Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 18
18 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LÍFSKJÖR á Norðurlönd-
um hafa verið til umræðu
undanfarnar vikur eink-
um eftir að Þjóðhags-
stofnun sendi frá sér skýrslu þar
sem samanburður var gerður á
vinnustundum og launum íslend-
inga annars vegar og annarra
Norðurlandaþjóða, einkum Dana,
hins vegar. Niðurstöður hafa verið
ræddar, reiknaðar og túlkaðar og
sýnist sitt hverjum, en menn vita
þó í það minnsta hvar þjóðir
standa, svona tölfræðilega séð.
En kannski einmitt vegna þeirrar
vitneskju hafa aðrar spurningar
vaknað sem ekki verður svarað
með aðstoð reiknivélar. Hvernig
er til dæmis heimilislíflð hjá fjöl-
skyldum sem vinna minna en hafa
svipuð laun og oft hærri en íslend-
ingar? Hvað gera þessar fjölskyld-
ur í frítímanum? Geta þær leyft
sér meira en við? Ferðast þær
meira? Eiga þær fínni bíla? Fá
börnin gott uppeldi úr því að
vinnutími foreldranna er styttri en
Daglegt
brauðí
Danmörku
Lífskjör á Norðurlöndum
ínlítrinn kosti tæpar kr. 80.00 og
algengt verð á nýjum bíl, til dæm-
is litlum Golf, sé um 1,9 milljónir.
Matarreikningurinn er hins veg-
ar mjög viðráðanlegur. Fyrir fjög-
urra manna fjölskyldu eyða þau
um kr. 23.000 í mat á mánuði.
Þetta er svo lygilega lág upphæð
að ég yfírheyri þau margsinnis um
þennan þátt lífsins en fæ alltaf
sama svarið.
„Matur er mjög ódýr í Dan-
mörku,“ segir Gurli. „Við fórum
eitt sinn til Svíþjóðar og ég fékk
næstum taugaáfall þegar ég sá
verðið á matnum þar. En við förum
með svipað í mat og ættingjar okk-
ar og vinir. Ég geri stórinnkaup
einu sinni í viku og kaupi þá vörur
á tilboði ef ég sé þær. Inni í þess-
ari upphæð er líka bjór, en við
kaupum oft einn kassa á mánuði.“
Erik tekur undir orð konu sinnar
og ræðir með ánægju um danska
matinn sem hann segir að sé sá
allra besti á Norðurlöndum.
Við spjöllum aðeins nánar um
Morgunblaðið/Kristín Maija
FJÖLSKYLDAN í Hvidovre í Danmörku. Frá vinstri Erik, Gurli, Sarah og Casper.
|
»
í
»
I
c-
hér tíðkast? Hvað leggja þessar
fjölskyldur yfirleitt áherslu á þeg-
ar líf og störf eru annars vegar?
Til að fá svör við þessum spurn-
ingum og öðrum heimsótti ég fjöl-
skyldur í Danmörku, Noregi og
Svíþjóð. í flestum tilvikum, að
undanskildu einu, voru hjónin op-
inberir starfsmenn, á aldrinum frá
36 til 45 ára og áttu ýmist tvö
eða þrjú böm. Hér á eftir segir
frá heimsókn til dönsku fjölskyld-
unnar.
Vinnutíminn
í kyrrlátri götu í Hvidovre við
Kaupmannahöfn búa hjónin Gurli
Kristensen og Erik Lavridsen,
ásamt tveimur börnum sínum og
agnarsmáum hundi með mikið
skap. Gurli er 38 ára gömul og
starfsmaður hjá héraðsdómi, er
þar yfiraðstoðarmaður, og Erik
sem er þremur árum eldri, er
greiningartæknir og sér um við-
hald og viðgerðir hjá Mercedes
Benz umboðinu í Danmörku. Börn-
in eru bæði í skóla, sonurinn Casp-
er er 16 ára og dóttirin Sarah er
11 ára.
Fjölskyldan býr í nær fjörutíu
ára gömlu múrsteinshúsi, um 250
fm að stærð, sem þau hjónin
keyptu fyrir sex árum og hafa síð-
an stöðugt verið að endurbæta.
Bak við húsið er stór garður þar
sem meðal annars má finna kirsu-
berjatré, perutré og eplatré, og
má því fullyrða að ekki skortir
ávextina á þessu heimili. A flöt-
ínni við húsið er svo kaffið drukk-
Vinnutími Dana er styttri en íslendinga en endar virðast ná ágæt-
lega saman hjá þeim þótt engin sé yfírvinnan. Krístín Maija Bald-
ursdóttir kíkti á búreikninga hjá danskri fjölskyldu, fylgdist með
daglegu lífí þeirra og kannaði hvemig uppeldi og frítíma værí háttað.
