Morgunblaðið - 13.07.1996, Qupperneq 4
4 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
íbúi við Miklubraut segir hávaða og mengun hafa valdið sér alvarlegu heilsutjóni
Eg vil hafa svefnfrið
og njóta hvíldar
Guðlaugur Lárusson,
íbúi við Miklubraut 13,
segir að hávaði og
mengun við heimili sitt
hafi valdið sér alvarlegu
heilsutjóni. Hann notar
svefntöflur á kvöldin, en
að undanförnu hefur
hann farið út fyrir borg-
ina og sofið þar í hús-
bíl. Hann segist krefjast
þess að sér verði skap-
aðar aðstæður til að
sofa á nóttunni og hvíl-
ast á heimili sínu. Egill
Olafsson ræddi við
Guðlaug.
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
UM 50.000 bílar fara um Miklubraut á sólarhring, en svefnherbergi Guðlaugs er í um 10 metra
fjarlægð frá götunni.
„ÞAÐ eina sem ég fer fram á er
að njóta friðhelgi á heimili mínu.
Ég vil hafa svefnfrið og njóta
hvíldar með fjölskyldu minni á
heimilinu,“ segir Guðlaugur Lár-
usson, íbúi á Miklubraut 13, en
hann hefur í fimm ár barist fyrir
því að gripið verði til aðgerða til
að draga úr umferðarhávaða og
mengun við Miklubraut. Hann
hefur átt við langvarandi heilsu-
leysi að stríða síðustu misseri, sem
hann rekur til umferðarinnar. I
gær fékk Guðlaugur þær fréttir
að hann væri að öllum líkindum
með sortuæxli á líkamanum. Hann
segist íhuga að krefjast bóta af
borgaryfírvöldum.
Guðlaugur býr við Miklubraut
13, og svefnherbergi hans er í 10
metra fjarlægð frá götu sem um
50.000 bílar fara um á hveijum
sólarhring. Mælingar á hávaða,
sem gerðar hafa verið
við húsvegg hjá honum,
leiða í ljós að meðalhá-
vaði þar er 78 db.
Reglugerð um hávaða-
mörk frá árinu 1994
kveður á um að ekki
megi skipuleggja ný hverfi þar
sem hávaði er meiri en 55 db, en
sú tala gefur til kynna hver eru
æskileg hávaðamörk. Hávaði tvö-
faldast við hver 3 db og þess vegna
er hávaðinn við Miklubraut 13
margfalt meiri en æskilegt er talið.
Veikindi afleiðing
eiturmengunar
Guðlaugur sagði afar þreytandi
að búa við þennan hávaða og í
rauninni væri ástandið óþolandi.
Fjölskyldan svæfi ekki á nóttunni
nema með því að taka sterkar
svefntöflur. Og nú væri heilsan
að bila. Guðlaugur hefur þrisvar
sinnum fengið kransæðastíflu frá
áramótum. Sár hafa greinst í
meltingarfærum og öndunarfær-
um, sem læknar segja að séu til
komin vegna utanaðkomandi
baktería.
„Reiðarslagið kom hins vegar í
dag [í gær]. Eg tók eftir því fyrir
nokkrum vikum þegar ég var^að
raka mig að ég var kominn með
kýli á hálsinum. Læknar, sem ég
var hjá í dag, telja líklegt að þetta
séu sortuæxli. Það á að taka sýni
á þriðjudag og þá kemur í ljós
hversu alvarlegt þetta er. Ég er
sjálfur ekki í neinum vafa um að
þetta er afleiðing þeirrar eitur-
mengunar sem ég hef búið við iíjj
mörg ár. Það er verið að líflátk
mig,“ sagði Guðlaugur.
Neytir svefnlyfja á hverju
kvöldi
Guðlaugur sagðist hafa tekið
ákvörðun um að loka fyrirtæki
sínu. Ástæðan væri bæði heilsu-
Ieysið og einnig afleiðingar lang-
varandi neyslu svefnlyfja og ver-
kjalyfja, en neyslan leyddi til sljói
leika og vanlíðunar.
