Morgunblaðið - 13.07.1996, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 13. JÚLÍ 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Samþykkt ríkisstjórnarinnar
Og við hvorn forsetann viljið þér tala, herra minn?
Forsvarsmaður ráðningarþjónustu
Á ekki von á að laun
rjúki upp á næstunni
STAÐAN á vinnumarkaðnum er
betri í ár en hún var fyrir tveimur
til þremur árum síðan að mati
forsvarsmanna ráðningarfyrir-
tækja.
Guðný Harðardóttir, hjá STRÁ
Starfsráðningum ehf., kveðst hafa
orðið vör við að laun hafí hækkað
á seinustu mánuðum hjá ákveðn-
um sérhæfðum starfsstéttum,
einkum tölvunarfræðingum, kerf-
isfræðingum og viðskiptafræðing-
um með sérhæfða menntun eða
reynslu.
„Það er um talsverðar hækkan-
ir að ræða í einstökum starfsgrein-
um. Það er eftirspurn eftir fólki
innan tölvugeirans og þessa hreyf-
ingu má einnig sjá innan fjármála-
geirans. Ég hef hins vegar ekki
enn orðið vör við hækkanir í öðrum
almennum störfum," segir Guðný.
Ekki áhyggjur af
manneklu í haust
Að sögn hennar hefur atvinnu-
leysi farið minnkandi frá árunum
1993 og 1994 og fólk í atvinnu-
leit, sem er á skrá í dag, er ýmist
nýkomið úr námi eða er í starfi
en hefur jafnvel áhuga á að breyta
til. „Menn eru fúsari til að lítia í
kringum sig ef upp kæmu áhuga-
verðari störf en þeir eru í. Ég hef
engar áhyggjur af að það verði
mannekla í haust vegna þess að
það er mikið framboð á góðu fólki
í starfsleit. Það er meira framboð
af menntuðu fólki en var á árum
áður. Menntunin hefur aukist gíf-
urlega, störfin hafa breyst í takt
við það og kröfurnar um leið.
Vinnuveitendur gera aðrar kröfur
en þeir gerðu fyrir 1993,“ segir
Guðný.
Aðspurð kvaðst hún ekki eiga
von á að laun muni ijúka upp á
næstunni. „Þetta er spurning um
framboð og eftirspurn. Sú mennt-
un sem nýtist í fyrirtækjunum,
sérstaklega í einkafyrirtækjunum,
er eftirsóknarverð. Þar eru launin
hærri en þegar menntunin nýtist
ekki jafnvel,“ segir hún.
Kaupfélagið á Hvammstanga
Nýtt fláningskerfi
í sláturhúsið
Borgarráð
Borgin kaup-
ir hús sem
skemmdist í
bruna
BORGARRÁÐ Reykjavíkur hefur
samþykkt að kaupa Laugaveg 24b
að hluta fyrir rúma 4,1 milljón
króna.
í erindi borgarlögmanns til
borgarráðs kemur fram að í októ-
ber síðastliðnum hafí geymsluskúr
brunnið til grunna og íbúðarhús
að mestu við Laugaveg 24 b og að
gengið hafi verið frá kaupum á
íbúðarhúsinu sem hafí verið rifíð.
Fram kemur að samið hafí verið
við eiganda geymsluskúrsins, sem
búið hafí verið í til skamms tíma,
og þvottahússins um kaup á hans
eignarhluta og hlutdeild í lóð fyrir
rúmar 4 milljónir króna.
UNNIÐ er að uppsetningu nýrrar
fláningslínu í sláturhúsi Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga á Hvamms-
tanga. Er það gert vegna nýrra
krafna frá Evrópusambandinu.
Kostnaður er áætlaður 20 milljónir kr.
