Morgunblaðið - 10.07.1996, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 10. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Harður
árekstur í
Hvalfirði
TVEIR bílar lentu í hörðum
árekstri við þjónustumiðstöð-
ina Þyril í Hvalfirði um átta-
leytið í fyrrakvöld og lærbrotn-
aði níu ára stúlka við árekstur-
inn. Sjö manns voru í bílunum.
Annar bíllinn beygði að versl-
uninni og ók í veg fyrir bíl sem
kom á móti. Bílarnir eru ónýt-
ir og beita þurfti klippum til
þess að ná fólkinu út. Hjón
voru í öðrum bílnum og þrjár
konur og tvö börn í hinum,
níu ára stúlka og rúmlega eins
árs barn.
Að sögn Siguijóns Vilbergs-
sonar, læknis, sem tók á móti
fólkinu á Sjúkrahúsi Akraness
björguðu beltin miklu og var
mikil mildi að ekki fór verr.
Unga stúlkan var sú eina sem
var eingöngu með þverbelti og
varð hún verst úti í árekstrin-
um. Hún lærbrotnaði og hlaut
aðra rr}inni áverka. Hún var
send í sjúkrabíl til Reykjavíkur
á barnadeild Sjúkrahúss
Reykjavíkur. Þrír aðrir sem
lentu í árekstrinum voru lagð-
ir inn í fyrrinótt á sjúkrahúsið.
Þyrla sækir
hestamann
TF-SIF, þyrla Landhelgis-
gæslunnar, sótti veikan hesta-
mann rétt fyrir miðnætti á
mánudagskvöld neðarlega við
Þrengslin. Samkvæmt upplýs-
ingum stjómstöðvar Land-
helgisgæslunnar var þyrlan
notuð vegna þess að ekki var
hægt að koma öðrum farar-
tækjum að. Að sögn Sigur-
geirs Kjartanssonar, læknis,
sem tók á móti manninum á
Sjúkrahúsi Reykjavíkur þegar
komið var með hann, er hann
í rannsókn og mun vera á
batavegi.
Maðurinn var í útreiðartúr
með hópi manna í Þrengslum
þegar hann veiktist skyndi-
lega.
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Sveinn Ingi Svavarsson
Norrænt sam-
starf á sjó
SKIPVERJAR á varðskipinu Ægi og danska
varðskipinu Triton héldu reykköfunar- og
björgunaræfingu í liðinni viku.
Skipin hittust um fimmtán sjómílur suður
af Þorlákshöfn, en Triton var á leið til Græn-
lands frá Færeyjum, með viðkomu í Reykja-
vík. A myndinni hér til vinstri sést hvar
Ægir siglir upp að síðunni í Triton, en að
ofan er línu kastað frá Ægi yfir á Triton.
Meðal þess sem var æft var einmitt að taka
skip í tog.
Jörð Lögreglufélagsins í Hvammsvík í Kjós
Borgin býður ekki betur
HVORKI Hitaveita Reykjavíkur
né Reykjavíkurborg hyggjast gera
Lögreglufélaginu betra tilboð í
Hvammsvík í Kjós, en það sem
borist hefur frá einstaklingi, segir
í svari borgarráðsfulltrúa Reykja-
víkurlistans við fyrirspurn frá
borgarráðsfulltrúum Sjálfstæðis-
flokksins
í fyrirspurn fulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins kemur fram að nýlega
hafi einkaaðili lagt fram kauptilboð
í jörðina Hvammsvík, sem er í eigu
Lögreglufélagsins. Tilboðinu hafi
verið hafnað, meðal annars á þeim
forsendum að betra tilboð væri
væntanlegt. í því sambandi hafi
nafn Hitaveitu Reykjavíkur og
Reykjavíkurborgar verið nefnt og
er óskað eftir upplýsingum um
hvort borgin hyggist gera tilboð í
umrædda jörð.