„Sérfræðingurinn minn segir að
ég sé ekki fær um að
vinna eins og ég er^ á
mig kominn og þéss
vegna verð ég að ló;ka
fyrirtækinu frá og með
næstu mánaðamótujn. |
Ég er ekki fær umfeðj
vinna, m.a. vegna þess að ég nef
þurft að taka óhóflega mikið af
svefntöflum og diazepam. Ég er
nýlega farinn að taka sterkari
svefntöflur vegna þess að ég vakn-
aði upp um miðjar nætur þrátt
fyrir að hafa tekið svefnlyf áður
en ég fór að sofa.“
Yfirvöld verða að taka
afleiðingunum
Guðlaugur sagði brýnt fyrir sig
að fá hvíld til að safna kröftum
og ná heilsu á ný. Þá hvíld fengi
hann ekki á heimilinu og þess
vegna hefði hann innréttað húsbíl,
sem þau hjónin hefðu nokkrum
sinnum sofíð í fyrir utan borgar-
mörkin. Hann sagðist gera ráð
fyrir að nota bílinn meira á næst-
unni.
„Ef þessir sjúkdómar, sem borg-
aryfírvöld og yfírvöld vegamála
valda, leiða mig í gröfína á næstu
vikum mun ég skilja eftir gögn
og kröfu um að þau sjái um fjár-
hagslega afkomu konu minnar.
Ef þeir lífláta mig verða yfirvöld
að taka afleiðingunum," sagði
Guðlaugur.
Hraði of mikill og viðhaldi
ekki sinnt
Hugmyndir hafa verið uppi um
að byggja göng undir Miklubraut-
ina til að draga úr hávaða frá
umferð. Eins hefur verið rætt um
að byggja vegg til að draga úr
hávaða þar sem hann er mestur.
Báðar þessar lausnir kosta mikið
fé. Guðlaugur sagðist ekki vera
að gera kröfu um byggingu jarð-
ganga.
„Borgaryfirvöld hafa dregið
lappirnar í þessu máli og borið
fyrir sig fjárskort. Það ér hægt
að laga þetta án þess að kosta
eyri til. Eina sem þarf að gera er
að fara eftir þeim lögum
og reglum sem eru í
landinu. Ef ákveðinn
væri 45 kílómetra há-
marks hraði og eðlilegt
viðhald væri á götunum
væri þetta vandamál úr
sögunni eins og það er í dag.
Stór þáttur í að magna upp
þennan hávaða er að það hefur
ekki verið gert við götuna í þijú
ár. Það eru komin 10 cm hjólför
í hana og hún er gróf eins og
malarvegur. Við húsið mitt er að
brotna upp úr malbikinu og það
er ekki lagfært. Hávaðinn magn-
ast við þetta.
Ég hef ekki farið fram á að
yfirvöld reisi einhver mannvirki
við Miklubraut. Þau geta eytt pen-
ingunum í brú yfír Gilsfjörð og
göng undir Hvalfjörð fyrir mér.
Eg óska bara eftir að farið verði
að lögum og hámarkshraði á þeirri
hraðbraut sem ég bý við verði
lækkaður.“
Ákvæði umferðarlaga um
hámarkshraða brotin
í 37. gr. umferðarlaga frá árinu
1987 segir orðrétt: „í þéttbýli má
ökuhraði ekki vera meiri en 50
km á klst.“ í 23. gr. lögreglusam-
þykktar Reykjavíkur segir hins
vegar að á Miklubraut austan
Kringlumýrarbrautar skuli vera
60 km hámarkshraði.
Guðlaugur sagði að í viðræðum
sínum við lögreglustjórann í
Reykjavík hefði komið fram að
þegar lögreglusamþykkt Reykja-
víkur var samþykkt hefði gatna-
málastjórinn í Reykjavík sent lög-
reglustjóra bréf um. að engin
hraðatakmörk mætti setja á
Miklubraut frá Kringlumýri að
Snorrabraut. Lögreglustjóri hefði
þess vegna sagt sér að hann hefði
enga heimild til að lækka há-
markshraða á þessum kafla.