HÚSIÐ keyptu þau hjónin fyrir sex árum og fer
frítíminn í að endurbæta það. Kaffi er svo drukk-
ið á flötinn eftir að vinnudegi lýkur.
ið úr dönsku mávastelli
þegar komið er heim úr
vinnunni, enda hafa Danir
alltaf kunnað að hafa það
huggulegt eins og menn
vita.
Erik vinnur 37 stundir
á viku, sem er full vinnu-
vika að hans sögn, og er
vaknaður klukkan hálf
fimm á hveijum morgni.
Þegar ég spyr hvort það
sé ekki þreytandi að
vakna svona um hánótt
segist hann ekkert finna
fyrir því á sumrin, en á
veturna í myrkrinu geti
það stundum verið erfitt.
„En ég vil hafa tíma fyrir
sjálfan mig á morgnana og finnst
gott að borða morgunmat í kyrrð
og næði,“ segir hann. „Ég ek 18
km til vinnu minnar og er mættur
tímanlega áður en vinnan hefst
kl. 7.15. Ég er síðan yfirleitt kom-
inn heim milli kl. fjögur og fimm
á daginn. Annan hvern mánudag
á ég svo frí.“
Gurli vinnur 27 tíma á viku, á
alltaf frí á mánudögum og fjórða
hvern þriðjudag. Hún fer á fætur
kl. korter í sjö og vinnur frá kl.
átta til hálf fimm á daginn.
Afkoman
Þau hjónin vinna aldrei yfir-
vinnu en fyrir dagvinnuna er Erik
með um kr. 271.000 íslenskar á
mánuði fyrir 37 tíma á viku og
Gurli er með kr. 148.000 fyrir 27
tíma. Þau segja þetta algeng laun
á dönskum vinnumarkaði.
En skattar eru háir í Dan-
mörku. „Við borgum 46%
af tekjunum í beina
skatta og 7% að auki til
vinnumarkaðarins," segir
Erik. „Ég fæ síðan frá-
drátt en Gurli engan og
eru því mánaðarlegar
ráðstöfunartekjur okkar
samtals um kr. 257.000.
Að auki fáum við greidd-
ar bamabætur l'jómm
sinnum á ári, samtals kr.
160.000.“
En í hvað skyldi nú
aurinn fara og hver er
dýrasti kostnaðarliður-
inn?
Gurli segir að það sé
tvímælalaust húsið. „Við
greiðum tæpar kr. 65.000 á mán-
uði í lán sem við tókum þegar við
keyptum húsið. Það lán er með 6%
vöxtum.“
Bifreiðakostnaður er líka hár og
segir Erik að þau hefðu alls ekki
getað eignast bílinn, sem er svartur
Benz árgerð ’88, ef hann hefði
ekki unnið hjá umboðinu. Hann
fræðir mig á því að það sé dýrt
að reka bíl í Danmörku því að við-
haldskostnaður sé mjög hár. Bens-
fjárhaginn og þau segjast engar
íjárhagsáætlanir gera og ekkert
heimilisbókhald færa. Bankinn sjái
um allar greiðslur fyrir þau og
ekki nóg með það, allan sparnað
líka. Þau segjast nú samt ekki
leggja neitt sérlega mikið fyrir.
„Við greiðum hvort um sig kr.
3.400 á mánuði í einkalífeyri. Frá
fæðingu barnanna hafa alltaf ver-
ið lagðar inn kr. 1.200 fyrir hvort
barn um sig, sem þau fá síðan
greitt þegar þau verða 21 árs
gömul. Auk þess leggjum við allt-
af inn á svonefndan fermingar-
reikning, frá fæðingu barnsins og
þar til það fermist kr. 400.00 á
mánuði.“
Niðurstöður þessarar fjármála-
umræðu eru svo þær, að oftast
eiga þau afgang af launum sínum
í íok hvers mánaðar, nema eftir
sumarfrí.
Þegar ég spyr þau í hvað þau
vilji nú helst eyða aurunum sínum
segjast þau helst vilja eyða þeim
í fríin. „I sumarfríunum eyðum við
peningum af mikilli ánægju.“
Daglegt líf
Þegar talið berst að hinni sívin-
sælu verkaskiptingu á heimilinu
segir Erik þreytulega að hann
geri allt. Gurli útskýrir að þetta
„allt“ sé að útbúa eigin morgun-
mat. Hún sjái alfarið um húshald-
ið. „Ég kaupi inn, elda, þríf, þvæ
og strauja, en allir setja í upp-
þvottavélina sem við keyptum fyr-
ir ári. Börnin sjá svo um að þrífa
herbergin sín.
f
€;