I svari borgarfulltrúa Reykjavík-
urlistans ségir að Lögreglufélagið
hafi í mörg ár reynt að selja jörð-
ina og meðal annars rætt við
stjórnendur Hitaveitu Reykjavíkur,
enda eigi Hitaveitan jarðhitarétt-
indi á jörðinni. Engin áform séu
uppi um að Hitaveitan eða borgin
ætli að gera félaginu betra tilboð
en nýlega hafi borist frá einstakl-
ingi. Leiti hins vegar Lögreglufé-
lagið eftir viðræðum við borgaryf-
irvöld muni þau að sjálfsögðu
íhuga slíka beiðni.
Götu- og torgsala
Hæsta
tilboði
tekið
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
reglur um götu- og torgsölu í mið-
borg Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir
að leyfið verði veitt á tilgreindum
stöðum í borginni og það auglýst
og hæsta tilboði tekið.
Gert er ráð fyrir að reglurnar
nái til götusala, söluturna, færan-
legra vagna og útimarkaða. Lagt
er til að Þróunarfélagi Reykjavíkur
verði falin umsjón með götusölu og
að tekjur af leyfum renni til félags-
ins. Félaginu verður falið að aug-
lýsa eftir tilboðum og leggja fram
tillögu til Innkaupastofnunar um
úthlutun. Fram kemur að núverandi
leyfishöfum hafi verið tilkynnt
formlega að leyfi þeirra renni út
1. september 1996 og að þau verði
ekki endurnýjuð. Jafnframt hefur
verið óskað eftir að þeir selji ekki
samskonar vöru og seld er í þeim
verslunum sem næst þeim liggja.
Þrír söluturnar
Þá segir að reglur um söluturna
verði óbreyttar frá því sem nú er
en gert er ráð fyrir þremur slíkum
sölustöðum í samþykkt borgarráðs.
Um færanlega vagna segir að sam-
kvæmt samþykkt borgarráðs er um
fimm staði að ræða fyrir þá í mið-
borginni og er lagt til að samið
verði við Þróunarfélagið um að aug-
lýsa þá í samræmi við samþykkt-
ina. Gert er ráð fyrir að Þróunarfé-
lagið leggi fram tillögu til Inn-
kaupastofnunar varðandi úthlutun
en félagið fá leigutekjurnar. Ef um
nætursölu er að ræða miðast gjald-
taka við gildandi reglur um nætur-
söluleyfi, sem rennur í borgarsjóð.
Loks segir að borgarskipulag leggi
fram tillögu um gerð og út-lit sölu-
vagna fyrir skipulagsnefnd og Þró-
unarfélagið fyrir 1. júlí 1996.
Um útimarkaði segir að óskað
verði eftir frekari tillögum frá borg-
arskipulagi og Þróunarfélaginu
varðandi rekstur þeirra og skipulag
á sölustarfsemi.
Samkeppnisstofnun gerir athugasemdir við auglýsingar á ensku á strætisvögnum
Auglýsingar skulu
vera á íslensku
Morgunblaðið/Ásdís
AUGLÝSINGAR á ensku sjást nú á hliðum strætisvagna.
STRÆTISVAGNAR á höfuðborg-
arsvæðinu aka nú márgir hverjir
um með auglýsingar á ensku á hlið-
unum. Birting þessara auglýsinga
brýtur gegn 22. grein samkeppnis-
laga, þar sem stendur að auglýsing-
ar sem höfða eigi til íslenskra neyt-
enda skuli vera á íslenskri tungu.
Auglýsingarnar sem vagnar SVR
hafa ekið um með að undanförnu
eru fyrir ilmvatn frá Calvin Klein
og á vögnum Hagvagna er auglýst
kvikmynd sem Sambíóin munu taka
til sýninga á næstunni.
„Það stendur skýrum stöfum í
samkeppnislögunum að auglýsing-
ar ætlaðar íslenskum neytendum
eigi að vera á íslensku, þannig að
þessar auglýsingar eru augljóst brot
á þeim lögum,“ segir Sólveig Ólafs-
dóttir hjá Sambandi íslenskra aug-
lýsingastofa.