Að sögn Gunnars V. Sigurðssonar
kaupfélagsstjóra gerði nýr eftirlits-
maður frá Evrópusambandinu kröfur
um það síðastliðíð haust að gerðar
yrðu breytingar á fiáningslínu húss-
ins til að það gæti haldið útflutnings-
leyfí sínu. Hin tvö sláturhúsin sem
leyfí hafa til slátrunar á þennan
markað þurfa einnig að gera það
fyrir haustið. „Við lögðum töluvert
á okkur til að fá þetta leyfi og leggj-
um mikið upp úr því að halda því.
Ekki síst vegna heildarinnar því eng-
inn veit hvað okkar innleggjendur
þurfa að flytja mikið út,“ segir Gunn-
ar. I sláturhúsinu hefur einnig verið
slátrað fé fyrir sláturleyfishafa sem
ekki eiga sláturhús með útflutnings-
leyfi.
Vilja bæta kæliaðstöðu
Gera þarf breytingar alveg frá
fjárrétt að innanúrtöku. Tekin er upp
rafmagnsdeyðing og skrokkarnir
verða fláðir á krókum í stað bekkja.
Gunnar segir að félagið hafí einnig
hug á því að bæta kæliaðstöðu við
sláturhúsið. Yrði það gert með nýju
húsi og er áætlað að sú framkvæmd
kosti 7 milljónir kr. Það segir hann
að muni bæta aðstöðu félagsins til
að sinna útflutningi á fersku kjöti.
Hannar leikmynd Galdra-Lofts og Stone Free
Ahorfendur þurfa
að finna fyrir
j ar ðartilfinningu
AXEL Hallkell leik-
myndateiknari hef-
ur vakið athygli
upp á síðkastið fyrir hönn-
un sína. Hann gerði leik-
mynd fyrir óperuna Galdra
Loft sem sýnd var á Lista-
hátíð og á eftir henni hann-
aði hann leikmynd fyrir
leikritið Stone Free sem
sýnt er í Borgarleikhúsinu.
„Það var mjög gaman að
fást við svona ólík verkefni
hvert á eftir öðru. Tónlistin
og handrit verkanna stýra
því hvemig vinna mín þró-
ast. Tónlistin í Galdra- Lofti
gaf mér innblástur ásamt
því að það veitti mér ákveð-
ið frelsi að óperan er ekki
mjög _ bundin ákveðnum
tíma. í Stone Free aftur á
móti þurfti ég að laga mig
að ákveðnu tímabili sem er
Axel Hallkell
lóhannesson
hippatímabilið. Galdra-Loftur kom
mér fyrir sjónir sem dálítill rokk-
ari og það hafði líka áhrif á mótun
leikmyndarinnar.
- Hvernig hagar þú undirbún-
ingsvinnu fyrir verk þín?
„í Galdra-Lofti var tónlistin
ekki tilbúin til hlustunar þegar
ég byrjaði að vinna við leikmynd-
ina. I staðinn hlustaði ég á hana
leikna á píanó og fór í gegnum
handritið um leið. Fljótlega heyrði
ég tónleika þar sem söngvarnir
voru fluttir og þá kviknaði hug-
myndin að myndinni. í sviðsmynd
Galdra-Lofts Iagði ég áherslu á
að útfæra tilfinningar persón-
anna. Harka, kuldi, hiti og ástríð-
ur voru þar helstar. Sterkar and-
stæður með tilvísunum í íslenska
náttúru og síðan studdist ég við
haustið sem heildartilfinningu.
Stone Free gerist á rokkhátíð
í Norður-Englandi og er frekar
lítil og hallærisleg miðað við fræg-
ar og þekktar hátíðir. Sá tónn er
mjög sterkur í handritinu. Það er
talað mikið um gras í leikritinu
og því þurfa áhorfendur að fínna
fyrir einhverri jarðartilfinningu.
Eg bjó vel að því í undirbúningn-
um að þekkja til íslenskra útihá-
tíða en ég hef bæði sótt slíkar
hátíðir og spilað á þeim.
Forvinnan fyrir sýningar er oft
mest spennandi en þá er farið í
saumana á verkinu með öllum
aðstandendum og maður les sér
til og setur sig inn í andrúmsloft-
ið sem er verið að reyna
að ná fram.
