Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 13
nöktum ungum stúlkum. Onaruto
segir algengt að súmó-kappar nýti
sér þjónustu vændiskvenna og
kann skýringin á þessu að vera sú
að þeim er gert að búa við aðstæð-
ur sem á sínum tíma hefðu þótt
hæfa Spartverjum. Glímumennirn-
ir halda til í „hesthúsum" og þar
inn mega konur ekki stíga fæti
sínum. Gamlar hefðir eru enn í
heiðri haldnar í súmó-heiminum
og sjálfsagt þykir að yngri menn
séu í hlutverki þjóna fyrir eldri
kappa. Þeir sendast fýrir þá, svara
í símann og hjálpa þeim við að
þrífa sig og klæðast, sem verður
sífellt erfiðara eftir því sem kílóun-
um fjölgar og glímukappinn tekur
á sig þá bolta-mynd er fylgir þess-
ari gömlu íþrótt.
Enn skelfilegri þykja þær full-
yrðingar Onarutos að japanska
mafían, yakuza, sé helsti fjár-
mögnunaraðili íþróttarinnar. í bók-
inni segir að margir glímumenn
umgangist glæpaforingja og noti
þá til að komast með leynd í sam-
band við vændiskonur. Þá hjálpi
mafíuforingjarnir glímumönnun-
um að „þvo“ peninga. Þetta geri
hinir glæpahneigðu með gleði í
sinni þar sem þeir stjórni ólöglegri
veðmálastarfsemi í tengslum við
glímuna og því komi sér vel fyrir
þá að vita um úrslit þeirra viður-
eigna sem þegar sé búið að semja
um.
Ahugamenn umn súmó hefur
raunar lengi grunað hið síðast-
nefnda. Það þykir með ólíkindum
hversu oft glímumenn sem unnið
hafa sjö viðureignir og tapað öðr-
um sjö vinna þá síðustu á 15
keppnisdegi og komast þannig hjá
því að lækka í „tign“ og þar með
í launum.
Onaruto segir algengt að glímu-
kappar fallist á að tapa viðureign-
um sínum gegn gegn 350-700.000
króna greiðslu. Kveðst hann sjálfur
hafa verið í hlutverki milligöngu-
manns er tveir af þekktustu glímu-
mönnum Japana komust á toppinn
með svikum. Hann segir og að
stjórnendur glímusamtakanna geti
ekkert við þessu gert vegna þess
að þeir hafi sjálfir tekið þátt í þessu
athæfi þegar þeir voru yngri.
Súmó-sambandið segir að full-
yrðingar þessar séu bæði lygar og
þvættingur og hafa nú þegar farið
í mál við vikublað eitt sem birt
hefur fjölda grein um svik og sið-
„ Vörubíllinn “ fer hamförum
GLÍMUKAPPINN Konishki (t.v.), sem gengur undir nafninu „vörubíllinn" ,beitir þunga sínum til að
þvinga andstæðinginn út úr hringnum. Konishki er um 250 kíló og þyngstur japanskra súmó-glímumanna.
leysi í súmó-heiminum. Hið sama
hafa þeir gert gagnvart útgefend-
um bókar Onarutos. Asakanirnar
séu ekki síst alvarlegar þar sem
Japanskeisari fylgist stundum með
súmó-viðureignum.
Afturhvarf til Tokugawa?
Það þykir ganga bijálsemi næst
að gagnrýna þá sem stunda þessa
helgu iðju í Japan. Þeirra bíður í
besta falli útskúfun og þeir geta
ekki gert sér vonir að vera boðnir
í veislur á borð við þá sem haldin
var er Konishiki, sem vegur ijórð-
ung úr tonni og er þyngsti glímu-
kappi sögunnar, gekk að eiga fyrir-
sætu sem sagt er að losi 50 kíló.