Guðlaugur hefur gengið á milli
embætta með kvartanir sínar án
þess að það hafi skilað sýnilegum
árangri. Hann hefur rætt við borg-
arverkfræðing, borgarritara,
borgarskipulag, lög-
reglustjórann í Reykja-
vík, sent erindi til
borgarráðs og umferð-
arnefndar borgarinnar
og nú síðast kærði hann
málið til umboðsmanns
Alþingis. Umboðsmaður gat ekki
tekið við málinu þar sem það upp-
fyllti ekki skilyrði sem sett eru um
afskipti umboðsmanns af málum.
Útilokað að selja
Guðlaugur sagði að mengun frá
umferð við götuna væri mikil. Hún
sæist best á náttúrunni sjálfri.
Gróður í garðinum við húsið væri
að veslast upp og tré dræpust á
hveiju ári. Fuglar væru hættir að
verpa í trén og í vor hefði hann
tekið eftir að flugur væru hættar
að sjást í glugga.
Guðlaugur sagði að sá kostur
væri auðvitað fyrir hendi að flytja
burt, en það yrði ekki gert á ann-
an hátt en að fara og skilja eign-
ina eftir því enginn vildi kaupa
íbúð á svona stað. Hann sagði að
nágranni sinn hefði í langan tíma
reynt að selja íbúð sína á hálf-
virði, en án árangurs.
Ósamræmi í
reglum um há-
markshraða í
þéttbýli
Þarf að nota
sterkar
svefntöflur á
hverju kvöldi
Auglýsing
með börn-
um ekki
birt áfram
FREYR Jakobsson annar eig-
andi verslunarinnar Cosmo
segir gagnrýni, sem beinst
hefur að auglýsingu frá fyrir-
tækinu, en hún sýnir fáklædd
stúlkuböm, koma sér á óvart.
Notkun bama til að auglýsa föt
fyrir fullorðna þyki honum ekki
vera óeðlileg, en þar að auki
bjóði verslunin boli fyrir böm.
Freyr segir að auglýsingin
verði ekki birt áfram, enda sé
ekki ætlun verslunareigenda
að storka fólki á nokkurn hátt.
„Myndin er af íslenskum
tvíburum og hún var birt með
samþykki foreldra þeirra og
stúlknanna sjálfra. Við skiljum
ekki alveg að fólk geti séð eitt-
hvað klúrt í þessari mynd og
ef systkinakærleikur er litinn
þeim augum, eru málin orðin
eitthvað furðuleg að mínu
mati.“
Harmar að myndin veki
hneykslun
„Við höfum aldrei notað
mynd af þessu tagi áður, en
ég tel hana ósköp saklausa,
og mun sakleysislegri en til
dæmis auglýsing fyrir herra-
fataverslun sem birtist fyrir
skömmu og sýnir mynd af
naktri konu rifna í tvennt,"
segir hann.
Freyr segir að fólk hafí haft
samband við verslunina til að
lýsa yfir hneykslun sinni á
þeim sem lesi eitthvað klám-
fengið eða óeðlilegt út úr aug-
lýsingunni.
„Við hefðum aldrei birt
þessa mynd ef við hefðum litið
á hana sem einhvers konar
klám, foreldrar stúlknanna eru
kunhingjafólk okkar og hug-
arfarið á bak við auglýsinguna
var gott. Okkur þykir hins
vegar afskaplega leiðinlegt
hafí auglýsingin farið svo mjög
fyrir bijóstið á fólki,“ segir
hann.
F3
XS Barði
Kópur
Bjargtangar
Hafís fyrir
VestQördum
ll.júlí 1996
Óvenju mik-
ill hafís
FLUGVÉL Landhelgisgæsl-
unnar, TF-SYN, fór í fyrradag
í eftirlits- og ískönnunarflug á
miðin úti fyrir Vestfjörðum og
Norðurlandi.
Hafís er nú óvenju mikill
vegna viðvarandi vestlægrar
áttar sem ríkt hefur að undan-
förnu. Búist er við að vindátt
breytist næstu daga og mun
ísinn þá væntanlega hörfa að
nýju.
Isröndin komst næst landi
23 sjómílur vestnorðvestur af
Rit. Hún mældist 26 sjómílur
norðvestur af Barða, 42 sjómíl-
ur norðvestur af Blakksnesi og
46 sjómílur norðnorðvestur af
Straumnesi.