Morgunblaðið - 30.06.1996, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
HELGI Sveinbjörnsson og Björg Ólafsdóttir í bæjardyrunum með soninn Egil Óla.
HVOLPARNIR eru elskir að krökkunum. Til að þreyta þá ekki
fær þessi brátt nýtt heimili, en aðrir nýir koma í staðinn.
ALLIR hafa sitt einbýlishús með einkalóð.
-
EFTIR hádegið fara bílamir
að streyma upp afleggj-
arann að Garðyrkjustöð-
inni Slakka og út hoppa
fjölskyldur með krakka. Varla geta
þau verið að skoða gúrkur og tóm-
ata í gróðurhúsunum hjá hjónunum
Helga Sveinbjörnssyni og Björgu
Ólafsdóttur. Enda reynist það rétt.
Við gróðurhúsin hafa þau komið
upp dýragarði og vegna góðra und-
irtekta í fyrrasumar stækkað hann
og fjárfest í rúmgóðum bílastæðum.
í dýragarðinum er nú allt fullt
af ungviði af ýmsum tegundum.
Hvert dýr hefur sitt hús, snotran
svartan burstabæ með hvítum
gluggakörmum og blómakassa
undir með lifandi blómum. Allt ein-
staklega snyrtilegt. Ekki virðast
þó allir kjósa einbýli, því kettling-
amir vilja hvergi annars staðar
vera en hjá litlu lömbunum. Skríða
inn til þeirra og hjúfra sig að þeim
á nóttunni. Þarna em dvergkanín-
ur, sem em að þiggja brauð hjá
krökkunum og stórar og feitar
þýskar kanínur. í næsta nábýli við
þær gargar hvítur fallegur
kakadú-páfagaukur, sá eini sem
lætur verulega í sér heyra. Nag-
grísir koma út í búrið sitt og úr
næsta húsi andarangar. Þeim er
ekki hleypt út úr búrinu vegna
kattanna, sem ganga lausir. Tví-
lembingarnir eru nokkurra daga
gamlir en þó sýnilega vanir að
krakkarnir klappi þeim og jafnvel
gefi þeim. Þarna gefur líka að líta
kálf og grísi. Islensk marglit
hænsni vappa um garðinn. Dröfn-
ótt hæna og skrautlegur hani, sem
er nýr og galar ekki bara á morgn-
ana heldur reigir hann kambinn
og lætur í sér heyra uppi á einum
bæjarmæninum þegar honum sýn-
ist. Hanarnir tveir eiga það til að
slást, enda sýnilega ekki enn búnir
að skifta með sér hænuhópnum.
Geitin er tjóðrað og leikur hlutverk
sláttuvélar. Hún klippir snyrtilega
grasið á torfgarðinum í kring og
er færð til svo að hún geti tekið
fyrir hvern blettinn af öðrum.
Kannski garðeigendur í höfuðborg-
inni ættu að fá sér geit til að létta
sér sláttustörfin? Í einu húsinu býr
nýr krummaungi, sem gapir og
gargar þegar hann sér hreyfingu
og heimtar sinn mat og engar reíj-
ar, alveg sama hvort það er
mamma eða Helgi sem stingur upp
í hann. Enn er þó beðið eftir yrð-
lingum.
Hvolparnir gera mikla lukku hjá
Dýrinbúa
í burstabæ
Morgunblaðið/Golli
GEITIN gegnir hlutverki sláttuvélar, klippir grasið á grasgarðinum í kring,
blett eftir blett þegar hún er færð til. I baksýn sjást burstabæir dýranna.
Austur í Laugarási í Biskupstungum gefur
að líta ungviði af mörgum tegundum.
Þar hafa garðyrkjubændumir Helgí Svein-
bjömsson og Björg Olafsdóttir komið upp
dýragarði, þar sem hvert dýr á sinn bæ
og böm á öllum aldri mega skoða og klappa,
jafnvel taka sum í fangið. Elín Pálma-
dóttir skoðaði garðinn einn daginn með
hinum krökkunum.
krökkunum, sem fá að halda á
þeim. Helgi segir mér að þeim
verði brátt skipt út fyrir nýja.
Ekki vilji þau leggja of mikið á
sömu dýrin, en ekki hefur reynst
erfitt að koma út öllum hvolpum
og kettlingum á góð heimili. Marg-
ir búnir að leggja drög að því að
fá ákveðið dýr eftir að hafa kynnst
þeim þarna. Eins er ekki opið nema
frá 1-6 til að álagið verði ekki of
mikið og dýrin fái um fijálst höfuð
að strjúka meiri hluta sólarhrings-
ins.
Úr sjónvarpinu í sveitina
Við setjumst niður í kaffistof-
unni með Helga og Björgu, sem
ÞAÐ ER mikið ævintýri
að fá að gefa litlu lömbunum
mjólk úr pela.
Helgi segir þau
hafa fundið að
vantaði svona
dýragarð. Bæði
fyrir fólk sem er að
aka um sveitir og
sumarbústaða-
fólkið, sem er
þarna alla vikuna
en með lítið fyrir
börnin að gera.
líka eru með nýtt afkvæmi, tveggja
mánaða gamlan einkasoninn Egil
Óla.
Þau hjónin opnuðu dýragarðinn
í fyrra til reynslu og hafa nú lagt
mikið í að stækka hann og bæta
aðgengi með stóru bílastæði, vel
aðgreindu frá garðinum með torf-
garði og stóram tijám. Sögðu að
rútur hefðu í fyrra kvartað undan
því að komast ekki alveg að garðin-
um. Þau höfðu ekki átt von á svo
snöggum viðbrögðum.
Kaffistofan er í fallegum
tveggja stafna burstabæ, þar sem
foreldrar geta fengið sér kaffi
meðan krakkarnir taka sinn tíma
með dýrunum. Helgi sagði að þau