Samkeppnisstofnun gerir
athugasemd
Það er Samkeppnisstofnun sem
á að sjá til þess að samkeppnislög-
unum sé framfylgt. Siguijón Heið-
arsson, lögfræðingur hjá stofnun-
inni, segist hafa sent bréf til David
Pitt hf. sem flytur inn umrætt ilm-
vatn. I bréfinu, sem er dagsett 28.
júní síðastliðinn, er vakin athygli á
fyrstu málsgrein fyrrnefndrar 22.
greinar samkeppnislaga. Þeim til-
mælum er beint til fyrirtækisins að
auglýsingunum verði breytt í sam-
ræmi við þetta ákvæði og ef það
hafí athugasemdir fram að færa,
sé óskað eftir því að þær verði
sendar stofnuninni innan tíu daga.
Siguijón segist enn ekki hafa feng-
ið svar frá David Pitt hf. og reikn-
ar með að málið fari fyrir auglýs-
inganefnd Samkeppnisráðs, sem
síðan myndi gera tillögur um fram-
haldið.
Hvað auglýsinguna frá Sambíó-
unum varðar, segir Sigurjón að
Samkeppnisstofnun hafi ekki enn
tekið beina afstöðu, en kannski
væri ástæða til að skoða hana í
framhaldi af hinu málinu.
Alfreð Árnason, markaðsstjóri
Sambíóanna, segir að bíóauglýsing-
in umrædda á vögnum Hagvagna
hafi komið frá framleiðanda mynd-
arinnar í Bandaríkjunum. Það sé
dýrt að prenta auglýsingaborðana
hér á landi og því hafi þeir banda-
rísku verið notaðir. Hins vegar sé
sjálfsagt að þýða auglýsingar sem
prentaðar eru hér.
David Pitt segist ekki hafa áttað
sig á alvöru málsins fyrr en hann
fékk ábendinguna frá Samkeppnis-
stofnun. Hann segir það ekki hafa
verið viljandi gert að bijóta gegn
samkeppnislögunum, auglýsingin
hafí komið hingað tilbúin beint frá
framleiðandanum í New York og sé
hluti af herferð sem sé í gangi á
vegum Calvins Klein um allan heim.
Auglýsingin framleidd
erlendis
Þórhallur Guðlaugsson, forstöðu-
maður markaðs- og þróunarsviðs
Strætisvagna Reykjavíkur, segir að
SVR hafí í raun ekki beina stjórn
á því hvaða auglýsingar séu birtar
á vögnunum. Það hafi hins vegar
Eureka hf., sem leigi fletina til
tveggja ára í senn til birtingar aug-
lýsinga. „Við getum í sjálfu sér
ákaflega lítið gert nema byrsta
okkur við þá hjá Eureka - og það
höfum við raunar gert,“ segir Þór-
hallur.
Júlíus Þorfinnsson, fram-
kvæmdastjóri Eureka, segist ekki
vilja víkja sér undan ábyrgð en fyr-
irtæki hans hafi ekki komið að
þessu máli á framleiðslustiginu. „í
þessu tilfelli er Eureka eingöngu
söluaðili birtingarinnar á auglýsing-
unni. Við tókum við pöntun frá fyr-
irtækinu, sem er umboðsaðili fyrir
þessa tilteknu vöru, og höfðum í
raun enga vitneskju um hvað ætti
að auglýsa. Síðan er auglýsingin
framleidd erlendis og við sjáum
hana ekki fyrr en hún birtist á vögn-
unum, rétt eins og hver annar,“
segir Júlíus og kveðst taka undir
það sjónarmið að betur hefði farið
á því að auglýsingatextinn hefði
verið á íslensku.
„Ég held sem betur fer að þetta
sé mjög sjaldgæf undantekning og
ég vonast til að það verði engin
eftirmál af þessu. Okkur hafa enn
engar athugasemdir borist frá Sam-
keppnisstofnun og það hefur heldur
ekki komið fram krafa um að aug-
lýsingarnar verði teknar niður áður
en samningurinn rennur út á föstu-
daginn,“ segir Júlíus.