Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 51
KAPPAKSTUR
Vanræksla talin orsök
dauða Ayrton Senna
ÍTALSKUR saksóknari í Bo-
logna hefur mælst til þess að
Frank Williams, keppnisstjóri
Williams Formula 1 liðsins
verði dreginn fyrir rétt ásamt
sjö starfsmönnum liðs síns.
Astæðan er sú að talið er að
bilun í stýrisbúnaði, sem hafði
verið endurbættur af Will-
iams- liðinu skömmu fyrir
keppni á Imola á ítalfu hafi
valdið því að Senna ók útaf
og á vegg. Lést Senna þegar
hluti úr framhjólabúnaði slóst
í hjálm hans íkeppni á ítaliu
fyrirtveimurárum.
Bíll Senna fór útaf í beygju á
nær 300 km hraða og telur
ítölsk rannsóknarnefnd, sem skoð-
að hefur allar aðstæður og hefur
WRKKKHKKM keppnisbílinn
Gunnlaugur undir höndum í tvö
Rögnvaldsson ár að mistök hafi
skrífar verið gerð í endur-
bótum á bílnum. Soðin var fram-
lenging við stýrisstöng í bíl Senna
stuttu fyrir keppni og er talið að
suðan hafi gefið sig, með fyrr-
greindum afleiðingum. Maurizio
Passarini, sem er opinber saksókn-
ari, er einnig sagður vilja draga
rekstraraðila brautarinnar til saka
og verður tekin ákvörðun um rétt-
mæti óska hans af ítölskum dóm-
stólum á næstunni. Á sínum tíma
var talið að öryggisveggir við
brautina hefðu verið ófullnægjandi
og jafnvel hættulegir ökumönnum.
Rannsókn á þessu máli hefur stað-
ið yfir í meira en tvö ár, en Senna
lést 1. maí 1994. Daginn áður lést
Austurríkismaðurinn Rolang
Ratzenberger á sömu braut, þegar
vængur aftan á bíl hans þeyttist
af í tímatökum og bíllinn flaug
stjórnlaust útaf. Ástæður fyrir
dauða hans voru rannsakaðar, en
ekki var talið að um saknæma
vanrækslu viðhalds á bílnum hefði
verið að ræða. Ratzenberger var
góður vinur Senna og var beygur
í Senna eftir lát Ratzenberger, en
hann ákvað samt að keppa daginn
eftir, sem kostaði hann síðan lífið.
Enrico Lorenzini, prófessor í
verkfræði sem hafði með rannsókn
á stýrisbúnaðinum í bíl Senna að
gera taldi að viðbót við stýris-
stöngina hefði verið illa soðin á
hana. Fjölskylda Senna óskaði
strax eftir opinberri rannsókn á
orsökum slyssins, en hann lést af
áverkum sem hann hlaut þegar
hluti framhjólabúnaðar sem brotn-
aði við áreksturinn gekk í gegnum
öryggishjálm hans. Verði þetta
mál að dómsmáli og aðilar þess
fundnir sekir getur það varðað
allt að sjö ára fangelsi. Lögmaður
Williams hefur látið hafa það eftir
sér að möguleikar á því að menn-
irnir verði fundnir sekir séu engir.
Miklir peningalegir hagsmunir
gætu verið í húfi ef til dómsmáls
kemur og Willams-liðið verður
dæmt fyrir vanrækslu af opinber-
um dómstólum á Ítalíu. Slysið var
mikið áfall fyrir Frank Williams,
sem hafði lengi dreymt um að
hafa Senna í liði sínu.
Williams-liðið keppir á sunnudag
í franska Formula 1 kappakstrin-
um, en ökumenn þess, þeir Damon
Hill og Jaques Villenueve hafa
forystu í heimsmeistarakeppninni.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson
Sá öflugasti
KARTBILL Akureyringsins Auðuns Svavars Guðmundssonar
er nýjasti og öflugasti keppnisbílllnn. Hann leiddi síðustu
keppni, en var síðan ekið útúr brautinni af öðrum keppanda.
Kappakstur á Kríngluplaninu
Fyrsta kappaksturskeppnin fyrir
kartbfla í Reykjavík verður á
bílastæði Kringlunnar kl. 20.00 í
kvöld. Keppnin er liður í íslands-
mótinu í kart-kappakstri, en fyrsta
keppnin fór fram á Akureyri fyrir
nokkrum vikum. Gunnar Hákonar-
son, fyrrum vélsleðameistari vann
þá keppni og leiðir íslandsmótið.
Kartbílarnir sem keppt er á til
Islandsmeistaratitils eru mjög
öflugir og ná 100 km hraða á að-
eins fjórum sekúndum og 150 km
hámarkshraða. Eru eknar þrjár 15
mínútna umferðir á hlykkjóttri
braut, sem liggja mun um efri hæð
bílaplansins við verslunarmiðstöð
Kringlunnar. „Þetta er ótrúlega
erfið íþrótt, mun erfiðari en ég átti
von á. Það tekur gífurlega á líkam-
ann að hanga á stýrinu þennan tíma
og hröðunin er mikil“, sagði Gunnar
Hákonarson í samtali við Morgun-
blaðið. „Ég hef trú á að kart-kapp-
akstur verði vinsæll hérlendis, en
íjögur mót gilda til íslandsmeistara
og þrjú þeirra verða á Akureyri.
Erlendis er kart-kappakstur grunn-
ur að öðrum akstursíþróttum og
jafnvel þeir sem keppa í Formula
1, halda snerpunni við með því að
aka kartbílum. Ég hætfi í vélsleða:
sportinu og ætla að keppa í þessu,
því ökumenn fá mikla útrás fyrir
lítinn pening og litla fyrirhöfn",
sagði Gunnar.
i
Kaupmannahöfn
Einstakt
tækif æri
Vegna sérstakra samninga við
PepsiCo Nordic og Bryggerigruppen A/S (FAXE ÖL),
gefst áhugasömum fjárfestum nú kostur á að eignast
veitingastaði í Kaupmannahöfn
(mjög góðar staðsetningar).
Veitingastaðirnir fást afhentir strax gegn lágri útborgun.
Útborgun og rekstrarfé í upphafi er einungis á bilinu frá
4-7 milljónir. Allur annar kostnaður greiðist á 10 árum.
Væntanlegir rekstraraðilar ganga inn í afsláttar- og
auglýsingasamninga við PepsiCo Nordic og
Bryggerigruppen A/S, jafnframt verður veitt fullkomin
aðstoð við áætlanagerð, samskipti við birgja, opinbera
aðila, mannaráðningar og allt annað er viðkemur
stofnun og rekstri fyrirtækja í Danmörku.
Veitingastaðirnir verða hluti af Pizza 67
veitingastaðakeðju í Danmörku.
Hver veitingastaður mun þjóna í heimsendingu svæðum
með um 100.000 - 200.000 íbúum.
Öll gögn og upplýsingar veitir
Vinsamlegast bókið tíma fyrirfram á mánudaginn frá kl. 10.00 - 12.00 í síma 588 3330
n
ÁSGEIRÁ, RAGNARSSON HDL,
LÖGMBNN
BRYGGERIGRUPPEN A/S