Þetta var einn stærsti fréttaat-
burðurinn í Japan árið 1992 og
hamfarir Konishkis við veisluborð-
ið þar sem hann skóflaði upp í sig
öllu matarkyns og rúmlega það
þóttu sýna að hann hygðist ekki
missa einbeitinguna þótt hans biði
sæla hjónabandsins.
Sú regla gildir innan súmó-sam-
bandsins að glímumenn mega ekki
tala við fjölmiðla nema að sam-
bandið hafi veitt blessun sína. Af
þessum sökum eru ýmsir japanskir
fjölmiðlar teknir að hvetja erlenda
blaðamenn til að fjalla sérstaklega
um spillinguna á þessu sviði þjóð-
lífsins í Japan.
Margir óttast að súmó-glíman
eigi sér tæpast viðreisnar von og
að hættan sé sú að fólk taki að
líta hana sömu augum og sviðsettu
fangbrögð þau (Wrestling) sem
löngum hafa notið vinsælda alþýðu
manna í vesturheimi. Þykir mörg-
um það skelfileg tilhugsun ef þess-
arar göfugu íþróttar bíður þetta
hlutskipti en súmó-glímu er fyrst
getið á spjöldum sögunnar um 100
árum fyrir Krist.
Þá drap Sukume, næstum því
þriggja metra risi, andstæðing sinn
með öflugu rifjasparki. Verðlaunin
voru allar eigur hins fallna and-
stæðings. Árið 858 var ákveðið
með súmó-glímu hver taka skyldi
við keisaraembættinu.
íþróttin hefur að sönnu gengið
í gegnum erfiðleikatímabil áður. Á
Tokugawa-tímabilinu þótti ris
hennar einna lægst en þá var als-
iða að akfeitar og stórvaxnar kon-
ur lumbruðu á blindum karlmönn-
um. Von unnenda súmó-glímunnar
er nú sú að svipað niðurlæging-
arskeið sé ekki í vændum.
SARAH Netanyahu er jafnan við hlið eiginmannsins við opinber tækifæri. Hér ræða ísraelsku forsætisráðherrahjónin, fyrir miðju,
við Warren Christopher, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Ehud Olmert, borgarsljóra Jerúsalem.
ævarandi ást sinni. Sarah Net-
anyahu er alger andstæða Soniu
Peres, eiginkonu fyrrverandi
forsætisráðherra, sem hefur
ævinlega gætt þess að halda sig
fjarri sviðsljósinu á löngum
sljórnmálaferli manns síns. Fæst-
ir ísraelar myndu þekkja frú
Peres í sjón. Hún gerði innkaup
án þess að lífverðir væru með í
för og á kosningadaginn síðasta,
fór hún ein á kjörstað. Núver-
andi forsætisráðherrafrú hætti
hins vegar við að veita skírteini
um meistaragráðu í sálfræði
móttöku fyrir skemmstu, til að
lífverðir hennar myndu ekki
trufla útskriftarathöfnina.
Sarah Netanyahu þykir glað-
leg, jafnvel stelpuleg. Hún kynnt-
ist manni sínum er hún var flug-
freyja en hann aðstoðarutanrik-
isráðherra. Þau giftu sig
skömmu eftir að hún varð þung-
uð af fyrsta barni þeirra. Net-
anyahu-hjónin hafa verið
óhrædd við að sýna synina en sú
ákvörðun að gera fjölskyldulífið
opinbert á þennan hátt, kann að
koma þeim illa. Ekki er til dæm-
is langt síðan fjölmiðlar fóru að
spyija hvers vegar dóttir Net-
anyahus af fyrra hjónabandi hef-
ur ekki sést á sama tíma og hálf-
bræðrum hennar er stöðugt
hampað. Er hætt við að sé fjöl-
skyldulífið gert opinbert á sama
hátt og í Bandarikjunum, muni
verði það til þess að fjölskyldu-
leyndarmálin verði það einnig.
Byggt á The Daily Telegraph.