- Vinnur þú í leik-
myndinni fram á síð-
asta dag?
„Það er æskilegast
að hún sé til 10 dögum fyrir frum-
sýningu. Það er óskastaðan fyrir
leikmyndateiknarann þó að það
sé allur gangur á því.“
- Hversu mikið frelsi getur
leikmyndateiknari leyft sér og
hvaða eiginleikum þarf hann að
búa yfir?
„Það fer auðvitað eftir hvaða
verk er verið að vinna en annars
ræðst það af því hvað maður þor-
ir að teygja sig langt. Ég er ekki
svo forfallinn að vera sífellt að
reyna á mörk þess leyfilega. þetta
fer mikið eftir leikstjórum og leik-
hús byggist mikið á samvinnu
þannig að það er alltaf valin sú
leið sem er ákveðin sameiginlega
í upphafi og með því verður mað-
ur að standa og falla. Teiknari
þarf að hafa gaman af samvinnu
og hann vinnur aldrei einn enda
myndi það ekki ganga upp og
yrði sjálfsagt einmanalegt. Maður
þarf að vera sveigjanlegur gagn-
► Axel Hallkell Jóhannesson
leikmyndateiknari er fæddur
31.1.1963. Hann er giftur Sig-
rúnu Eddu Björnsdóttur leik-
konu og þau eiga einn son,
Kormák Örn, sex ára. Axel út-
skrifaðist frá Myndlista- og
handíðaskóla íslands árið 1986
og starfaði í hljómsveitinni
Langi Seli og Skuggarnir frá
1986 til 1992. Þeir gáfu út þrjár
hljómplötur. Axel hefur starfað
sem lausráðinn leikmynda-
teiknari síðan árið 1992 og hef-
ur á þeim tíma hannað leik-
myndir fyrir Þjóðleikhúsið,
Borgarleikhúsið og Óperuna
meðal annars.
Tónlistin gef-
ur mér inn-
blástur
vart sjálfum sér því hugmyndir
geta alltaf breyst og ekki gengið
upp. Þá þarf maður að vera
snöggur að breyta og finna lausn-
ir.“
- Hvert var fyrsta verkefni
þitt og hvernig kynntist þú leik-
húsinu?
„Fyrsta verkefnið var Platonov
og Vanja frændi eftir Tsjekov í
Borgarleikhúsinu. Ég byijaði að
vinna í leikhúsi strax að loknu
myndlistarnámi og vann þá í
ýmsum tæknideildum. Ég kynnt-
ist baklandi leikhússins mjög vel,
byijaði á kústinum og vann mig
upp, og það var kannski besta
reynslan fyrir mig að kynnast
nákvæmlega hvernig
leikhús virkar. Eftir
fyrsta verkefnið er
þetta síðan allt tilvilj-
_____ 11HÚ ?
I Islensku mafíunni
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson notaði Axel meðal
annars bflhræ í myndina og dreifði
um sviðið. Hann segir að leikmynd
geti haft áhrif á leik leikaranna
á þann hátt að þeir leyfi sér oft
meira þegar hún er þannig úr
garði gerð að þeir þurfi ekki sí-
fellt að vera að passa sig á að
skemma hana ekki og geta hossað
sér á henni ef þurfa þykir.
- Áttu þér draumaverkefni.
Er eittvað sérstakt tímabil sem
höfðar meira til þín en annað?
„Draumaverkefnið er það sem
ég vinn að öllu leyti sjálfur. Skrifa,
leikstýri og hanna leikmynd en
hvort að af því verður einhvern-
tíma verður bara að koma í ljós.
Annars er ekkert sérstakt tímabil
sem ég er spenntastur fyrir.
Rokktímabilið er mjög skemmti-
legt og ég vann með það bæði í
Djöflaeyjunni og í Þreki og tárum.
Reynsla mín af því að leika rokk-