur og innbyrðis frí- verslun en byggði á móti upp hindranir gagnvart ytri viðskiptum. Slíkt væri hættulegt, ekki síst fyrir smáríki á borð við ísland, sem háð er útflutningi og bygg- ir á mörkuðum í jafnt Evrópu, Bandaríkj- unum sem Asíu. „Þetta hafði bein áhrif á okkur Is- lendinga er við gerðumst aðilar að hinu Evrópska efnahagssvæði og fjórfrelsinu, frjálsu flæði vöru, fjármagns, vinnu- afls og þjónustu. Aukið frelsi í t.d. trygginga- og bankaviðskiptum hér á landi má því ekkisíst rekjatil þessarar þróun- ar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.